Lögberg - 29.04.1943, Blaðsíða 7

Lögberg - 29.04.1943, Blaðsíða 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 29. APRÍL 1943. 7 Frá Sendiráði Islands í Washington Upplýsingastarfsemi (Framhald) Er vér nú lítum yfir liðið ár, virðist mér vart komizt hjá að minnast þess að í landi voru hefir dvalið mjög fjqlmennur erlendur her. Það verður aldrei komizt hjá að af slíku sambýli verði nokkrir örðugleikar og ó- þægindi. Vér höfum eigi heldur farið algerlega varhluta þessa; meðal annars hafa komið fyrir slys, raunaleg slys. — En þegar alls er gætt, ætla eg að oss sé rétt og skylt að viðurkenna, virða og meta, hversu herstjórn- in hefir lagt sig fram um að afstýra árekstrum, óhöppum og óþægindum, og hversu þetta hef ir yfirleitt tekizt. — Af feng- inni reynslu um þetta tel eg oss óhætt að horfa vonbjartir tii framtíðarinnar hvað sambýlið snertir. Eins og nú er aðstöðu, eru megin viðskipti vor við tvö lönd: Stóra-Bretland og hin voldugu Bandaríki Norður-Ameriku. Vöruskipti vor við Stóra-Bret- land hafa verið þann veg fyrir- farandi, að oss er skylt að meta fyllilega þá fyrirgreiðslu og greiðvikni, sem oss hefir verið sýnd með afgreiðslu ýmsra nauð synja og annarra vara, meira að magni og lengur, en heimilt var að gera ráð fyrir fyrirfram. — Vér skiljum og fullvel þær ástæður, sem valda því að vöru- kaup þaðan verða fábrotin nú um stund. Megin viðskipti vor eru nú við Bandaríkin, og flestallar nauðsynjar, er vér þörfnumst utan frá, koma nú eingöngu þaðan, að undanskildum kolum, salti og sementi, sem enn fæst frá Bretlandi. Óánægjuraddir heyrast um, að seint gangi með uppfyllingu ýmissa óska vorra um vörur og aðflutningar gangi mikið seinna en æskilegt þætti. Hvort tveggja þetta má með nokkrum rÖkum segja. Sérstak- lega hefir þó gengið seint með flutningana. En myndi oss eigi skylt að hafa í huga, að Bandaríkin eiga í stríði, örðugu stríði, sem veld- ur því, að þjóðin verður að feggja harðara að sér með hverj- um mánuði sem líður, herða mittisólina fastara og fastara með viku hverri. Þegar svo er komið, að Banda- ríkjaþjóðin neitar sér um venju- leg þægindi, þá er oss vart holt að krefjast þeirra af þeim oss til handa. Þegar þeir verða að neita sér um aðfluttar vörur vegna skipaskorts, er ráðlegt að gera ráð fyrir, að allar óskir vorar um skip verði ekki upp- fyltar. Eg hefi átt því láni að fagna að dvelja langdvölum með þess- ari voldugu þjóð og hafa þar með höndum störf, sem gáfu mér kost á að kynnast og hafa samstarf við marga af æðstu embættismönnum hennar. Af þessari reynslu er mér kunnug vinarhugur og sanngirni þessara manna í vorn garð. Hér á landi hefir allur til- kostnaður farið stöðugt hækk- andi fyrirfarandi marga mán- uði vegna stöðugt aukinnar dýr- tíðar, síhækkandi vísitölu, og að nokkru leyti vegna hækkandi grunnkaups. Vér vonum að fá að lifa í þessu landi lengur en setuliðið dvelur hér. Vonandi endar heims styrjöldin áður en mjög langt líður. Þá verðum vér tilneyddir til að haga atvinnuvetum lands- ins þannig, að þeir geti borið sig með því verði, sem tíðkast á hverjum tíma á sams konar vöru með viðskiptaþjóðum vor- um. Eins og komið er dýrtíð og reksturskostnaði, virtist ekki hægt að framleiða nema fatt eitt af vörum hér, sem fylla þessi skilyrði. Af þessum ástæðum hlaut það að verða (fyrsta verk þeirrar ríkisstjórnar, er nú situr, að freista þess að stöðva dýrtíðina. Til þess gátu verið tvær leiðir. Önnur með valdboði einu, hin með samkomulagi og með vald- boði að einhverju leyti. Hin sið- ari leiðin var valin. Leitað var til Alþýðusambands ins um að það beitti sér gegn grunnkaupshækkunum, og telur ríkisstjórnin örugt, að eigi þurfi að koma til grunnkaupshækkana til loka febrúar n. k. Samkomulags var leitað við kjötverðlagsnefnd, mjólkurverð- lagsnefnd og verðlagsnefnd Grænmetisverzlunarinnar, um að þær hækkuðu ekki verðlag á þeim vörum, sem þær ráða yfir, til loka febrúar næstkom- andi. Enda þótt bæði þeir, sem ráða yfir kvötverðlagi og mjólkur- verðlagi teldu þörf á verðhækk- un, vegna geymslukostnaðar og vegna dýrtíðarhækkunar frá síðustu verðlagningu, sýndu all- ar þessar nefndir þann skilning og þegnskap að skuldbinda sig til að hækka ekki verð á vörum þessum hinn tiltekna tíma, nema að fengnu samþykki landbúnað- arráðherra. Eg hefi lýst yfir, eins og eg hér lýsi yfir því, að eg mun ekki samþykkja neina hækkun þessara nefndu vara til- tekinn tíma verði grunnkaup ekki hækkað sama tíma. Leitað var til Alþingis um aukið vald handa ríkisstjórn- inni um aðgerðir í verðlagsmál- um og eftirliti, og brást Alþingi mjög vel við, eins og kunnugt er. Fyrst var að stöðva. Síðan kom að þeirri nauðsyn að snúa við og byrja að ganga veginn til baka, veginn til lækkaðrar dýrtíðar. Til þess að sýna hversu mikla þýðingu það hefir fyrir þjóð- lífið og atvinnulífið í landinu, að það takist að lækka dýrtíð- ina, er rétt að skýra frá, að hver 8 stig í lækkaðri vísitölu eru talin að spara ríkissjóði sem næst eina miljón króna á ári í A lækkuðum útgjöldum. Eg tel lík- legt, að lækkun næstu vísitölu nemi a. m. k. þessu. Ef ríkissjóður einn sparar út- gjöld á þegar gerðum byrjunar- ráðstöfunum á aðra miljón kr. á þessu ári, hversu feikna upp- hæð sparast þá ekki á öðrum útgjöldum atvinnu'vega allra landsmanna með þegar byrjuð- um ráðstöfunum. Eitt gleggsta dæmið um hvert komið var og hvert stefndi, er hraðfrystihúsin. Nú um nokkurt skeið má heita að öll hraðfrysting fisks hafi legið niðri, vegna þess að tilkostnaðurinn er orðinn meiri heldur en umsamið söluverð nær til að standa straum af. Að nokkru valda grunnkaupshækk- anir, að öðru leyti dýrtíðin. En vér megum ekki gefa upp von- ina um þessa lyftistöng sjávar- útvegsins. Vér þurfum að nota einmitt tímann, sem nú er að líða, til þess að vinna þessari vöru framtíðarmarkmið. Hrað- frystihúsin verða að taka til starfa að nýju. I þessu sambandi vil eg biðja þá, sem atvinnu hafa við hraðfrystihúsin, eða réttara, þá sem höfðu atvinnu við þau, að hafa í huga, að bæði vegna líðandi stundar og vegna fram- tíðarinnar er það farsælla, að hafa stöðuga atvinnu, þótt tíma- eða mánaðarkaup sé lægra held- ur en að hafa háan kauptaxta eða háan kaupsamning og enga vinnu. Og til eigenda hrað- frystihúsanna vil eg segja: Vegna framtíðarinnar er það ekki aðeins hyggilegt fyrir sjálfa yður, heldur og skylda yðar gagnvart þjóðíélaginu að starf- rækja hraðfrystihúsin, þótt þér hafið engan hagnað af rekstr- inum eins og stendur. Það sem hér er sagt um verka- fólk og eigendur hraðfrystihúsa á jafnt við allt verkafólk og alla atvinnurekendur þessa lands og ríkisstjórnin væntir þess ein- dregið, að allar stéttir, allir menn og konur taki höndum saman til þess að heilbrigt at- vinnulíf fái þrifist. Það er ekki hægt að tala svo um atvinnumál, að ekki sé um leið minnst á það alvörumál, að togaraflotinn íslenzki hefir leg- ið bundinn við garð um margra vikna skeið. Það þarf ekki að hafa mörg orð til skýringar því, hve alvarlegt það er, ef ekki verður skjótt leyst úr þess- um vanda. Það er því til að dómi ríkis- stjórnarinnar lífsnauðsyn að sigl ingar þessar hefjist að nýju. Eg tel mig hafa ástæðu til að vera viss um, að þegar sjómönn- unurn íslenzku, þessum görpum, sem eru orðlagðir fyrir hreysti og dugnað, þegar þeim er ljóst, að aðeins er um tvennt að velja, að sigla ekki, eða sigla sam- kvæmt þeim óskum, sem fram- settar hafa verið af viðskipta- þjóð vorri, þá muni ekki standa á þeim. Eg vil heldur ekki trúa öðru en að togaraeigendur skilji þá alvarlegu aðkallandi nauðsyn sem er á því að togararnir hefji siglingar að nýju, skilji skyldu þá, sem á þeirra herðum hvílir. Enda færi það þeim, sem hafa haft fljótteknari og stórfeng- legri gróða á fyrirfarandi árum en líklega nokkrir aðrir hér á landi, það allrasízt vel að leggja árar í bát. Að minnsta kosti ekki fyrr en reynslan sjálf hefir sýnt hvert tap eða hvað mikið tap þarf að verða á siglingunum vegna breyttra aðstæðna. Við bændur landsins vil eg sérstaklega segja þetta: Ástæðan til þess að tvær af framleiðsluvörurrt landbúnaðar- ins, kjötið og smjörið, voru valdar til þess að lækka fyrst, var eingöngu og aðeins sú, að það var eins og á stóð kostnað- arminnst að velja þessar vörur til lækkunar. Eitt af viðfangsefnum kom- andi mánaða, eitt af stóru við- fangsefnunum, verður að finna ráð til þess að landbúnaðurinn íslenzki dragist ekki saman. Því það skyldu allir lands- menn hafa vel í huga, að það er engu síður áríðandi fyrir oss sem við sjávarsíðuna búum, að landbúnaðurinn sé áfram mátt- ug stoð í íslenzku þjóðlífi, eins og hann hefir verið í aldaraðir. Ræða fjármálaráðherra. Ryrir réttu ári talaði eg í út- varpið og varaði við hættunni sem stafaði af því lausbeislaða fé sem streymdi þá inn í landið. Við höfum nú í þrjú ár safn- að þeim veraldarauði, sem fall- valtastur er — styrjaldarauðn- um. Kvörnin sem átti að mala gull, malar nú ógæfu og tortím- ingu ef gifta þessa lands stanz- ar hana ekki 1 tæka tíð. Þjóðin verður að gera sér fyllilega ljóst,(að hún er í hættu stödd. Ef verðlag og kauplag í landinu heldur áfram að taka risastökk, eins og verið hefir undanfarið, þá er enginn mann- legur máttur sem getur forðað henni frá fjárhagshruni, atvinnu leysi og bjargarskorti. Þess vegna er nú aðeins um eitt að gera, að spyrna við broddunum. Með skapfestu og manndómi mun það takast. Þessari hættu, sem yfir þjóðinni vofir, verð- ur að b$egja frá, hvað sem í sölurnar verður að leggja. Þetta hlutverk hefir núver- andi ríkisstjórn tekið að sér, meðan henni endist til þess ald- ur. Hún getur engu lofað um árangurinn, en hann er að miklu leyti kominn undir þjóð- inni sjálfri. Aðeþis eitt sjónar- mið ræður gerðum ríkisstjórnar- innar í því erfiða hlutverki sem hún hefir með höndum. Það er, hvað þjóðarheildinni er fyrir beztu. Stéttir og einstaklingar í þessu þjóðfélagi geta bezt stutt stjórnina í viðleitni henn- ar með því að taka upp sama sjónarmið gagnvart þeirri lækn- ingu sem hér verður að fara fram. Engin ein ráðstöfun getur komið hér öllu í lag. Undir það verða margar stoðir að koma. Hér á nú að setja undir verð- lagseftirlit allar vörur sem al- menningur í landinu þarf að nota, hvort sem um er að ræða vísitölu-vörur eða aðrar vörur sem ekki eru nauðsynjar, eða jafnvel geta kallast óþarfar. Þessu eftirliti hefir nú fyrst verið snúið að verzluninni, en það boðar enga ofsókn á hend- ur henni. Það verður látið ná til annara greina sem selja eða framleiða vörur er varðar al- menningshag, hvort sem er fatn- aður, áhöld, viðgerðir, matur eða drykkur, hvort sem matur- inn er seldur í verzlun eða veit- ingastað, hvort sem fatnaðurinn eða áhöldin eru framleidd í verk smiðjum, verkstæðum eða heima húsum. Þessar margþættu og vanda- sömu ráðstafanir verður reynt að framkvæma af viti og sann- girni en með fullri festu og með það fyrir augum að um þjóðarnauðsyn er að ræða. En þá sem mest finna til sárs- aukans af þessum ráðstöfunum, verða eg að biðja að muna það, að afturbatinn er þeim ekki minni nauðsyn, en öðrum sem lifa og starfa í þessu landi. Margur kann nú að spyrja hvort verðlagsráðstafanirnar eigi eingöngu a® bitna á verzl- un, iðnaði og annari framleiðslu, en afurðir landbúnaðarins fái áframhaldandi að vera í því háa verði sem þær eru nú. Ríkis- stjórninni er full ljóst að leið- rétting verður að fást einnig á þeim vettvangi, í sambandi við verkalaun í landinu, ef nokkur von á að verða til að bót verði ráðin á böli verðbólgunnar. Um innflutningsverzlunina er það að segja, að líklegt er að sníða þurfi henni þröngan stakk á því ári sem nú er að byrja*. Innflutningsmagnið hlýtur að minnka stórum. Skipakostur sá, er landsmenn ráða yfir nú, Þýzkir herfangar á Rússlandi ótlasl ósigur. Fyrstu þýzku stríðsfangarnir, sem Rússar tóku skömmu eftir innrásina, báru sig borginmannlega, og tjáðust sann- færðir um það, að ekkert afl í víðri veröld gæti yfirbugað Þýzkaland; nú er komið annað hljóð í strokkinn, því þýzkir herfangar á Rússlandi síðustu vikurnar fara ekki dult með þá skoðun sína, að frá hernaðarlegu sjónarmiði séð, sé Þýzkaland dauðadæmt. nægir hvergi nærri til.að flytja það vörumagn, sem þjóðin kaup- ir í venjul. ári. Fyrst og fremst verður að flytja þær vörur sem þjóðinni er mest nauðsyn á að fá til lífsviðurværis og starf- rækslu. — Menn mega því bú- ast við að margt verður numið úr innflutningnum sem undan- farið hefir verið leyft. Allt glys, allur óþarfi verður að hverfa. Þær ráðstafanir sem gera þarf í dýrtíðarmálunum, verða ekki framkvæmdar án útgjalda fyrir ríkissjóð. Alþingi hefir þegar með ályktunum og lögum bund- ið að miklu leyti þær tekjur sem ríkið hefir umfram gjöld fyrir árið 1941—1942. Þess vegna verður ekki hjá því komizt að leggja á nýja skatta í tvennum tilgangi. Til þess að standast þau útgjöld sem viðreisninni eru samfara og til þess að binda þann kaupmátt sem nú er miklu meiri en þau gæði sem hægt er að kaupa og þess vegna er eitt aðal sundrungaraflið gegn þei’m tilraunum sem nú eru gerðar til að stöðva verðbólguna. Þessir væntanlegu skattar verða ekki lagðir á einstakar stéttir. Þeir verða lagðir á alla í hlutfalli við beinin sem menn hafa til að bera þá. íslendingar eiga mikið for- sjóninni að þakka og ólíkt er þeirra hlutskipti margra annara. Það ætti því að vera með þakk- argerð á vörum að þeir fái að greiða skatta, ekki til viðhalds ófriði, eyðingu og tortímingu mannlífa, heldur til uppbygging ar, menningar og framfara í sínu eigin landi. Tímabil stríðsgróðans er lok- ið. Þeir sem hyggja að hér eftir verði hægt að byggja afkomu sína á fljótteknum auði, munu verða fyrir vonbrigðum. Lands- menn verða nú að gera sér ljóst að hér eftir verða þeir að lifa á eðlilegri hagnýtingu þeirra gæða sem landið sjálft og fiski- mið þess fá þeim í hendur. Fiskiflotinn íslenzki hefir und anfarin ár framleitt mest af þeim verðmætum sem gengið hafa til greiðslu á innfluttum nauðsynjum og skapað þær inn- eignir sem bankarnir eiga nú erlendis. Ef útgerðin stöðvast nú, verður allur annar rekstur máttvana á skömmum tíma. Þess vegna er þjóðinni lífsnauð- syn að útvegurinn geti starfað, starfað á grundvelli þess fisk- verðs sem nú er fastsett með samningi eða fæst í brezkum höfnum. Til þess að þjóðin geti starfað á heilbrigðan hátt, verð- ur afkoma annara stétta eða félagsheilda, að miðast við þá afkomu sem útvegurinn getur nú veitt þeim sem selja aflann hér á landi. Eg hefi í þessu stutta erindi boðað það sem margir mun kalla ekki góð tíðindi. Eg hefi boðað þröngt verðlag. Eg hefi boðað samdrátt í verzluninni. Eg hefi boðað nýja.skatta. Allt hefir þetta stór áhrif á afkomu fjölda manna. Allt kann þetta að breyta núverandi viðhorfi fjölda manna til margra hluta. En þjóðin jafnt og einstakl- ingar, verða með sjálfsafneitun og viljaþreki að vinna aftur það sem með gáleysi hefir tapazt. Þeir erfiðleikar sem þarf að yfirstíga eru miklir og afkoma þjóðarinnar um margra ára skeið fer eftir því hversu tekst í þessari baráttu. Það er langt frá því að baráttan sé vonlaus. Árangurinn er að mestu undir landsmönnum sjálfum kominn og nú verður úr skorið hversu í þá er spunnið. Frh. Dánarfregn Miðvikudagskvöldið 14. apríl, andaðist Egilsína Friðrikka Johannson í Fargo N. D. Hafði hún verið heilsutæp í vetur og hvarf þangað að léita sér lækn- inga, en andaðist mjög skyndi- lega þar þetta kvöld. Egilsína var dóttir þeirra heiðurshjónanna Gísla Jóhann- sonar, sem þá var nýlátinn, and- aðist 4. apríl, og konu hans Mettu Jóhannson, sem andaðist árið 1928. Fæddist Egilsína í Hallson-bygð 4. júní 1888, og bjó hún þar á heimili foreldra sinna alla æfi. Eftir að móðir hennar dó tók hún þar við búsforráð- um og stjórnaði heimilinu af fyrirhyggju og dugnaði, og var sérlega umhyggjusöm og ástrík í garð þeirra sem á heimilinu bjuggu, bæði yngri og eldri. Er hennar sárt saknað af þeim ástmennahópi, sem finnur hversu mikið þau hafa mist; enda er hennar saknað líka af samferðafólki og vinum. Varð missirinn þeim mun sárari þar sem dauða hennar bar svo skyndilega að höndum, þó hún hefði undanfarið verið heilsu- tæp; og einnig af því að faðir hennar hafði þá fyrir svo ör- stuttu líka verið kvaddur. Jarðarför Egilsínu fór fram frá kirkju Hallson-safnaðar sunnudaginn 18. apríl. Mikill fjöldi ættingja, vina og nágranna fylgdu hinni látnu til grafar. Var hún lögð til hvíldar við hlið foreldra og annara ættingja í íslenzka grafreitnum Norð- vestur af Hallson N. D. Sóknar- presturinn, séra H. Sigmar jarð- söng. MRS. MERTON SAYS : TOTAL WAR IS A LOT BETTER TMAN TOTAL SLAVERY — Btuý í/íc£yuýBcrru£ó

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.