Lögberg - 24.08.1939, Side 1
PHONE 80 311
Seven Lines
4Í.
CxeV’
' eST*
Vy • Servloe
and Satisfactlon
PHONE 80 311
Seven Lincs
0<Lse
><» e*
~.',r
' y'/o4 ' T>ry Cleanlng
and Ijaundry
52. ARGANGUR
LÖGRERG, EIMTUDAGINN 24. ÁGÚST, 1939.
NÚMER 33
Afar viðsjárverðar horfur
í Norðurálfunni
Rússar og Þjóðverjar undirskrifa verzl-
unarsamning, og frá Moscow og Berlín
báruát þœr fregnir á þriðjudaginn, að
samningsumleitarir milli þessara tveggja
þjóða átœðu yfir með tilliti til frekari
samvinnu.
Samkvæmt simfregnum á
miðvikudagsmorguninn, hefir
þjóðþing Breta verið samstund
is kvatt til funda, og Adolf
Hitler verið tilkynt, að svo
fremi að hann hrófli við Pól-
landi eigi hann sameiginlega
Bretum og Frökkum að mæta.
Utanríkisráðherra Rússa, Mol-
otoff, lætur þá skoðun í ljós,
að þessar samvinnutilraunir
milli Þjóðverja og IWissa séu
ákveðið spor til tryggingar
Norðurálfufriði; þessu sýnast
fáir trúa, og má því með full-
um rétti segja að heimurinn
standi með öndina í hálsinum
vegna síþykknandi ófriðar-
hliku. Fregnir frá Hague
staðhæfa að Hitler sé einráð-
inn í því að láta til skarar
skríða vegna Danzig svo að
segja á hverju augnabliki.
Forsætsiráðherra Ástralíu,
R. G. Menzies hefir lýst yfir
því, að þjóð sín sé þess albúin
að berjast á hlið Breta nær
sem kallið komi. Hinn cana-
diski sjtórnarformaður, Mr.
King, átti langt samtal við
lávarð Tweedsmuir á þriðju-
dagskveldið og allir samverka-
menn hans í ráðuneytinu voru
þegar kvaddir til Ottawa, þeir
er fjarverandi voru.—
ÍSLENDINGAR AF DÖNSKUM
OG SÆNSKUM STOFNI
Danska blaðið, Danske
Herold, sem gefið er út í
Kentville, Nova Scotia, flutti
þann 15. þ. m. símfregn, er
lét þess getið, að þjóðskjala-
vörður íslands, Barði Guð-
mundsson hefði á sagnfræð-
ingafundi í Kaupmannahöfn
gert þá staðhæfingu, að hinir
fvrstu landnáinsmenn fslands
hafi ekki verið Norðmenn,
heldur aðallega frá Danmörku
og nokkrir frá Sviþjöð.
KVATT TIL FLOKKSÞINGS
V e r k þ |m ia n naflokkurinn
brezki kvaddi jafnSkjótt til
flokksþings, og hljóðbært varð
um samdráttinn milli Þjóð-
verða og Rússa, til þess að
ræða um stefnu stjórnarinnar
í utanríkismálum; búist er
við afarfjölmennu flokksþingi.
Canada
Landið stórra “sæva og sanda”
Saga þín er góð.
Börn þín vel á verði standa,
Voldug, göfug þjóð,
Traust i verki, orði og anda,
Ör á fé og hlóð.
Útsjón skýr og auður mesti
Afl til góðs þér Ijá.
Þú ert verndarvættur besti,
Viti og manndóms þrá.
Dýpstar rætur frelsið festi
Fána þínum hjá.
Þegar hálfan heiminn tryllir
Harðdræg vígaöld,
Þar sem brugga böðlar illir
Banaráðin köld,
Friðarsólin fögur gyllir
Fána þinn og skjöld.
Minni landa menning styður,
Mátt og hug þeim fær,
Rödd þín sterk sem storma niður
Stilt sein vorsins hlær.—
Hjá þér dafni frelsi og friður,
Fóstra og móðir kær.
K. S. P.
Sjöveldafundur
í Brussel
Þessa dagana stendur yfir í
höfuðborg Belgíu fundur, er
sjö hlutlaus ríki standa að;
þar á meðal Danmörk, Noreg-
ur og Sviþjóð. Leopold Belgiu-
konungur átti frumkvæði að
fundarboði þessu; var til
fundarins kvatt með það fyrir
augum, að skora á stórveldin
að hlutast til um að heims-
styröld verði áfstýrt, sem og
til þess að ræða um afstöðu
hinna hlutlausu ríkja í þvi
falli að alt færi í bál og brand.
íslenzkar syálur álofna
verzlunarskóla
Fagnaðarefni er . það jafn-
an, er fólk af íslenzkum stofni
í þessu landi sýnir framtak
og ryður sér braut; þetta hef-
ir mörgum lánast, og er von-
andi að þar megi sem flestir
eftir fara.—
Nú hafa tvær íslenzkar syst-
ur ráðist i það stórræði, að
stofna verzlunarskóla hér í
borginni; eru það þær Miss
Loa Eiríkson og frú Lilja
Björnson, dætur þeirra Sig-
urjóns Eiríkssonar er um
langt skeið átti heima í bæn-
um Wynyard í Saskatchewan-
fylki. Báðar eru þessar syst-
ur mentar vel og hafa um all-
langt skeið fengist við kenslu-
störf; báðar hafa þær kent við
verzlunarskóla, þó einkum
Miss Eirikson, er fengið hefir
langa æfingu í þeirri fræðslu
grein; hinn nýi skóli þeirra
nefnist Winnipeg Commercial
School, og hefir bækistöð sína
að 203 Sterling Secuities Bldg.,
Portage Ave. og Vaughan St.
Systur þessar eru af góðum
ættstofni komnar og njóta
hvarvetna vinsælda.
UGGUR í JAPÖNUM
Símfregnir frá Tokyo á mið
vikudaginn láta þess getið, að
óhug miklum hafi slegið
japanska stjórnmálamenn
vegna samstarfstilraunanna
milli Þjóðverja og Rússa;
krefjast ýmsir forustumenn
Japana þess, að núgildandi
samningum milli þjóðarinnar
og ítala og Þjóðverja verði
tafarlaust sagt upp.
ÁSKORUN PÁFA
Símað er frá Vaticaninu
þann 23. þ. m., að Píus páfi
hafi ákveðið að halda útvarps-
ræðu von bráðar, þar sem
skorað verði á allar stórþjóð-
irnar, að fyrirbyggja nýja
heimsstyrjöld, og ráða ágrein-
ingsmálunum til lykta með
sættargerðum.
Mrs. Margrét J. Markússon
Nóvember 1857
Þó húmi leið á hausti
og hretin nísti jörð,
minn hugur berst til baka
i bjartan Skagafjörð.
Þar ung við tengdum trygðir
með táp og fjör á leið
og lífsins trú, sem lýsti
um langt og fagurt skeið.
En nú er sólin sígin,
þitt sæti autt og hljótt,
en Ijósrík minning lifir
og lýsir kalda nótt.
Þú varst mín von og gleði
nieð vorsins yl og traust,
eg þakka það og geymi
unz þrýtur tímans haust.
— April 1939
Þin börn sín hjörtu beygja
í bæn við hljóða gröf,
og þakka ástúð alla
við æfidagsins töf.
Þú gafst þeim yl þins anda,
þann auð, sem gildir mest,
því eilif móðurástin
er engum böndum fest.
Þú vanst af fúsum vilja
hvert verk um gefið skeið,
með hjartað glatt og göfugt
að greiða snauðum leið.
Þín löngun var að lyfta
og létta Tiverja þraut.
Þess minnast margir vinir,
sem mættú þér á hraut.
Þó húmið sveipi salinn
með sætið hljótt og kalt,
við beygjum hug og hjörtu
til hans sem gefur alt.
Þú lýstir vel og lengi
með lið, sem aldrei brást.
Því helgast hljóðu leiði
vor heilög þökk og ást.
Fyrir hönd eiginmanns og barna hinnar tátnu.
M. Markásson.
Landhelgin
Áður hefir hér verið minst
á Faxaflóanefndina, sein hing-
að kom til þess að sjá með
eigin augum mismuninn á
fiskilaginu í Faxaflóa, utan
og innan við landhelgislínuna.
En um árangur þeirra at-
hugana sagði Árni Friðriks-
son blaðinu í gær.
Athuganir þessar hér í Fló-
anum stóðu yfir í þrjá daga.
Þær báru glöggan árangur.
Þeir nefndarmenn, sem hér
voru ókunnugastir, sáu með
eigin augum hinn geysimikla
mismuri á fiskimergðinni inn-
an og utan við landhelgislín-
una.
f sunnanverðum Flóanum
eru allar aðstæður eins, utan
og innan við línuna, dýpi, hiti,
dýralíf, öll skilyrði þau sömu.
Eini munurinn, að landhelgin
er friðuð — hitt ekki.
Á þriðjudaginn fór nefndin
í athugunarferð þessa á tog-
aranum Geir. Auk nefndar-
manna voru í þeirri ferð ól-
afur Thors atvinnumálaráð-
herra, Erik Poulsen fiskifræð-
ingur og Bertelsen magister
frá Dönu, Kristján Bergsson,
Hélgi Briem og Finnur Guð-
mundsson. Togað var í Fló-
anum allan daginn, til þess
að sjá aflamuninn innan og
utan landhelgi. Árangurinn
var þessi:
Innan landhelgi fengust 476
ýsur og 135 lúður og 115 skar-
kolar á klukkustund. Rétt
utan við landhelgi 359 ýsur,
73 lúður og 27 skarkolar. En
út í Flóanum var afli af þess-
um nytjafiskum ekki nema 8
ýsur, 35 smálúður og 4 skar-
kolar á klukkustund.
Nú heyrðust raddir um, að
rétt væri að reyna líka hver
munurinn yrði innan og utan
við línuna með dragnót. Var
sendur út dragnótabátur að-
faranótt miðvikudags. Kom
þá í ljós, að dragnótin er enn-
þá stórtækari á skarkolanum,
en menn höfðu gert ráð fyrir.
En minni var munurinn á
dragnótaveiðinni af ýsu og
sinálúðu.
Miðvikudag og fimtudag
héldu nefndarmenn áfram at-
hugunum þessum í Flóanum.
Þá daga voru þeir með Dönu.
Prófessor Hjort var þó ekki
síðara daginn, því hann fór
með Stavangerfjord. En dr.
Bjarni Sæmundsson var með
þessa daga, og Júlíus Guð-
mundsson form. Fiskimála-
nefndar á fimtudaginn.
Auk þess hélt Faxaflóa-
nefndin 3 fundi þessa daga.
Þann fyrsta í atvinnudeild
Háskólans, en hina í rann-
sóknarskipinu Dönu.
Árni Friðriksson gefur rík-
isstjórninni skýrslu um athug-
ánir þessar, og Faxaflóanefnd
gefur skýrslu um þær til Haf-
rannsóknaráðsins.
Árni gat þess að lokum, að
hann væri mjög þakklátur öll-
um aðilum er stutt höfðu að
þvi, hveð greiðlega gekk með
útvegun á skipakosti og ann-
að sem til þurfti við athuganir
þessar, sem vissulega geta haft
mikil áhrif á n’iðurstöður Haf-
rannsóknaráðsins viðvikjandi
F'axaflóafriðuninni.
—Morgunbl. 30. júlí.