Lögberg - 09.01.1936, Side 1
PHONE 86 311
Seven Lines
lo<'
A’ ,**««
For
Better
Dry Cleaning
and Laundry
49. ARG-ANÖUR
> WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 9. JANÚAR, 1936
NÚMER 2
ENGIN LATALÆTI
má undravert kallast hve
sjaldan nafn Hon. John Bracken
sezt 1 blöðum utan vébanda Mani-
tobafylkis; nafns hans er aldrei get-
ið i sambandi viÖ samningsrof, fjár.
málalega óskapnaði eÖa synjun á
greiðslu réttmætra skulda. Enda
minnist niaður ekki nokkurrar þeirr-
ar Inggjafar frá fylkisþingi, er veikt
gæti að nokkru lánstraust Manitoba.
pær einu fréttir, sem þaÖan hafa
borist fjármálum fylkisins viÖvíkj-
aiuli, lúta annaÖhvort að nýjum
sparnaðarráðstöfunum, eða þ á inn-
leiöslu nýrra skatta, til þess að tekj-
ur og útgjöld standist á.
Mr. Lracken hefir auðsjáanlega
látiö sér hugarhaldnara um skyn-
sanilega iðju, en látalæti eða orð-
mælgi- Hann hefir leyst af hendi
aðdáanlegt verk með því að stýra
stjórnarfleytu sinni heilli til hafnar
um brim og boða kreppunnar. Og
þetta hefir hann gert öldungis há-
vaðalaust án nokkurs minsta auglýs-
ingaskrums. Ur blaðinu Financial
Post, Toronto.
gróðabrallsmaður
A friðartímum er sjaldan talað um
Sir Basil Zaharoff, en þegar fall-
byssurnar fara að drynja sinn
dauðasöng hljómar nafn hans aftur
á vörum manna, enda hefir það
stundum verið látið fjúka, að styrj.
aldir nutimans }jæru raunverulega
ekki sprottnar af hagsmunabaráttu
þjóðanna, heldur af hagsmunabar-
áttu einkfyrirtækja þessa illræmda
manns. Englendingar heiðruðu
Zaharoff með Sir-nafnbót á stríðs-
árunum, enda var hann forseti enska
vopnafirmans Vickers, og stærsti
hluthafi. Síðar eignaðist Zaharoff
meiri hluta vopnafirmans Schneider-
Creuzot, og réð hann þannig á stríðs-
árunum yfir svo að segja allri
vopnaframleiðslu bandaþjóðanna.
Þjóðverjar höfðu keypt drjúgum
vopn frá verksmiðjum' Zaharoffs'
fyrir striðið, og var þannig barist
með þeim á báðar hliðar.
Um uppruna og þjóðerni Basil
Zaharoff er litið kunnugt, hefir því
HON. J. G. GARDINER,
er virtist, einkunnarorð hveitsölu-
nefndarinnar gömlu í tið Mr. Mc-
Farlands og Mr. Bennetts.
Atkvæði féllu þannig, að Mr.
Gardiner hlaut 7,268, en Mr. Irvine
3,684. Er því meirihluti ráðgjafans
3,584. Mr. Gardiner vann glæsi-
legan persónusigur í aukakosningu
þessari, og Kingstjórnin maklega
traustsyfirlýsingu.
þó verið haldið fram að hann væri
af grískum ættum, en ekki þykir
það fullvist. Zaharoff er með allra
auðugustu mönnum veraldarinnar.
Auk vopnaverksmiðjanna á hann
dagblöð í Englandi og Frakklandi
og heil húsahverfi í París, og ekki
alls fyrir löngu keypti hann spila-
vítið í Monte Carlo.
i
—Og ennþá drynja fallbyssur Sir
Basil Zaharoff sinn dauðasöng. 1
þetta skifti er það suður i frum-
skógum Afríku.
STAKA
Ekki sá eg átökin byrja.
Ýmsir hafa verið að spyrja:
hvort veröld, sem að átti ekki eyra
eignast mundi (h)Ijóð til að heyra.
H. G.
ÚRSKURÐUR
IIÆSTARÉTTAR
Þau tíðindi hafa gerst, að hæsti-
réttur Bandaríkjanna hefir kveðið
upp úrskurð, er í sér felur ógilding
á meginþorra þeirrar umbótalög-
gjafar Roosevelt-stjórnarinnar, er
að landbúnaði lúta. Fullyrt er að
svipuð frumvörp verði samt sem
áður borin fram í þinginu einhvern
hinna næstu daga.
HJÓNA VfGSLUR
Arið sem leið var tala hjóna-
vigslna á öllu landinu' 731. —
“Meðal-mannf jöldi ársins, sam-
kvæmt prestamanntölunum í byrj-
un og lok ársins, hefir verið 114,055
(sem reyndar iflun vera heldur lægra
en hinn raunverulegi mannfjöldi).
Hafa þá komið 6.4 hjónavígslur á
hvert þúsund landsmanna og qr
það hærra hlutfall heldur en næstu
undanfarin ár svo sem sjá má á
eftirfarandi yfirliti.
Ar H jónavígslur
1916—20 ....... 594 6.5 af þús.
1920—25 .........571 5.9 af þús.
1926—30 .........691 6.6 af þús.
1931 .............680 6.2 af þús.
1932 ............678 6.1 af þús.
1933 ............696 6.2 áf þús.
1934 ....*......731 6.4 af þús.
Af hjónavígslum 1934 voru 122
borgaralegar hjónavígslur eða 16.7%
af öllum hjónavígslunum. Fer borg-
aralegum hjónavígslum fjölgandi
svo sem eftirfarandi yfirlit sýnir:
Ar
1916—20 (meðaltal)........4.1%
1921—25 ” ........7.7%
1926—30 ” ........7.9%
Kveðjur
Þig vér kveðjum gamli gestur,
gamla ár, oss skilur hér;
fram á unnir eilífðanna
öldur tímans skola þér.
Fyrir gisting fáu galztu,
fálmaðir víða skilnings sljór;
enn að vorum kjúkum klemmir
kreppudauðans þröngi skór.
Heill þér gestur, árið unga,
ertu sá er hrjáðir þrá?
Munt þú inn að bita og borði
bjóða þeim er sitja hjá?
Ivemur þú með frið í faðmi
fyrir þá er sótt er á?
Lyf í sár og ljós í myrkur
líkn til allra er meinin þjá?
Muntu verða seinna í sögu
sigurár í minnum geymt
fyrir alt, sem fortíðina
fagurlegast hefur dreymt?
Eða bregðast von 0g veita
víkingum og skálkum lið,
boða guðspjall bitvarganna
bræðralag og refagrið ?
Hvað sem ilt 0g gott þú gerir,
gestur vor þú skalt um stund
veðráttunnar veldissprota
veifa í þinni styrku mund.
Býta áttu skini og skuggum,
skifta niður sæld og kvöl;
deila jörðu, degi 0g nóttu
dauða og lífi tímaspöl.
Páll Guðmundsson.
RANDA RIKJAÞIN GIÐ
SETT
Á fimtudaginn þann 2. þ. m., var
þjóðþing Bandarikjanna sett. Flutti
forsetinn, Mr. Roosevelt, við það
tækifæri ræðu, sem mjög hefir ver-
ið á orði höfð síðustu dagana, vítt
um heim. Var hann svo harðorður
í garð ítalíu og Fascismans, að eigi
mun fyr hafa tekið verið jafn djúpt
i árinni. Krafðist forseti þess jafn-
framt, að þingið léti það vera sitt
fyrsta verk, að afgreiða nýtt frum-
varp um hlutleysi hinnar amerísku
þjóðar. I ræðu sinni gerði Mr.
Roosevelt ráð fyrir biljón dala
tekjuhalla á fjárlögum hins nýbyrj-
aða árs.
Gardiner kosinn með miklu afli
atkvœða í Assiniboia kjördœmi
Eins og fyr var getið hér í blaðinu, var afráðið, að hinn
nýi landbúnaðarráðherra Sambandsstjórnarinnar, Hon.
James G. Gardiner, skyldi leita kosningar í Assisiboia
kjördæminu í Saskatchewan.
Þess hafði verið vænst og það
•enda talið sjálfsagt, að Mr. Gar-
diner yrði kjörinn gagnsóknarlaust.
Þetta fór þó á annan veg, því um
elleftu stund bauð sig fram Mr.
William Irvine, er að þessu sinni
tjáði sig utanflokka, en naut þó
fylgis C.C.F. postulanna, Social
Credit áhangenda, og hver má vita
hverra annara. Þó náði nú samt
sem áður fylgi hans ekki lengra en
það, að mærri lét að hann tapaði
trytot;ingarfé sínu. Þyrlað var upp
allmiklu moldryki af Mr. Irvine og
fylgifiskum lians, út af skipun hinn.
ar nýju hveitisölunefndar undir for.
ustu James Murrays, og athöfnum
hennar viðvíkjandi hveitisölunni
yfirleitt; voru margar og lævíslegar
tilraunir til þess gerðar að reyna að
gera nefndina tortryggilega í augum
kjósenda; þær mishepnuðust þó all-
ar saman hrapallega, eins og raun
bar vitni urn í úrslitum þessarar
aukakosningar. Kjósendur aðhylt-
ust, góðu heilli, athafnir Mr. Mur-
rays, í staþ þess að biða og sjá hvað
setur, eins og verið höfðu, að því
Hörmulegur atburður
Islenzk hjón farast í eldsvoða í
Brown bygðinni í Manitoba,
ásamt 15 ára stúlku
Reiðarslag- hinna dýpstú
sorga, hefir skollið yfir liið fá-
menna, íslenzka mannfélag í
Brown jrósthéraðinu. Varð
þetta með þeim hætti, að eldur
kom upp á hinu veglega heimili
þeirra Árna bónda Ólafssonar,
þar í bygð og frú tsfoldar konu
hans, á mánudaginn 6. janúar,
er kostaði þau bæði lífið.
f bálinu fórst einnig Anna dótt-
ir þeirra, 15 ára að aldri. Þrjú
l>örn liinna látnu ágætishjóna,
Margrét 10 ára, Árni 12 ára,
og Sigurjón 16 ára, liggja á
sjúkrahúsi í Morden, all hart
leikin og éigi enn vitað hvernig
þeim muni reiða af, þó líkur
séu á sem stendur, um aftur-
bata tveggja þeirra að minsta
kosti. Kviknað hafði út frá
gaskönnu, er' borin hafði verið
inn í eldhúsið og skilin eftir í
námunda við eldavélina. Af-
takaveður var þenna morgun
og háðu eldar og ísar stranga
baráttu um líf þessarar prúðu
1931
1932 11.9%
1933 13-6%
1934
(Hagtíðindi).
Vísir, 13. des.
STÓR FLYÐRA
Eftir því sem Fishing News herm
ir kom enskur togari nýlega með
mjög stóra flyðru til Hull. Hún
hafði veiðst við norðurströnd Is-
lands. Lengdin var 365 cm., en
þyktin ca. 40 cm. og þunginn 266
kg. Hún var talin 25 sterlingspunda
virði, eða sem svarar rúmlega 550
kr. Til samanburðar má geta þess,
að árið 1912 kom á markaðinn í Hull
flyðra, sem var 272 kg. að þyngd,
en stærsta flyðra, sem sögur fara af
hefir veiðst við Noreg. Hún var
470 cm., en þó ekki nema 240 kg.
Stærsta flyðra, sem menn vita til að
veiðst hafi hér áður, vóg eitthvað
um 250 kg. (Hvalbak, 1905). Það
væri fróðlegt að vita eitthvað um
aldurinn á svona stórum flyðrum.
Aldur flyðrunnar er ákvarðaður
eftir kvörnunum, og er mjög erfitt
að lesa hann rétt þegar um mörg ár
er að ræða. Flyðrur, sem eru þetta
120—135 cm. á lengd, eru 13—14
vetra gamlar, en af því mætti giska
á, að aldur stóru flyðrunnar, sem
að framan er nefnd, hafi verið ef til
vill nokkrir tugir ára, en um það
verður ekkert vitað með vissu.
(Árni Friðriksson, i Ægi).
—Vísir 8. des.
Nýárskveðja
Tileinkað Mr. og Mrs. S. Loptson,
Bredenbury, Sask.
Skemstu daga skuggar lækka,
skýrist sjón við heimskautsbaug.
Glaðir sólargeislar hækka,
Grípa afli hverja taug.
Nýársóður hjörtun hitar,
Heill er árnað hverri sál.
Fögrum ljósum vona-vitar
Varpa yfir húm og tál.
Heill sé ykkur, hjónin snjöllu,
himinn styðji rausnarbú.
Drottins náð er alt í öllu,—
engan kól í þeirri trú.
Kristian Johnson.
og vinsælu, íslenzku fjölskyldu.
Sigurjón, sonur þeirra Ama
og Isfoldar, hljóp í ofboði
nokkuð á aðra mílu, til býlis
Gísla föðurbróður síns, til þess
að segja tíðindin, og verður
það til þrekvirkja talið eins og
til hagaði um veður og eins og
hann var á sig korpinn.
Árni heitinn. Ólafsson var
frekra 56 ára að aldri, en ísfold
kona hans rétt um fimtugt.
Voru, þau svo ástsæl í héraði,
að með fágætum verður talið,
enda samhent í öllu, er til um-
bóta og mannfélagsheilla mið-
aði. Tvær fullorðnar dætur
þeirra hjóna, Ragnheiður og
Florence, áttu heima liér í borg-
inni. Elzti sonurinn, Ólafur, er
kvæntur og búsettur í grend við
Brown.
Lögberg vottar eftirlifandi
meðlimum fjölskyldunnar, vin-
um hennar öllum og samsveit-
ungum, dýpri samúð, en orð fá
túíkað eða lýst.
Símað er frá Reykjavík á laugar-
daginn þann 28. desember síðastlið.
inn, að kviknað hafi út frá jólatré i
húsi einu í Keflavík, þar sem haldin
var jólatréssamkoma fyrir börn, og
að fjögur börn og tvær fullorðnar
stúlkur hafi brunnið til dauðs.
SIMFREGN
frá Alexandríu þann 8. þ. m., lætur
þess getið, að ítalir séu að senda
óvígan her til Benghazi, sem er að-
alhafnarbærinn í Libyu, sem ligg-
ur um 300 rnílur vestur af landa-
mærum Egyptalands.
Úr borg og bygð
Mr. Oddur H. Oddsson frá
Chicago, 111., kom til borgarinnar
síðastliðinn laugardag á leið til
Lundar, Man., þar sem fjölskylda
bans býr. Mr. Oddsson lét hið bezta
af ástandi manna á meðal syðra.
Mr. Skúli Sigfússon, þingmaður
St. George kjördæmis, var .staddur
í borginni siðastliðinn laugardag.
Mr. Jakob Helgason frá Dafoe,
Sask., sem dvalið hefir hér í borg-
inni síðan í haust, er nýlagður af
stað heim.
ÞESS BER AÐ GETA SEM
GERT ER
Mínar alúðar þakkir eiga línur
þessar að færa öllum þeim, er á einn
eða annan veg stuðluðu að þvi að eg
gæti leitað mér bótar við sjónleysi,
sem var að ágerast svo, að eg var
ekki fær til vinriu. Tóku sig þá frarn
nokkrir nágrannar mínir, og mun
hvatamaður þess hafa verið vinur
minn og nágranni B. Th. Hördal,
sem bar þann ávöxt að safnað var
$50 og mér þeir afhentir. Fór eg
svo á spítala og var skorinn upp á
auga af hinum velþekta landa vorum
Dr. Jóni Stefánssyni, sem nú er bú-
inn að hafa mig undir hendi í 2
mánuði, og hefir sýnt mér í öllu
'hina mestu ljúfmensku og ná-
kvæmrii. öllu þessu fólki við Otto
P.O. og Lundar, ásamt Dr. J. Stef-
ánssyni, þakka eg af hrærðu hjarta
alt sem það hefir fyrir mig gert, og
megi blessun Guðs fylgja verkum
þessa fólks i nútíð og framtíð.
Þá má ekki gleyma mínum góða
bróður, C. Anderson, sem vitjaði
mín á hverjum degi á spítalanum,
og tók mig heim til sín og hjúkraði
í tvær vikur af allri alúð. Blessi þig
drottinn, bróðir minn, og bæti hagi
þína og þinna, því hann einn er
máttugur og veit bezt hvað hentar.
Guð gefi öllum farsælt ár.
Stefán Arnason og fjölskylda.
Fimtán cent í vasanum
Eftir Stein Victor Goemcell.
Fimtán cent eg fel í vasa.
Frost er biturt, ókunn lönd.
ölkrús tóm er ein á borði.
örtóg mín eg ber í liönd.
Líkt og fuglinn frjáls á vængjum
framtíð mót þó glaður svíf.
Ósén lönd við liulinn himin
hilling birtir. Þettaerlíf!
Ivofi úti á eyðisléttu
innan frosinn, mitt er skjól.
Þar í vetrarkyrð og kulda
kvíðalaus eg held mín jól.
Einn í sorgum, einn í vonum
innra heyri eg gleði-óm;
ilminn bera að mæddum muna
minninganna fögur blóm.
Morgundagur margar raunir
muni færa, það eg skil.
þá er tíminn þeim að sinna;
þeirra í dag ei minnast vil.
Falli í hlut þinn heppni dagsins
hennar njót, með gleðibrag.
Morgundags ei skýin skulu
skyggja fyrir sól í dag.
Fimtán cent, eg fel í vasa.
Fult er hjartað gleði og yl.
Astmey brosir vfir hafið.
Ekki sorg í heimi til.
Bráðum jólabjöllur senda
bergmál gleði vítt, um lönd.
Senn mun jóla sæla og friður
sæti taka mér við hönd.
(Úr “Canadian Overtones”)
Þýtt af Hjálmari Gislasyni.
SORGIR