Lögberg - 09.04.1942, Síða 1
Síðuátu fregnir
Þjóðverjar fara enn halloka
fyrir Rússum á Mið-vígstöðvun-
uin, og eins umhverfis Lenin-
grad; hafa hinar þýzku innrás-
arhersveitir, að því er staðhæft
er, tapað nálægt 600 orustuflug-
vélum á síðastliðnum níu dög-
um; auk þess hafa Þjóðverjar
beðið ósigur mikinn í viðureign-
inni á Krímskaga.
-f
Undanfarna daga hafa Japanir
gert þrálátar árásir á Bataan-
viglínurnar á Philippine-eyjun-
um, og hefir þeim þar orðið
ágengt, að því er ffegnir frá
Washington herma; mannfall
kvað orðið hafa gífurlegt; þvkir
ekki ólíklegt, að um úrslita-
orustu sé að ræða á þessurn víg-
stöðvum.
Indlandsmálin
Eins og þegar er vitað, situr
Sir Stafford Cripps á ráðstefnu
í New Delhi við helztu forráða-
menn pólitísku flokkanna á Ind-
landi; en flokkaskifting á Ind-
landi grundvallast miklu fremur
á mismunandi trúarskoðunum,
en ákveðnum stjórnmálastefn-
um. Sir Stafford hefir fyrir
munn brezku stjórnarinnar, heit-
ið Indverjum hliðstæðu fullveldi
við það, sem Canada nú nýtur,
að loknu stríði, með þvi skilyrði
þó, að Bretar hafi að einhverju
leýti hönd í liagga með hervörn-
um Indverja; þessu eru flestir
hinna indversku leiðtoga mót-
ifallnir, og telja það undirlægju-
hátt, að þjóðin fái ieigi fultkom-
in umráð yfir hervörnum sínum.
Roosevelt forseti hefir seni
erindreka til New Delhi, til þess
að kynnast hinu nýja viðhorfi
og gangi málanna; þess er vænst,
að innan skamms tíma komi það
glögt í ljós, hvort Sir Stafford
hafi farið erindisleysu til Ind-
lands, eða það gagnstæða.
Rev. W. F. Nainsby
Þessi ungi kennimaður, sem
þjónað hefir undanfarin ár St.
Faith’s Anglican söfnuðinum >
Edmonton, hefir verið kosinn
prestur Holy Trinity kirkjunnar
frá 1. júni næstkomandi að telja;
hann er kvæntur Isabel Jónasson,
sem fædd var og uppalin í Ed-
monton.
FRA BURMA
Á þessum vígstöðvum miðar
Japönum áfram jafnt og þétt,
og eiga ekki eftir ófarnar til
megin olíustöðvanna á þeim
svæðum nema innan við sextíu
mílur; mannfall hefir verið mik-
ið á báðar hliðar, en framrás
Japana hefir lánast þeim fram
að þessu, vegna iþess hve styrkari
lofther þeir hafa liaft á að skipa
en 'Sameinuðu þjóðirnar.
JAPANIR TAPA
ÓGRÝNNI FLUGVÉLA
Þann 6. þ. m. gerðu Japanir
tilraun til þess að koma liði a
land á Ceylon-eynni, en sættu
þar hinum verstu hrakförum,
mistu þvi nær 60 flugför, auk
þess mörg af innrásarskipum
þeira urðu skaðskemd frá að
hverfa.
Páskadagsmorgunn
i.
Loftið er fult af ljósi,
Lífið með sælu brag.
Gott er að sjá í glugga
Glaðan upprisudag.
Gott er frá hretum að hátta,
Og húmdægrin kveðja löng;
Vagna þá vorboðinn heilsar
Með vængþyt og nýjum söng.
II.
Nær munu heimskan og hatrið
Hrekjast úr valda stól?
Vitsmunir ráða verkum
Vermdir af kærléiks sól?
Hví eru hásæti heimsins
Þau helvíti er myrkrið ól?
Hvenær mun lausnarans ljósi
Leyft inn að valdastól?
Hvenær mun hugurinn hátta
Frá herbrestum liðins dags,
En vakna í fangi friðar,
Frelsis og bræðralags?
III.
Þó hugurinn verði að hátta
Við háreysti sverða-slags
Framtíðar vonum hann fleytir
Að fótskör hins nýja dags.
Loftið er fult af ljósi,
Lifið með sælu brag.
Enn er mér ljúft að lifa
Lífsins upprisu dag.
Hjálmar Gíslason.
Þurð á fiski til
heimanotkunar
Að þvi er blaðinu Winnipeg
Tribune segist frá á þriðjudag-
inn, hefir lax og heilagfiski veið-
in við Kyrrahafsströndina mink-
að það, sem af er árinu um 30 ti!
40 af hundraði borið saman við
veiðina í fyrra; iþá hefir og fiski-
veiðin við austurströnd Canada
einnig gengið úr sér, vegna kaf-
háta, sem þar hafa verið að verki
síðan vertíð hófst. Verðskipu-
lagsnefnd sambandsstjórnar ótt-
ast um það, að þurð verði á fiski
til heimanotkunar í landinu, og
af þeirri ástæðu hafa stjórnar-
völdin i Ottawa farið fram á það
við stjórnir fylkjanna, að veita
leyfi til aukinnar framleiðslu á
innanlandsvötnunum nú í sum-
ar; einkum nær þetta til Winni-
pegvatns, ef fylkisstjórn verður
við áskorun samibandsstjórnar.
Nú er stungið upp á því að veiða
megi yfir sumarvertíðina á
Winnipegvatni 3,500,000 pund
hvitfiskjar, og yrði það þá 644,-
000 pund'um meira en í fyrra.
Mr. A. N. McLean, umboðs-
stjóri sambandsstjórnar á sviði
fiskframleiðslunnar var fyrir
skömmu staddur hér í borg i
sambandi við iþetta mál, og var
þá nefnd sett af þeirra hálfu, er
með höndum hafa útflutn-
ing og heildsölu fiskjar; í nefnd
þeirri eiga sæti C. C. Dungan.
George Kempner og .1. B. Skapta-
son.
Enn er ekki vitað um undir-
tektir fylkisstjórnar viðvíkjandi
áminstri kröfu um aukna hvít-
fisk framleiðslu á Winnipeg-
vatni á sumarvertíð þeirri, sem
áætlað er að hefjist þann 8.
júní næstkomandi, eða eitthvað
nálægt þeinr tíma.
80% af
útfiutningsvörunum
til Englands
Af hverjum 100 krónum, sem
komu inn í iandið fyrir útflutn-
ingsvörur okkar árið sem teið,
koinu yfir 83 krónur frá Eng-
landi og rúmar 12 frá Banda
ríkjunum. Tæpar 5 komu frá
Portúgal, Svíþjóð, Spáni, Argen-
tínu, írlandi, Brazilíu, Kúba,
Kanada og Færeyjum.
Þetta eru þær þjóðir, sem
kaupa af okkur útflutningsvörur
okkar.
Af 188 milj. króna heildarút-
flutningi fluttum við til Bret-
lands fyrir krónur 157 milj., en
til Bandaríkjanna fyrir krónur
23 milj. Þriðja mikilvægasta
viðskiftaþjóð okkar eru Portú-
galar, þá koma Svíar, Spánverj-
ar og Brazilíumenn, en hinar
kaupa af okkur fyrir innan við
iniljón l^rónur.—(Mbl. 11. febr.).
Ný rýmkun
á fisksölusamningnum
Ný rýmkun hefir fengist á
b-rezka fisksölusamningnum,
þannig, að Breiðafjörður hefir
verið “opnaður” og er nú íslenzk-
um og færeyskum skipum frjálst
að kaupa þar fisk
Viðskiftanefnd birti tilkynn-
ingu um þetta þann llö febr., og
er hún svohljóðandi:
“Með tilvisun til samnings
um sölu á fiski til Bretlands
dags. 5 ágúst 1941, tilkynnist
það hérmeð, að frá og með deg-
inum í dag til aprílloka 1942,
hafa öll íslenzk og færeyisk
fiskflutningaskip leyfi til að
kaupa fisk á Breiðafirði, til sölu
í Bretlandi.” —(Mbl. 12. febr.)
Aðstoð vœntanleg frá
Rockefellerstofnuninni
Við íslendingar fáum aðstoð
Rockefeller stofnunarinnar í
Bandaríkjunum til þess að bæta
aðstöðu okkar í heilbrigðismál-
um og heilsuvernd, ef áform þau.
sem dr. G. R. Strode hefir með
höndum, komast í kring.
Dr. Strode kom hingað fyrir
nokkru síðan. Hefir hann kynt
sér heilbrigðismál þjóðarinnar
og það sem gert er hér til að
hefta sjúkdóma og til heilsu-
verndar.
Er hann kemur til baka til
New York mun hann leggja það
til að Rockefeller-sjóðurinn
styrki hér ýmsar heilbrigðis- og
læknastofnanir, sem hann telur
að séu styrks þurfi, svo þær geti,
betur en hingað til, int störf sín
af hendi. Hann kom hingað sem
fulltrúi Rockefellerstofnunarinn-
nr, og hefir unnið hér með starfs-
mönnum amieríska Rauðakross-
ins.
——Eg var ekki^litið undrandi,
segir hann, er eg kom hingað
til þessarar fámennu þjóðar og
kyntist þvi, hve heilsuvernd og
læknavísindi eru hér á háu stigi.
Hann kvaðst dást að því, hve
læknar væru hér vel að sér og
stæðu framarlega í grein sinni
og hve mikið væri hér gert á
sviði heilbrigðismálanna. Lækna-
deild Háskólans hér er ágæt og
rannsóknarstofur hans vinna
merkileg störf á sínu sviði.
' Dr. Strode finst einnig til um
mienningarstarf og menningar-
áhuga þjóðarinnar yfirleitt, h\e
mikið hér er gefið lit af blöðum,
tímaritum og bókum, og hve á-
hugi almennings er mikil! fyrir
fögrum listum. Honum fer og,
sem öðrum aðkomumönnum, að
hann taldi að óreyndu veðráttu-
far hér mun kaldara en raun er
á. Hér er þægilegt loftslag,
sagði hann, ef menn láta sig einu
gilda þó einstöku sinnum komi
dropi úr lofti.
Dr. Strode starfaði í 11 ár i
Frakklandi fyrir Rockefeller-
stofnunina, og var þar i sam-
vinnu við ríkisstjórnina. Var
starfið þar, eins og annarsstaðar
í heiminum, að stemma stigu
fyrir útbreiðslu sjúkdóma, og
bæta heilsufar almennings, með
öllum mögulegum ráðum. Hann
fór til Frakklands eftir flóttann
frá Dunkirk og vann í hinum
óhernumda hluta landsins eitl
ár, að sömu störfum og áður.
Styrjaldir, segir liann, gera
mannúðarstörf Rockefellerstofn-
unarínnar ennþá nauðsynlegri
en endranær, en þær eru líka
starfseminni allri hinn mesti
þrándur í götu. Þó stofnunin
hafi ekki neina hjálparstarfsemi
með höndum, segir dr. Strode,
öá gat Rauði krossinn komið
a. m. k. þrem skipum með mat-
vörum og meðulum til bins ó-
hernumda Frakklands, eftir ó-
sigur Frakka.
Dr. Strode hefir nýlega verið
í Rússlandi i erindum fyrir
Rockefellerstofnunina. Hann fór
til Moskva með Harrison-nefnd-
inni, til þess að athuga hvaða að-
stoð Rússar þyrftu í heilbrigðis-
málunum, og var þar, þegar
þriggja velda sáttmálinn var
gerður. Skothríð Þjóðverja náði
ekki til Moskva, þegar dr. Strode
var þar, en loftárásir voru tíðar
á borgina þá dagana. Er Strode
kom til baka til New York, var
hann sendur hingað.
Hann hefir nú að kalla lokið
athugunum sínum hér á landi,
og hverfur heimleiðis innan
skamms.—(Mbl. 14. febr.).
Þjoðræknisfelaginu
eykst liðsafli
Árni G. Eggertsson, K.C., sem
nýlega er kominn heiin sunnan
frá New York, lét þess getið við
ritstjóra Lögbergs, að islenzki
klúbburinn þar í borginni, hefði
ákveðið að gerast sambandsdeild
Þjóðræknisfélagsins; þetta er
þakkarvert, og á Mr. Eggertson
heiður skilið fyrir að beita sér
fyrir um það, að koma þessu í
framkvæmd, því ekki veitir af
að styrkja eins og framast má
verða, samböndin milli hinna
dreifðu íslendinga víðsvegar um
þetta milda meginland.
Bjarni Björnsson
leikari látinn
Sú fregn hefir nýborisí hingað
til borgarinnar, að látist hafi
sviplega af völdum heilablóðfall.s
í höfuðborg íslands, þann 26.
febrúar síðastliðinn, Bjarni
Björnsson, leikari, sem venju-
legast gekk undir nafninu Bjarni
skopleikari, vegna þess að á því
sviði leiklistarinnar mátti hann
sín jafnaðarlegast mest. Bjarni
var gáfumaður, og óvenju
skemtilegur í viðmóti; hann
dvaldi allmörg ár vestanhafs, en
fór alfari heim árið 1930; hann
lætur eftir sig á fslandi ekkju,
Margréti Dalhoff-Björnsson, og
eina dóttur. Þrjú systkini lifa
hann vestanhafs, ólafur, emhætt-
ismaður í canadiska hernum,
Sveinsína Berg í Blaine, og
Hansína Sagen í Tacoma, Wash.
LOFTHER BRETA
VEITIR ÞJÓÐVERJUM
ÞUNGAR BÚSIFJAR
Á degi hverjuin, jafnvel án til-
lits til veðurfars, hefir brezki
loftherinn sótt mjög að her-
gagnaverksmiðjum Þjóðverja
bæði á Þýzkailandi, og eins i hin-
um hernumda hluta Frakklands;
er mælt, að meðal annars hafi
verksmiðja nokkur i útjöðrum
Parísarborgar, . er framleiðir
flutningsbíla handa Þjóðverjum
sætt slikum skemdum, að hún
muni verða óstarfhæf að minsta
kosti í þrjá mánuði.
Mætur maður látinn
Laugardaginn þann 28. febrú-
ar síðastliðinn, lézt eftir stutta
legu í Seattle, Gísli Árnason,
Eyfirðingur að ætt, 74 ára að
aldri; mætur maður og vinsæll;
kveðjuathöfn fór fram þann 3.
rnarz, að viðstaddri dóttur hans,
Mrs. J. G. Jóhannson frá Winni-
peg, og bróður, Mr. J. T. Ander-
son fá Portland, Oregon. Séra
Kolbeinn Sæmundsson jarðsöng.
Gísli heitinn var maður
óvenju bókhneigður; enda fjöl-
gáfaður um margt. Likhrensla
var viðhöfð samkvæmt ósk hins
látna.
Kostnaðurinn við
bráðabirgðahúsin
í Höfðahverfi
Byggingarkostnaður 8 fyrstu
húsanna í Höfðahverfi, er bygð
hafa verið handa fólki þvi, er
húsnæðislaust var í haust, hefir
orðið kr. 668 þús. fyrir utan
ýmsa vinnu utanhúss.
í húsum þessum eru ibúðir
jfyrir 64 fjölskyldur, svo húsin
fyrir hverja fjölskyldu hafa
kostað 10—12 þúsund krónur.
Vegna þess hve bygt var á ó-
hentugum tíma og byggingu varð
að hraða, hefir kostnaðurinn
orðið um 90 þúsund kr. hærri en
brunabótavirðing húsanna nem-
ur. — Mbl. 12. febr.).
Minningarorð
Frú Jóna Goodman
Dauðinn gerir ekki ávalt boð
á undan sér; og hann gerði það
heldur ekki við brottför frú
Jónu Magnúsdóttur Goodman;
kvöldið áður en hinsta kalliö
kom, tók þessi merka og ágæta
kona þátt í skemtisamkomu
þjóðræknisdeildarinnar Frón, en
snemima morguninn eftir, barst
andlátsfregn hennar út um bæ-
inn; setti þá marga hljóða, þvi
svo djúp ítök átti þessi hátt-
prúða kona í hjörtum fjölmenns
vinahóps.
Frú Jóna var fædd að Dysj-
um í Garðahverifi, þann 5. marz
1860; voru foreldri hennar þau
Magnús dannebrogsmaður Brynj-
ólfsson og Þorbjörg Jóhanns-
dóttir, jirests í Borgarfirði hin-
um syðra; hún giftist 6. nóvem-
her 1880, Krisljáni Guðmunds-
syni (Goodman), er lengi stund-
aði málaraiðn hér í borg, hin-
um mesta mannkosta manni; var
heimili þeirra rómað fyrir alúð
og risnu, þó eigi væri ávalt af
miklu að taka; voru þau hjón
samhent í öllu því, er að þvi
miðaði, að greiða götu samferða-
manna sinna; mann sinn misti
frú Jóna eftir meira en hálfrar
aldar ljúfa sambúð, þann 23.
september 1939. Þessi mætu
hjón komu til Winnipeg af ís-
landi árið 1886, og áttu þar heima
jafnan siðan. Sjö börn þeirra
eru á lífi í eftirgreindri aldurs-
röð:
Valgerður Magnússon, ekkja,
er eftir lát manns síns dval-di
Jafnan með mþður sinni;
Árnína McLeod, búsett í Sel-
kirk;
Lilja Bergman, Winnipeg;
Haraldur, Cleveland, Ohio;
Johann, Round Lake, Illinois;
Christian og John, báðir bú-
settir í Winnipeg.
Einnig lætur frú Jóna eftir
sig 7 barnabörn, og 3 barna-
barnabörn.
Þótt frú Jóna ætti annríkt við
'heimilisstörf, vanst henni æfin-
lega timi til margháttaðrar þátt-
töku i inannfélagsmálum; hún
var ein af þeim, er með manni
sinum stofnaði Góðtemplarastúk-
una Heklu þann 23. desember
1887, og lét sér jafnan ant um
vöxt hennar og viðgang; i kven-
félagsstarfsemi Fyrsta lúterska
safnaðar tók hún og virkan þátt,
og vakti yfir heill safnaðarins i
hvívetna; hún var allsstaðar lið-
tæk, kom allstaðar fram til góðs,
og^ fegraði umhverfi sitt með
kærleiksríkri framgöngu; margir
sakna hennar, þó tilfinnanlegast-
ur verði missirinn þeim, er
næstir stóðu, og notið höfðu
hennar móðurlegu umönnunar
um langa tið.
Útför þessarar ástsælu konu
fór fram frá Fyrstu lútersku
kirkju á föstudaginn þann 20.
marz, að viðstöddu afarmiklu
fjölmenni. Séra Valdimar J.
Eylands jarðsöng. E. P. J.