Lögberg - 12.11.1942, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. N&VEMBER. 1942
3
Rússneska leyni-
vopnið
Eítir Dyson Carter.
(Þýtt úr “Russia’s Secret
Weapon”)
Jónbjörn Gíslason.
(l*’rainliald)
Hið fyrsta tilraunastig fór
fram á þessa leið: Jefremov og
félagar hans settu niður niður
í þúsundir smárra raða, eitt og
eitt hveitifræ. Með mjög mik-
illi nákvæmni breyttu þeir bil-
inu milli fræanna; í einum reitn-
um var hálfur þunmlungur, í
öðrum þrír fjórðu, í hinum
þriðja einn þumlungur o. s.
frv. en hvergi munaði meiru en
hálfum þumlung um millibil.
Verk þetta var framkvæmt með
sérstakri varkárni, því mikið lá
við að vel tækist; aðeins einn
tíundi úr þumlungi gat í þessu
efni gefið mjög piikilvæga úr-
slita niðurstöðu.
Það sannaðist brátt að einn
og hálfur ferhyrningsþumlung-
ur, var nægilegt rúm fyrir eina
hvéitiplöntu og gefur það ótví-
rætt til kynna hvílík feikn af
fræum er mögulegt að sá í heila
ekru, með nokkurnveginn full-
kominni vissu um góðan vöxt og
þroska, með aðstoð nægilegs
sólarljóss.
Bændunum duldist ekki hver
útkoman var: þeir höfðu sett
niður — og ræktað — fimm
sinnum fleiri hveitiplöntur á
hverja ekru, en áður hafði tíðk-
ast í nokkru hveitilandi.
Látum okkur taka dæmið á
annan veg: öll hveitiuppskera
af fimm ekrum eftir vanalegri
sáningaraðferð, var nú mögu-
leg á einni einustu ekru, eftit
aðferð Jefremov’s. Þegar þessi
niðurstaða var gerð heyrinkunn,
dreif akuryrkjuráðanauta stjórn-
arinnar að hvaðanæfa, til að
rannsaka og prófa þessa merki-
legu nýung. Margir mundu
ætla að þeir yrðu efagjarnir og
jafnvel óvinveittir í garð þessa
ómentaða Síberíu-bónda, er
þannig að öllum óvörum brá sér
inn á þeirra verksvið með slíka
uppgötvun, en því fór fjarri. í
Rússlandi eru jarðyrkjufræð-
ingarnir bændur og bændurnir
jarðyrkjufræðingar, svo land-
búnaður og landbúnaðarvísindi
haldast í hendur í fullri ein-
ingu og samlyndi.
Prófessor Bursky, einn af
leiðandi vísindamönnum Rússa,
sagði við þetta tækifæri:
“Vinnubrögð Jefremov’s eru
gagnstæð öllum áður kunnum
búnaðaraðferðum; það var full-
yrt að við hefðum fundið hina
beztu sáningaraðferð á sam-
vinnubúum okkar, en hann hef-
ir ótvírætt sannað hér á þessum
stað, að svo er ekki; þar af leiðir
að kenningar okkar og fram-
kvæmdir í þessum efnum hafa
reynst rangar. Samvinnubúin
hafa hér verið á rangri leið, en
kenning Jefremov’s er rétt; hann
er sannur samvinnu-jarðyrju-
fræðingur vegna þess að okkar
fræðigrein er ætluð öllu mann-
kyninu í heild, einmitt það er
hold og blóð hinnar lifandi á-
stæðu fyrir velferð allra manna.”
Staðhæfingar unga Síberíu-
bóndans reyndust réttar í öllum
atriðum. Auðvelt er að geta sér
til um hugsanir bændanna, sem
höfðu leitast við að stækka
hveitilönd sín i samræmi við
aukinn fólksfjölda, þegar þeim
var sagt að þeir hefðu fram til
þessa kastað á glæ fjórum
hveitiekrum af hverjum fimm.
Reynið að segja bændunum
okkar þessi tíðindi. Trúir þú
þessu sjálfur, lesari? Heldur
þú að okkar land geti framleitt
fimm sinnum meira hveiti eri
það gerir nú? Það er ekki ó
líklegt. Rússneskir landkostir
eru líkir okkar hér og aðferð
Jefremovs fer eins og eldur í
sinu um öll hveitilönd Rúss-
lands. Þessi ungi bóndi, ment-
unarlaus að öðru en því er
hann las í bókasafni samvinnu-
búsins, hefir hafið hina merk-
ustu byltingu í akuryrkju, er
sögur fara af. Það sem hér er
mest um vert er, að þessi nýja
aðferð var viðtekin tafarlaust ai
allri bændastétt ríkisins. Þjóð-
in fagnaði þessum tíðindum
sem nýrri sönnun fyrir mætti
og ágæti hinna nýju vísinda.
Aðferð Jefremov’s er ínni-
falin í því að sá hveitinu með
hliðsjón af afstöðu til sólarljóss-
ins til hvers einstaks parts ak-
ursins. Sáninga raðirnar fylgja
ckki sérstökum línum, eins og
t. d. girðingum, vegum eða
vatnsföllum, líkt og áður tíðk-
aðist, heldur er hún reiknuð út
af sérstökum mælingamönnum,
er vita nákvæmlega afstöðu og
stefnu sólarinnar yfir sáðtíðina.
Einnig má geta þess, að hin
afskaplega uppskera sem er gerð
möguleg á þennan máta, tæmir
gróðrarefni úr moldinni á
skömmum tíma, og ber því
nauðsyn til að endurnýja þau
ríkulega.
í þessu er falinn leyndardóm-
urinn að beizla sólin til hveiti-
gróðurs. Fyrrum var ekki tal-
inn sparnaður að frjófga hveiti-
akrana, en nú er það talið brýn
nauðsyn vegna hins mikla upp-
skerumagns, sem fæst með mjög
lítið meiri kostnaði í vélum og
vinnu.
Annar akuryrkjumaður að
nafni Rakitin, — einn af félög-
um Jefremovs — hefir ræktað
sérstaka tegund hveitis, hæfa
til mjög þéttrar plöntunar; það
hefir tveim fræum fleira í
hverju hveitiaxi, en það er sam-
tals miljón frækorna á hverja
ekru; þessi tvö auka-frækorn
samsvara 40 bushels, sem var
talin góð uppskera eftir gömlu
sáningaraðferðinni.
Merkileg uppgötvun var gerð
af Lisenko, alkunnum jarðyrkju-
fræðingi frá Úkraníu. Sú ný-
ung var nefnd “yarovization” og
er mjög margbrotin viðfangs, en
hér er aðalinnihaldið: Hann
fann upp sérstaka aðferð til að
meðhöndla hveitifræið áður en
það var gróðursett, svo það
þroskaðist óvanalega fljótt, strax
og sáningu var lokið. Þessi að-
ferð gjörir hveitið sterkara og
hæfara til ræktunar á norðlæg-
ari landsvæðum. Hún gjörir
vetrarfræ, gróðursett á vori,
fullþroskað sama haust og flýt-
ir mjög fyrir uppskeruvexti í
héruðum er frjósa snemma.
Rússneskir bændur komu í
þúsundatali alstaðar að, til að
kynnast aðferð Lisenko. Þessi
merkilegi fræðimaður lítur út
eins og óbreyttur bóndi, notar
algeng vinnuföt og er alla daga
ársins á ökrunum, með bændum
og bændakonum, sífelt leitandi
og leiðbeinandi og stundum lær-
andi af annara reynslu. Hann
veitir forstöðu því sem fram-
andi vísindamenn telja um-
fangsmestu plöntublöndunarstöð
í veröldinni, en Rússar heiðra
hann ekki fyrir það eitt saman;
þeír heiðra lyiann af því hann
vinnur óaflátanlega að nýjum
breytingum og framförum í
landbúnaði, til blessunar fyrir
lýðinn og landið í heild.
(Pramhald)
Wartime Prices and
Trade Board
SPURNINGAR OG SVÖR
Spurt—Mun verð á kartöflum
hækka?
Svar—Kartöflur má ekki selja
fyrir hærra verð en selt var fyr-
ir fyrstu vikuna í marzmánuði,
eða, vikuna frá öðrum til tíunda
marz 1942.
Spurt—Hefir fólki verði til-
kynt hvaða ráðstafanir yrðu
gerðar viðvíkjandi aukaskamti
af sykri til að búa til “pickles.”
Svar—Enginn auka sykur-
skamtur fæst til þess að búa til
“pickles.” En það er nýbúið að
gefa út dálítinn bækling, sem
heitir “Wartime Pickles and
Relishes,” þar eru fyrirsagnir
um tilbúning á “pickles” sem
heimta lítinn eða engan sykur.
Þessi bæklingur fæst með því að
skrifa til Consumer Section,
Ðept. og Agriculture, Ottawa.
Spurt—Nær bannið á uppbrot-
um á buxnaskálmum til drengja
eða unglinga fatnaðar? Það
verður erfitt að komast af án
þess að hafa þetta auka efni á
meðan unglingarnir eru að vaxa.
Svar—Buxur á unglinga mega
vera með uppbroti á skálm-
unum, en uppbrotið á ekki að
vera meira en hálfur annar
þumlungur á breidd.
Spurt—Er nokkur hegning
fyrir að borga ekki mánaðar-
reikning þegar hann fellur í
gjalddaga?
Svar—Eina hegningin er sú,
að verzlunin sem á í hlut neit-
ar um frekara lánstraust. Láns-
lögin heimta að þetta sé gert.
Spurt—Er hægt að fara inn á
matsöluhús og kaupa kaffi í
tveggja bolla “thermos”-flösku?
Svar—Nei. Samkvæmt reglu-
gerðunum má ekki veita nein-
um meira en einn bolla af kaffi
í einu. Það má fylla flöskuna
með sjóðandi vatni, og láta út í
tilbúið kaffi “coffee concen-
trate,” en það fæst ekki nema
með kaffiseðlum.
Spurt—Er maður sekur um að
hamstra (hoarding) ef öðru er
safnað en te, kaffi eða sykri?
Svar—Auðvitað! Það er ólög-
legt fyrir mann að safna nokkr-
um vörubirgðum, af hvaða teg-
und sem er, fram yfir það sem
vanalega er keypt til heimilis-
þarfa.
Spurt—■'Fólksfjöldinn í bænum
þar sem ’eg á heima hefir aukist
svo mikið síðastliðið ár, að mig
langar til að stækka hárgreiðslu-
stofuna mína. Er nauðsynlegt
að fá leyfi?
Svar—Já. Samkvæmt hinum
nýju lögum, sem takmarka alla
verzlun og allan iðnað á meðan
skortur er á mönnum og efni,
má enginn stækka pláss eða
bæta við vinnufólki án leyfis
frá Wartime Prices and Trade
Board.
Spurningum á íslenzku svarað
á íslenzku af Mrs. Albert
Wathne, 700 Banning St., Win-
nipeg.
Aldarfjórðungs afmœli
Soviet Rússlands
Fyrir tuttugu og fimm árum
var Rússneska þjóðin lostin
töfrasprota aldagamalla frelsis-
drauma. Hún braut af sér stál-
viðjar arðráns og áþjánar með
einu heljarátaki. Undir leið-
sögu Lenins breytti hún gömlum
framsóknarþrám í nútímans
virkileika og bygði upp nýtt
þjóðskipulag, með frið, brauð og
landkosti í framsýn, fyrir alla.
Erlendar og innlendar fjand-
mannafylkingar þustu að úr öll-
um áttum, til að eyðileggja
þennan glæsilega frumburð
heilbrigðrar mannlegrar skyn-
semi og hyggjuvits. En þjóðir.
bar sigurorð af hólmi gegn her-
skörum, viðskiftabönnum, svik-
um, sjúkdómum og hungurs-
neyð. Hún byrjaði að byggja, að
sönnu hikandi í fyrstu, með
ryðguð áhöld úreltra tíma í
höndum sér. Hún færði sér í
nyt vísindi og verkþekkingu
Ameríkumanna og fleiri þjóða
og hóf verk sitt með Lenin í far-
arbroddi; hún yrkti ónumin
lönd, brúaði og beislaði stór-
fljótin og smíðaði lykla að hin-
um ótæmandi nægtabúrum
jarðarinnar. Viljakraftur og at-
orka mannanna losnaði úr læð-
ingi; þeir bygðu sín eigin iðju-
ver og stórborgir í óbygðunum
og risavaxnir samyrkjubúgarð-
ar seiddu fram ný og áður ó-
þekt verðmæti úr hrjóstrugum
landflákum.
Hið voldugasta sambandsríki
með 180 þjóðum var stofnsett
með fullu frelsi allra sem
stefnumark; engin þessara 180
þjóða skyldi vera undirokuð,
enginn maður eða kona; enginn
flokkur eða trúarbrögð; allir
áttu sama rétt. Allir höfðu að-
gang að því mentunar og menn-
ingarljósi er nú lýsti upp hið
víðáttumikla land til yztu endi-
marka.
Listamennirnir voru frjálsir
að skapa það sem Lenin kallaði
“listaverk, sem þjóðin skilur og
ann.” Börnunum óx andlegur
og líkamlegur þroski í umhverfi
er annaðist þau og verndaði.
Ungmennin, með alla vegi beina
og greiðfæra framundan, rann-
sökuðu listir og vísindi og numu
nýjan hagleik til munns og
handar. Ný kynslóð var borin;
stéttamunur mentamanna og
verkamanna var horfinn. Verka-
maðurinn, skáldið, bóndinn,
söngfræðingurinn og listamað-
urinn voru allir eitt; nú eru þeir
hermenn og berjast á vígvöll-
um Rússlands.
Undir forustu Stalins — hins
mikilhæfa lærisveins Lenins —
myndbreyttist hið daglega líf
þjóðarinnar smámsaman, þar
til hinu nýja sambandi var gef-
in stjórnarskrá er lögbatt öllum
fullan lýðveldislegan rétt, ásamt
tryggingu til nægrar vinnu,
hvíldar, tómstunda og mentun-
ar.
Hún og hann
(Gamalt æfintýri, sett fram sem dæmisaga)
Hún faðminn út blíðlega breiddi,
og brjósti mér hallaðist að.
Með kossum hún sál mína seiddi —
en svo var ei meira um það.
Eitt augnablik! — ánægjustundin!
hún eigi var hrædd eða treg.
Og þó var hún brúðmálum bundin —
var bandingi, rétt eins og eg.
Um augnáblik öllu við gleymdum —
en ástin er tvíeggjað sverð —
Við munhlýja minningu geymdum,
því manns-sálin er svona gerð.
Já, oft vilja atvikin geymast
hve áfram sem tíminn oss ber.
En eiga þau atvik að gleymast,
sem andinn í hillingum sér?
En birtast þau atvik þá aftur,
sem unun fá sálunni veitt?
Er ástin ei eilífur kraftur
og án hennar lífið — ei neitt?
S. B. Benedictsson.
Samtímis því er þjóðin bygði
upp þennan nýja heim, bjartan
af sólskinsríkum framtíðarvon-
um, sá hún dimma og ægilega
bliku draga upp út við sjón-
deildarhring — yfir þá sjálfa og
alt mannkyn.
Með þrotlausri elju og árvekni
vöruðu Rússar umheiminn við
hvað í vændum var; þeir hvöttu
þjóðirnar að standa saman,
hverja við annarar hlið og verj-
ast í sameiningu hinum voðalega
komandi fellibyl. En er þeir sáu
að allar aðvaranir revndust
árangurslausar, sneru þeir at-
hygli sinni að sínu eigin ástandi
innbyrðis; þeir hreinsuðu úr
samfélagi sínu nokkra njósnara
og föðurlandssvikara; þar næst
þrengdu þeir belti sín og af-
neituðu ýmsum þægindum lífs-
ins, er þeir þó þráðu, og bygðu
upp svo fullkomna hernaðarvél
að þeir gætu mætt aðkomandi
óvinaher þegar sá dagur kæmi.
Mestur hluti þess, er Rússar
hafa bygt upp og bætt, á tuttugu
og fimm árum, er nú í rústum,
en þeirra nýja lífsskoðun er ó-
högguð og bjargfest. Orðstýr
þeirra og frægð mun vísa veg-
inn til göfugri athafna en mann-
kynið enn hefir þekt, þegar sig-
ur er unninn.
Á tuttugu og fimm ára afmæli
rússnesku byltingarinnar, getum
vér Ameríkumenn einungis
borgað með blóði voru, þá þakk-
arskuld, er vér stöndum í, og
sannað á þann veg að vér séum
verðugir vinir og bandamenn.
Með blóði voru getum vér
borgað aðeins lítinn hluta af
þeirra þremur miljónum föllnu
köppum, öðrum þremur særðum
og fönguðum, og þeirra eyði-
lagða landi.
Með blóði voru getum vér
verndað og varið vort elskaða
föðurland og trygt þannig hina
dýrmætu frelsisarfleifð vora.
Hermenn vorir eru reiðubúnir
að fórna blóði sínu ef þörf ger-
ist. Mæðirnar hafa lært af
konunum í Rússlandi, að nú er
ekki tími til að tárast og syrgja;
þær eru reiðubúnar að gefa syni
sína og taka sjálfar stöður eigin-
manna sinna í vélasmiðjunum.
Verkamennirnir eru reiðubúnir
að gefa gefa styrk sinn og kunn-
áttu. Þjóðin öll er reiðubúin
að fórna þægindum og allsnægt-
um, til þess að koma fram hefnd
um fyrir vora rússnesku bræð-
ur, er lítu lífið fyrir vort frelsi
og sinnar eigin þjóðar.
Ameríska þjóðin hefir hafið
upp rödd sína, en ef til vill ekki
nægilega hvelt; hún verður að
rísa með gný þrumunnar, í eyru
leiðtoganna með svofeldum orð-
um: “Vér erum reiðubúnir.
Hefjum sókn nú þegar! Förum
með her inn í Evrópu. Opnum
nýjan vígvöll.
Þá verða þakkarorð vor meira
en orðin innantóm.
—(Lauslega þýtt úr “Soviet
Russia to-day.”).
Jónbjörn Gíslason.
Business and Pri ifessional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Thorvaldson & Eggertson Lögfrœölngar
O 300 NANTON BLDG.
Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 Talslmi 97 024
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPG. # Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgC. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. Phone 26 821 DR. A. V. JOHNSON Dentist • 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 27 702
X Z’ I ; %° I ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST.t WINNIPEG • Pægilegur og rólegur bústaöur i miöbiki borgarinnar Herbergl $2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir Ágætar máltlðir 40c—60c Free Parking for Quests
Peningar til útláns Sölusamningar keyptir. Bújarðir til sölu. DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlæknar •
INTERNATIONAL LOAN COMPANY 304 TRUST & LOAN BLDG. Winnipeg 406 TORONTO GEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEO
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tlmar 3-4.30 # Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími 86 607 Heimilis talslmi 501 562
Legsteinar sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmari Skrifiö eftir verðskrá GILLIS QUARRIES. LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur 1 eyrna, augna, nef og hálssjúkdömum 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrtfstofusími 22 251 Heimilisslmi 401 991
DR. A. BLONDAL Dr. S. J. Johannesson
Physician & Surgeon 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning)
602 MEDICAL ARTS BLDG. Talslmi 30 877
Slmi 22 296 •
Heimili: 108 Chataway
Slmi 61 023 ViCtalstími 3—5 e. h.
Office Phone Res. Phone
Arthur R. Birt, M.D. 605 MEDICAL ARTS BLDG. 87 293 72 409
Winnipeg Dr. L. A. Sigurdson
Lækningastofu-slmi 23 703
Heimilisstmi 46 341 109 MEDICAL ARTS BLDG.
Sérfrœöingur i öllu, er aö
* húösjúkdómum lýtur Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
Viðtalstlmi: 12-1 og 2.30 til 6 e. h. and by appointment
H. A. BERGMAN, K.C. 1. A. Anderson, B.A., LL.B.
islenzkur lögfrœöingur
Barrister and Sohcitor
• and Nolary Public
Skrifstofa: Room 811 McArthur
Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 Tryggingar af öllum tegundum. ASHERN, MAN.
Phones 95052 og 39043