Lögberg - 20.05.1943, Blaðsíða 8

Lögberg - 20.05.1943, Blaðsíða 8
I 8 Úr borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist tiL Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feidsted, 525 Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5c. ♦ ♦ "At Home". Eldri söngflokkur Fyrsta lút- érska safnaðar býður ungum og gömlum til skemtunar með sér fimtudagskvöldið 27. maí, í neðri sal kirkjunnar við Victor St. Mest af skemtiskránni er tek- ið úr lausu 'lofti; gamlar og nýjar endurminningar frá ís- landi. Komið og hlægið með kórn- um! Frjáls samskot. Kaffi og veitingar. Nefndin. ♦ ♦ ♦ Athygli skal hér með leidd að því, að Dr. B. J. Brandson hefir flutt lækningastofu sína úr 216—220 Medical Arts Bldg., í 308 í sömu byggingu, og veíður þar að hitta á venjulegum við- talstíma. ♦ ♦ ♦ Christine Sigríður Johnson, 49 ára gömul, dóttir Halldórs og Hólmfríðar Johnson, 676 Banning St., lézt á King Edward spítal- anum hér í bænum á fimtu- daginn var, 14. maí, eftir lang- varandi vanheilsu. Auk foreldra lætur hún eftir sig systur, Fanny Mrs. E. A. Thompson, Cochrane, Sask. Jarðarförin fór fram frá útfararstofu Bardals á mánu- daginn. Séra V. J. Eylands jarð- söng. ♦ ♦ ♦ Síðastliðinn sunnudag áttu þau sæmdarhjónin, Mr. og Mrs. B. Guttormsson 987 Minto St., hér í borginni, fjórðungsaldar hjónabandsafmæli; var þessa atburðar minst þá um daginn á heimili dóttur þeirra og tengda- sonar, Mr. og lýírs. Kerr Wilson, þar sem saman voru komnir nokkrir nánustu ættingjar og vinir silfurbrúðhjónanna; voru þau Mr. og Mrs. Guttormson sæmd þar ýmissum verðmætum minjagjöfum. 4- Séra S. O. Thorlákson frá Berkley Cal., kom til borgarinn- ar á miðvikudaginn, eftir að hafa flutt guðsþjónustur á ýms- um stöðum í Vatnabygðunum í Saskatchewan síðastliðna tvo sunnudaga. Dómgreind Af þeim mörgu skilyrðum, sem til þess þarf, að undir- búa EATON verðskrá, er heilbrigð dómgreind þýð- ingarmest, því á reynslu hennar til margra ára, er byggt mat á nýjungum í klæðaburði, húsaskreytingu — eða einmitt því, sem ÞÉR æskið — það veitir EATON’S kaupsýslumönn- um skilning á að ráða í þarfir yðar, og gerir póst- pantanir úr EATON’S verð skrá svo ánægjulegar. Og viðskiftavinir vorir mega treysta því, myndirn- ar í EÁTON’S verðskrá, lýsa vörunum eins og þær eru. Þær eru nákvæmlega athugaðar af Rannsókna- deildinni til að fyrirbyggja ónákvæmni eða ýkjur. Vissulega eru pantanir úr EATON’S verðskrá, að eig- in vild á heimili yðar, hin ákjósanlegasta verzlunarað- ferð.' Verzlið gegnum EATON'S verðskrá. "Búðin milli spjaldanna" <*T. EATON WINNIPEG CANAOA EATONS Messuboð Fyrsta lúterska kirkja, Winnipeg Séra Valdimar J. Eylands, prestur 776 Victor St,—Phone 29 017 Guðsþjónusta á hverjum sunnudegi. Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7. e. h. Sunnudagaskóli kl. 12:15. Allir æfiniega velkomnir. * * * Lúterslca kirkjan í Selkirk: Sunnudaginn 23. maí. Sunnudagaskóli kl. 11 árd. íslenzk messa kl. 7. síðd. Allir boðnir velkomnir. Almennur safnaðarfundur í Selkirk söfnuði eftir messu þ. 30. maí. S. Ólafsson. ♦ ♦ ♦ Áætlaðar messur í Gimli prestakalli: Sunnudaginn 30. maí. Messað í Árneskirkju kl. 2 síðdegis. Ferming ungmenna og altarisganga. Sunnudaginn 6. júní. Betel kl. 9,30 árd. Gimli kirkja, kl. 2. síðd. Ferming ungmenna og altaris- ganga. S. Ólafsson. ♦ ♦ ♦ Skúli Sigurgeirsson, guðfræði- stúdent, flytur guðsþjónustu á eftirgreindum stöðum, sunnu- daginn þann 23. þ. m.: Oak View, kl. 1. e. h. Vogar, kl. 3. e. h. ♦ ♦ ♦ Prestakall H. Sigmars: Sunnudaginn 23 maí. Hallson, íslenzk messa kl. 11. Eyford, íslenzk messa kl. 2,30. Gardar, íslenzk messa kl. 8 að kvöldi. Almenn altarisganga safnað- arins á Eyford. Allir boðnir velkommr. Sunnudaginn 30. maí. Vídalín, íslenzk messa kl. 11. Fjalla, íslenzk messa kl. 3. Mountain, ensk messa kl. 8. Við messuna á Mountain talað til ungmennanna, sem ljúka fullnaðarprófi við miðskólann. Almenn altarisganga safnaðar- ins. Offur til kirkjufélagsþarfa, trúboðs, líknarstarfs o. s. frv. AJlir velkomnir. ♦ ♦ ♦ Prestakall Norður Nýja íslands: Sunnudaginn 23. maí. Árborg, íslenzk messa og árs- fundur, kl. 2 e. h. Riverton, íslenzk messa kl. 8. e. h. B. A. Bjarnason. Spring Tea. The Jon Sigurdson Chapter, I.O.D.E. is holding a Spring Tea and sale of home cooking in the First Lutheran Church parlor, Saturday, May 29, from 3—5,30 and 8—10 p. m. There will be other attractions as well, such as, White elephant sale, apron booth, and plant sale. The Chapter is in great need of funds in order to carry on the Work of sending comforts to our troops. Last month $203 was spent for cigarettes alone. We are therefore making a special appeal to all our loyal friends to patronize this Tea and do their best to make it a success. Please help us to do the right thing bý our fighting forces who are giying their all for us. ♦ ♦ ♦ Síðastliðinn föstudag lézt á sjúkrahúsi í Prince Albert, rauna maðurinn Ingólfur Johnson, sá er íslendingar vestan hafs korpu svo eftirminnilega til liðs við, með almennum samskotum fyr- ir seytján árum; orsök til dauða hans var krabbamein í hálsi. Útför Ingólfs fór fram á mánu- daginn. ♦ ♦ ♦ Dr. S. E. Björnson frá Árborg hefir dvalið í borginni nokkra undanfarna daga ásamt frú sinni. LÖGBERG. FIMTUDAGINN Skemtisamkoma Laugardags- skólans í Árborg fór fram síð- astliðinn föstudag, við mikla að- sókn og aukinn áhuga; var skemtiskrá að öllu hin vandað- asta, og raddir æskunnar enn sem fyr, hið mikla aðdráttar- afl. Aðalræðuna flutti Dr. Beck, forseti Þjóðræknisfélagsins, en forsæti skipaði á samkomunni frú Marja Björnson, sem nú er forseti þjóðræknisdeildarinnar “Esjan” þar í bænum, og í raun og veru lífið og sálin í þjóð- ræknisshmtökulm Islelndinga í bygðarlagi sínu; nemendur Laug ardagsskólans höfðu framsögn á íslenzku og sýndu smáleik, auk þess sem ungkvennaflokkur Miss Maríu Bjarnason skemti með söng. ♦ ♦ ♦ Dr. Richard Beck, forseti Þjóð ræknisfélags íslendinga í Vest- urheimi, hélt heimleiðis á mið- vikudagsmorguninn, eftir því nær viku dvöl hér um slóðir. Dr, Beck heimsótti í þjóðræknis- érindum Árborg og Se’kirk og flutti þar hvatningarerindi, auk þess sem hann stjórnaði þremur fundum í framkvæmdarnefnd Þjóðræknisfélagsins. Banaslys í Austurstrœti af voldum sprengju hylkis Þessum atburði lýsir rannsókn arlögreglan þannig, samkvæmt vitnisburðum sjónarvotta: Klukkan rúmlega 8 á sunnu- dagskvöld kom maður á lög- reglustöðina og tilkynnti, að hann hefði heyrt skothvell og séð um leið mann falla á göt- una í Austurstræti. Þegar lögreglan kom á vett- vang var búið að taka mann- inn og töldu þeir, sem höfðu séð hann, að hann hefði slazast mik- ið. Sjónarvottur hefir lýst atburð- unum þannig: “Eg var einn á gangi í Aust- urstræti um klukkan 8. Gekk eg eftir gangstéttinni, sunnan megin við götuna. Þegar eg var kominn á móts við Austur- stræti 6 sá eg brezka sjóliða, sem gengu á undan mér. Bentu þeir upp í loftið framundan sér og sögðu eitthvað á þá leið: “Hvaða ljós er þetta”. Leit eg þá strax upp og sá þá mjög skært, lítið ljós, sem bar yfir biðreiðastöð Steindórs. í sama mund heyrði eg þyt í loftinu og heyrði um leið hvell af spreng- ingu rétt fyrir aftan mig. Eg leit jafnskjótt við og sá að mað- ur var að falla á gangstéttina um það bil 6 metra frá mér. Umhverfis manninn var hvít- leitur púðurreykur. Maðurinn hljóðaði sáran um leið og hann féll, en þegar hann var fallinn, breyttust hljóðin í þunga stunu. Þetta gerðist allt mjög skjót- lega. Bifreið, sem kom eftir göt- unni var stöðvuð og flutti hún manninn í sjúkrahús.” Þá hefir maður sá, sem var í fylgd með Ásmundi Elíassyni gefið skýrslu. Voru þeir, hann og Ásmundur samhliða og gekk Ásmundur nær gangstéttinni. Allt í einu heyrði maðurinn snöggan þyt og um leið gaus upp reykur allmikill, svo að hann sá ekki Ásmund í svip. fylgdi reyknum hark allmikið og ólykt. Þegar reykurinn mink- aði sá hann að Ásmundur var fallinn og að hann gerði ekki tilraun til að standa upp. Virtist hann vera mikið særður . Var hann síðan fluttur í Landa- kotsspítala. Það skal tekið fram að þetta sprengjuhylki braut úr gang- stéttinni í Austurstræti og gat á rúðu í næsta húsi. Sáust þessi verksummerki í gær á götunni. HernaðaryfirVöldin ' tóku sprengjuhylkið til rannsóknar. Var það 25 cm. langt og 3 tomm ur á þykt. Ásmundur Elíasson var mikið slasaður. Lést hann í sjúkra- húsinu í gærmorgun. Ásmund- 20. MAÍ 1943. rrrr. ur mun hafa verið 38 ára að aldri, kvæntur og átti 2 korn- ung börn. Hann var ættaður frá Norðfirði. Ásmundur var kynd- ari á Dettifossi, fékk hann all mikil brunasár, þegar eldurinn kom upp í skipinu í New York í vetur. Alþbl. 9. .marz. SEEDTIME' cvncí HARVEST* Bw Dr. K. W. Neatby Dinclor, AfricMlturai Dcpmriwnnl híorth-Wfwt Lin« EI«vtton AancUUo* Farmers Will Profil. Local committees oí farmers have been set up nearly all over the prairie provinces to work out ways and means of more efficient farm production with less labour and equipment. They are asked to produce less wheat and more of nearly every- things' else. We hope these com- mittees will be permanent and not just for “the duration”. Mixed farming requires special knowledge, skill and experience. The committees can serve as very useful links between agricultural scientists and other farmers and, also, encourage the exchange of good ideas between farmers. This need not mean less wheat; but will enable us to produce as much on fewer acres. In a recent issue of an Australian farm journal (x) the following editorial comment is made: “The war is doing disturbing things to farming Many, of course, are temporary expedi- ents, not to be tolerated any longer than is necessary; others, it must be admitted, represent long overdue advances in the industry. Most notable of these is the formation of district agricultural committees, in which must be recognized not merely a contriv- ance to tide farming through a crisís, but mechinery ideally suited to its needs in time of peace.” These views apply with equal force to Western Canada. Our own committees, with the assistance of professional agri- culturists, should, we think. play a major role in: 1. Zoning agricultural produc- tion in relation to soil, climate and probable markets. 2. Long-term soil conservation measures. (x) Agric. Gazette N.S.W., Feb. 1943. Kirkjuþing Hið fimtugasta og níunda ársþing Hins evangeliska lúterska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi, verður haldið í kirkju Víkursafnaðar að Mountain í Norður Dakota frá 18.—21. júní 1943. Þingsetningarguðáþjón- usta með altarisgöngu hefst kl. 8,30 að kvöldi föstu- daginn 18. júní. Þingsetningarathöfnin fer fram að lok- inni guðsþjónustu. Samkvæmt ráðstöfun framkvæmda- nefndar og í samráði við söfnuhina í prestakalli séra Haraldar Sigmar, er bjóða þinginu til sín, er ákveðið að þingi verði lokið um hádegi mánudaginn 21. júní. Allir söfnuðir kirkjufélagsins eru beðnir að senda erindreka á þingið eftir því sem lög heimila og ástæð- ur leyfa. Fyrir hvert hundrað fermdra meðlima eða brot af hundraði hefir hver söfnuður leyfi aö senda einn erindreka á þing, þó þannig að enginn söfnuður eigi tilkall til fleiri en fjögurra fulltrúa. Bandalag lúterskra kvenna og ungmennafélögin eiga einnig rétt á fulltrúum. Allir prestar á skrá kirkjuféíagsins eiga þingsæti. Allar skýrslur embættismanna og milliþingfunda ber að leggja fram á fyrsta þingdegi. K. K. Ólafson. forseti kirkjufélagsins. Dagsett í Chicago, Illinois, S. mai, 1943. og hann vissi það. Eitt kvöldið var hann viðkvæmnari en venju lega. “Þú ert mjög rík”, byrjaði hann. “Já”, svaraði hún fljótt, “eg er verð einnar miljónar tvö- hundruð og fimtíu þúsund doll- ara”. x “Og eg er fátækur”. “Já”. “Viltu giftast mér”. “Nei”. “Eg vissi, að þú myndir ekki vilja það”. “Hversvegna spurðirðu mig þá að því?” “Ó, aðeins til þess að vita, hvernig manni liði, þegar mað- ur hefir mist af .einni miljón tvöhundruð og fimtíu þúsund dollurum'V # * * Þú skált ekki elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ef þú þekkir sjálfan þig vel er það óskammfeilni, en ef ekki, er það móðgun. Bernard Shaw. * * * Faðirinn: — Hvað er hið erfið asta, sem þú hefir lært í skól- anum? Sonurinn: — Að opna bjór- flösku með krónupening. MINNIST BETEL í ERFÐASKRÁM YÐAR Erlendur sendiherra kom einu sinni að Lincoln, Bandaííkjafor- seta, þar sem hann var að bursta skóna sína. “Hvað, herra forseti, þér burstið yðar eigin skó?” “Já”, svaraði Lincoln, “hvers skó burstið þér?” / * * * Forstjórinn kom klukkutímba fyrr á skrifstofuna en venja hans var. Hann sér, að bók- haldarinn stendur í faðmlögum við skrifstofustúlkuna og kyssir hana ákaft. “Er það þetta, sem eg borga þér fyrir?” spurði hann byrstur. “Nei, þetta geri eg endur- gjaldslaust”, svaraði bókhaldar- inn. Gœtið öryggis! Komið loðkápum yðar og klæðisyfirhöfnum í kæli- vörzlu hjá Perth’s Sími 37 261 Cleaners — Launderers Dyers — Furriers Hitt og þetta Ferðalangurinn: — Á hvað ertu að glápa, sveitalubbinn þinn? — Eg veit það nú ekki, en eg ætla qð gá að því í náttúru- fræðinni minni, þegar eg kem heim, * * * . Frænka: — Ef eg má kyssa þig, þá skaltu fá 10 aura. — Tíu aura, eg fæ 25 aura fyrir að taka inn lýsi. * * * — Eg reyki altaf vindla, — það er of dýrt að reykja úr pípu. — Nei, það hlýtur að vera miklu dýrara. — Nei, manni eru oft boðnir vindlar, en aldrei pípa. * * * Læknirinn: — Þér verðið að borða meiri ávexti, en munið að borða hýðið með, því að í því er mest af bætiefnum. Hvaða ávextir þykir yður annars best- ir? — Kókoshnetur. * * * Stúlkan var afar rík, en ungi maðurinn var fátækur, en heið- arlegur. Henni geðjaðist dálítið vel að honum, en ekkert meira s il E L El C1 ED s il Ef F 0 \\ R Jl CE Sama hvað miklar kröfur eru til símanota, þeim verður ávalt fullnægt. Nú eiga sími og símaafgriðsla “í stríði” og vinna mikilvægt verk í þágú flota, landhers og flugherts, og hin miklu iðn- fyrirtæki framleiða í þágu sigurs. Borgara- legar þarfir komast ekki í hálfkvisti við stríðsþarfirnar, þó geta menn reitt sig á góða símaafgreiðslu á stríðstímunum. Verndið síma yðar. Forðist að skemma hann hið minsta — það er erfitt að end- urnýja hann. Með þessu hjálpið þér Canada til sigurs. Síminn hefir mikil- vaega þjónustu með höndum. > >-♦3

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.