Lögberg - 05.11.1942, Page 3

Lögberg - 05.11.1942, Page 3
Rússneska leyni- vopnið Efíir Dyson Carier. (Þýtt úr “Russia’s Secret " Weapon”) Jónbjörn Gíslason. (JTramhald) En sannleikurinn verður ekki nneptur í fjötra til langframa. Bráðlega kom fram annar mik- ill visindamaður, Helmholdz að nafni; hann sagði afdráttarlaust: “Plöntur jarðarinnar vaxa viö það að drekka í sig sólarljósið; en engar rannsóknir eru fyrir hendi, er sanna með vissu að lífsorka hinna hverfandi sólar- geisla, samsvari viðgangi efna- fræðilegs kjarna jarðarinnar. Það sem hér er sagt, skapaði merk tímamót í hinum alda- gamla landbúnaði, en jafnvel Helmholtz sá slíkt ekki fyrir. Um fimtíu ára skeið fórnaði Timiryazev kröftum sínum og tíma, til að sanna og sýna, hve orka sólarinnar væri nauðsynleg og ómissandi fyrir allan jurta- gróður. Skömmu eftir dauða hans komu merkilegar niður- stöður fram í dagsljósið. Hann var enginn draumlynd- ur vísindamaður; hann þráði framar öllu öðru að aðstoða bændurna í þeirra hörðu lífs- kjörum og bæta hag þeirra; hann leitaðist við að gera lífs- aikomu þeirra tryggari og minna háða dutlungum veðurlagsins. Hann sagði: “Vísindamaðurinn getur ekki gert sig ánægðan með að vera hlutlaus áhorfandi, sem rannsakandi verður hann að beina afli náttúrunnar í vissa farvegi. Framtíðarstarf hans verður að þvinga náttúröflin undir vilja sinn.” Þetta gjörðist fyrir byltinguna miklu; Timiryazev dó skömmu síðar en Soviet lýðveldin fædd- ust. Fyrir dauða sinn sá hann að miklir atburðir voru í aðsigi; hann sá mannúðina taka vísind- in upp á arma sína og beina rás viðburðanna til gæfu og gengis fyrir mannkynið í heild; hann sá náttúröflin þvinguð undir vilja mannsins. Saga mín fer nú fljótt yfir. Fimtíu ár líða. Austur í Síberíu var ungur bóndi, Jefremov að nafni. Af hendingu tók hann til lesturs bækur eftir gamla há- skólakennarann. Því meira sem hann las því hrifnari varð hann. Hann sagði við vin sinn: “Við g'etum ekki gert okkur ánægða með að sitja hjá sem áhorfend- ur, við verðum að temja nátt- úruöflin.” “En hvernig,” sagði hinn og brosti, “hefir þú í hyggju að búa til veðurvél.” Jefremov las af kappi; kenn- ingar gamla mannsins um áhrií sólarljóssins töfruðu hann; hann las lýsingar á tilraunum hans mörgum sinnum. Smámsaman þróaðist í huga hans undraverð hugmynd. Hann sagði við akur- yrkju ráðanaut stjórnarinnar: “að sjálfsögðu fær hveitiplantan næringu og vökvun úr moldinni: þessvegna er nauðsynlegt að frjófga og veita á vatni, þar sem því verður við komið; en heldur þú að fæða og vatn sé afaráríð- andi fyrir hveitiplöntuna? “En góði maður” sagði ráðanautur- inn undrandi, “hvað telur þú meira áríðandi? Án fæðu og vatns getur plantan ekki vaxið.” “En sólarljósið er líka nauðsyn- legt,” mælti ungi bóndinn. Allir hlóu. “Eftir miljón ára eða svo, verðum við ef til vill svo kunn- áttusamir að geta haft hemil á sólinni, þá skulum við veita hveitinu okkar alt það sólskin, sem það þarfnast,” sagði ráða- nauturinn. Óvenjulegum glampa brá fyr- ir í augum Jefremov’s og hann sagði hæglátlega: “Eg held að við getum stjórnað sólinni nú þegar.” Hann hugsaði málið gaum- gæfilega frá öllum hliðum; að síðustu ritaði hann hugmynd sína niður á þennan veg: sólarljósið gefur hveitipiöntunni aixa þá orku, sem henni ex nauðsynleg tii að myndbreyta fæðu, vatni og lofti í hveiti, þá vissulega er sólarljósið sá hlut- urinn, sem er mest áríðandi i þessu máli. Til uppskeruaukn- ingar af hverri ekru, er eftir þessu að dæma, nauðsynlegt að auka áhrif sólarinnar á þær hveitiplöntur, sem hver ekra hefir inni að halda; en hvernig?' Hann fann ráðninguna. Er þér hún ljós? Ef til vill ekki. Hin skörpu augu akuryrkju- fræðinganna fundu hana ekki öldum saman. Hér var ráðgáta, sem lögð hefði átt að vera íyrir Sphinxið mikla í Egyptalandi i hinum frægu gátu kappleikum löngu liðinna daga. Svarið var hlægilega einfalt. Til þess að auka uppskeru ai hverri ekru, verður að nota meira sólskin á hverja ekru; það er mögulegt með því eina móti að auka tölu plantnanna á sama flatarmáli. Sérfræðingarnir héldu að Jef- remov væri ekki me$ öllum mjalla, þegar hann reyndi að gera þeim hugmynd sína skilj- anlega. Þú ert ef til vill á sama máli; hvernig er mögulegt að sá þéttara? “Eg veit það ekki með vissu ennþá,” sagði hann, “en eg ætla mér að finna ráðninguna. En segið mér í einlægni, hve marga hveitistöngla má gróðursetja á hverju ferhyrningsfeti af mold?’ Þeir roðnuðu og ráðlögðu hon- um að eyða ekki tímanum í þessi heilabrot. Ef mögulegt væri að auka uppskeruna á þennan hátt, þá hefði það verið gert fyrir hundruðum ára. En hann var ekki ánægður með þetta sem fullnaðarsvar. Ef Jefremov hefði verið vinnu- maður á bóndabæ í okkar landi, hvað gat hann þá gert í þessu máli. Mundi stjórnin hafa leyft honum að gera slíka prófun á tilraunabúum sínum? Vissulega ekki. Hann var ekki skólageng- inn og því heppilegast fyrir hann að halda sig að vinnunni og gleyma öllum heimskulegum heilabrotum. Rússnesku vinnubrögðin eru á annan veg en hér hjá okkur. Þar eru vísindin ekki lengur levnd- ardómur, sem tilheyrir eingöngu hálærðum mönnum eða öðrum sem hafa einhver mentunar skírteini upp á vasann. Búgarð- arnir eru líka alt á annan veg. Jefremov vann á afarmiklu samyrkjubúi, er hundruð bænda áttu og ráku í félagi, með að- stoð kvenna sinna og skylduliðs. Hann boðaði til fundar, til um- ræðu um málið. Hver einasti maður mætti. Þeir töluðu um málið fram og aftur og sam- þyktu að lokum að afhenda Jefremov landspildu til reynslu. Fjöldi ungra manna og kvenna buðu sig fram til aðstoðar við hinar væntanlegu tilraunir. Árangurinn fór eins og raf- straumur um gjörvalt Rússa- veldi, þvert og endilangt. Nafn Jefremovs varð á svipstundu kunnugt á fjölda tungumála Þúsundir bænda og jarðyrkju- manna kenna sig við nafn hans Kristján Kristjánsson F. 19. nóv. 1864; d. 29. 1941 við Bredenbury, Sask. Hann var fæddur að Garð- húsum í Vogum í Gullbringu- sýslu. Foreldrar hans voru þau hjónin Kristján Jónsson og Jó- hanna Bjarnadóttir frá Hákoti í Njarðvíkum í Gullbringusýslu; bjuggu þau að Garðhúsum. Kristján ólst upp hjá foreldr- um sínum til fimm ára aldurs; misti hann þá föður sinn og var þá tekinn tli fósturs af frænda sínum, Grími Andréssyni í Hóla- vatnskoti í Njarðvíkum. Þegar Kristján var fimtán ára tók hann að stunda sjómensku. og hélt því áfrma þar til hann fluttist til Ameríku árið 1900. Það ár gekk hann að eiga Pet- rúnu Pétursdóttur frá Tuma- ko.úi í Vogum; fluttust þau hjón dl Kanada og settust að í Þing- vallabygðinni í Saskatchewan. Lítil voru efni þeirra hjóna í upphafi, en fyrir framúrskar- andi ötulleik þeirra, glæddist hagur þeirra og efni ár frá ári; komust þau yfir mikla landeign, og reistu myndarlegt íveruhús og peningshús, og komu heimil- inu í gott horf á allan hátt. Þannig gekk Kristján frá starfi miklu og göfugu, þegar hann gekk til hvíldar. Ekkjan heldur nú til á heimilinu hjá dóttur sinni Guðrúnu og manni htnnar Bjarna Bjarnasyni, sem halda þar uppi búi. Fyrir. utan Guðrúnu eignuðust þau hjón einn dreng, Jóhann Pétur, sem er til heimilis í Winnipeg. Eg minnist þess, þegar eg kyntist Kristjáni í fyrsta sinn. Bar hann þess merki, að þar var maður, sem ekki hafði legið á iiði sínu um dagana; enda var hann fjörmaður með afbrigðum, og gekk með kappi að hverju verki; talinn með beztu sjó- mönnum, sem var fengsamur, og sá ráð við öllu. Hann átti á- reiðanlega heima á sjónum; hafði iðulega komist í hann krappan; var skemtilegt að heyra hann segja frá atburðum þeim, var frásögn öll lifandi og öfgalaus; sjómenskan var hon- um í blóð borin. Hann hafði mikið dálæti á kvæðum eins og “Heyrið morgunsöng á sænum” og kvæðum sama eðlis. Annða var það, sem vakti at7 hygli á Kristjáni; hinn góð- mannlegi svipur og látbragð, sem prýddi hann, enda ávalt fús til þess að rétta hendina hverj- um, sem átti bágt; kona hans var heldur enginn eftirbátur í því. Alls ekki get eg hugsað mér að Kristján og kona hans hafi eignast nokkra óvini um dagana; allir báru hlýjan hug til þeirra og lögðu þeim gott til. Enda skulduðu þau engum neitt, og klifu þrítugan hamarinn að standa í skilum, ef láns þurfti að leita; jók það þeim trausts og virðingar. Sakna eg hins göfuga manns. sem reyndist svo nytsamur í starfi; mun það almenn tilfinn- ing allra þeirra, sem þektu hann. Mun sannast á Kristjáni: “Sætur er svefninn þeim, sem erfiðar.” Enda mun æfistarf hans reynast honum haldgóður bautasteinn. s. s. c. Tveir og tveir eru fimm Leifur Eiríksson var fæddur af norskum* foreldrum á Islandi. Þessvegna telst hann Islending- ur en ekki Norðmaður. Vilhjálmur Stefánsson fædd- ist af íslenzkum foreldrum í Canada, því er hann íslendingur en ekki Canadamaður. * * * Það er gefinn hlutur að stjórnmálamönnum Canada og Bandaríkjanna er kunnara um millilanda-mál en sauðsvörtum almúga. Svo árum skifti fyrir stríðið, gerðu uppskipunarmenn verk- föll á vesturströndinni, þegar þeim var uppálagt að ferma skip sem fluttu þær vörur til Japan, sem auðsýnilega átti að nota í þarfir hernaðar. # * * Fyrir löngu, löngu síðan sigldi Vilhjálmur (bastarður) af Nor- mandy til Englands og lagði landið undir sig. Hann skifti því upp milli félaga sinna. Þótti þetta hin mesta frækni, og telur hver enskur aðalsmaður það sér til heiðurs að geta rakið ætt sína til Vilhjálms og kumpána hans. Fyrir tæpum aldarfjórðungi lagði rússnesk alþýða sitt eigið land undir sig, en það þótti hin mesti glæpur sem mannkyns- sagan hermir frá. Það ku eiga að verða ný jörð og nýr himinn eftir stríðið. Þeir segja að hinn nýi heimur — guðsríki á jörðu hér — eigi að skapast fyrir samvinnu og sam- eign, eða eins og við köllum það Kó-opp. Sumum finst þetta skynsamlegt og sjálfsagt, þvi þeir hafa séð mittisorma og bý- flugur búa. (Rússland má ekki nefna í þessu sambandi). Jæja. Nýlega skutu tuttugu og fimm þúsund Kó-oppar sam- an fimtán þúsund dollurum tL þess að kaupa útvarps-auglýs- ingar um bisness sitt í Banda- ríkjunum. Mottó þeirra er: “Við skulum koma okkur sam- an, nágranni góður.” Þá kemur til sögunnar einn af höfuðsmönnum NBC félags- ins, og sýnir fram á að þetta uppþot Kó-oppanna er á móti allri sannri ameríkönsku. Þeir segja að grundvallar-atriði stefnu sinnar, samvinnu og sam- eignar, sé fjögur: 1. Félagsskapurinn er opinn h Lrm þeim, sem gerast vill meðlimur í hagfræðilegu bræðralagi. 2. Atkvæðagreiðsla í félags- skap þessum — hver meðlimur eitt og aðeins eitt atkvæði — miðar að hagfræðilegu lýðræði. 3. Sem allra minstur ágóði skal borgast á hvert hlutabréf, til þess að tryggja sjálfstæði einstaklingsins og koma í bága við spekúlasíón. 4. Mest af ágóðanum skai jafnað niður á meðlimi eftir því hversu mikið hver og einn þeirra verzlar hjá félaginu, svo arðurinn dreifist meðal fjöld- ans. Og nú eiga dómstólarnir að skera úr hvort vogandi sé að út- varpa þessari villukenningu meðal amerískra borgara. 30.-10.-42. J. P. P. Fjaðrafok Stór negri kom inn á skrif- stofu leikhússtjóra. Hann hafði auðsjáanlega töluvert sjálfsálit. —Hvað get eg gert fyrir þig? spurði leikhússtjórinn. —Veitt mér atvinnu, svaraði negrinn. —Ertu þá listamaður? —Já, vissulega er eg það, svaraði sá svarti hreykinn. —Iivað geturðu gert? —Eg get slegið met í því að eta egg. —Hvernig ,þá? —Eg get etið allan daginn hverskyns egg sem eru. borin fyrir mig, hænu, anda og álfta, og yfirleitt allar tegundir. Leikhússtjörinn hafði allmikla kímnigáfu, svo að hann einsetti sér að ofbjóða þessum sjálfbirg- ingslega negra. —Jæja, það má vel vera að eg geti notað þig eitthvað — en erfitt verður það. —Það er bara betra! —Jæja, taktu þá eftir. Á virkum dögum eru fimm sýn- ingar. Ein fyrir hádegi, tvær eftir hádegi og tvær um kvöld- ið. —Ágætt, herra. —Og á laugardögum eru sjö sýningar í stað fimm. Hvernig fellur þér það? —Prýðilega! Þér útvegið mér egg og áhorfendur, eg mun sjá um hitt. Leikhússtjórinn ætlaði ekki að gefast upp. ■—En á sunnudögum eru sýn- ingar samfleytt frá kl. 10 á morgnana til 11 á kvöldin. Hann beið með eftirvæntingu eftir svari. Negrinn varð dá- lítið órólegur. —Heldurðu að þetta verði of erfitt? sagði leikhússtjórinn sigri hrósandi. —Ónei, en eg verð samt að biðja yður að gefa mér eins til tveggja tíma frí á þeim dögum. —Til hvers? —Til þess að fara heim og eta mínar venjulegu máltíðir! Leikhússtjórinn gafst upp. —(Lesbók). LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. NÓVEMBER, 1942 Ex 3 Business and Professional Cards Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 e Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 30 8 AVENUE BLDG , WPG. Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgú. bifreiSaábyrgð, o. s. frv. Phone 26 821 Thorvaldson & Eggertson Lögfrœöingar 300 NANTON BLDG. Talsími 97 024 DR. A. V. JOHNSON Dentist • 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 27 702 ST. RECIS HOTEL 2 85 SMITH ST., WINNTPEG • pteaiief/ur og rólegur bústaöur i miObik.i borgarinnar Herbergi $2.00 og þar yfh; með baðklela $3.00 og þar yfir Agætar máltiðdr 4 0c—60e Frce Parking for Quests Peningar til útláns Sölusamningar kevptir. Böjaröir til sölu. INTERNATIONAL LOAN COMPANY 304 TRUST & LOAN BLDG. Winnipeg DR. B. J. BRAMDSON 216-2 20 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tlmar 3-4.30 • Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlæknar • 40 6 TORONTO GEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEO A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi 86 607 Heimilis talsími 501 562 Legsteinar sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmari SkrifiO eftir verðskrá GILLIS QUARRIES. LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. DR. A. BLONDAL Physician & Surgeon 60 2 MEDICAL ARTS BLDG STmi 22 296 Heimili: 108 Chataway Sími 61 023 Office Phone Res. Phone 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment Arthur R. Birt, M.D. 605 MEDICAL ARTS BLDG. Winnipeg Lækningastofu-slmi 23 703 Helmilissími 4 6 341 Sérfrœöingur i öliu, er aö húösjúkdómum lýtur Viðtalstlmi: 12-1 og 2.30 til 6 e. h DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur 1 eyrna, augna, nef og hálssjúkdúmum 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedv Viðtalstími — 11 til 1 og 2 til 5 Skriístofusími 22 251 Heimilissími 401 991 Dr. S. J. Johannesson 215 RITBY STREET (Beint suöur af Banning) Talsími 30 877 Viðtalstími 3—5 e. h. H. A. BERGMAN, K.C. i.A. Anderson,B.A.,LL.B. íslenzkur lögfrœðingur Barrister and Soltcitor • and Notary Pubiic Skrifstofa: Rootn 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 165C Phones 95052 og 39043 Tryggingar af öllum tegundum. ASHERN, MAN. J. W. MORRISON & CO. Oencral Hardwarc S. E. Björnso s M,D. MAL og OLtUR Læknir og lyfsali “Sé l>að harðvara, höfum við hana” • SÍMI 270 — SELKIRK. MAN. ARBORG, MAN. No. 1 Call 2 Dr. K. I. JOHNSON DR. M. C. FLATEN Pbysician and Surgeon Tannlœknir Sími 37 EDINBURG, N. DAKOTA CENTRE ST., GIMLI, MAN. SINCLAIR’S VICTORY BOWLING TEA ROOMS FIVE and TEN PINS Staðurinn par sem allir vinir mœtast. Sfmið 206 til þess að tryggja aðgang SELKIRK, MAN. SELKIRK. MANITOBA Gilhuly’s Drug Store THE REXALL STORE E. G. EIRIKSSON Lyfjasérfrœöingar Lyfsali SELKIRK, MAN. CAVALIER, N. DAKOTA. Sími 100 Nætursfmi 25 Slmi 24 t

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.