Lögberg - 12.11.1942, Blaðsíða 1
HELZTU FRÉTTIR
Mikíl og margbrotin tíðindi
Herskarar Kommers hröklast á flótta
úr Egyptalandi. Bandaríkjamenn,
með aðstoð brezka sjó= og loftflot-
ans hernema nýlendur Frakka í
Norður Afríku. Hitler sölsar undir
sig alt Frakkland.
V —----------
CANADASTJÓRN SKIPAR
FJÓRA NÝJA
SENDIFULLTRÚA
í vikunni, sem leið, gerði King
forsætisráðherra sambandsstj.
það lýðum ljóst, að hann hefði
skipað fjóra nýja sendifulltrúa
til þess að fara með umboð fyrir
hönd Canada með eftirgreindum
þjóðum: Til Rússlands verður
sendur Mr. L. D. Wilgress, að-
stoðar viðskiftamálaráðherra.
Warwick Chipman, lögfræðingur
í Montreal, fer til Chile, Maj.-
Gen. Victor Odlum verður sendi-
fulltrúi í Kína, en til Ástralíu
verður sendur T. C. Davis dóm-
ari, sem verið hefir undanfarið í
þjónustu War Services ráðuneyt-
isins; þetta er í fyrsta skiftið
sem Canadastjórn stofnar tii
sendifulltrúa sambanda við
Rússland, Kína og Chile; allar
hafa þjóðir þessar opnað fyrir
nokkru sendiráðsskrifstofur í
þessu landi.
THOMAS E. DEWEY
Hvat manna es þat? Mr.
Dewey er lögfræðingur, rúmlega
fertugur að aldri, búsettur í
Manhattan; hann varð fyrir
nokkrum árum þjóðfrægur
maður fyrir það, hversu rögg-
samlega hann gekk fram í því.
að koma fram refsingu á hend-
ur siðspiltum mútuþegum í New
York, og gekk sigrandi af hólmi
í ríkisstjórakosningunum þar,
með miklu afli atkvæða umfram
gagnsækjanda sinn, Mr. John J.
Bennett, er bauð sig fram af
hálfu Demokrata. Mr. Dewey
mun nú ganga næst Mr. Wendeli
L. Willkie að áhrifum, innan vé-
banda Republicanaflokksins.
Síðastliðin 20 ár hafa Demo-
kratar farið með völd í New
York ríki.
TEKNIR AF LÍFI FYRIR
FÖÐURLANDSSVlk
Frá því að yfirstandandi
heimsstyrjöld braust út, hafa
ellefu menn verið teknir af lífi
á Bretlandi fyrir föðurlandssvik;
hinn síðasti þeirra og yngsti, var
Scott-Ford, sjómaður 23 ára að
aldr,i er sigldi milli Englands
og Lisbon; sannaðist það á hann
að hafa þegið mútur af spæjur-
um óvinaþjóða, fyrir að segja til
um brezkar skipagöngur.
RÖSKLEGA AÐ VERIÐ
í síðastliðnum októbermánuði,
skaut varnarliðið á eynni Malta
niður 132 þýzkar og ítalskar
orustuflugvélar, sem veittust að
varnarvirkjum Breta á þessum
stöðvum; auk þessa er frá því
skýrt, að um 200 óvinaflugvélar
hafi sætt meiri og minni skemd-
um við Malta á þessu sama
tímabili.
INNRÁS Á ÍTALÍU
Ameríski blaðamaðurinn víð-
kunni, H. V. Kaltenborn, sem
ræðu flutti í Civic Auditorium
hér í borginni í fyrri viku, lét
þá skoðun sína í ljós, að pftir
það að sameinuðu þjóðirnar
gengi sigrandi af ihólmi í Afríku.
sem ekki yrði dregið í efa. virt-
ist sér' það liggja næst, að þær
stofnuðu til innrásar á ítalíu,
sem nú væri augljóslega orðin
veikasti hlekkurinn í keðju
möndulveldanna; þessu mætti
hrinda í framkvæmd annaðhvort
yfir Sikiley, eða með því að ná
Krítey undan yfirráðum Þjóð-
verja.
CANADA SENDIR GRIKKJUM
HVEITI
Þrjú sænsk skip sigldu nýver-
ið héðan frá landi áleiðis til
Aþenu, hlaðin hveiti, sem Can-
adastjórn gefur grísku þjóðinni
til þess að lina hungursneyðina,
er spent hefir íbúa Grikklands
heljargreipum síðan Þjóðverjar
hernámu landið.
ÞRJÁTÍU OG FIMM
FLUTNINGASKIP AFHENT
ÞJÓÐVERJUM OG ÍTÖLUM
Síðasta afrek Laval-stjórnar-
innar í hinum óhernumda hluta
Frakklands, er það, að afhenda
Þjóðverjum og ítölum 35 vöru-
flutningaskip erlendra þjóða
sem legið hafa í frönskum höfn-
um; sum skipa þessara voru
norsk og dönsk. ítalir fengu 22
af skipunum, en Þjóðverjar af-
ganginn. Afhending skipanna
fór fram samkvæmt strangri
kröfu frá Adolf Hitler.
ÞJÓÐVERJAR KVEÐJA
JAPANI TIL FUNDAR
#
Fregnir frá Berne þann 6.
þ. m., láta þess getið, að hernað-
arvöldin þýzku hafi kvatt til
fundar við sig japanska sendi-
fulltrúa í Evrópu með það fyr-
ir augum, að koma á nánari
samvinnu milli möndulveldanna,
einkum með hliðsjón af hrak-
förunum í Egyptalandi.
DR. FLEMING LÁTINN
Þann 5. lézt að heimili sínu í
Humboldt, Dr. Harry Raymond
Fleming, sambandsþingmaður
fyrir Humboldt kjördæmið í
Saskatchewan; hann hafði átt
við vanheilsu að stríða um all-
langt skeið. Dr. Fleming var
fyrst kosinn á sambandsþing af
hálfu Liberalflokksins í áminstu
kjördæmi árið 1935, og endur-
kosinn í almennu kosningunum
1940. Hann var mikilhæfur
maður og fylginn sér vel.
MÆLIR MEÐ SAMVINNU-
STJÓRN
Senator Arthur Vandenberg
frá Miqhigan, einn af hinum
áhrifameiri forustumönnum Re-
publicana í öldungadeild þjóð-
þingsins í Washington, tjáist því
hlyntur, að flokksmálin í Banda-
ríkjunum verði lögð á hilluna,
og samvinnustjórn mynduð til
stríðsloka.
MR. NOSEWORTHY
í WINNIPEG
Mr. J. W. Noseworthy, C.C.F.
sambandsþingmaður fyrir Soutli
York kjördæmið í Ontario, hefir
dvalið hér í borginni undanfar-
andi, og flutt ræður til stuðnings
við Rev. Stanley Knowles, er
býður sig fram af hálfu þess
flokks í Mið-Winnipeg kjördæm-
inu hinu nyrðra, við aukakosn-
inguna, sem fram fer þann 30.
yfirstandandi mánaðar.
Mr. Noseworthy. komst mjög
á dagskrá, er hann í fyrra feldi
leiðtoga íhaldsflokksins, Mr.
Meighen, í Sout York kjördæm-
inu.
LÖFRÆÐINEMENDUM
FÆKKAR
Samkvæmt skýrslu Manitoba-
háskólans, er tala lögfræðinem-
enda þar nú með allra minsta
móti. í fyrra stunduðu lög-
fræðinám að staðaldri 35 stúd-
entar, en nú ekki nema 15. Staf-
ar þetta af því, hve tala þeirra
lögfræðinema, er innritast í her-
inn, fer jafnt og þétt í vöxt.
Hersveitir sameinuðu þjóð-
anna í Egyptalandi, undir for-
ustu Gen. Montgomery, hafa
unnið fullnaðarsigur yfir liðs-
sveitum möndulveldanna þar í
landi, og hrakið inn í Libyu leif-
arnarf sem mælt er að eigi nemi
nema liðugum tuttugu þúsund-
um; hafa möndulveldin á stöðv
um þessum því beðið þann til-
finnanlegasta, eða réttara sagt.
fyrsta stórósigurinn í yfirstand-
andi styrjöld; freklega fjörutíu
þúsundir Þjóðverja hafa verið
teknar til fanga, en um sjötíu
þúsundir ítala, er Þjóðverjar
skildu eftir í reiðileysi á eyði-
mörkinni, er þeir sjálfir lögðu á
flótta; ógrynni hergagna féll
sameinuðu þjóðunum í skaut:
þar á meðal eitthvað um þrjú-
hundruð skriðdrekar. Talið er
víst, að eftirstöðvarnar af her-
skörum Rommels verði senn
króaðar inni í Libyu.
Á laugardaginn var tilkynti
einkaritari Roosevelts forseta, að
Bandaríkjaher hefði lent í ný-
lendum Frakka í Norður-Afríku,
með aðstoð brezka loft- og sjó-
flotans, og að Algiers hefði gef-
ist upp; og er fram á þriðjudag
kom, staðfesti stjórnin í Vichv
einnig þá fregn, að hafnarborgin
Oran væri fallin; nokkurri mót-
spyrnu mætti her Bandaríkjanna
í Casablanca, en nú er mælt, að
HERSVEITIR JAPANA
Á UNDANHALDI
Að því er nýjustu fregnir
herma, eru liðssveitír Japana á
stöðugu undanhaldi bæði á
Solomoneyjum, og eins á New
Ginea; á hinum fyrnefndu víg-
stöðvum eru það Bandaríkja-
menn, sem sýna Japönum í tvo
heimana, en á síðarnefnda
staðnum vígahetjur frá Ástralíu.
SENDIFULLTRÚASAMBAND
ROFIÐ
I
Forsætisráðherrann í Canada
hefir formlega tilkynt, að vegna
síðustu atburða, hafi stjórn sín
rofið sendifulltrúasamband við
Frakkland, með því að þar fari
með völd ólögleg stjórn, er lúti
boði og banni Hitlers.
JÓLA CARNIVAL
I Civic Auditorium hér í
borginni verður stofnað til Jóla
Carnivals frá 28. þ. m. til 1.
desember, til arðs fyrir þurfandi
fjölskyldur, er vegna hækkandi
framfærslukostnaðar eiga örð-
ugra fyrir, en ella myndi verið
hafa; allar þessar samkomur
fara fram að kveldinu á á-
minstum stað; verður þar meðal
annars dans til skemtana ásamt
ýmsu fleira; úrvals hljóðfæra-
sveit verður þarna til taks, og
er þess að vænta; að fólk styðji
þetta mannúðarmál með því að
fjölmenna á samkomurnar.
Winnipeg Hydro er einn
þeirra aðila, er frumkvæði eiga
að þessum Carnical samkomum.
íbúar þar í landi hafi einnig
lagt niður vopn. Aðmíráll
Darlan, höfuðsmaður franska
hersins, og einn af forkólfum
samvinnunnar við Hitler, er nú
herfangi hjá ,Bandaríkjahernum
í Algiers. Nú er Bandaríkjahec
á leið til Tunisiu, en þangað
hafa Þjóðverjar og ítalir, að
sögn, sent nokkuð varnarlið.
í ávarpi til frönsku nýlend-
anna, gerði Roosevelt forseti það
lýðum ljóst, að hernámið væri
gert með það eitt fyrir augum,
að fyrirbyggja þangað innrás af
hálfu möndulveldanna, og frelsa
franska lýðveldið úr heljarklóm.
Á miðvikudagsmorguninn
gerðust þau tíðindi, að Hitler
hernam alt Frakkland; bað hann
í stuttu útvarpserindi frönsku
þjóðina að láta þetta ekki á sig
fá, með því að hernámið væri
einvörðungu gert með hag henn-
ar og Öryggi fyrir augum; eins
og þetta væri ekki líkt honum,
blessuðum öðlinginum! Petain
marskálkur mótmælti hernám-
inu, og taldi það skýlaust brot
á vopnahlés samningunum. En
til hvers er að deila við dómar-
ann? Laval hefir sennilega
ekki verið ókunnugt um hvað á
seiði var, því staðhæft er, að
hann hafi setið á fundi með
þeim Mussolini og Hitler dag-
inn áður.
Þar í landi hafa engin veruleg
stórtíðindi gerst í hernaðarlegum
skilningi síðastliðna viku; í
Stalingrad og grend, hafa ein-
ungis verið háðar smáskærur
borið saman við það, sem áður
átti sér stað; leifturstríð Þjóð-
verja í Kákasusfjöllum hefir
sætt harðri mátspyrnu af völd-
um Rússa, og í ýmsum tilfellúm
hafa Þjóðverjar orðið til þess
knúðir, að hörfa undan vegna
geysilegs mannfalls á þeirra hlið.
ÍSLENDINGUR ROTAÐUR
MEÐ FLÖSKU
Sá atburður varð á Ingólfs-
kaffi í fyrrakvöld, að amerískir
hermenn slógu íslending í höf-
uðið með flösku, svo að hann
misti meðvitundina og fékk
heilahrinsting.
Þegar amerískir og íslenzkir
lögregluþjónar komu á vettvang,
lá íslendingurinn meðvitundar-
laus á gólfinu í veitingasalnum,
hermennirnir, sem höfðu veitt
honum þenna áverka, voru allir
á bak og burt og hefir lögregl-
unni ekki tekist að hafa upp á
þeim.
Hinn særði maður var fluttur
niður á lögreglustöð en síðan á
Landsspítalann.—(Mbl. 15. okt).
ÁSKORUN TIL FRAKKA
Gen. De Gaulle, leiðtogi hinna
stríðandi Frakka, hefir skorað á
þjóðbræður sína í Frakklandi,
að hefjast þegar handa, hrista af
sér Hitler-klafann, og ganga
samstundis í lið með samein-
uðu þjóðunum.
Flytur rœðu um Island
Dr. Richard Beck, forseti Þjóð-
ræknisfélagsins, flutti fjórar
ræður um ísland á skólum og
samkomum í Wahpeton, N. Dak.,
miðvikudaginn þ. 4. þ. m.
Fyrri hluta dagsins hélt hann
ræður á fjölmennum samkom-
um kennara og nemenda Iðn-
skóla ríkisins (State School oi'
Science) og kennara og nemenda
gagnfræðaskóla borgarinnar.
Seinni part dagsins var hann
aðalræðumaður á fundi Rotary-
klúbbsins og um kvöldið flutti
hann erindi á fundi eins helzta
kvenfélags borgarinnar (Ameri-
can Association of University
Women).
Allar fjölluðu ræður þessar
um sögu íslands, menningu þess
að fornu og nýju, og um af-
stöðu þess til heimsstyrjaldar-
innar. Á annað þúsund manns
hlýddu samtals á ræðuhöld
þessi.
Tjón á Ákureyri og
Dalvík vegna ofviðris
í ofviðri, sem geisaði hér s.l.
fimtudagsnótt og daginn eftir,
varð Akureyrarbær rafmagns-
laus þann dag, sökum stórbilun-
ar á háspennunni á Fljótsheiði.
Tjón varð einnig á Dalvík,
einkum á hafnarmannvirkjum,
vegna brims. Viðauki á hafnar-
garðinum skemdist allmikið. —
Viðauki þessi var bygður í sum-
ar. Viðaukinn er 60 metra lang-
ur, en búið var að steypa og
hlaða 40 metra af honum.
Fremsti hluti garðsins, 20 m.,
sem búið var að hlaða, en eftir
var að steypa, sópaðist burt
vegna brimsins.
Dekkbát, sem Sigurður Jóns-
son útgerðarmaður á Dalvík
átti, rak upp í fjöru og stór-
skemdist.
Símaslit vegna ofviðris hafa
orðið allvíða á Norður- og Vest-
urlandi. Var t. d. sambandslausi
við ísafjörð í gær. Lokið hefir
verið viðgerð víðast hvar.
—(Mbl. 11. okt.).
Tveimur sprengjum
varpað á óbygt land í
Skagafirði
Ameríska setuliðsstjórnin sendi
blöðunum eftirfarandi til birt-
ingar í gær:
“Þýzka flugvél slepti tveimur
sprengjum á Norðurlandi í gær,
13. okt. — Sprengjunum var
slept nálægt Sauðárkróki. Ekk-
ert manntjón varð né skemdir.
Fyrstu fregnir hermdu, ao
sprengjurnar hefðu komið niður
í kirkjugarð, en síðar kom í
ljós, að enginn fótur var fyrii
þeirri fregn. — Sprengjurnar
féllu á óbygt land og ollu engu
tjóni.”
Af hernaðarlegum ástæðum
er ekki hægt að segja frá ná-
kvæmlega hvar sprengjurnar
féllu eða á hvaða tíma.
Sprengjurnar féllu á fjall
miðja vegu milli eyðibýlis og
bygðs bæjar.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Sauðárkróki segir svo frá, að
flugvélin hafi sézt vel frá Sauð-
árkróki. Var þetta mikið bákn.
Er sprengjurnar féllu varð af
mikill dynkur, sem heyrðist víða
um Skagafjörð.
Gýgirnir, sem sprengjurnar
mynduðu, þar sem þær komu
niður, voru um 7 metrar á þver-
mál og um 6 metra djúpir.
Sprengjubrot og grjót þyrlað-
ist langt frá gýgjunum. Voru
sprengjubrotin stór og afar egg-
hvöss sum.—(Mbl. 15. okt.).
Lýkur prófi í
hjúkrunarfræði
Miss Sigríður Jónína Margrét
Wesldal
Miss Westdal er fædd í grend
við bæinn Wynyard í Saskatche-
wan, þann 7. dag nóvembermán-
aðar, árið 1919; hún er dóttir
þeirra Páls og Helgu Westdal, er
um langt skeið bjuggu nokkrar
mílur suður af Wynyard, en ný-
lega eru flutt hingað til borgar-
innar. Miss Westdal lauk 12.
bekkjar prófi í Wynyardbæ, en
hóf nám í hjúkrunarfræði í
Saskatoon um haustið 1939; hún
útskrifaðist í þeirri borg með
fyrstii, ágætiseinkunn þann 2.
spetember síðastliðinn, og starf-
ar nú í þjónustu Winnipeg
General Hospital. Miss Westdal
er glæsileg stúlka, og prýðileg-
um gáfum gædd.
Býður sig fram í
bœjarráð
Magnús Elíasson
Á útnefningarfundi C.C.F.
flokksins í Vancouver, B.C., sem
haldinn var á sunnudaginn 1.
nóvember, var Magnús Elíasson
útnefndur ásamt þremur öðrum
til að sækja fyrir bæjarráðið í
Vancouver (Alderman). Hlaut
Magnús flest aktvæðin af þeim,
sem sóttu um útnefninguna.
Bæjarráðskosningar í Vancou-
ver fara fram 19. desember.
Magnús er sonur þeirra Mr.
og Mrs. Guðmundur Elíasson, er
um langt skeið ráku bú í grend
við Árnes en eiga nú heima á
Gimli. Magnús er skýrleiks-
maður hinn mesti' og mælskur
vel.
HERNEMA BIZERTE
Nýjustu fregnir herma, að
ítalir hafi þegar náð fullu haldi
á Bizerte, aðalherskipahöfninni
í Tunisiu.
RÚSSLAND