Lögberg - 29.04.1943, Qupperneq 5
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 29. APRÍL 1943.
5
halda, að eg loki mig inni, eins
mikið og eg geri, af því mér
sé ömun að fólki. En þetta er
síður en svo. Eg verð samt að
hafa næði og frfð. Þó að mér
þyki vænt um að fá fólk til mín,
þá er eg ekki samkvæmismaður
að upplagi, og lá stundum við
því fyrr á árum, að eg öfundaði
þá, sem nutu sín vel í marg-
menni. Eg hefi alltaf verið gef-
inn fyrir að fara einförum og
grufla með sjálfum mér. Þegar
eg var drengur, hafði eg gaman
af að safna pöddum og smá-
dýrum til þess að rannsaka þau;
oft óð eg út í forarpollana, til
þess að skoða það líf, sem þar
þróaðist. Af dauðum hlutum var
stiginn upp á geymsluloft móð-
ur minnar einn af mínum beztu
kunningjum. Eg man, að eg
horfði á hann tímum saman,
þangað til hann var orðinn svo
annarlegur í augum mínum, að
eg kannaðist varla við hann sem
sama hlut og hann hafði verið.
Stundum gerði eg ýmsar tilraun-
ir með sjálfan mig — í hug-
anum. Eg setti mig t. d. í hug-
anum niður í flösku, og horfði
upp um stútinn, o. s. frv. Mikið
um hagann. Smali var eg lengi,
yndi hafði eg af því að reika út
en leiddist það. Þó þótti mér
vaent bæði um kindur og hunda.
Hundarnir vildu helzt ekki
fylgja mér í smalamennskuna.
Þeir fundu víst, hvað eg var
lítill smali.
Stjórnmálum og öðru slíku
hefi eg alltaf verið frábitinn, og
er þakklátur öðrum fyrir að
taka að sér þau störf. Auðvitað
verða einhvérjir að hafa þau á
hendi. Eg hefi alltaf átt erfitt
með að skipa mér í flokka,
einnig á sviði listanna. List-
flokkar, stefnur, “ismar” og
tízka hafa alltaf verið mér mjög
fjarlæg. Eg geri heldur enga
kröfu til þess, að allir séu eins
og eg sjálfur. Þegar einhver get-
ur ekki þolað mig sem lista-
mann, þá finn ég stundum til
gleði, þótt undarlegt sé. Orsökin
er sú, að eg tel það ávinning
fyrir heildina, að ekki séu allir
steyptir í sama mótið. Eg vil
undirstrika andlegt sjálfstæði
mannsins. Það sjálfstæði er
ekki fullkomið, nema maður
unni öðrum sama réttar og
sjálfum sér. Nú getur sjálfstæði
mannsins að vísu ekki verið tak-
markalaust. Setjum svo, að
tveir menn vilji sjálfstæði til
hins ýtrasta. Annar vill sjálf-
stæði á ljóssinc vegi; hinn krefst
með sama rétti sjálfstæðis á
mótsettum vegi. RaUnverulega
hafa þeir ekki sama rétt, því að
í tilverunnar ríki er ákveðinn
réttur, sem hver einstaklingur
hlýtur að lúta. En hver maður
verður að krefjast sjálfstæðis tii
að nota sinn rétt, svo langt sem
mannfélagsheill og siðferðislög-
mál tilverunnar leyfir. Einstakl-
ingarnir verða líka að hafa sinn
rétt, sökum þess, að ekki hæfir
öllum það sama, fremur en í sög
unni1 um karlinn, sem gaf skó-
smiðnum meðal, sem honum
batnaði af, en reyndi svo sama
meðalið á skraddara, en hann
dó af því.”
Loks leikur mér hugur á að
fá að vita, hvað listamaðurinn
kynni að vilja ráðleggja æsku-
lýð íslands og ungmennafélög-
um, ef hann næði til þeirra
margra í einu. Hann svarar:
“Okkar tími er hættulega
staddur í eftiröpun eftir útlend-
ingum. Við erum ung þjóð, mið-
að við nútímatækni og menn-
ingu, og af því að við erum
skemmra á veg komnir í ýmsu,
höldum við, að allt sé takandi
eftir. Eg get t. d. aldrei nóg-
samlega grátið það, að “jazzið”
er komið til landsins. Pátt stuðl-
ar meira að því að eyðileggja
unga fólkið. Það er mitt álit,
að hið opinbera eigi ekki að
hlynna að slíku t. d. með út-
varpinu, — að setja þannig haft
á fætur æskulýðsins. Taglhnýt-
ingsháttur er mjög áberandi.
Hingað til höfum við verið ein-
samlir úti á hafi. En svo kom
stórt skip siglandi og við förum
í kjölfar þess. Og okkur finnst
það dásamlegt að fylgja svona
stóru skipi, og getum hæglega
drukknað í kjölfarinu. —
f siðferðislegum efnum er það
eilíft heilræði • þetta: “Það sem
þér viljið, að aðrir menn .geri
yður, það skuluð þér og þeim
gera”. Að taka fyllsta tillit til
annara, — óskorað tillit í dag-
legri umgengni, eða eins og
segir í vísu eftir Einar Bene-
diktsson:
“Aðgát skal höfð í nærveru
sálar.”
En hvernig sem allt veltist og
botnveltist í þessari veröld, er
engin sigurvon fyrr en maður
hefir sett tréð eins og það á að
standa, með ræturnar niðri í
jörðinni og limið upp. Við verð-
um að gefa hinu andlega lífi
sinn rétt. Hvar sem efnishyggja
hefir yfirhöndina, eyðir maður-
inn tímanum sér til skaða og
skemmda. Efnishyggja — þegar
með því orði er átt við umhugs-
un um efnislega hluti •— á að
hafa sinn rétt, þar sem honum
er markaður bás, en efnið má
ekki grípa fram í fyrir eldri
bróður, andanum. Efnisheimur-
inn er eins heilagur og' hvaða
aðrir heimar, sem maður getur
hugsað sér, að til séu, en hann
er samt aðeins partur af tilver-
unni, og partinn má aldrei meta
meir en alla heildina”.
Það er óþarfi að bæta nokkru
við það, sem hér hefir verið
sagt. Margur mundi sennilega
vilja fá meira að vita um skoð-
anir Einars á lífinu og tilver-
unni, sérstaklega þar sem hann
kann að fara út af alfaravegi.
Ef til vill gefst mönnum kostur
þess síðar, en Skinfaxa þykir
vænt um, að geta flutt lesend-
um sínum meginatriðin í grein-
argerð listamannsins sjálfs fyrir
lífsskoðun sinni. Er áuðfundið,
að Einar sver sig í ætt þeirra,
sem nefndir hafa verið mystik-
arar eða dulsæismenn. í persónu
legri reynzlu allra trúmanna er
alltaf einhver mystik, snerting
hins innra veruleika, samband
við andann bak við efnið. Marg-
ir munu kannast við mystiska
reynzlu frá bernsku og æsku-
árum, þótt þeir síðar hafi orðið
kaldir og sljóir þjónar efnisins.
Hjá Einari Jónssyni hefir þessu
ekki verið svo farið. Undanfar-
andi frásögn sýnir ennfremur
að hugmyndaflug hans hefir
verið mikið í bernsku og ímynd-
unaraflið sterkt. Listaverk hans
sýna og sanna, að sá hæfileiki
hefir varðveitzt, þótt viðfangs-
efni þroskaðs manns séu auð-
vitað önnur en barnsins.
List Einars Jónssonar hefir
hrifið íslendinga, snortið þá
djúpt. Hann hlaut ekki viður-
kenningu listfræðinga fyrst í
stað.Lengi þurfti hann að standa
svo að segja einn uppi. Ennþá
er um hann deilt. Samt er hann
orðinn heimsfrægur fyrir löngu.
En hér á íslandi hefir hann,
gagnstætt sögulegri reynzlu, orð-
ið spámaður í föðurlandi sínu.
ósnortin af ismum, hefir mikla
hneigð til dulsæis, og þess vegna
kann hún að meta Einar Jóns-
son og finnur til skyldleika síns
við hann.
Jakob Jónsson.
Skinfaxi.
Dánarfregn
Mánudaginn 22. marz andað-
ist Sigríður Johnson á sjúkra-
húsinu í Grafton eftir langa og
stranga sjúkdóms-baráttu, sem
hafði varað í marga mánuði.
Sigríður, eiginkona Jóns J. John
son í grend við Akra N. D.
fæddist í Isafoldar-bygð í Nýja
íslandi 20. okt. 1891. Foreldrar
hennar voru Jóhann Jóhannson,
skagfirskur að ætt og kona hans
Friðrika Jónsdóttir ættuð úr
Eyjafirði. Þau hjón fluttust frá
íslandi til Nýja Islands fyrir
nálega 60 árum og eru nú bæði
látin. Sigríður var tekin til fóst-
urs af Jóni og Þórdísi Jónsson í
Nýja íslandi og ólst upp hjá
þeim til tvítugs, þá fluttist hún
til Winnipeg og bjó þar, þangað
til að hún flutti til Akra N. D.
fyrir átta árum. Áttunda dag
júní 1914 giftist hún Jóni J.
Johnson við Akra. Hafa þau
síðan búið í grend við Akra.
Sigríður sál. var vel gefin og
myndarleg kona, góðlát, gest-
risin og vingjarnleg í garð sam-
ferðafólksins. Hún auðsýndi trú-
mensku í störfum sínum og
framkomu, og við barnatrú sína.
Hennar er sárt saknað af eigin-
manni, systkinum og öðrum ná-
komnum vinum.
Útför Sigríðar fór fram frá
Vídalínskirkju, fimtudaginn 25.
marz. Og í grafreit þess safn-
aðar var hún lögð til hvíld^r.
Séra H. Sigmar jarðsöng.
..:itna
Svör við spurningum yðar
:u,:i
viðvíkjandi
SIGURLANS VEÐBRÉFUM
. vi,>
Hvað er Sigurláns Veðbréf ?
j -Rí. l
SIGURLÁNS VERÐBRÉF er loforð Dominion of Canada
um endurgreiðslu að fullu nafnverð þess á réttum gjald-
daga, og verða vextir 3% greiddir ivisvar á ári yfir tíma-
bilið.
i
Sigurláns verðbréf er tryggasta innstæða í Canada vegna
þess að öll auðlegð landsins liggur að baki. Canada hefir
gefið út verðbréf í 75 ár, og aldrei brugðist því að endur-
greiða sérhvern dollar höfuðslóls ásamt vöxtum.
Það er auðveldara að koma Sigurláns verðbréfum í peninga
en nokkrum öðrum iryggingum.
Hvernig innheimti eg vexti ?
Röð af miðum er fest við verðbréfið. Hver miði er dag-
settur ... einn fyrir hverja sex mánuði; þér sníðið af sér-'
hvern miða hinn lillekna dag eða nær, sem vera vill seinna,
og fáið fyrir hann peninga í bönkunum.
Hvað nema vextir miklu?
$100 verðbréf gefur af sér $1.50 í vöxtu tvisvar á ári, eða
$3 fyrir heilt ár. A 14 árum fáið þér af þessari upphæð
$42 í arð, aðeins fyrir leigu á peningunum.
Ef þér kaupið stærri verðbréf, svo sem $5.000, fáið þér $150
í vöxtu á ári. Með því að sníða af miðann í gjalddaga, og
kaupa með honum ný verðbréf eða Stríðssparnaðarskýrteini,
þá fáið þér vaxiavöxtu, og margfaldið peninga yðar.
Þarf eg að geyma veðbréf mín unz þau
falla í gjalddaga?
Ef þú raunverulega þarfnast peninga má selja þau nær,
sem er. Farið með þau til bankans, fésýsluumboðsmannsins,
eða irusl-félagsins, er innleysa þau þegar í stað. Vitaskuld
æskið þér ekki að selja verðbréf yðar nema þörfin sé brýn.
Með sölu verðbréía takið þér peninga írá baráttunni fyrir
sigri, þar sem þeirra er allra mest þörf.
Hvar á eg að geyma veðbréfin ?
Verndið þau gegn elds- og þjófnaðarhætlu. Geymið þau í
öryggishólfi, eða banka-geymslu fyrir svolitla þóknun.
Verða veðbréf þessi með fullu nafnverði
í lok tímabils ?
Já, takið þau í bankann, er þau falla í gjalddaga, og þau
verða þá úiborguð á fullu nafnverði.
Því þarf Canada að selja veðbréf ?
Það krefst peninga að verja frelsi vort. Til þess að vera
viss um sigur, þarf Canada að fá meiri peninga NÚ, en
fólk gelur greitt í sköttum.
Canada innheimtir alt, sem unt er í sköttum, en fær hilt
að láni með sölu Sigurláns verðbréfa.
Því þurfa fleiri að kaupa Sigurláns Veðbréf
í þetta sinn ? Því þarf fólk, sem á Sigur-
láns Veðbréf, að kaupa meir í ár ?
Fram að þessu hefir verið meginhlutverk Canada að afla
efniviðar til stríðssóknarinnar. Nú í ár þurfum vér eigi
aðeins að halda við framleiðslu lil stríðsþarfa, heldur verð-
um vér að vera viðbúnir fullnaðarátökum. Þess vegna þarf
Canada að fá meiri peninga að láni með sölu Sigurláns
verðbréfa, til þess að borga fyrir margaukna stríðssókn.
Kaupið eins mikið af Sigurláns verðbréfum og þér framast
getið. og alt, sem þér megnið næstu sex mánuðina.
M0R£
BUY A YICTORY BONDS HOW
NATIONAL WAR FINANCE COMMITTEE
23—4