Lögberg - 04.02.1943, Blaðsíða 1
PHONES 86 311
Seven Lines
“.~
lúVeA
’&O*
C°T‘
For Beiier
Dry Cleaning
and Laundry
56 ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. FEBRÚAR 1943.
NÚMER5
Emile Waiters, listmálari, fimmtugur
Efiir prófessor Richard Beck.
Emile Walters, hinn víðkunm
^slenzki listmálari í New York,
atti fimmtugsafmæli síðastlið-
lnn sunnudag. Er það gamall
°g góður siður að minnast þeirra
úmamóta í æfi samferðamann-
anna, sérstaklega þeirra, sem
með einhverjum hætti hafa skar
að fram úr í starfsemi sinni,
°g þá eigi síður hinna, er auðg-
aÓ hafa samferðasveitina að
n^enningarlegum og listrænum
verðmætum. En þetta' á hvort-
*Veggja við um Emile listmálara.
Hann hefir unnið sér það frægð-
arorð í málaralistinni, að hann
skipar með sæmd rúm sitt á
^ekk ameriskra landslagsmálara
°g að málverk hans er að finna
viðsvegar á merkum listasöfn-
nm. Jafnframt hefir hann aukið
a hróður þjóðstofns síns, því að
hann hefir aldrei farið í neinar
^elur með það, að honum renn-
Ur alíslenzkt blóð í æðum.
Emile Walters er skagfirzkur
að ætt, er fæddur í Winnipeg
janúar 1893, sonur þeirra
Eáls Valtýs Eiríkssonar fra
Eakka í Viðvíkursveit í Skaga-
firði og Bjargar Jónsdóttur frá
^•eykjum á Reykjaströnd. Fimm
ara að aldri fluttist hann með
f°reldrum sínum til Bandarikj-
anna, N.-Dakota; misti hann föð-
Ur sinn ungur, en var nokkrum
árum síðar tekinn í fóstur af
Þeim Guðlaugi Kristjánssyni og
^°nu hans, er síðar bjuggu í
^ynyard, Saskatchewan; gengu
bau honum í foreldrastað.
Eins og allur þorri þeirra ís-
iendinga, sem nafnkunnastir og
athafnasamastir hafa orðið vest-
an hafs, átti Emile lengi um
§rýttan og brattan veg að sækja,
°g er ferill hans því með nokkr-i
Um æfintýrablæ, þó eigi verði sú
Saga sögð í þessum gremarstúf.
^Taman af árum vann hann að
húsamálningu bæði í Norður-
akota og Vestur-Canada; en
isthneigð brann honum í blóði,
eg þó við margvíslega örðug-
eika væri að glíma, tókst hon-
Urn að ljúka prófi á listaskólan-
Um í Chicago, The Art Institute
uf Chicago. Síðan lá leið hans
il New York, og beið hans þar
* milljónaborginni harðvítug
arátta, sem jafnan er hlut-
! T
skifti ókunnra listamanna, þó
ríkum hæfileikum séu búnir; en
sigrandi gekk hann af þeim
hólmi.
í New York kynntist Emile
Einari Jónssyni myndhöggvara,
og var sá snillingur riógu glögg-
skygn til þess að sjá, hver list-
gáfa bjó í hlnum unga landa
hans og hvatti hann til þess
að halda áfram námi sínu. Hóf
Emile stuttu síðar framhalds-
nám á listaskólanum í Phila-
delphia , Pennsylvania Academy
of Fine Art. Um þær mundir
var auðmaðurinn og listafröm-
uðurinn Louis C. Tiffany að
koma á fót listastofnun sinni,
Tiffany Foundation; athygli
háns var dregin að málverkum
Emiles, og þótti honum svo mik-
ið til þeirra koma, að hann
veitti honum $2000 styrk. Var
það mikil sigurvinning og ísinn
nú brotinn. enda var þess eigi
lengi að bíða, að hinn ungi mál-
ari færi að uppskera í enn rík-
ara mæli laun þrautseigju sinn-
ar og brattsækni. Stuttu eftii,
'að hann hlaut Tiffany-styrkinn,
málaði hann á óðalssetri Roose-
velt’s forseta hina fögru og til-
komumiklu haustmynd sína,
“Roosevelt’s Haunts, Early Aut-
umn”, sem vakti eftirtekt inn-
an og utan Bandaríkjanna, hlaut
fleiri en ein verðlaun og er nú
eign þjóðlistasafnsins, National
Gallery of Art, í Washington,
D. C.
Mörg önnur málverk’ Emiles
hafa hlotið verðlaun og eru, svo
tugum skiftir, á opinberum
listasöfnum og einkasöfnum eða
í eign háskóla og annara menta-
stofnana. Meðal þeirra eru mynd
irnar “Morning Light” (Ðögun;,
sem er eign fylkisháskólans í
Sáskatchewan; “Late Winter”
(Útmánuðir), á listasafni Har-
vard háskólans í Boston, og
“Winter Haze” (Vetrarmóða), á
listasafninu í Rouen í Frakk-
landi, að fáar einar séu taldar.
Myndir hans hafa einnig verið
á listasýningum á mörgum
stöðum utan Bandaríkjanna og
Canada, svo sem á hinu fræga
listasafni “Tate Gallery” í Lond-
on og Mið- og Suður-Ameríku.
Hafá þær hvarvetna vakið at-
hygli og hlotið hrós hinna dóm-
bærustu manna. Kunn tímarit,
sem helguð eru listum, hafa og
farið hinum lofsamlegustu orð-
um um málverk Emiles; sama
máli gegnir um hin stærri dag-
blöð í Bandaríkjunum og víðar.
Stórblaðið New York Time fór
t. d. þeim orðum um eina verð-
launamynd hans, að hún væri
“skáldlegur vordraumur, er
sýndi skýra og sterka drætti
gegnum blámóðu vorloftsins og
litfegurð blómanna.”
Á þá við að víkja sérstak-
lega að þeirri hliðinni á málara-
list Emiles, sem snýr beinlínis
að íslandi. Árið 1934 var hann
þar á ferðalagi í sjö mánuði og
málaði af kappi, einkum austan
og sunnan lands. Árangurinn af
ferðinni var fjöldi landslags-
mynda, og sýndi hann 18 þeirra
í New York vikum saman upp
úr næstu áramótum. Jók sýn-
ing þessi áreiðanlega drjúgum
á listamannsfrægð hans og
vakti jafnhliða mikla eftirtekt
á íslandi og Islendingum, því
að fjölmenni sótti hana og dáði,
og hún hlaut mikið hrós af
hálfu listdómara stórblaðanna.
Ritaði eg á sínum tíma um sýn-
ingu þessa hér í blaðinu og
verður sú umsögn eigi endur-
tekin hér, nema hvað minnst
skal á ummæli hins mikilsvirta
dagblaðs “Christian Science
Mooitor í Boston, er' lauk með
þessum orðum: “Sýningin er
sérstaklega eftirtektarverð fyrir
það, hve myndirnar eru óvenju-
legar og vegna hins ljóðræna
undirstraums, sem þar gætir
hvarvetna.”
Síðar á árinu voru myndir
þessar svo sýndar á ýmsum
stöðum, meðal annars í Winni-
peg. Mikill mannfjöldi sótti
sýninguna þar sem annarsstað
ar og dagblöðin ensku fóru sér-
staklega lofsamlegum orðum
um hana. Ritstjóri þessa blaðs
tók mjög í sama streng, því að
hann lýsti sýningunni á þessa
leið, 21. náv. 1935:
“Málverk þessi, flest hver, eru
af frægum sögustöðum á íslandi;
eru mörg þeirra allstórfengleg,
svo sem af Þingvöllum og
Eyjafjallajökli. Á hinn bóginn
verður sú staðreynd samt ekki
undir nokkrum kringumstæðum
umflúin, að sögustaðirnir, þó á
þá slái æfintýraljóma liðinna
alda, eru ekki ávalt fegurstu
staðirnir, og gefa þar af leiðandi
ekki ókunnugu auga óskeikult
j’firlit yfir glæsilegustu sérkenni
landsins. Engu að síður hafa
málverk þessi sérstætt gildi fyr-
ir íslenzka listmenning; yfir
þeim hvílir hressandi blær há-
fjalla og jökla, dranga og dala,
merktur óþrotlegum litbrigðum
íslenzkrar náttúrudýrðar. Hrika-
fegurð Islands nýtur sín öllu
betur í svip þessara málverka;
enda er það sú fegurðin, sem
ísland er auðugast af, þó víða
kenni innan um móðurlegrar
mildi.
Hr. Emile Walters er merkur
málari; um það verður ekki
vilst. Og með ferð sinni hinni
síðustu til íslands, og málverk-
um þeim að heiman, er nú hafa
nefnd verið, hefir hann unnið
íslenzku þjóðinni varanlegt
gagn.”
Er þar ekkert ofmælt, því að
í málverkum þessum túlkaði
Emile eftirminnilega í litum og
fegurð og sérkennileik íslenzks
landslags, rík blæbrigði lofts,
láðs og lagar norður þar. Nú
prýða málverk þessi listasöfn og
samkomusali beggja megin
landamæranna. Einhver allra
svipmesta myndin frá Þingvöll-
um er t. d. í hinum stóra fyrir-
lestrarsal dr. Thorbergs Thor-
valdson á fylkisháskólanum í
Saskatchewan og varð mér að
vonum starsýnt á hana, er eg
heimsótti háskólann fyrir tveim
árum síðan; sagði dr. Thorberg-
ur mér einnig, að málverk þetta
drægi jafnan að sér athygli
manna og þætti bæði sérkenni-
legt og tilkomumikið.
Það segir sig sjálft, að auk
verðlauna fyrir málverk sín,
hafa Emile fallið í skaut ýmsar
aðrar sæmdir. Mörg listamanna-
félög hafa heiðrað hann og
sæmdur var hann riddarakrossi
Fálkaorðunnar árið 1939.
Emile er kvæntur Thorstínu
Sigríði Jackson, sem löngu er
kunn íslendingum beggja megin
hafsins fyrir ritstörf sín og aðra
starfsemi.
SAMBANDSÞINGIÐ SETT.
Á öndverðu sumri, sem leið,
var sambandsþinginu í Ottawa
ekki formlega slitið, heldur var
þingfundum aðeins frestað um
óákveðinn tíma; þingslit fóru
fram á miðvikudaginn var, en á
fimtudaginn var þing sett að
nýju, og las landstjórinn lávarð-
urinn af Athlone þá upp boð-
skap sinn til þingsins.
Með það fyirir augum, að
hefjast þegar handa viðvíkjandi
samfélagsöryggi þjóðarinnar að
loknu stríði, mælti landstjórinn
með því, að komið verði þegar
á laggir þingnefnd úr öllum
flokkum, er það hlutverk hafi
með höndum, að kynna sér út
í æsar allar þær aðstöður, er
viturlegar þykja til þess að
hrinda þessu þjóðþrifamáli í
framkvæmd. í þessum fyrirhug-
uðu ráðstöfunum felst það, að
tryggja bændum og þeim öðr-
u’m, er að framleiðslu lífsnauð-
synja starfa, lífvænlegan árang-
ur iðju sinnar ásamt því, að búa
svo um hnútana, að næg atvinna
verði ávalt til taks fyrir vinnu-
fært fólk; frumvarp, er í þessa
átt gengur, verður lagt fyrir
þing, eins fljótt og því framast
verður viðkomið.
Gert er ráð fyrir því í stjórnar
boðskapnum, að tekið verði þeg-
ar á þessu þingi upp hliðstætt
fyrirkomulag við það, sem gildir
á Englandi, að skipaðir verði
sérstakir málsvarar á þingi til
aðstoðar þeim ráðherrum, er-
annríkast eiga við umboðsstjórn
hlutaðeigandi ráðuneyta.
Þá verður og lagt fyrir þingið
frumvarp um kjördæmaskipun;
frumvarp um breytingar á inn-
heimtu tekjuskatts; frumvarp
um skipun nefndar, er yfirum-
sjón hafi með úthlutun og verð-
lagi þeirra birgða, er sameinuðu
þjóðirnar fá frá Canada; enn-
fremur aukin ábyrgð af hálfu
Canadiskra stjórnarvalda gagn-
vart flugmönnum héðan úr
landi handan við haf; þá var og
ráðgert, að leggja fyrir þing
frumvarp til laga um almennar
heilsutryggingar, auk þess sem
forsætisráðherra tilkynti þing-
heimi það, að samkomulag hefði
náðst um það milli Canada og
Bandaríkjanna, að sameiginleg
nefnd af hálfu beggja þjóða.
tæki þegar til starfa í því augna-
miði, að samræma sem allra
bezt vistaframleiðsluna beggja
megin landamæranna.
4 4 ♦
FJÁRHAGSSTUÐNINGUR
VIÐ RÚSSA.
Nefnd sú í þessu landiK sem
með höndum hefir fjársöfnun í
þarfir Rússa, hefir þegar sent
rússnesku stjórninni fulla miljón
dala; nú skorar nefndin á cana-
disku þjóðina, að bæta hálfri
miljón við fyrir þann 15. febr.,
með því að um þær mundir
hefst söfnunin í sjóð Rauðakross-
félagsins. Formaður rússnesku
hjálparnefndarinnar í Manitoba,
er E. A. McPherson dómsforseti.
í tilefni af þessum eyktamörk-
um í æfi Emile Walters, aldar-
helmings-afmælinu, verða þeir
vafalaust margir landar hans,
sem senda honum hlýjar kveðj-
ur og óskir um frjósamt lang-
lífi í þjónustu málaralistarinnar,
samferðamönnunum til ánægju-
auka og sjálfum honum að
sama skapi til verðskuldaðrar,
aukinnar viðurkenningar. Hitt
þarf vart að taka fram, að, sem
aðrir sannir listamenn, finnur
hann varanlégust laun viðleitni
sinnar í sjálfri listinni, sem hann
hefir vígt orku sína og áhuga.
KJÖRINN TIL
FRAMSÖGUMANNS.
Mr. Gordon Graydon, þing-
maður fyrir Peel kjördæmið í
Ontario, hefir verið kjörinn
framsögumaður Progressive-Con
servative-flokksins í sambands-
þinginu í stað R. B. Hanson, er
baðst lausnar frá þessum starfa
vegna heilsubilunar. Val Mr.
Graydons gildir einungis fram
til þess tíma, er Mr. Bracken
hlotnast þingsæti.
4 4 4
TRJAPLÖNTUN.
Náttúrufríðinda ráðherra fylk-
isstjórnarinnar í Manitoba, Hon.
J. S. McDiarmid, hefir lýst yfir
því, að skógræðsludeildin sé nú
í þann veginn að koma því til
leiðar, að gróðursettar verði ár-
lega 450,000 trjáplöntur víðsveg-
ar pm fylkið, komandi kynslóð-
um til hagsbóta.
4 4 4
ÓANÆGJA MEÐ
CASABLANCA-FUNDINN.
Wendell L. Willkie, forseta-
efni Republicana-flokksins í
Bandaríkjunum við kosningarn-
ar 1940, flutti útvarpsræðu á
miðvikudagskvöldið í vikunni,
sem leið, þar sem hann lét í
ljós óánægju sína yfir því, að
Casablanca-fundurinn skyldi
hafa verið haldinn án nærveru
þeirra Chiang-kai-seks og Josefs
Stalins; kvaðst Mr. Willkie sann
færður um það, að gerhygli þess-
ara ábyggilegu leiðtoga, myndi
hafa komið að ómetanlegu gagni
í sambandi við einbeiting lýð-
ræðisaflanna á vettvangi stríðs-
sóknarinnar, en slíkt hefði verið
aðalverkefni fundarlns.
4 + 4
ÓRÉTTMÆTAR
AÐFINSLUR.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Cordell Hull, gerði þá
yfirlýsingu á fimtudaginn var,
að þrálátar aðfinslur við stefnu
stjórnarinnar í utanríkismálum
væri eigi aðeins óréttmætar,
heldur og beinlínis stórskaðlegar
fyrir stríðssókn þjóðarinnar og
samherja hennar vítt um heim.
Jafnvel þegar eftir Casablanca-
fundinn, hefðu komið fram úr
hörðustu átt fordæmingarraddir
yfir þeim niðurstöðum, sem
fundurinn komst að, áður en
viðlit var á, að þær fengju að
sýna sig í verki.
4 4 4
HITLER SLAKAR Á KLÓNNl.
Útvarpið í Marocco lætur þess
getið, og ber fyrir frétt í sænsku
blaði, að Hitler hafi að minsta
kosti um stundarsakir, látið af
yfirstjórn Þýzka hersins, * og
fengið hana herforingjaráði sínu
í hendur; fylgir það sögu, að
herforingjaráðið hafi orðið á
eitt sátt um það, að kveðja til
baka meginherinn frá þeim víg-
stöðvum eystra, þar sem Þjóð-
verjum hefir vegnað verst upp
á síðkastið, og koma sér upp
nýrri varnarlínu all miklu vest-
ar í Rússlandi.
FORSÆTISRÁÐHERRA
BOÐAR STJÓRNARFORMENN
FYLKJANNA Á SINN FUND.
Seinni part vikunnar, sem
leið, stóð yfir fundur í Ottawa,
milli Kings forsætisráðherra
annarsvegar, og stjórnarfor-
manna hinna einstöku fylkja
hinsvegar, með það fyrri augum,
að komast að samningum um
fjárhagslegan stuðning við fylk-
in, vegna þess tekjumissis, er
þau óhjákvæmilega sættu í sam-
bandi við takmörkun vínsölunn-
ar og lækkandi tekjur af gasolin.
Mr. King tók vel í það, að bæta
fylkjunum upp þann halla, er
frá rýrnun þessar tveggja tekju-
stofna stafaði.
Forsætisráðherra Manitoba-
fylkis, Mr. Garson, gat ekki sótt
fundinn vegna þess hve fast var
komið að þingsetningu, en af
hálfu fylkisstjórnarinnar sóttu
fundinn þeir Mr. Willis, ráð-
herra opinberra mannvirkja, og
Mr. Person, aðstoðarfjármála-
ráðherra.
4 4 4
CHURCHILL Á NÝRRI
RÁÐSTEFNU.
Síðastliðinn þriðjudag var í
útvarpsfréttum frá því skýrt, að
Churchill forsætisráðherra hefði
flogið til Ankara, og setið þar
á mikilvægri ráðstefnu hjá for-
seta tyrkneska lýðveldisins og
öðrum tyrkneskum stjórnmála-
leiðtogum; hvað þar fór fram,
er að mestu leyti enn á huldu,
þó mælt sé að samtalið hafi
meðal annars lotið að vörnum
Dardanellasunds.
Það fylgir sögu, að sendi-
herra þjóðverja í Ankara, Franz
von Papen, hafi verið a^rið órótt
innanbrjósts, er hann fékk
vitneskju um heimsókn Mr.
Churchill til stjórnarseturs hinn
ar tyrknesku þjóðar.
4 4 4
STALINGRAD
Þar hafa þjóðverjar nú beðið
fullnaðarósigur og mist um 330
þúsundir einvalaliðs, ásamt ó-
grynni ýmissa hergagna; um
2000 þýzkir herforingjar voru
teknir til fanga í síðustu átök-
um Rússa um borgina.
í herþjónustu
Halldór Sveinsson frá Árborg
gekk í herinn þann 19. janúai
síðastliðinn; hann er fæddur og
uppalinn í grend við Árborg.
Halldór er kvæntur maður, og
er fjölskylda hans búsett að
671 Maryland St. í Winnipeg.
4 4 4
Walter Stefánsson skrásetti
sig til herþjónustu þann 18.
janúar, s. 1. Hann er fæddur
í Selkirk og er 21 árs að aldri.
Walter hefir stundað fiskiveið-
ar á Winnipegvatni. Kona hans
er Christina Stefánsson, heimili
þeirra er á Gimli.
4 4 4
Guðmundur Peterson, frá Oak
view gekk í herþjónustu þann
20. janúar síðastliðinn. Faðir
hans, Rögnvaldur Peterson, er
búsettur við OakvieW og þar er
Guðmundur borinn og barnfædd
Ur. 4 4 4
Albert L. Egilsson, er fæddur
og uppalinn í Brandon, og er
31 árs að aldri. Albert stjórnaði
vöruflutningabifreið áður en
hann gekk í herþjónustu; hann
er kvæntur maður, og kona
hans, Olive, búsett í Yager Block
í Brandon.
4 4 4
Jónas K. Jónsson, skrásetti
sig til herþjónustu þann 22. jan.
síðastl. Jónas er 38 ára að aldri,
fæddur í Winnipeg, og stund-
aði málaraiðn. Kona hans, Grace
Jónasson, er búsett að 438 Truro
Street, St. James.
HELZTU FRÉTTIR