Lögberg - 28.07.1938, Qupperneq 10
10
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. JÚLl 1938
öllum vinum mínu/m i Árborg og grend gefst hér með
til vitundar, að eg hefi opnað Bíla og Afgreiðslustöð
skamt frá Rjómabúinu
Það verður mér mikið ánægjuefni að láta
yður í té beztu, hugsanlega afgreiðslu á
B.A. GAS and OIL — FIRESTONE TIRES
GLOBELITE BATTERIES
MAJESTIC RADIOS
Danielson’s Auto Sen)ice
M. J. DANIELSON, Owner
ARBORG PHONE 24 MANITOBA
Hamingjuóskir til tslendinga á Þjóðminningardaginn!
Oss er það sönn ánægja að hafa getað veitt yður
afgreiðslu síðan 1921
Vér höfum öll skilyrði til þess að fullnægja þörfum
yðar með
MASSEY-HARRIS BINDERS
og þreskivélum og öðrum búnaðaráhöldum
Sími
212
Selkirk
Skoðið áhöldin á vinnustofu vorri
BALCAEN BROS.
Pósthólf
184
Manitoba
Massey-Harris wmboðsmenn
Hagn aðarsamas t að verzla við Balcaens
Hamingjuóskir til Islenzka Þjóðarbrotsins
í tilefni af
ÞJÓÐHATIÐ ÞEIRRA
•
Það er oss ánægja að hafa stutt að velferð yðar
síðlistu 12 árin, með voru
VÍÐFRÆGA BROWN’S BRAUÐI
CAKES PASTRY ROLT.S
CCCWN’jí CCEAD LTD.
SELKIRK .... MANTTOBA
Á leið til Brasilíu
(Brot úr ferðasögu)
Eftir Thor Thors
Haustið 1935 tókst eg ferÖ á
hendur til Suður-Ameriku. Var sú
ferð farin að tilhlutan Sölusam-
bands isl. fiskframleiðenda í mark-
aðsleitar- og söluerindum, og stóð
hún yfir frá síðari hluta ágústmán-
aðar til s.íðari hluta nóvembermán-
aðar. Ritstjóri Samtíðarinnar hefir
óskað þess, að eg skýrði lesendum
hennar eitthvað frá þessu ferðalagi,
og vil eg verða við því. Fer hér á
eftir stutt frásögn af förinni yfir
úthafið.
Eg fór héðan með s.s. “Gullfoss”
áleiðis til Skotlands 27. ágúst
Dvaldi eg síðan i Lundúnum nokkra
daga, meðan eg beið skips til Suð-
ur-Ameriku. Skipið, sem bezt
hentaði ferðalagi minu, átti að fara
frá Soutihhampton á Suður-Eng-
landi þ. 7. sept. Sérstök járnbraut-
arlest átti að fara frá London ein-
göngu með farþegana og þá, er þeim
fylgja til skips. Lestin er full af
fólki, og með forvitni horfir hver á
annan og rannsakar, þar sem búist
er við langri samfylgd. Lestin nem-
ur staðar rétt við skipshlið, og stíga
nú farþegarnir á skipsfjöl, en engir
agrir mega fara um borð. Skipverj-
ar hirða farangurinn úr járnbraut-
arlestinni og skila honum í farþega-
klefana. Menn koma sér nú fyrir i
klefum sínum, sem eiga að vera
heimkynni . þeirra um langa hríð.
Stundvíslega á hádegi. siglir skipið
út úr skipakvínni framhjá fjölda
annara stórborga hafsins, því að
þarna koma og héðan fara hinar
miklu fleytur, er tengja saman
heimsálfurnar. Farkostur þessi er
eign ensks eimskipafélags, Royal
Mail, og nefnist “Alcantara.” Hann
er um 22 þús. smálestir að stærð og
gengur 19 milur á vöku. Þetta er
eitt af stærstu skipunum, sem annast
farþegaflutninga milli 'Evrópu og
Suður-Ameríku. Það er búið þeim
nýtízku þægindum, sem hin stóru
Atlantshafsför hafa bezt að bjóða.
Það er komið við í einni höfn á
Frakklandi, i Vigo á Spáni og i
Lissabon, en aðeins staðið við í
nokkrar klukkustundir. Alls staðar
bætast farþegar í hópinn. Síðasti
viðkomustaður skipsins, áður en
haldið er rakleitt til BrasiLíu, er við
eyjuna Madeira. Við komum að
kveldi dags til höfuðborgarinnar,
Islenzkir byggingameistarar velja
Ten/Test í allar sínar byggingar
Þessi Insulating Board skara fram
úr að gœðum . . . Seld og notuð
um allan heim—-
Fyrir nýjar byggingar, svo og til að-
gerða eða endurnýjunar fullnægir
TEN/TEST svo mörgum kröfum, að
til stórra hagsmuna verður. Notagildi
þess og verð er ávalt eins og vera ber.
Og vegna þess að það kemur í stað
annara efna, er ávalt um auka-sparn-
að að ræða.
TEN/TEST hefir margfaldan tilgang
sem insulating board. Það veitir vörn
fyrir ofhita eða kulda, og tryggir jöfn
þægindi hvernig sem viðrar. Þess
auíftneðförnu plötur tryggja skjótan
árangur og lækkað innsetningarverð.
í sumarheimilum eða borgarbýlum,
skrifstofum, fjölmennisíbúðum, kirkj-
um, skólum, bókasöfnum, útvarps
stöðvum, samkomusölum og hótelum,
tryggir TEN/TEST lífstíðarþægindi,
útilokun hávaða, og fylgir yfirleitt
fyrirmælum ströngustu byggingar-
listar.
Útbreiðsla og notkun um allan heim
gegnum viðurkenda viðskiftamiðla, er
trygging yðar fyrir skjótri, persónu-
legri afgreiðslu. Ráðgist við næsta
TEN/TEST umboðsmann, eða skrifið
oss eftir upplýsingum.
HLÝJAR
SKREYTIR
ENDURNÝJAR
Insulating JVall Board
LÆKKAR
KOSTNAÐ
VIÐ HITUN
INTERNATIONAL FIBRE BOARD LIMITED, OTTAWA
oísTRIBUTORS: ARMSTRONG DISTRIBUTORS LTD., Winnipeg, Man.
sem nefnist Funohal. Það er hin
dýrlegasta sýn, sem getur að líta,
er borgin breiðist út við fjallsræt-
urnar, mörkuð af ljóshafi. í hlíð-
inni upp frá borginni ljóma ljósin
úr gluggum fjölda heimila, sem
dreifð eru eftir henni allri. Það er
friður og stórkostleg fegurð yfir
þessari sýn.
En þegar skipið er lagst, er frið-
urinn þegar rofinn. Fjöldi smá-
róðrarbáta legst við skipshliðina.
Flestir eru þeir hlaðnir varningi,
sem nú á að selja farþegunum, og
sölumennirnir öskra hver í kapp við
annan, til að bjóða fram vörurnar
og mada með þeim. Flestir hafa á
boðstólum alls konar saumavörur,
skrautlega og vandaða dúka o. fl
þess háttar, og snúa þeir nú innilega
og hávært máli sínu til kvenfólks-
ins, sem margt lætur leiðast til kaup-
ánna. Þá er þar einnig fjöldi ann-
ara báta, sem í eru ungir menn i
sundklæðum. Þeir hrópa jafnvel
ennþa háværara og skora á fólkið
að fleygja peningum í sjóinn, þeir
skuli hirða þá. Það er fleygt silfur-
peningum. Róðrarmennirnir bregða
blysi að sjáv*irfletinum, og piltarnir
fleygja sér á kaf og koma þegar upp
aftur með skildinginn í lófanum.
Dýpi er þarna talsvert, og þetta þyk-
ir vasklega gert, og farþegarnir láta
því skildingana rjúka, en drengirnir
vinna sér inn laglega upphæð. Ekki
þurfa þeír að óttast, að slái að þeirn,
því að það er molluhiti í lofti. Það
er aðeins tími til að skreppa á land."
Madeira er portúgölsk nýlenda,
frjósamt land, en íbúarnir lifa mest
á ferðamannastraumnum. Englend-
ingar sækja þangað mjög mikið, og
má í rauninni segja, að hættir íbú-
anna og afkoma mótist af þeim og
sé háð þekni. Það litla, sem menn
sjá við örstutta viðdvöl, bendir alt
til þess, að hér sé ferðamaðurinn
æðsta veran og sá möndull, sem alt
snýst um. Enda þótt langt sé liðið
fram á kvöld, er uppi fótur og fit
í bænum, veitingahús og verzlanir
opnar og fjöldi fólks á götum úti.
Ef til vill var þetta vegna þess, að
á höfninni lágu tvö stór farþegaskip.
Einkennileg eru farartækin, sem
þarna eru mest notuð, en það eru
lágir, opnir vagnar, er tvö naut
ganga fyrir. Var ýmsum gestanna
auðsýnileg ánægja að reyna þetta.
Hús og mannvirki voru myndarleg
og gróðursæld og mildi náttúrunnar
auðsæ, jafnvel um þetta leyti sólar-
hrings, enda eiga ibúar eyjarinnar
,afkomu sína fyrst og fremst yndis-
leik loftslagsins að þakka, því að
það dregur þangað fjölda þeirra
ferðalanga, er fénu dreifir.
Á miðnætti er haldið burt frá
Madeira. Skipið hraðar sér á brott,
ljósin í landi ljóma enn í kvelddýrð-
inni, en smáóskírast og hverfa loks
alveg. Nú er næsta höfnin hinum
megin hins volduga hafs. Við höf
um verið 5 daga um borð, en eigum
ennþá eftir 12 daga til áfangastaðar,
en 9 daga til fyrstu hafnar. Nú er
sjálf siglingin að hefjast.
Þegar hér er komið, er vissulega
orðið tímabært að athuga fleytuna
nánara. Það er eigi ástæða til að
vantreysta henni, 'þótt háar kunni
að reynast öldur úthafsins. Að afli,
stærð og útbúnaði, er hún tákn
þeirrar fullkomjnunar, sem mannlegt
hugvit og tækni vita bezta. Sex
þilför, sem einkend eru bókstöfum,
frá A til F, aðgreina vistarverur.
Neðst í skipinu er fullkomin og
rúmgóð sundlaug með 24 búnings-
klefum. í hana er daglega dælt
nýjum, köldum sjó, og er hún mjög
kærkominn dvalarstaður farþeg-
anna, einkum eftir að hitarnir auk-
ast. Á næsta þilfari er borðsalur,
er rúmar 300 manns í sætum’; þar
eru einnig stórar svalir fyrir hljóm-
sveit skipsins, sem leikur þar við
hverja máltíð. Á næstu þilförum
eru farþegíaklefarnir og læknabú-
staðir, — því að 3 læknar eru á
skipinu, einn enskur, einn portú-
galskur og einn spánskur, — aðal-
skrifstofa skipsins, myndastofa,
hárgreiðslu- og rakarastofur. Far-
þegaklefarnir eru vistlegir og rúm-
góðir, flestir eins manns klefar. Á
næstefsta þilfari eru samkomusalir,
reykingasalir og lestrarsalir. Þar er
geymt bókasafn skipsins, sem er
mjög f jölbreytt. Hér er einnig /
mjög rúmgóð braut til skemti-
gangna, og í góðviðrinu má þetta
þilfar iheita aðalsamkomustaður
fólksins. Þar gengur það fram og
aftur heyir ýmsar íþróttir og alls
konar kepni eða situr við lestur í
stóliun sínum. Þar fyrir ofan er
svo leikfimissalur með fullkomnum
tækjumi, undir umsjá sérstaks kenn-
ara, leikvellir, og loks stór sam-
komusalur. Þar fara fram guðs-
þjónustur öðru hvoru á morgnana
Ofar öllu er svo stjórnpallur skips-
ins, búinn öllum nýjustu tækjum til
að stjórna fleytunni farsællega um
höf og hafnir. Skipið er í rauninni
ríki út af fyrir sig, lítil þjóðfélags-
höll, með sérstakri, skipulagðri og
öruggri stjórn, fjölda þegna, sem
allir eru skattþegnar, en jafnframt
aðnjótandi hlunninda þjóðfélagsins,
raunar aðeins i hlutfalli við þann
skatt, eða það fargjald, sem þeir
inna af hendi. Mismunurinn kem-
ur glögglega fram á hinumi þrem
farrýmum. Fyrsta farrými hefir
sams konar þægindi að bjóða og
beztu gistihús stórborganna, að vísu
nokkuð mismunandi eftir verði far-
miðans. Annað farrými er svipað
þvi, sem bezt er á millilandaskipum
þeim, er við eigum að venjast, en
auðvitað eru salakynni öll stærri.
Þriðja farrýmii likist öðru farrými
á íslenzku millilandaskipunum, en
þrifnaður virðist þarna minni og
umgengni verri.
Á skipinu eru um 1200 farþegar,
þar af helmingur á þriðja farrými,
en sjálf skipshöfnin er um 450
manns. Farþegarnir eru fólk af öll-
um stéttum, við hinn ójafnasta efna-
hag; nokkrir vellauðugir, aðrir blá-
snauðir og fjöldinn einhvers staðar
þar á milli. Nær því allar þjóðir
eiga sína fulltrúa. Mest er um
Brasilíumenn og Argentínubúa,
Portúgala og Spánverja. Síðan
kom/a Englendingar, Frakkar, Þjóð-
verjar, Italir o. s. frv., og nokkrir
Norðurlandabúar eru einnig í hópn-
um. Hér má því segja, að ægi
saman öllum manntegundum í hinni
rikulegu tilbreytni útlits og anda,
sem hugvit og kenjar örlaganna
hafa megnað að færa í form. Og
eins og fólk þetta virðist frábrugð-
ið, eins virðist það i fyrstu vera
sannfært um, að það hafi ekkert
saman, hvert við annað, að sælda.
En þetta smábreytist, eftir því sem
líður á ferðina. Skipverjar gjöra
sér alt far um að fá farþegana til
að kynnast. Þeir eru látnir kjósa
nefnd til að beita sér fyrir skemit-
unum og vþróttaleikjum milli far-
þeganna, og árangurinn verður sá,
að áður en á áfangastaðinn er kom-
ið, hafa flestir eginast fjölda kunn-
ingja. En slík viðkynning verður
ARBORG THEATRE
AGÚST 4., 5. og 6.
SNOW WHITE and THE SEVEN DWARFS
added shorts
Sýningar hefjast kl. 9 e.h.
Aukasýning á laugardaginn kl. 2:30 e. h.
Tvœr sýningar á laugardagskvöldið, kl. 7 og 9:30 e. h.
Fjölmennið að Gimli á
ÍSLENDINGADAGINN
Kaupið matvöru yðar, álnavöru, harðvöru
timbur og málningavöru allan ársins hring
í búð vorri
LAKESIDE TRADING COMPANV
GIMLI, MANITOBA
77/. TIIOBDA RSON IIANNES KRISTJÁNSSON
Rjóma framleiðendur
Styðjið yðar eiginn iðnað
með því að senda oss rjóma yðar
Vörubilar vorir koma reglubundið
Við höfum jstjórnareftirlitsmann, sem flokkar rjómann.
Við veitimn alla beztu, hugsanlega afgreiðslu
Við starfrækjum almenna sölubúð ásamt Rjómabúinu,
þar sem þér getið keypt nauðsynjar yðar við lægsta
verði, sem hugsast getur.
RIVERTON CO-QPERATIVE
CREAMERY ASSDCIATION
SIMI 20
RIVERTON
MANITOBA