Lögberg - 27.01.1938, Qupperneq 3
LÖGBBRG, FIMTUDAGINN 27. JANÚAB 1938
3
Fórnir
i.
Er sem UrÖardóma
endurtaki saga,
nemi ómi eyra
undir leikni braga.
Rekist beggja rökum
rúnar skipulagsins,
forsendur að flestum
fyrirbrigðum dagsins.
Seiðast fram i sýnir
svipir mikilhæfis,
skeikandi að sköpum
skálmaldar og lævis.
Frásögn, lit og lögum
lýsir aldarhætti.
Ifregur segin saga
svarta, bjarta drætti.
Mannlífs “menethekel”
málrún huldur skráir,
en í þagnar eyður
andi rýninn spáir. .
Ómi annarleguim,
ymur harpa slegin
harmsöguna. Heimir
til hörpugullsins veginn.
Heimis sorgarsögu
sæmdarskil að gera,
finn eg mér utn megin
mál og efni vera.—
\regs- og vanda-minni,
vel eg torleið hina,
stikla stuðlaföllum
ttærri viðburðina.
II.
Fyrir lævi fallinn
F'áfnisbani sefur.
Hanaráð, sem búið
Buðladóttur hefur,
fyrstu ástuim föstnuð
fullhuganum honum
fylgir, heit að haldist,
heilluð, framlífs-vonum.
Peirra afspring, Áslaug
undan hefur rekið;
hana í fóstur hafði
Heimir kóngur tekið.—
Frainsýnn, vitur fóstri
fyrirsér og veit að
ættarlauknum unga,
eftir muni leitað.
Ilann, af hugulsemi
hörpu lætur gera,
nieiri leynd svo megi
meyna undan bera,
—gull og dýra gripi.—
Gerfi stafkarls klæddur
hefur för að heiman
Heinn'ir raunamæddur.
Yfir bygð og auðnir,
upp til norðurlanda,
Heimis fórna-ferli
fylgi eg i anda.
Gangan reynist gríða-
grönn, i þjálfi dagsins;
væsin nótt á víðá-
vangi ferðalagsins.
Aslaug hult í hörpu
harniar yfir þrengslum;
Heimir strýkur strengi
stilta ljósins tengslum.
innibyrgðu barni
birtir undra-heima,
'ærir söngvum, sorgum
sinum lætur gleyma.
~~Hndra-mætti orðsins
'ltlyggjur og sorgir
lúta, fangnar falla
* -rlr tónum borgir.
Sameint leitar-ljósi,
i'fstns vegu staíar;
iaga -naimí nemur
nótt úr veldi grafar—
III.
1 letnnr kotungs-kynna
kveður dyra, spyr um
gisting, fyrirgreiðslu_
Gegnir kona dyrum;
'heimilt, kvað ’ún, hér er
hús og næturgreiði
vegmóðum og vista-
vant, að Spangareyði.
Eins og umboðsmaður
innflutninga — á mála—
Gríma fyrir gesti
greiðir för í skála;
—gaum með leynd og gefur,—
greinir hnýsnu auga,
undir kotungs kufli
klæði góð og bauga.
X'æztum vegfaranda
vísar hún til náða.
Vænir ei né varast
NUGA-TONE STYRKIR
LIFFÆRIN
Séu líffæri yðar tömuð, eða þér kenn-
ið til elli, ættuð þér að fá yður NUGA-
TONE. pað hefir hjálpað mljónum
manna og kvenna í síðastliðin 45 ár.
NUGA-TONE er verulegur heilsu-
gjafi, er styrkir öll líffærin.
Alt lasburða fólk ætti að nota NUGA-
TONE. Fæst í lyfjabúðum; varist stæl-
ingar. Kaupið ekta NUGA-TONE.
Notið UGA-SOL við stýílu. petta
úrvals hægðalyf. 50c.
vélar illra dáða.
Óminnugur allra
örðugleika, nýtur
svefns hins þreytta, þjáða
þurfamanns — og hrýtur.
Færð er hinsta fórnin
framtíð, — hinni ungu.—
Brostnir strengir, stirðnað
stuðlamál á tungu
Heimis, sem í háveg
hefst, á sögú-armi.
Sveipar mikilmennis
minning, fórnarbjarmi.
IV.
Opn’ri yfir hörpu
orðlaus Gríma stendur.—
Hvort er sem mér sýnist!
Sé á vorar hendur
óvænt komin óinegð?—
Annað hugði vera
innihald — við öllu
ilt að sjá og gera.
Upp skal hana ala,
okkar dóttur kalla—
Annmarki er á því,
Áka svörin falla.—
Illverknaður unninn
öðlast gjald í báli;
mun í óvænt efni
okkar komið máli.
Augu, yfirlitur
að oss vanda snúa.
Væri okkar ætta,
enginn mundi trúa.
Far er vist að þrælsmót '
þeirra sýnast ekki.
Yfirhilming okkar
enga dul eg þekki.
Alls þó kosta eigi,
—ansar Gríma honum-—
fáráðugu flóni
fer að jöfnum vonum.
II ún skal verstu verkin
vinna, lörfum mínuim'
klæðast, koli lituð,
hverfast ytri sýnum.
Tvent er æska og elli,
annað lyng en berið.
Svo kann enn að sýnast
sem eg hafi verið
fríð á yngri árum.
En til kosta þinna
lýgur ékki litur:
líkist hún til minna.
Ónýt rök þin eru,
einhver þó að blekkist;
annars eins af lyngi
ávöxturinn þekkist.
Þó skal ekki þrátta,
þig né heldur vita, •
en sem reiðareki
ráði þínu hlýta.
Áslaugar um ættir
ófust sagnir tvennar;
upplýstist um erfðir
aðalburður hennar.—
Einnig sverst til sinna
svifaliáum anda,
hrynjandin i hreimum
hörpu norðurlanda.
V.
Sögu þjóðar, saga lands
segist fyr — og mótar hina.—
Eins og forráð óvitans
atvikin í lífi imanns
grípa inn í hagi hans,
hlutast til um verðandina.
Eldar voru uppi — í senn —
Isar fyrir hálfu landi.
Mistur-sýn til sólar, en
sorti yfir hafi, menn
sau að fór um táknin tvenn
tröllaukinn að höndum vandi.
lllikan yfir búandans
ltýli - þangað arma rétti
okurverzlun — breðabanns
Ixtlaran til sjós og lands,
sameinað að högUni hans
þafði þiengt —. og kosti setti.
Frjálsborinn og lúðann lýð
löttu ei kjör, að reiða gjaldið.
AHa leið frá landnámstíð
lifsbaráttan verið stríð.
áltið fyrir “lúfu”*) fríð
lönd, en frelsi um tírna haldið.
Vísifingri í vesturátt
véfréttir og saga béntu.—
Eltu saman silfur grátt
sókn og vörn í dyragátt.
Útþrá fýsti farar, þrátt ,
fyrir varga-ginin tentu.
VI.
Þegar hann að heima, frá
llólmavaði síðast lætur,
verður honum vísa á
vörutn, og hann grætur þá.
Honum vinnst til harma þrá,
heim ii dvalir júní nætur.
Vesturfarinn forða'búr
fann, en þránd við lokuð portin.
Bóndi undir skini og skúr
Skamtinn á, þó vinni trúr.—
Förin virðist flótti úr
fátæktinni, beint í skortinn.
Honum verður harpan þá
Hugleiknust við gengdarsporin.
Unaðsemda eftirsjá
ómar hennar strengjum frá;
kveður sárasvanur — þrá
sínum unga, — henni borin.
VII.
Heilluðu menn í hamar sinn
huldurnar í fyrri daga.—
Veitti söngva seiðurinn
sýn í draumaríkið inn?
Ekki er heldur einleikinn
ómur hinna nýrri braga.
Heyrist enn til hóls og hvols
harpan orðs og tónamáttur.—
Gerræðisins greiðslutolls
gengur milli hauss og bols,
stilt til hinsta þans og þols
Þjóðólfs æða-ihjartasíáttur.
Hún fær ennþá hald á sveins
hug, — í erfðagullið sækin.—
En ekki heilla mögn til meins
mann, i þrengsli huldusteins,
sem túlka móðurmálið, eins
og “Melkorka við Dala-lækinn.”
ísland, — niðjar þúsund þætt
þankabandið rekja hljóðir.
Önuglyndið, blíðu bætt,
barninu er minnistætt.
Hirt og glaða, glatt og grætt
gast þú, eins og stórlynd móðir.
Vaxandi fer virðing þín,
viðurkendur norrænn andi,
fagnar yfir henni Hlín.
Hún er sonardóttir þín,
söngvadísin — dýrðin þín—-
drotningin í Þorfinns landi.
A. B.
*) Haraldur lúfa Noregskonungur.
“The Endevour,T
“Official Publication of the
Young People’s Association of the
Icelandic Lutheran Synod of
America.”
Það hefir farið mjög hljótt um
útgáfu þessa blaðs; getið um það í
slmágrein í Sameiningunni, annars
hefi eg ekkert um það séð, þó tel eg
engan atburð þýðingarmeiri í sögu
Wstur-íslendinga á síðari árum.
Nafn blaðsins: “Endeavour” er
vanalega þýtt á íslenzku: “viðleitni,”
eða eitthvað svipað því.
Blað þetta, eftir því sem eg best
veit, er eina íslenzka ritið, eina
kirkjulega ritið, sem gefið er út af
íslendingum á ensku máli.
Ritstjórar eru Norton Anderson í
Selkirk og Thos. E. Oleson í Glen-
boro, Man. Ráðsmaður, Jón Hjálm-
arson í Winnipeg.
Mig rak í roga stanz siðastliðið
haust, er mér barst fyrsta tölublað
þessa rits; það var langt fram yfir
það, sem mér gat hugsast að / það
myndi verða.
Pappir er ágætur og prent með
afbrigðum skýrt og læsilegt; það
hefir iðulega brugðið út af þessu
tneð rit okkar vestanhafs. Prentun
er gerð af Columbia Press.
Stefnuskrá blaðsins er að birta
fréttir, setja frauir skoðanir, hug-
myndir, skipulegar ráðstafanir til
framkvæmda hugsjónum íslenzkra,
lúterskra ungmenna vestanhafs, og
til traustara samfélags um íslenzkan
arf.
Því verður ekki neitað, að vel er
riðið úr hlaði tneð blað þetta og
djarflega, og minnir á orðin:
“Því sá sem hræðist f jallið og einatt
aftur snýr,
fær aldrei leyst þá gátu, sem htnu-
megin býr,
en þeim, sem eina lífið er bjarta
brúðarmyndin.
Þeir brjótast upp á fjallið,
og upp á hæsta tindinn.”
Þ. E.
Það sem komið er af þessu blaði,
tel eg það vafalaust, að það þoli vel
samanburð við önnur blöð utn svip-
að efni; hefi að gamni mínu verið
að bera það saman við það annað,
sem mér berst úr ýmsum áttum.
Beri maður jólablað Endeavour
saman við önnur kirkjuleg jólablöð,
verður naumast sagt að það hallist
á það. á fyrstu blaðsiðu jólablaðs-
ins er jólakveðja frá Veru M. Jó-
hannsson, tvær ljómandi fallegar
jólahugleiðingar og tvö kvæði ágæt,
o. fl. Á annari blaðsiðu, ágæt jóla-
hugleiðing eftir Gizzur Eliasson;
stutt yfirlit yfir sögu íslenzkrar
kristindómsstarfsemi vestanhafs eft-
ir B. J. B,, og barnslega einlægt og
látlaust smákvæði eftir H. E. Helga-
son. Á næstu blaðsíðu eru smá-
greinar um hitt og annað, nafnalisti
og hugheilt kvæði eftir Richard
Beck. Á síðustu blaðsiðu er ritgerð
og fréttapistlar, o. fl.
Af riti þessu stendur hressandi
vorsvali, sem minnir á dögggræna
skóga og litbrigði liðandi vatna.
Frágangur allur mjög góður yfir-
leitt.
Hver unglingur hlyntur kirkju og
kristindómi ætti nú þegar að gerast
kaupandi þess blaðs, og ekki getur
hugsandi faðir eða rnóðir valið öllu
betra lesmál fyrir barn sitt. -Við,
sem eldri erum, ættum ekki að vera
blind fyrir þeirri sjálfsögðu skyldu,
sem á okkur hvílir, að styðja og að-
stoða á allan mögulegan hátt fvrir-
tæki þetta. Það er jöfn skylda fyriv
þá eldri að liðsinna öllu góðu og
göfugu, sem þeir yngri hafa með
höndum, eins og þeir eldri ætlast til
fylgis af hálfu þeirra yngri. Þess
er tæplega að vænta að þéim yngri
ekki yfirsjáist, en þeir sem hafa lífs-
reynslu meiri, gætu orðið þeim tii
leiðbeiningar á ýini'san hátt. Stund-
úni gleymist það, að þegar lagður er
dómur á verk komandi kynslóðar,
að upptök þess er iðulega að finna
meðal hinnar hverfandi kynslóðar.
Sumum virðist yngra fólkið.tóm-
látt í andlegum málum, en ef það
hefst handa á nýjurn fyritækjum tii
’gagns og gengis, .m'un það bezta
hvötin að styðja það með ráði og
dáð, og það sjáist í verki að menn
beri fult traust til starfsins, og til
þeirra, sem að því standa.
Vil eg árna félagi hins unga fólks
og blaði þess allra heilla og blessun-
ar, og að því auðnist að leysa af
hendi það starf, sem Guð ætlar því
að vinna.
Blaðið á nú þegar ágæta vini inn-
an safnaða minna, vil eg hjálpa
þeim til að greiða veg þess á allan
hátt og óska þess að hver einstakl-
ingur, fjær og nær sjái sér metnað
að gerast áskrifandi blaðsins nú
þegar; þannig munu þeir yngri fá
bezt hrundið þeirri ádeilu, að þeim
farist tómlega í andlegum efnum.
Þegar maður hugleiðir þennan
ungni'ennafélagsskap (Y.P.A.) dyzlt
Business and Proíessional Cards
PIIYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-22 0 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office timar 2-3 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 VVinnipeg, Manitoba DR. B. H. OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Ohly Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK SérfrœfSingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstími — 11 til 1 og 2 tll 5 Skrifstofuslmi — 22 251 Heimili — 401 991 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
Dr. S. J. Johannesson Viðtalstlmi 3-5 e. h. 21? SHERBURN ST. Slmi 30 877 Dr. D. C. M. Hallson Stundar skurðlækningar og almennar lœkningar 264 HARGRAVE ST. —Gegnt Eaton’s— Winnipeg Slmi 22 775
DR. A. V. JOHNSON Tannlæknir 212 Curry Bldg., Winnipeg (Gegnt pósthúsinu)* Sími: 96 210 - Heimils: 28 086 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. islenzkur lögjrœOingur J. T. THORSON, K.C.
Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. íslenzkitr lögfræðingur
P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 800 GREAT WEST PERM. BLD Phone 94 668
BUSINESS CARDS
Ákjósanlepur gististaBur Fyrir Islendingal Vingjarnleg aðbúð. Sanngjarnt verð. Cornwall Hotel « MAIN & RUPERT Slmi 94 742 PRESCRIPTIONS FILLED CAREFULLY GOODMAN DRUGS Cor. ELLICE & SHERBROOK Phone 34 403 We Deliver
A.S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur líkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími: 86 607 Heimilis talslmi: 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot ■ vega peningalán og eldsábyrgí af öllu tægi. PHONE 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fölks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 328 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pœgilegur og rólegur 6ústaóur i miðbiki borparinnar. Herbergi $2.00 og Þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltlðir 40c—60c Free Parking for Ouests
manni ekki, að mörg eru verkefnin.
Um þessar mundir gengur yfir
vestur-íslenzkan, andlegan félags-
skap illkend efunarstefna; hún læð-
ist meðal manna eins og náttdimm
skammdegisþoka, frá ishafi yfirlætis
hugsunar. Ul-þoka þessi gerir að
jöfnu rétt og órétt og smýgur inn í
brjóst og hjörtu manna og líf;
þeirra sem hafa fyrirgert trú sinni
nveð áhugaleysi um sín andlegu mál,
eins og postulinn Páll lýsir þeim:
“Þeir hirtu ekki um að varðveita
þekkinguna á Guði.” Þeir veittu
ekki viðtöku kærleikanum til sann-
leikans, að þeir mættu verða hólpnir.
Og þess vegna sendir Guð þeim
megna villu, til þess að þeir trúi lýg-
inni.” (Róm. i:28 og II. Þessal.br.
2:10). Og margri göfugri sál reyn-
ist villugjarnt í þessari dauðaþoku.
Eldgamlar, marghraktar og fyrir
löngu úreltar hugsjónir eru dubb-
aðar upp í nýjan búning og fram-
bornar eins og valinn varningur og
(Frarnh. á bls. 7)
1 THOSE WHOM WE SERVE I
IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING
AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS
BECA USE—
OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV-
ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF
THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER
VVE DELIVER.
■ COLUMBIA PRESS LIMITED ■
695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG
PHONE 86 327
1