Lögberg - 14.11.1935, Side 4

Lögberg - 14.11.1935, Side 4
4 LÖGBBRG. FIMTUDAGINN 14. NÓVEMBER, 1935. Högberg Geflð út hvern firatudag af THE COLUMBIA PRESS EIMITED 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba. Utanáskrift ritstjórans: ED'TOR LÖGBERG, 605 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. Verd t3.00 urn drið—Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Liraited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba. PHONE 86 327 Skáldið af Guðs náð Tölublat) Lögberg’s þessa viku, er í raun ojí veru helgað aldarafmatli “skáldsins af gmðs náð,” séra Matthíasar Jochumssonar, æðsta prests íslenzku þjóðarinnar að fornu og nvju. Ætlum vér að slíkt mælist -alment vel fyrir, því svo djúp ítök á höfundurinn að þjóðsöng vorum, Ó, guð vors lands, hvarvetna í íslenzkum hjörtum og íslenzku vitundarlífi. En þó þjóðsöngurinn minni oss að sjálfsögðu tíðast á skáldjöfurinn, þá er þó vitanlega sagan hvergi nærri með því öll sögð; f jöldinn allur af ljóðum lians er stimplaður sömu hrifningu og hinum sama hjartahita; um mörg þeirra má með fullum rétti segja, að þau séu “svo djúp, svo djúp, sem líf í heilli þjóð.” Sakir ferðalaga og margvíslegra anna undanfarna daga, á ritstjóri þessa blaðs þess engan kost, að minnast stórskáldsins í rit- gerðarformi. Tillag hans í minningasjóðinn verður því ekki annað en þau fáu erindi, sem birt eru á öðrum stað liér í blaðinu. En úr því er meira >en bætt með þeim bráðsnjöllu og íturhugsuðu minningaskrifum, er fiutt voru á minningarhátíðinni síðastliðið mánudags- kvöld. Þegar Matthíasar er minst, flýgur hugur vor heim yfir hafið, með þá bæn hans undir væng, að: tslands þúsund ár verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á guðsríkis braut. Sérhvert Matthíasar minni, er jafnframt Islandsminni, því að hann og þjóðin eru eitt og hið sama. Héðan og þaðan i. Allir kannast við skáldkonuna Nellie Mc- Clung; eg man sérstaklega eftir henni þegar hún var hér á ferð 1915; hún kom til þess að leggja hönd á plóginn við það verk að koma frá völdum Roblin-stjórninni. Hún hafði samið stutt leikrit, þar sem þátttakendur voru ráðherrar stjórnarinnar og sjálf lék hún for- sætisráðherrann, Mr. Roblin. Þessi kona var hér á ferð nýlega, flutti ræður og las upp ljóð. Hún talaði um yfirvofandi vandræði og mintist á þá óhæfu að stjórnir Norðurálfunn- ar verja auði þjóðanna í herflota þegar fólkið sveltur. 1 þessu sambandi las hún eftirfar- andi vísu, sem hún mun hafa ort sjálf: “Frá himni Kristur liorfði klökkur niður og herskip taldi Norðurálfu stjórna; þar hungrað fólk um björg og miskunn biður: “Hér birtast'’ sagði hann: “þakkir krossins fórna. ’ ’ II. Nýlega dó fullorðin íslenzk kona á St. Boniface hospítalinu. Hún hét R. J. Davíðs- son og munu flestir Islendingar kannast við hana. Hún orti talsvert, og eru til eftir hana ýmsar góðar vísur. Eg sá hana hér um bil viku áður en lnin dó og var þá svo af benni dregið að ekki heyrðist til hennar nema með því að lúta alveg niður að henni: “ Viltu gera svo vel að skrifa fyrir mig tvær stökur,” sagði hún: “Eg gerði þær, þegar eg heyrði að Matthías Jochumsson væri látinn. Eg gerði þetta og vísurnar eru svona: “Þó Matthías sá horfinn heim og hætti því að ljóða, við gleymum aldrei óði þeim, sem orti skáldið góða. Öðru vísi en aðrir menn æfi sína bar hann: bæði guð og barn í senn, bróðir allra var hann.” Mér þvkir þessar vísur svo fallegar, sér- staklega sú síðari, að mér fanst þær eiga það skilið að birtast á prenti. Sig. Júl. Jóhannesson. Skáldið og maðurinn Matthías Jochumson (Ræða flutt á Matthíasar-hátíð Þjóðræknis- félagsins í Winnipeg, 11. nóvember 1935). Eftir prófessor dr. Richard Beck. “Þökk fyrir handslagið hlýja!” Með þeim orðum byrjar séra Matthías kvæði til athafnamannsins og drengskaparmannsins Ottó Wathne. Þau ummæli eiga framúrskar. andi vel við sjálfan liann. Hverjum þeim, sem kyntist honum persónulega, mun minnis- ’stætt óvenjulega fast og hlýtt handtak hans. Og hlýleikinn, sem streymdi úr mjúkum bjarnarhrammi lians, ]>egar hann lieilsaði eða kvaddi, var sömu ættar og heitur undir- stráumur vonhýrra og kærleiksríkra ljóða lians, sprottinn upp af bjartsýni hans og hjartahita. En kvæði hans eru löngum sem framrétt bróðurhönd, boðberi samúðar og sameiningar. Með þau og lífsstarf hans í huga, getum vér því sagt hiklaust og einum rómi: “Þökk fyrir handslagið hlýja!” En. það var fleira en framúrskarandi hlý- leikinn, sem gerði séra Matthías ógleyman- legan, öðrum mönnum fremur, hverjum, sem kyntist honum að nokkru ráði. Öll persóna hans studdi að því. Ljóslifandi stendur hann mér fyrir hugarsjónum: Mikilúðlegur og garpslegur; “goðum líkur ... að svip og vexti til að sjá,” eins og hann sagði um Snorra Sturluson; leiftur-snör augun undir háu og hvelfdu enni; yfirbragðið alt tigið og spak- legt. Að ytri ásýndum var hann því sannur sonur ættjarðar sinnar og vorrar, hins svip- mikla lands andstæðnanna í ríki nátúrunnar. 1 tilbót hafði hann “gengið í skóla breið- firskrar menningar á 19. öld, þar sem fult var af stórskornu og einkennilegu fólki, sem var eins og lifandi dæmi fomrar glæsimensku” (S. Nordal). Hann bar því ósvikið mót heima- lands síns og átthaga. Öllum, er sáu hann og ekki voru því sjóndaprari andlega, var það auðsætt, að hann var ekki neitt hversdagis- menni. Hann var eigi aðeins andlega skyldur íslenzkum fornskáldum og þjóðskörungum; hann minti mann engu miður á þá að líkam- legu atgjörvi. Bókmentaleg afrek séra Matthíasar voru einnig í fullu samræmi við stórbrotna persónu hans. Verða þau stórvirki hans, sem vitan- lega era misjöfn að gæðum og gildi, enn þá að- dáunarverðari, þegar litið er á lífskjör hans. Sigurbraut hans var alt í senn—hlykkjótt, g'rýtt og brött; nærri lá, meira að segja, að hann lenti á algerlega rangri hillu í lífinu. Þrítug'ur lýkur hann námi; verður síðan að hafa bókmentaiðju sína í hjáverkum frá tíma- frekum störfum og margskonar veraldar- vastri þangað til hann er hálfsjötugur. Fram- an af árum skullu auk þess á honum hvað eft- ir annað reiðarslög hinna þyngstu harma. Eigi létu þær raunir hann ósnortinn, jafn til- ■ finningaríkan mann, þó sorgin yfir ástvina- missinum yrði honum að dýrum perlum skáld- skapar líkt og Agli forðum. A séra Matt- liíasi sönnuðust orð sjálfs lians: “Guðs-manns líf er sjaldan happ né hrós, heldur tár og blóðug þyrni-rós.” Þrátt fyrir það, varð hann frjósamastur ís- lenzkra skálda að frumsömdum verkum og þýðingium. Ilefir hann því bersýnilega borið í brjósti brennandi þrá til andlegrar starf- semi. Ilitt viðurkendi séra Matthías sjálfur, enda má sjá þess merki í list hans og verkum, að hinar andvígu aðstæður, sem hann átti svo lengi við að stríða, drógu drjúgum úr þroska hans: “Þess geldur hnekkis mitt gáfnaskar, að gæfan ekki mér betri var.” I klökkum ljóðlýium talar liann um “týndu bragarblóm- in„” sem enginn bæti sér. Ekki er það þá heldur auðmetið, hve mikils íslenzkar bók- mentir fóru á mis við það, að þjóð vor hlynti eigi sem skyldi að afburða ljóðgáfu séra Matthíasar meðan hann var á bezta skeiði að aldursárum. Fjölhæfni hans í bókmentagerð var á borð við frjósemi hans. Hann markaði spor í menningarsögu þjóðar sinnar sem ritstjóri, ritgerða-höfundur, leikrita- og ljóðskáld. Rit- verk hans eru hvorutveggja í senn mikil að vöxtum og fjölbreytt að efni. Um sex ára skeið (1874-80) var hann rit- stjóri “Þjóðólfs” helzta stjórnmálablhðs ís- lands á þeirri tíð; síðar gaf hann út hálfs- mánaðarblaðið “Lýð”; og fram á efstu ár birtust stöðugt ritgehðir og styttri greinar eftir hann í íslenzkum blöðum og tímaritum. Yrðu slíkar ritsmíðar hans mikið safn og fjölskrúðugt, væru þær gefnar út í einni heild. Samtíðarmenn séra Matthíasar gerðu, marg- ir hverjir, lítið úr blaðamensku hans og hlut- deild hans í íslenzkum þjóðmálum; brugðu honum ósjaldan um stefnuleysi í þeim efnum. Eins og Þorsteinn ritstjóri Gísla- son, sem ítarlegast hefir ritaÖ um þessa hlið á starfi skáldsins, bendir á, var sá dómur hvergi nærri með öllu réttmætur eða á rökum bygður. Að þeirri niðurstöðu hlýtur hver sá að komast, er les blöð þau er séra Matthías var ritstjóri að, sæmilega gaumgætnega og hlutdrægnislaust. Þar kernur ótvírætt í ljós, eins og víðar í ritum hans, að hann var miklu fastari í rásinni í stjórnmála- skoðunum heldur en alment var lát_ ið í veðri vaka. Hitt er jafn-satt, eins og ýmsir hafa réttilega lagt á- herzlu á, að hann var lítill mála- fylgjumaður í blaðamensku sinni og þj óðmála-afskiftum, alt annað en bardagamaður á þeitn sviðum, og enginn flokksmaður. Hann var alt of frjálslyndur og víðsýnrt til þess, að láta f jötrast á flokksklafa, og líta á málin gegnum lituð gleraugu ein- hliða flokksfylgis. Sem blaðamað- ur, eigi siður en skáld, var hann “sættandi og samþýðandi,’’ þjóð- fræðari, er vildi “glæða heilbrigt og j hlutdrægnislaust almenningsálit, al- menna framfarastefnu i landinu, bygða á frjálslyndi, viti og réttvísi.” Auk aragrúa ritgerða og greina í : blöðum og timaritum, skrifaði séra I Matthias þrjár ferðasögur (Chi- cago-för mín, Frá Danmörku og j Ferð um fornar stöðvar) og æfisögu sína (Sögukaflar af sjálfum mér). Eru þær alfar einkar skemtilegar; stíllinn skáldlegur, með miklum f jör. sprettum, leiftrandi tilþrifum í máli og hugsun. Bréf hans — og gott er til þess að vita, að úrval þeirra er nú á uppsiglingu — eru með sama aðalsmarki ritsnildar hans og anda- giftar. Að bókmentagildi standa leikrit séra Matthíasar langt að baki beztu kvæðum hans; þó eru þau hvergi nærri ómerkileg i sögu íslenzkra sjónleikja; enda var hann einn af brautryðjendum þeirrar bókmenta- greinar með þjóð vorri. Fyrsta leikrit hans,* Skugga-Sveinn (Úti- legumennirnir), samið þegar hann var hálfþritugur, er að vonum hvergi nærri laust við smíðalýti, en ber jafnframt órækan vott um ríka dramatíska gáfu höfundarins. Þjóð- legur blær leiks þessa og söngvarnir prýðilegu, sem fléttað er inn í frá- sögnina, munu þó mest hafa stutt að því, að gera hann jafn framúrskar- andi vinsælan og raun er á orðin. En Skugga-Sveinn hefir leikinn ver- ið oftar en ioo sinnum austan hafs og vestan. Frá dramatísku sjónar- miði kveður þó óneitanlega meir að hinu sögulega leikriti séra Matthías_ ar, ”Jón Arason,” þó það sé engan veginn gallalaust. Hinn aldni bisk- up, einn af uppáhaldsmönnum skáldsins, er aðsópsmikill á leiksvið- inu eins og hann var í lifanda lífi; og fleiri persónur leiksins eru með ó- menguðum veruleikablæ. Margar at_ burðalýsingarnar eru einnig sannar og áhrifamiklar. Réttilega komst danskur bókmentafræðingur svo að orði um leikrit þetta: “Hvað sem öðru líður, þá má sjá, að hér hefir skáldeyra heyrt mannshjörtu slá” (Olaf Hansen). Ekki er heldur neinum blöðum um það að fletta, að ljóð séra Matthías- ar munu lengst halda minningu hans á lofti í huga þjóðar vorrar og bók- mentasögu hennar. Þau sýna oss glegst auðuga og fjölþætta skáld- gáfu hans, og manninn sjálfan. Ó- litil fjölbreytni er þar í efnisvali, meiri andstæður en maður á að venjast í ljóðum islenzkra skálda; hvað mest ber þó á tækifæriskvæð- unum. Hann hefir orkt sæg ættjarð- arljóða, hátíðakvæða og erfiljóða. Þau eru hvergi nærri öll, né heldur einstök þeirra, með sama snildar- bragði. Skáldfákur hans er stund- um brokkgengur, eða fælist með hann. Annars er það hreint ekkert undrunarefni, svo að eg breyti til um samlíkinguna, þó víðfeðm land- areign séra Matthíasar í ríki ljóð- listarinnar sé misjöfn að gróðri og fegurð, urðir og flög blasi við sjón. um milli fagurprúðra gróðurblett- anna. Hitt er þó miklu tíðar, og stórum ljúfara að minnast, að kvæði hans eru máttug, fögur og sérkennileg. Verður það einkum með sanni sagt um stórfeld söguljóð has, erfiljóð, minningarkvæði og ódauðlega sálma hans. Andagift hans, ímyndunar- auðlegð hans og fágæt orðsnild, njóta sín þar ágætlega. Sama máli gegnir um svipmikil náttúruljóð hans, eins og kvæðið “Skagafjörð- ur,” sem raunar er sögulegt að öðr- um þræði, eða hið regineflda kvæði “Hafísinn.” Arnsúgur er í flugnum og myndagnótt með afbrigðum í ljóðlínum sem þessum: “Hvaj er haf ið ? Alt er ísköld breiða, eins og draugar milli leiða standa gráir strókar hér og hvar. Eða hvað? er þar ei komin kirkja? Kynjamyndir! hér er létt að yrkja: hér eru leiði heillar veraldar. Hundrað þúsund kumbla kirkju- garður, kuldalegt er voðaríki þitt, hræðilegi heljararður! hrolli slær um brjóstið mitt.” , Hér sem annarsstaðar, sézt það ljóslega, að skáldinu lætur sérstak- lega vel, að mála myndir sinar í stór. um dráttum. Söm er andagiftin í kvæðum eins og “Leiðsla,” en þar, eigi síður en í mörgum sálmum hans, er það fegurðin og innileikinn, sem heilla hugann, fremur en kyngi- krafturinn. Dýrleg útsýn hlær við augum skáldsins, ef'horfir “sem örn yfir fold” af hátindum andans: “Eins og heilög guðs ritning lá hauður og sær, alt var himnesku gull-letri skráð, meðan dagstjarnan kvaddi svo dá- semdarskær eins og deyjandi guðs-sonar náð.” Mælska séra Matthiasar, hið fá- gæta vald hans á móðurtungu sinni, lýsir sér einnig kröftuglega í þessum og öðrum afbragðskvæðum hans, sem eru “hrynhendur listar og lífs. í höndum hans var íslenzkan “hundrað strengja harpa.” Og brag- list hans var engu- minni en orðsnild hans; hann er jafnvígur á gamla og nýja bragarháttu. Haftn hefir drukk_ ið svo djúpt af lindum íslenzkra fornkvæða og sagna, að málblær þeirra er runninn honum í merg og bein; engu skálda vorra hefir orð- gnótt þeirra legið léttara á tungu. Meistaralega og sérkennilega fellir hann saman nýtt og gamalt í orða- lagi og samlíkingum. Eigi er það þá nein tilviljun, að hann hefir sungið íslenzkri tungu hinn dýrasta lof- söng, sem henni hefir enn kveðinn verið, í kvæðinu alkunna til íslend- inga hérna megin hafsins. “Hvað er tungan?—Ætli enginn orðin tóm séu lífsins forði,— hún er list, sem logar af hreysti lifandi sál í greyptu stáli, andans form i mjúkum myndum, minnissaga farinna daga, flaumar lífs, i farveg komnir fleygrar aldar, er striki halda. Tungan geymir i tímans straumi trú og vonir landsins sona, dauðastunur og dýpstu raunir, darraðar-ljóð frá elztu þjóðum; heiftar-eim og ástar-bríma, örlaga-hljóm og refsidóma, land og stund í lifandi myndum ljóði vígðum — geymir í sjóði.” Og það var einmitt hin einstæða orðsnild og bragsnild skáldsins, sam. fara knýjandi þörf hans á, að veita öðrum hlutdeild í andlegum verð- mætum, sem gerðu hann að afburða þýðara. Flestum, ef eigi öllum fremur, hefir hann auðgað íslenzkar bókmentir að þýðingum á snildar- verkum heimsbókmentanna. Hann gekk á hólm við Shakespeare, Byron, Ibsen og Tegnér; og óx drjúgum af þeim fangbrögðum. Hreinasta snild er t. d. yfirleitt á þýðingu hans af Manfred. Hann lætur sér annast um, að reynast trúr hugsun og anda frumritsins, en er enginn bókstafsþræll; enda verður honum það stundum að fótakefli, að hann heggur ekki nógu nærri hinu upprunalega orðalagi. Á þá við, nær málslokum, að fara nokkrum orðum um hiná merkilegu persónu skáldsins og lífshorf hans. Björnstjerne Björnson komst eitt sinn svo að orði, að skáldin ættu að standa í samskonar sambandi við rit sín eins og bankarnir við seðla þá, sem þeir gefa út; nægur gull- forði yrði jafnan að vera til trygg- ingar i kjallaranum. Það var hverju orði sannara um séra Matthías. Heitt og mannúðarríkt hjarta slær jafnan að baki ljóða hans; þau eru þrungin lífsgleði og bjartsýni, óbif- anlegri trú á sigur hins sanna og góða, á tign og mátt mannsandans, mannást og bjargfastri guðstrú. Hann yrkir um “Dettifoss”: “Þó af þínum skalla þessi dynji sjár, finst mér meir, ef falla fáein ungbarns tár.” “Skáldið af náð! með fangið varma og víða,” kvað íslenzkur skáldbróðir séra Matthíasar um hann látinn. Ekki var það mælt út í bláinn; samúðarfaðmur hans náði langt út fyrir landsteina Islands. Hann var að vísu ramíslenzkur, en engu að síður sannur heimsborgari, sem vel hefði getað sagt með forn- skáldinu rómverska: “Ekkert mann. legt tel eg mér óviðkomandi.” Vel- ferð mannkynsins alls lá honum þungt á hjarta ; hamfarir heimsstyrj- aldarinnar skáru hann inn í hjarta- rætur, eins og fram kemur eftir- minnilega í minningarkvæði hans um Shakespeare (1916) : “Heyri Albion, heyri allir lýðir orð áttræðs manns frá Ultima Thúle— heyr þau Urðarorð að með ofríki aldregi vinnast hin æðstu gæði. Sú ein þjóð mun sigri hrósa, er bezt skilur sína beztu menn; allur ofstopi er auðnuleysi, því að rétt og satt skal ráða heimi. Heyr þú, heyr höfuðengill skálda: Sér þú eigi hið vitstola veraldarstríð ? Tak lúður þinn og lát hann gjalla ógnar-orði yfir æði þjóða! Blás hinar bölvuðu banavélar niður fyrir Niflheim og Nástrandir. Blás í brottu blóðs og tára syndaflóð fyr en sekkur fold. Blástu, blástu bruna heiftir blindra lýða brott af jörðu! Blástu, blástu bræðra sættir, vek úr álögum vitstola þjóðir!” Séra Matthías var frjálslyndið sjálft i trúmálum, en jafnframt eld- heitur trúmaður. Hnn sá morgun- roða eilífs dags á harma- og heljar- skýjurn jarðneskrar tilveru: “Það dagar, það dagar við dularhafsbrá og ómarnir berast mér æðri ströndum frá.” Og sú eilifðarvissa er einhver allra sterkasti strengurinn í lífsskoð- un hans og ljóðum, grunntónn f jöl_ margra þeirra. Eg átti því mikla láni að fagna að kynnast séra Matthíasi persónulega veturinn áður en hann dó; hann var þá nær hálf-níræður og bar að von- um nokkur ellimörk. En ógleyman- legt er mér það, hversu ungur hann var í anda og bjartsýnn; lífsfjörið geislaði af honum. Með lofsöng vorsins á vörum heilsaði hann sólar- laginu, því að hann var þess fullviss, að morgunsins væri eigi langt að bíða. + Borgið LÖGBERG!

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.