Lögberg - 20.05.1943, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. MAÍ 1943.
Börnin undir oki Hitlers
Saga barnanna á meginlandi
Evrópu um þessar mundir mun
ekki hljóma vel í eyrum hinna
kveifarlegu. Nýlega sagði grísk-
ur liðsforingi í útvarpi: “í fyrra-
vetur stóð eg á götu einni lá-
lægt Omonia torgi í Aþenu að
morgni dags. Eg hafði veitt
athygli þýzkum brauðvagni,
sem stóð við gangstéttina og
var brauðið ætlað Þjóðverjúm
einum. Þeir voru vanir að láta
matvælavágna sína standa á
götunum, þó að gríska þjóðin
væri nærri því soltin í hel.
Hinir fullorðnu gátu harkað af
sér, þótt þeir sæju hina girni-
legu matvælavagna, en það var
hræðilegt að sjá börnin mæna
á matarbirgðirnar, sem þau
máttu ekki snerta á. Umræddan
morgun heyrði eg skyndilega
skothríð. Eg hljóp til baka, til
þess að vita, hvað um væri að
vera. Eg sá drengsnáða, sex eða
sjö ára, liggja á grúfu á göt-
unni. Fyrir framan hann lá
brauðhleifur, sem hann hafði
náð úr vagninum, þegar hann
hélt, að enginn væri nálægur.
Hann hafði fengið þrjár kúlur í
bakið.”
Við bryggjurnar í grískum
hafnarborgum er krökt af
börnum, sem biðja um mat. Þau
eru á sveimi umhverfis mat-
sölustaði og eldhús hermannar
skálanna í leit að einhverju
ætilegu í skólpræsum og sorp-
rennum. Mörg barnanna eru svo
horuð og máttvana af hungri,
að þau geta aðeins dregizt á-
fram „ eftir gangstéttunum og
sum liggja stynjandi og vein-
andi í hornum og skúmaskot-
um. Stundum hætta þau að
veina og liggja tímum saman
þegjandi og hreyfingarlaus,
eins og þau svæfu, en þegar að
er gætt, eru þau dáin. Fregn
frá Barnaverndarnefnd Aþenu-
borgar hermir, að níu af hverj-
um tíu börnum, sem fæðast þar
í borg deyi áður en þau nái
sex mánaða aldri vegna þess að
mæðurnar 'séu svo langt leidd-
ar a)f matarskorti, að engin
mjólk sé í brjóstum þeirra.
Ung, grísk móðir skrifar: “Barn
ið mitt dó. Eg gat ekki útvegað
því neitt ætilegt að borða.
Hvað á eg að gefa soltnu og
grindhoruðu barni — gras eða
kálblöð?”
Svisslendingar veita alla þá
aðstoð, sem þeim er unnt að láta
í té, með því að bjóða til sín
börnum frá hinum ýmsu her-
teknu löndum til þriggia mán-
aða dvalar. 1 bréfi frá Sviss
stendur: “Eg er nýkominn frá
járnbrautarstöðinni, þar sem eg
var að taka á- móti heilum lest-
arfarmi af frönskum börnum.
Þetta eru skapheitar, ungar ver-
ur, en svipurinn ellilegur og
hátíðlegur, andlitin föl og rún-
um rist, augun þanin út og
spegla hina ömurlegustu ógn og
skelfingu. Fjöldamörg barnanna
voru sveipuð tötrum og sum
berfætt. Þau verða vandmeðfar-
in fyrstu dagana. Sum þeirra
geta ekki melt mjólk, nema hún
sé þlönduð vatni. En eftir þrjá
mánuði verða þau að fara heim
til sín aftur, og mér er sagt,
að foreldrar þeirra þekki þau
varla, þegar þau komi.”
í svissnesku dagblaði er
skýrt frá litlum dreng, sem
kom til Genfborgar ásamt hópi
franskra barna. Hann hélt
dauðahaldi í körfu, sem í var
hani og tvær hænur. Þegar
hann var spurður, hvernig á
þessum hænum stæði, fór
hann að gráta. Móðir hans var
dáin, en faðir hans stríðsfangi.
Þessi hænsni voru allur arfur
hans, og hann bað þess með
grátstafinn í kverkunum, að
hann fengi að halda þeim.
Mörg serbnesku barnanna deyja
á leiðinni til Sviss, en þau, sem
komast alla leið, eru ekkert
nema skinin beinin og kaunum
hlaðin. Sum þeirra eru haldin
þúðsjúkdómum, sem þau höfðu
fengið af grasáti. Flest þeirra
voru svo vanþroska, að tíu ára
tökubörn gátu gengið í fötum af
sex ára svissneskum börnum, en
þó voru fötin þeim of víð.
Norsk kona’ ritar: “Við eig-
um hvorki matvæli, eldsneyti
né fatnað — og nýfæddu börn-
in eru sveipuð pappír. Yfir okk-
ur hefir legið svartnætis-morð-
nótt, sem ekki á sinn líka í sögu
miðalda. Þegar Gyðmgarnir
voru hraktir burtu, urðu menn
að standa með börn í fanginu
klukkkutíum saman á bryggj-
unum. Þriggja ára snáði ríghélt
í kápu Gyðingaprests og kallaði
án afláts: — Mamma, ætlarðu
ekki að koma. — Jú, eg ætla að
koma, sagði hún, en hún vissi,
að hún mátti ekk'i fylgia barni
sínu. Hún var látin fara á öðru
skipi. Þeir hafa rekið litlar
Gyðingatelpur af munaðarleys-
ingjahælum. Þeir hafá hrakið
undan sér farlama menn og
fleygt á eftir þeim hækjunum.”
Lítill drengur fór að gráta, og
þeir börðu hann í andlitið, svo
áð blæddi úr. 1 fangabúðunum
í Grini í Noregi hefir verið
stofnuð sérstök deild barna,
sem komin eru yfir fjögurra ára
aldur og eru börn foreldra, sem
eru andvígir Quislingstjórninni.
í Póllandi hefir ekki einungis
æskulýðurinn verið sendur í ^
fangabúðir, heldur hafa og |
tveggja og þriggja ára gömul,
börn verið hrifin úr skauti for- |
eldranna til uppeldis samkvæmt
venjum nazista. Allt, sem minn-
ir á uppruna þeirra og ætt er
máð út, svo að þau eru glötuð
foreldrunum að eilífu, þó að
þau lifi af hið harðneskjulega
uppeldi.
Um allt meginland Evrópu
LÆKKUN EKRUFJÖLDA
UNDIR HVEITI
Bændur í sléttufélkjunum, að þeim meðtöldum, sem eiga heima í Peace
River og Creston héruðunum í British Colurfibia, sem æskja að nota
hveitlönd sín til annara uppskerutegunda, eða sumaryrkju 1943, geta
krafist borgunar fyrir slíka breytingu.
Greiða má $2.00 fyrir hverja ekru lands, þar sem
sáð er minna af hveiti 1943 en viðgekksl 1940.
Ef ekkert hveiti var ræktað á býli 1940, en eitt-
hvað af því 1939, þá má nota ekrufjöldann 1939
í staðinn fyrir 1940. Hvaða uppskerutegund, sem
er, eða sumaryrkju, má nota í stað hveitis, en
engin greiðsla af landi, sem hefir verið yfirgefið.
Greiðsla á hvaða býli, sem er, skal takmörkuð við ekrufjölda, er eigi fari
yfir 80 % af öllu ræktuðu landi býlisins.
Til þess að tryggja sér borgun, verða bændur að
senda inn eiðsvarna kröfu þegar að lokinni sán-
ingu. Þessu æltu þeir að ráðstafa
EKKI SÍÐAR EN 30. JÚNÍ.
Sérhver bóndi, sem ekki sótti um borgun fyrir hveitiekrulækkun 1941 eða
1942, en hefir í hyggju að fá slíka greiðslu 1943, verður að tilkynna sveit-
arstjórn sinni fyrir 31. maí, og gera kröfu sína þegar eftir sáningu.
Eyðublöð fást á skrifstofum sveitarstjórna, eða á skrifstofum Wheat
Acreage umboðsmanna í Winnipeg, Regina og Edmonton.
Kröfur má senda á Sveitarstjórnarskrifstofur, eða aðrar skrifstofur, sem
settar eru á fót í byggðarlögum, sem sveitarstjórnirnar hafa ekki umráð
yfir. Menn ættu að forðast það, að draga kröfur sínar á langinn; þær má
senda inn þegar að lokinni sáningu. Landsdrottnar mega senda inn um-
sóknir sínar þegar í stað.
DOMINION DEPARTMENT OF AGRICULTURE
OTTAWA
HONORABLE J. G. GARDINER,
Minister
G. S. H. BARTON,
Depuíy Minister
sjást þreyttar skinhoraðar
mæður hökta um götur borg-
anna, -brjótandi heilann um
það, hvernig þær eigi að ná
í matarkörfu handa soltnum
börnum sínum. Sums staðar í
Belgíu er morgunverður barn-
anna ekki annað en “brauð”,
sem búið er til úr kartöfluhýði.
Fimm af hverju hundrað barna
á skólaskyldualdri verða að fara
í skólann án nokkurs morgun-
verðar. Oft kemur það fyrir, að
börn falla í öngvit í kennslu-
stundunum og yngri börn eru
ekki ósjaldan veik. Franskur
kennari skrifar: “Börnin eru
alltaf svöng. Hafi þau fengið
kartöflur eða kjötbita að borða,
segja þau mér frá þessu, eins
og um stórtíðindi væri að
ræða. Ef eg minnist á matvæli
í tímunum, fará þau að gráta.”
Franska blaðið L’Oeuvre
skýrir frá telpum í skóla einum
í Norður-Frakklandi, sem var
skipað að skrifa stíl um það,|
hvers þær óskuðu sér, ef ör-
lagadísirnar veittu þeim upp-
fyllingu • tveggja óska. Ellefu
ára gömul telpa, Denise að
nafni, óskaði þess, að hún
þyrfti aldrei framar að vera
svöng, því að: “Það er svo
hræðilegt að vera svöng. Mér
líður strax illa, ef eg fæ ekki
nægju mína að borða, en að
deyja úr sulti hlýtur að vera
hræðilegt.” Franskur skóla-
drengur sagði frá því í bréfi,
sem ritað var fyrir rúmu ári, að
hann væri orðinn mjög leiður á
matarskortinum. Hann væri
orðinn svo máttvana, að hann
gæti ekki sint leikfimitímunum.
En þó þjáðist hann ekki einungis
á líkamanum. Minnið væri mjög
farið að bila.
Það er ekki einungis, að
skorturinn dragi úr þrótti
barnanna, heldur veikir hann
mótstöðuafl þeirra gegn sjúk-
dómum. Við rannsókn skóla-
barna í Rotterdam í sumar leið
kom í ljós, að aðeins þrjátíu og.
sjö börn af hverju hundraði
fengu nægilega fjörefnaríka
fæðu til þess að viðhalda heilsu
sinni og þrótti. Hvers kyns sjúk-
dómar þróast með börnunum
vegna næringarskorts. Tæring
útbreiðast óðfluga. í borginni
Sabac í Serbíu eru börn, sem
hafa misst sjónina vegna skorts
á vissum næringareínum.
Skortur á sápu veldur húð-
sjúkdómum. Læknum er bann-
að að sinna börnum, sem eru
undir fimm ára aldrdi.
Stundum er börnum ekki hlíft
við hefndarráðstöfunum nazista.
í litlu borginni Kragujevac
höfðu Þjóðverjar skipað svo fyr-
ir, að 22. október 1941 yrðu
skotnar fáeinar þúsundir gisla.
Til þess að fylla töluna voru
hundrað skóladrengir reknir út
úr skólastofum sínum og ^kotn-
ir. Drengirnir byrgðu andlit sín
með skólatöskunum sínum og
hrópuðu: — Skjótið þið bara, við
erum ekki hræddir við dauð-
ann. Við erum synir serbnesku
þjóðarinnar. Þeir voru skotnir
með vélbyssum. Engin hreyfing
sást á götunum í Kragujevac í
tvo daga, en úr hverju húsi
heyrðist grátur kvenna og
barna. Að lokinni þessari slátr-
un fjölgaði þeim börnum, sem
gengu um skógana eins og dýr
merkurinnar. Og ef til vill hafa
þessir hundrað skóladrengir
hlotið betri örlög en börnin,
serr\ eftir lifðu. Grísk kona
skrifar: “Það er dapurlegt písl-
arvætti að deyja smám saman,
dag frá degi.”
En þjóðir Evrópu hafa ekki
misst vonina. “Nei, við örvænt-
um ekki,” skrifaði kona ein frá
Rúðuborg. Við fylgjum málstað
bandamanna af lífi og sál. En
komið fljótt^ og frelsið okkur.
Við erum öll reiðubúin að
hjálpa ykkur eftir fremsta
megni. Gallinn er bara sá, að
við erum svo aðfram komin af
sulti og kulda, að lítið lið er í
okkur.”
-----------------------------------------------,
Látið ekki tækifærið ganga
úr greipum yðar!
—------------- ' !
Verzlunarmennlun er ómissandi nú á dögum. og
það fólk, sem hennar nýtur, heíir ælíð forgangs-
rétl þegar um vel launaðar stöður er að ræða.
Það margborgar sig, að finna oss að máli, ef þér
hafið í hyggju að ganga á verzlunarskóla; vér
höfum nokkur námskeið til sölu við frægustu og
fullkomnusiu verzlunarskóla vestan lands.
The Columbia Press Limited
Toronto og Sargent, Winnipeg
I---------------------------------------
Bréf um byggingu
gömlu kirkjunnar á
Akureyri
Fanst undir altarinu, þegar
kirkjan var rifin.
Nú í vetur var gamla kirkjan
inni í Fjörunni rifin. Þegar gólf-
ið undir altari hennar var tekið,
kom í ljós blikkbaukur undir
því, er reyndist hafa að geyma
all-merkilegt bréf. Var það frá
yfirsmið kirkjunnar, Jóni Chr.
Stephánssyni timburmeistara, og
fjallar um kirkjubygginguna.
Var bréfið á þessa leið:
“Árið 1862, 26 dag maímán-
aðar var byrjað á að reisa kirkju
í fyrsta sinn á Akuryri, og
höfðu bæjarmenn lengi þráð að
fá hana setta á þann stað, sem
hún nú stendur á, því margt hef-
ir hamlað að koma því í verk,
þó að einkum megi telja efna-
leysi, og hafa bæjarmenn styrkt
bygginguna með góðum vilja og
talsverðum gjöfum, þar Hrafna-
gilskirkja og eigur hennar
hrukku ekki meir en fyrir lið-
legum þriðjaparti af kostnaðin-
um. Mitt í ágúst s.l. ár mátti
hætta við smíðið, og var þá lok-
ið utanbyggingunni. Síðan var
byrjað á henni aftur 25. febrúar
1863, og byrjaði eg þá á innan-
smíðum, sem eiga að vera lokn-
ar 6. júní 1863, því þá hefi eg
lofað að hún skuli messufær.
Margt er miður en eg hefði
óskað við kirkjuna, því efnin
hafa orðið að ráða. Eg hefi unn-
ið að henni eftir kröftum, og af
góðum vilja, og vona því að
þessi ófullkomnu verk mín vel
lukkist. Þeir sem verða til að
rífa hana eða breyta og kynnu
að sjá þennan miða mega ekki
leggja harðan dóm á mig, þar
eg hefi orðið að taka af litlum
efnum.
Þeir smiðir sem hafa unnið
að þessi, eru þessir.
Timburmeístari Jón Christinn
Stephánsson sem yfirsmiður.
Snikkari Guðjón Jónsson.
Timburmaður Sveinbjörn Ólafs-
son.
Smíðalærisveinn Þorlákur Þor-
láksson.
Timburmaður Bjarni. Jónsson.
Timburmaður Pétur Thorlacius.
Timburmaður Árni Hallgríms-
son.
Timburmaður Björn Benjamíns-
son.
Timburmaður Jón Jónsson.
Snikkari Sigfús Jónsson
Snikkari Jón Pálmason
Járnsmiður Friðrik Jafetsson.
Þessir menn hafa unnið mest
að smíðum kirkjunnar, þó til
skiptis. Þó hafa þessir verið alla
tíð: eg, sá fyrst taldi, sá þriðji
og sá fjórði.
Það er líklegt að bein mín
liggi fyrir löngu fúin, (Guð veit
hvar) þegar Akureyrarkirkja
verður bygð aftur upp, en það
gleður mig að vita af því að
reynt muni til að gjöra hana
betur úr garði en nú var hægt.
Og eg vona að eg verði ekki
sakfeldur fyrir min verk að
henni, því fullkominn vilja hefi
eg til að fá breytingu á bygg-
ingarmáta hér, sem að undan-
förnu hefir verið mjög einfald-
ur, og ætlast eg til að kirkjan
og apótekið sýni að eg hefi
breytt út af gamla vananum að
svo miklu sem eg heft getað.
Þessar línur mínar skrifa eg
mér til gamans, og vona eg að
þær verði teknar eins. Og eg
óska að endingu að þeir. sem að
kirkju vinna á eftir mér, geti
gert það sér til gagns og gleði,
og þeirri nýju kirkju til góðra
nota.
Að endingu óska eg kirkj-
unni allrar blessunar, og öllum
yfir höfuð sem sjá kynnu þenn-
an miða, og kveð þá sem kæra
vini.
Akureyri, dag 24. apríl 1863.
Mbl. 23. marz.
Borgið Lögberg!
WOMEN-Serve with the C.W.A.C.
You are wanled — Age limils 18 to 45
Full information can be obtained from vour
recruiting representative
Canadian Women's Army Corps
Needs You
Get Into the Active Army
Canada's Army Is On The March
Get in Line —- Every Fil Man Needed
Age limits 18 to 45
War Veterans up to 55 needed for
VETERAN’S GUARD (Active) -
Local Recruiting Representative
Alþbl. 13. mars.