Lögberg - 19.01.1939, Blaðsíða 1
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. JANUAR 1939
NÚMER 3
MÆLIR MEÐ RÝMKUN
ÍNNFLUTNINGSHAFTA
Verkamanna samtökin cana-
disku hafa fariÖ fram á það viÖ
sambandsstjórn, aÖ rýmkaÖ verÖi
vitund til um núgildandi höft
gegn fólksflutningi inn í landið,
nieÖ það fyrir augum að veita
landsvist takmarkaðri tölu hús-
viltra landflóttamanna frá Mið-
Evrópu; telja forustumenn hlut-
aðeigandi verkamanna samtaka
hér vera um slíkt mannúðarmál
að ræða, er canadiska þjóðin
geti ekki undir neinum kring-
umstæðum látið afskiftalaust.
MOTHERWELL
SyEMDUR gjöf
Hon. W. R. Motherwell, sam-
bandsþingmaður fyrir Melville
hjördæmið í Saskatchewan, er
nú maður hniginn allmjög að
nldri; á hann að baki sér langan
°g merkan stjórnmálaferil;
gegndi hann um hríð búnaðar-
raðherra embætti í stjórn Sas-
l'atchewanfylkis. En þegar King-
stjórnin kom til valda í Ottawa
^922, var Mr. Motherwell falin
á hendur forusta landbúnaðar-
vaðuneytis sambandsstjórnarinn-
ar, og þótti þar< sem annarsstað-
ar hagvitur umbótamaður. Nú
hefir Mr Motherwell lýst yfir
því, að þátttaka sin í opinberum
uiálum sé í þann veginn að enda
°g hann gefi ekki oftar kost á
ser til þingmensku.
Skömmu áður en Mr. Mother-
Well á dögunum lagði af stað til
sambandsþings, sæmdi miðstjóm
Eiberal flokksins í Saskatche-
vvan hann með samsæti og minja
£J°f; var gjöfin forkunnar fög-
ur borðklukka með viðeigandi
áletran.
Vesturlandið mun lengi geyma
nafn Mr. Motherwells sem eins
s>nna ágætustu sona.
8ENAT0R CASGRAIN
eatinn
Nýverið lézt að heimili sínu í
Montreal, Senator J. PýB. Oas-
gram, einn af áhrifamestu stuðn-
'HgSmönnum Liberalflokksins uni
angt skeið og aldavinur Sir
Vvilfrids Laurier. Senator Cas-
grain var 82 ára er dauða hans
,ar að; útnefningu sína til efri
niálstofunnar hlaut hann árið
1900.
EEtílIl SIG úr
e.c.f. flokknum
Llaðið Vancouver Province
jætur þess getið, að Dr. J. Lyle
,e ‘°rd hafi ákveðið að segja
s'g úr C.C.F. flokknum. Dr.
elford er nú borgarstjóri í
ancouver og á jafnframt sæti á
'ylkisþingi; var kosinn í Van-
c°uver í síðustu fylkiskosning-
['ni sem foringi C.C.F. Aminst
"inð segir að Dr. Telford taki
V, a næsta þingi sem utan-
"kka þingmaður.
MEN’S CLUB
Prófessor L. A. H. IVarren
Eins og vikið var að í síðasta
blaði, heldur Karlaklúbbur
Fyrsta lút. safnaðar fundi í sam-
komusal kirkjunnar á fimtudags-
kveldið þann 26. þ. m., kl. 6.15
e. h.; verður þá sezt stundvís-
lega að borðum. Aðgöngumiðar
kosta 40C og fást á skrifstofu
Lögbergs, sem og í gimsteinabúð
forseta klúbbsins, Mr. E. S.
Feldsted, 447 Portage Ave. Sölu
aðgöngumiða lýkur á mánudag-
inn þann 23. þ. m.
Ræðumaður klúbbsins að þessu
sinni verður Próf. L. A. H.
Wjarren, kennari í stjörnufræði
við Manitobaháskólann. Urn-
ræðuefni: “The Wonders of the
Sky,” ásamt myndum til skýr-
ingar.
FIMM LEYNILÖGRFGLU-
MENN TEKNIR AF
LIFl 1 MOSCOW
Þann 9. þ. m. voru fimm hátt
settir leynilögreglumenn Soviet-
stjórnarinnar rússnesku teknir
af lífi í Mosrow; voru þeir allir
sakaðir um föðurlandssvik, og
sagðir að hafa verið í vitorði
með Fasi&tum, bæði ítölskum
og þýzkum.
IiYSSUKAUP
STJÓRNARINNAR
Rannsókn þeirri, sem Davis
hæztaréttardómari hefir haft
með höndum vegna samninganna
við John Inglis & Co. um kaup
á 7000 Bren-byssum, er nú lokið,
og álitsskjal dómarans verið lagt
fram i þinginu. Dómarinn hvít-
þvær hermálaráðherrann, aðstoð-
arráðgjafa hans og Plaxton þing-
rnann af þeim ákærum, er Col.
Drew ba_r fram á hendur þeim í
Macleans ritgerðinni frægu,
þeirri, er til rannsóknarinnar
leiddi; þessu jafnframt mælir
Davis dómari með því við
stjórnina, að sérstakri nefnd,
sem óháð sé hermálaráðuneyt-
inu, verði falin umsjá með her-
gagnakaupum i framtíðinni.
GASSPRENGING I
VISINDABYGGINGU
MANITOBA IIASKÖLANS
VELDUR MIKLU TJÓNl
Snenuna á fimtudagsmorgun-
inn þann 12. þ. m., gerðist sá
atburður, að sprenging, sem
sögð er aðl hafa stafað frá gasi,
olli tjóni, sem talið er að nerhi
milli tíu og tuttugu þúsundum
dala; þetta var í hinni nýju og
veglegu vísindabyggingu Mani-
tobaháskólans; mestar urðu
skemdirnar á þriðju og fjórðu
hæð; tveir menn, sem voru þarna
við vinnu, sættu meiðslum' og
voru fluttir á sjúkrahús. Spreng-
ingin fór fram áður en kenslu-
stundir í háskólanum hófust
þennan morgun, og má það telj-
ast mikið lán.
EIMSKIPAFÉLAG
ISLANDS 25 ARA
Á þriðjudaginn þann 17. þ. m.
átti Eim'skipafélag íslands 25 ára
starfræksluafmæli. í tilefni af
því barst stjórnarnefndarmanni
þess vestan hafs, hr. Ásmundi
P. Jóhannssyni svohljóðandi
símskeyti:
Reykjavik, 17. jan. 1939
“Jóhannsson,
910 Palmerston Ave.,
Winnipeg.
Stjórn Eimskipafélags Islands
minnist yðar í dag og sendir
yður fyrir hönd félagsins hug-
heilar kveðjur og þakkir fyrir
vel unnin störf í þarfir félags-
ins.”
Eggert Claessen.
HARÐIR I HORN
AÐ TAKA
Samtalsfundur þeirra Cham-
berlains og Mussolinis, er fram
fór í Róm á fimtudaginn og
föstudaginn í vikunni sem leið,
bar engan sýnilegan árangur í
friðar- eða samkomulags-átt;
virtust þeir höfðingjar, er að
málum stóðu, hvor um sig, næsta
harðir í horn að taka, og gátu
eigi með nokkrum hætti náð
sameiginlegum samkomulags-
grundvelli; er mælt að þetta hafi
að mestu leyti stafað frá óbil-
girni Mussolinis viðvíkjandi
Spánarmálunum. Vegna vináttu-
sambandsins við Frakka, var Mr
Chamberlain ófáanlegur til þess
með öllu, að sinna nýlendukröf-
um Mussolinis í Afríku; að
minsta kosti ekki á þessu stigi
málsins. ítölsk stjórnarblöð
segja að samtalið hafi verið í
alla staði vingjarnlegt, og telja
liklegt, að kvatt verði til sam-
talsfundar á ný eftir að Franco
hafi unnið fullnaðarsigur á
Spáni, Ýms helztu blöð Breta
eru þeirrar skoðunar, að styrkur
Mr. Chamberlains heima fyrir
hafi aukist til muna vegna þeirr-
ar einurðar og þeirrar festu, er
hann sýndi i þessari siðustu
viðureigri við Mussolini.
Ualborg Nielsen, B.A.
Miss Valborg Nielsen lauk í
fyrra stærðfræðisprófi við Mani-
tobaháskólann með fyrstu ágætis-
einkunn; fékk hún þegar að
loknu námi ábyrgðarstöðu við
Success verzlunarskólann hér í
borginni; nú hefir Miss Nielsen
hlotið stöðu við Insurance-deild
Sambandsstjórnarinnar í Ottawa
°g leggur af stað austur á föstu-
dagskveldið kemur.—Miss Niel-
sen er fædd í þessari borg; for-
eldrar hennar eru þau Mr.
Charles Nielsen póstfulltrúi, og
frú hans Sölveig Þorsteinsdóttir
Nielsen. Hugheilar árnaðar-
óskir frænda og vina fylgja Miss
Nielsen til hennar nýju heim-
kynna og þeirfar veglegu stöðu,
'sem henni nú hefir verið falin
á hendur í þágu hins opinbera.
BÆNDAÞING
I ALBERTA
Þann 18. þ. m., héldu sam-
einuðu bændasamtökin í Alberta
ársþing sitt; sátu það f jögur
hundruð erindrekar úr öllum
kjördæmum fylkisins. í fjórtán
ár samfleytt, höfðu bændur far-
ið með völd í Alberta, eða fram
að þeim tíma, er Social Credit
stjórnin kom þar til valda. Þing
þetta ákvað að bændasamtökin
skyldi fyrst um sinn vera óháð
pólitískum flokkum eða einangr-
aðri hluttöku í stjórnmálum;
það feldi uppástungu um að-
skilnaS ‘ Vesturfylkjanna frá
Austur-Canada, tjáði sig hlynt
ríkiseinokun á lækningum, og
skoraði á sambandsstjórn, að
rannsaka til hlitar skilyrði fyrir
allsherjar tryggingu á uppskeru
bænda, er ríkið beitti sér fyrir
og starfrækti frá ári til árs.
FALLEG OG VIÐ-
EIGANDI MINNING
Þau hjónin Grimúlfur Ólafs-
son tollstjóri í Reykjavík og
kona hans, hafa gefið Lands-
spítala Islands minningargjöf um
Friðrik heitinn Stefánsson, fyrr-
um forstjóra Columbia Press,
Limted. Fregn um þetta barst
ekkju Friðriks, frú Önnu, ný-
verið að heiman
FASISTAR VIÐ
VÖLD 1 JAPAN
I fyrri viku fóru fram stjórn-
arskifti í Japan; féll þá ráðu-
neyti það, er Konoye prins hafði
veitt forustu í rúma nítján mán-
uði; hinn fráfarandi forsætisráð-
herra hafði jafnan þótt frjáls-
lynd í skoðunum og naut stuðn-
ings vinstri manna á þingi; hann
er andvigur stefnu Fasista og
taldi það með öllu óviðunandi, að
herinn réði lofum og lögum í
landinu; þessi afstaða reið hon-
um og ráðuneyti hans að fullu.
Hinn nýi forsætisráðherra
Japana, Baron Iliranuma, er ein-
dreginn Fasisti og herneskju-
maður hinn mesti; hann viður-
kennir engan annan gúð en her-
guðinn, og staðhæfir að jap-
anska þjóðin eigi að verða vold-
ugasta hernaðarþjóðin í heimi;
hann er því nær sjötíu og fjögra
ára að aldri.
LIKNESKI AF
ÓLAFI TRYGGVASYNI
Kaupmannah. 19. des.
Norðmenn hafa ákveðið að
láta reisa geysimikið likneski af
Ólafi konungi Tryggvasyi á
heimssýningunni í New York.
Er það tekið fram, að þar
sem íslendingar ætli að reisa
likneski af Leifi heppna, þá
verði Norðmenn að reisa annað
líkneski, sem geti sýnt Ameriku-
mönnum Ólaf Noregskonung,
með því að þegar Leifur fann
Ameríku, þá hafi hann numið
þar land og helgað sér það í
nafni Noregskonungs.
—Alþbl. 20. des.
Allra síðustu fregnir
Árásarhersveitir Francos sækja
að Barcelona á þrjá vegu, og eru
sagðar að vera einungis rúmar 20
núlur frá borginni; stjórnin hefir
boðið út öllu því liði, sem tök
eru á, þar á meðal unglingspilt-
um og konutn, borginni til varn-
ar; þykir líklegt að úrslit þess-
arar orrahriðar við Barcelona
bindi enda á Spánar styrjöldina
á einn eða annan hátt.
+
Sprengjum hefir verið varpað
yfir vissa hluta London og í
Birmingham undanfarna daga
tneð næsta ískyggilegum og dul-
rænum hætti; hefir þeim einkum
verið beint að orkustöðvum hlut-
aðeigandi borga; tveir menn liafa
látið lif og uni tuttugu meiðst
meira og niinna. Lögreglan hef-
ir málið til rannsóknar, og hef-
ir grunur fallið á irska lýðveldis-
sinna.
+
Símað er frá Túnisíu þann 18.
þ. m., að stjórn Itala sé svo að
segja daglega að auka herafla
sinn á landamærum Tunis, þrátt
fyrir kröftug mótmæli af hálfu
Frakka, er lýst liafa yfir því, að
ítalir skuli aldrei fá þumlung af
landareign hinnar frönsku þjóð-
ar í Tunis.