Lögberg - 05.11.1942, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 3. NÓVEMBER, 1942
Úr borg og bygð
Sambands-kvenfélagið í Ár-
borg hefir ákveðið sína árssam-
komu þ. 13. nóv. í Árborg Hall.
Verður þar meðal annars til
skemtunar og fróðleiks erindi
fultt af Guttormi J. Guttorms-
syni, um Tryggva Ingjaldsson,
sem um langt skeið var einn af
otulustu og framkvæmdarmestu
mönnum í Norðurhluta Nýja ís-
lands. Hann er nú horfinn úr
hópnum, en minningin um hann
og alla hans starfsemi hverfur
ekki um langa tíð úr hugum
þeirra, sem nutu samvistar með
honum um lengri eða skemri
tíma. Það er gott að gefa sér
tíma til þess að íhuga æfistarf
slíkra manna sem hann var; því
óefað má margt af því læra til
hagsmuna fyrir framtíð hinna
yngri manna. Og það má treysta
ræðumanninum til þess að gera
málefninu hin beztu skil. Auk
þessa verður þarna tombóla og
dans.
S. E. B.
♦ ♦ ♦
"Choral Commemoralion"
11. nóvember.
Jón Sigurðsson félagið er að
undirbúa hátíðlega minningar-
athöfn, sem fer fram í Fyrstu
lút. kirkju 11. nóvember. Hefir
verði mjög vel vandað til þess-
arar samkomu. W. J. Lindal,
dómari flytur stutta minningar-
ræðu; séra V. J. Eylands og séra
P. M. Pétursson stýra guðrækn-
isathöfninni. Sameinaðir söng-
flokkar frá báður (slenzku kirkj-
unum syngja undir stjórn
Frank Thorolfson. Kerr Wilson,
sem er vel þektur söngmaður,
syngur einsöngva. Félagið von-
ar og óskar að fólk fjölmenni
við þetta tækifæri. Athöfnin
byrjar kl. 8.30 e. h. Samskot
verða tekin.
♦ -f -f
Tilkynning
Þar eð- nú verður farið að
prenta í Almanak okkar fram-
hald af Landnámssögu Álfta-
vatnsbygðar, er áríðandi að
bændur sendi myndir af sér og
konum sínum strax til okkar,
svo þær geti birtst í sögunni, og
$2.50 með hverri mynd. Það er
áríðandi að geyma vel minn-
ingu og myndir brautryðjend-
anna.
Thorgeirson Company
674 Sargeni Ave.
Winnipeg, Man.
f f f
Mr. J. K. Jónasson frá Fagra-
nesi við Vogar P.O., er nýlega
hingað kominn til vetrardvalar;
verður hann til heimilis hjá
dóttur sinni, frú Jónínu Som-
merville, að 443 Victor Street.
Mr. Jónasson, er einn þeirra
harðsnúnu, íslenzku Birkibeina,
sem aldurinn bítur ekki á; hann
heldur sér enn hið bezta, þótt
fylt hafi áttunda tuginn, og er
glaður og gunnreifur að vanda.
f f f
Mr. Sigurður Sturlaugsson,
hárskeri, lagði af stað alfari
vestur til Seattle, Wash., síðast-
liðinn sunnudag, ásamt frú sinni
og dóttur.
Geirfinnur Sigurður Sigurd-
son og Ólöf Sigríður Sigvalda-
son, bæði frá Árborg, voru gef-
in saman í hjónaband þ. 17
október s.l. af séra Bjarna A.
Bjarnason. Athöfnin fór frarn
á heimili foreldra brúðarinnar
Mr. og Mrs. B. I. Sigvaldasox.
í Árborg. Mr. Sigvaldason var
um eitt skeið oddviti Bifröst
sveitar. Brúðguminn er sonur
Thorgríms sál. og Magneu Sig
urdson á Storð í grend við Ár-
borg; afi hans er hinn velþektx
fræðimaður Magnús Sigurdson
á Storð. Að hjónavígslunni af-
staðinni, var setin vegleg brúð-
kaupsveizla. Lögðu ungu hjón-
in síðan á stað í brúðkaupsferð
til Kenora, Ont. Heimili þeirra
verður á Storð, þar sem Mr.
Sigurdson býr. myndarbúi á
föðurleifð sinni.
f f f
The Viking Club (Canadian
Scandinavian Cldb), heldu,
fund á mánudagskveldið kemui
á skrifstofu sænska ræðismanns
ins, Mr. Hermannson, 470 Main
Street. Fundurinn hefst kl. 8.15.
f f f
Stúdentasamband United Col-
lege, hefir ákveðið að halda
“Silver Tea’” í borðsal Hudson’s
Bay verzlunarinnar á laugardag-
inn þann 7. nóvember næstkom-
andi, til arðs fyrir minningar-
sjóð þeirra Mrs. W. J. Lindal og
Miss Mary Rowell. Þetta
“Silver Tea” stendur yfir frá
kl. 3—6 e. h. Hér er um fyrir-
tæki að ræða, sem verðskuldar
einhuga stuðning af hálfu Is-
lendinga, og er þess því að
vænta, að þeir komi í stórum
hópum á þenna áminsta stað á
hinum tiltekna tíma. Tillög í
sjóð þenna sendist til Mrs. J. B.
Skaptason, 378 Maryland Street.
og Vera Patrick, University
Women’s Club, Westgate, Win-
nipeg.
* * *
Dr. Sveinn E. Björnsson skáld
frá Árborg, var staddur í borg-
inni um helgina ásamt frú sinm.
f f f
Mr. John Valdimarsson og
Mrs. John Finnbogason frá
Langruth, voru stödd í borginni
í fyrri viku.
f f f
1 vikunni sem leið komu þeir
séra Egill H. Fáfnis og Mr. G. J.
Oleson, heim af ársþingi Sam-
einuðu lútersku kirkjunnar, sem
haldið var í borginni Louisville
í Kentuckyríkinu.
f f f
Mr. G. L. Jóhannson, ræðis-
maður, kom heim á sunnudag-
inn var; hann sat ársþing Sam-
einuðu lútersku kirkjunnar í
Louisville, Kentucky, og fór auk
þess í embættiserindum tiJ
Washington og New York. Lét
ræðismaður hið bezta af för-
inni og þeim alúðlegu viðtök-
um, er hann mætti hvar sem
leið hans lá.
f f f
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnpieg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
Mr. og Mrs. B. S. Johnson frá
Argyle voru stödd í borginni .
fyrri viku ásamt börnum sínum
f f f
Hjónavígslur framkvæmdar aí
séra Valdimar J. Eylands:
Helga Stefánsson, dóttir Mr.
og Mrs. Guðm. Stefánsson, 693
Simcoe St. var gefin Victor Axe.
Johnson frá Kingston, Ont., að
heimili foreldra sinna, 29. okt.
Brúðguminln br af sænskum
ættum.
Guðrún Stefanía Johnson frá
Cypress River, og Joseph Ander-
son frá Winnipeg, voru gefin
saman í hjónaband á laugardag-
inn 31. okt. að 776 Victor St.
Thora Johannesson frá Sel-
kirk, Man. og Otto Lyle Scram
stad, Winnipeg, voru gefin sam
an að 776 Victor laugardaginn
31. okt.
Margaret Irvine Spencer, Win-
nipeg og Brynjólfur Gunnlaugs-
son frá Baldur, Man., voru gef-
in saman að ,776 Victor, 3. nóv.
f f f
The Icelandic Canadian Club
will hold a general meeting in
the Antique Tea Room, Ender-
ton Bldg., Sunday evening, at
8.30, Nov. 8th. Mr. Terry
Arnason will be guest speaker.
All members are urged to at-
tend this meeting and new
members will be welcomed.
f f f
Lundar, Man
30. okt 1942
Ritstjóri Lögbergs,
Winnipeg.
Kæri herra:
Eftirfylgjandi er ráðning á
fuglagátunni, miðað við mat
Jóns halta á öndinni og þar af
leiðandi á álftinni,
2 andir á 4 álnir
1 álft á 8 álnir
10 titl. á 1 alin.
13 13
Fyrir sextíu og fimm árum
lærði eg vísurnar eins og Finn-
bogi Hjálmarsson hafði þær.
Með vinsemd,
M. Kristjánson.
f f f
Önnur ráðning:
Önnur tilraun til þess að ráða
fugla-gátuna eins og hún er nú
framsett af Jóni halta.
Þar sem ekki má hafa nema
tíu smáfugla, sem gera til sam-
ans eina alin, gefur að skilja
að ómögulegt er að ná 30 áln-
um, þar sem hvorki andirnar né
álptirnar standa á stöku. Ráðn-
ing mín í þetta sinn er því
þannig:
3 andir=6 álnir
2 álptir=8 álnir
10 titlingar=l alin.
15 fuglar = 15 álnir.
Fuglar og álnir til samans 30.
Með beztu óskum og von um
að fótarmein Jóns Halta megi
batna svo, að hann geti gengið
óhaltur um hátíðirnar, sem i
hönd fara, og að hann geti þá
að minsta kosti komist af með
nafnið Jón valti.
Emily H. Baldwinson.
(Mrs. Jónas Pálsson).
Skoti nokkur skrifaði ritstjóra
tímarits og skýrði honum frá
því, að ef hann hætti ekki að
prenta Skotasögur í blaðinu, þa
myndi hann hætta að fá blaðið.
iánað til lesturs.
MINNIST B E T E L
í ERFÐASKRAM YÐAR
77/. ÞESS AÐ TRYGGJA
YÐUR SKJÓTA
AFGREIÐSLU
Skuluð þér ávalt kalla upp
^AROENT
TAXi
PHONE
34 555 - 34557
SARGENT and AGNES
TRLIMP JWi
ST. JAMES
Phone 61 111
SAMKERJAR VINNA MJÖG
Á í EGYPTALANDI
Nú er liðin vika síðan samein-
uðu þjóðirnar hófu gagnsókn
mikla gegn herskörum Rommels
í eyðimörk Egyptalands; hafa
varnarlínur möndulveldanna
verið rofnar á mörgum stöðum,
og liðsveitir þeirra hraktar tii
baka, í sumum tilfellum um
seytján mílur; grimmilegar
skriðdreka-orustur hafa verið ]
háðar upp á síðkastið á stöðv-
um þessum, og hafa möndulveld-
in farið halloka í þeim öllum;
mannfall hefir orðið tvöfalt
meira á hlið möndulveldanna,
en tap skriðdreka og flugvéla
margfalt við tap hinna samein-
uðu þjóða. Bendir nú margt til
þess, að Rommel bíði innan
skamms fullnaðarósigur í
Egyptalands leiðangri sínum.
ÞINGKOSNINGAR
í BANDARÍKJUM
Síðastliðinn þriðjudag fóru
almennar kosningar til þjóðþings
Bandaríkjanna fram, þar sem
kjósa skyldi nýja þingmenn tii
neðri málstofunnar í heild og
einn þriðjung öldungadeildar
innar. Og þó fullnaðarúrslit sé
enn eigi kunn, þá er það þo
sýnt, að Republicanar auka stór-
vægilega fylgi sitt í báðum
deildum þings, auk þess sem
þeir fengu kjörna marga, nýja
ríkisstjóra af hálfu flokksins;
unnu þeir meðal annars New
York, þar sem Thomas E. Dewey
náði kosningu með miklu afli at-
kvæða um fram gagnsækjanda
sinn, John J. Bennett, er sótti
undir merkjum Demokrata.
DANARMINNING:
Hermania Kristín Björg John-
son andaðist á heimili sínu í
grend við Hensel, N.D. mánu-
cragirfn 19. október. Hafði hún
verið lasin undanfarið, en veikt-
ist þó ekki alvarlega fyr en
sunnudaginn 18. okt. og andaðist
daginn eftir. Var það hjarta-
sjúkdómur, sem lelddi hana tiJ
bana.
Kristín sál. fæddist 17. sept
árið 1868, á Aðalbóli í Jökuldal.
Foreldrar hennar hétu Guðni
Thorsteinsson og Aðalbjörg
Jónsdóttir. Á hún þrjú hálf-
systkini á lífi, Mrs. Sigvaldason
og Miss Aðalbjörg Björnson i
Winnipeg, og Svein lækni Björn-
son í Árborg, Man.
Kristín giftist árið 1889 Har-
aldi Johnson og um langt skeið
bjuggu þau í Henselbygðinm.
En Haraldur andaðist árið 1932.
Hefir Kristín síðan^ búið hér í
bygðinni með tveimur ógiftum
sonum sínum, þeim Sigurjóni og
Tryggva. Hin þrjú börn þeirra,
sem á lífi eru, Mrs. Thorlakson,
Mrs. Arnason og Sigurður í
Wynyard, Sask., eru gift. Einn
sonur dó í æsku.
Kristín sál. var góð og gætin
kona. Hún var bókhneigð og
vel að sér. Var hún ávalt vin-
gjarnleg í garð < samferðafólks
síns, og vel látin af öllum. Enda
voru þau hjón frábærlega gest-
risin og góð við alla, og þó eink-
um hina bágstöddu. Af eigin-
manni sínum og börnum og öðr-
um ástvinum var hún ástsæl.
Útför Kristínar sál. fór fram
frá heimilinu og Vídalínskifkju
föstudaginn 23. október. Margir
fylgdu hinni látnu vinsælu konu
til grafar. Mrs. Sig. Thorlaks-
son, ung innlend kona, sem er
nýlega gift dóttursyni hinnar
látnu söng einsöng við útförina.
Séra H. Sigmar jarðsöng.
Gaman og alvara
Sögupróf stóð yfir í menta-
skóla nokkrum. Kennarinn kall-
aði á þann, sem næstur honum
stóð og byrjaði að yfirheyra
hann
—Hvenær var frelsisskráin
mikla undirrituð?
Ekkert svar.
—Hvenær dó Hinrik VIII.?
Ekkert svar.
—Hvar voruð þér á föstudags-
kvöld?
—Eg sat að drykkju með
nokkrum íélögum mínum.
—Hvernig dettur yður í hug
að þér getið náð prófi hér e*
þér iigið í óreglu.
—Mér hefir aldrei komið það
til hugar. Eg kom til að gera
við rafmagnsleiðslur hér í skó)-
anum.
* ❖ *
Rödd í símanum: Læknir. eruð
það þér? Konan mín fór úr
kjálkaliðnum. Gætuð þér komið
einhverntíma í næstu viku til
að líta á hana?
* * *
—Jósep! Jósep!
—Já, mamma.
♦Ertu að spýta í gullfiska-
skálina?
■♦•Nei, mamma, en eg er kom-
inn ansi nálægt henni.
* * ❖
Flækingur: Eg vildi að eg
ætti miljón krónur. Þá skyldi
eg kaupa mér lystiskip og fara
í ferðalag umhverfis jörðina.
Annar flækingur: Mundir þú
bjóða mér með þér?
♦Ertu vitlaus. Úr því þú ert
svo latur að þú nennir ekki aö
óska þér, þá getur þú verið
heima.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja, Winnipeg
Séra Valdimar J. Eylands,
prestur
776 Victor St,—Phone 29 017
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi.
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12:15.
Allir æfinlega velkomnir.
-f -f
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 8. nóv.—
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
f -f f
Messur í Gimli prestakalli:
Sunnudaginn 8. nóv.—
Betel, kl. 9.30 árd.
Árneskirkju kl. 2 síðd.
S. Ólafsson.
f f f
Messur í Upham. N. Dak.:
Sunnudaginn 8. nóv., kl. 1 e. h.
Sunnudagaskóli strax eftir
messu.
E. H. Fáfnis.
f f f
Preslakall Norður Nýja íslands:
8. nóv,—-Árborg, íslenzk messa
kl. 2 e. h.
15. nóv.—Hnausa, messa og
ársfundur kl. 2 e. h. Riverton,
ensk messa kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
f f f
Guðsþjóiusta og barnaupp-
fræðsla í Konkordia kirkju þ.
Sunnudaginn þann 8. þ. m.,
flytur séra B. Th. Sigurdsson,
guðsþjónustur á eftirgreindum
stöðum og tíma:
Westside skóla, 11 f.h.—ísl.
Foam Lake. 2.30 e. h.—ísl.
Leslie, 8 e. h.—ensk.
f f f
íslenzk guðsþjónusta
í Vancouver:
Sunnudaginn 8. nóv., kl. 7.30
að kvöldinu, í dönsku kirkiunni
á E. 19th Ave. og Burns St.
Allir velkomnir.
R. Marteinsson.
f f
Messur í Piney:
Sunnudaginn 15. þ. m. messai
séra Philip M. Pétursson
Piney á íslenzku og ensku á
vanalegum stað og tíma. Bygð-
armenn þar geri svo vel að láta
i það fréttast.
f f f
Sunnudaginn 8. nóv. messar
séra H. Sigmar í Garðarkirkju
kl. 11 f. h. og í Eyford kl. 2 e. h.
Báðar messurnar á íslenzku. Við
báðar þessar messur almenn
altarisganga þessara safnaða
Allir velkomnir.
Þess má ennfremur geta nú,
að sunnudaginn 15. nóvember
ráðgera þeir séra Egill H. Fáfnis
og séra Haraldur Sigmar, að
hafa verkaskifti þannig að séra
Egill messar í Dakota og séra
Haraldur í Argyle. Messurnar
í Dakota þann sunnudag verða
sem fylgir:
í Vídalínskirkju kl. 11, á
ensku; í Svoldarkirkju kl 2.30
á ensku, og í Mountain á ís-
lenzku. Offur í Kirkjufélags-
sjóð við allar þessar messur.—
Hust-offur safnaðanna til trú-
boðs og annara kirkjufélags-
starfsmála. Allir velkomnir.
Fjaðrafok
Tveir ræningjar réðustágang
andi mann á förnum vegi. Hann
tók hraustlega á móti þeim,
varðist eins og tígrisdýr með
klóm og kjafti, og voru báðir
ræningjarnir allmikið laskaðir,
þegar þeim tókst að slá hann í
rot.
Þeir leituðu í vösum hans í
þeirri von að finna þar einhverj-
ar raunabætur. Það eina, sem
þeir fundu var einseyringur í
jakkavasa hans.
Sá, sem fann einseyringinn
horfði fullur aðdáunar á með-
vitundarlausa manninn.
—Bill, sagði hann lágt við
förunaut sinn. — Hefði þessi
maður haft 25-eyring á sér, hefði
hann drepið okkur báða.
Á þessu augnabliki kom fórn-
arlambið til sjálfs sín.
—Heyrðu, lagsi, sagði annar
ræninginn. — Hvað kom þér til
þess að berja rækilega á okkur.
Það er það, sem okkur. mig og
félaga minn fýsir að vita. Ef
einn einasti einseyringur hefir
svona mikið að segja í lífi yðar,
getið þér fengið hann aftur, á-
samt beztu hamingjuóskum okk-
ar félaganna.
—Það er ekki upphæðin. sem
gerir, sagði ókunni maðurinn.—
Mér leiddist bara að láta ó-
kunna menn komast á snoðir
um fjárhag minn.
15. s. m. kl. 1 e. h.
s. s. c.
HEYRIÐ ÞESSA RÆÐUMENN
J. W. NOSEWORTHY, M.P.
sem sigraði Meighen í Toronto
STANLEY H. KNOWLES
sem sækir um sæti Woodsworths í North Centre
Winnipeg
Hittið einnig umsækjenda í bæjarkosningunum
í 2. kjördeild undir merkjum C.C.F.-I.L.P.
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 6. NÓV.. KL. 8
í samkomusal Sambandskirkju
Sargenl Ave. og Banning Si.
KAUPIÐ ÁVALT
L IJ H 13 C 13
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551