Lögberg - 31.08.1944, Qupperneq 6
6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 31. ÁGÚST, 1944
|
1
Dómar mannanna
Eftir A. Sergeant
Hr. Harkort stóð upp og kvaddi, og Theresa
fékk tíma og næði til að hugsa um, hvaða
undrabreytingum að ástin getur stundum haft
á karlmennina.
Daginn eftir fór Theresa til frú Seton, sem
sagði söguna eins ljóta og hún gat sett hana
saman. Hún sagðist ekki hafa sagt jómfrú
Morrison helminginn af því, það hefði verið of
ljótt til að láta svo unga stúlku heyra.
Theresa þóttist fullviss um, eftir að hafa heyrt
sögu frú Seton, að Richard væri mesti kæru-
leysingi, hún kveið fyrir að hans vonda hegðun
og orðrómur, sem legðist á hann, mundi hafa
spillandi áhrif á Doru, og ef hann léti svo ekki
vita meira um sig, yrði alslags klækja sögur
settar í samband við hann, og honum eign-
aðar.
Nokkrum dögum seinna kom Dora til Theresu
vinkonu sinnar, í mikilli hugaræsingu, með
bréf í hendinni. Bréfið hljóðaði á þessa leið:
“Kæra Dora, eg sagði þér að eg færi í burt
um tíma, og þú yrðir að vera róleg þó þú sæir
mig ekki oft. Eg endurtek þetta, bæði mín og
þín vegna. Það er best fyrir okkur bæði, að við
förum hvort sína leið. Spurðu ekki um mig
hjá frú Seton. Eg hef ekki skilið eftir utaná-
skrift mína hjá henni, því hún er viðbjóðs-
leg manneskja, sem eg vil engin skifti eiga við.
Undir eins og mér verður mögulegt, kem eg til
þín, en til að taka á móti þér til mín, hefi eg
ekki nægileg húsakynni. Mér líður vel, eg hefi
mikið að gera, en eg hygg, að vegir okkar séu
skyldir fyrir langa tíð. Eg vona að þú verðir
hamin^jusöm, því eg veit að þú átt vini sem
er ant um þig. Þinn elskandi bróðir Richard”.
“Hann kemur ekki aftur,” sagði Dora, og
brast í grát. “Eg veit hvað hann meinar með
þessu. Hann ætlar að leita gæfunnar í fram-
andi landi, og eg er honum þar ekki til hindr-
unar. Hann meinar áreiðanlega það besta, en
mér finst það svo kalt og kærulaust.”
“Það er þér kannske fyrir bestu,” sagði Ther-
esa, “má eg sýna Hr. Harkort bréfið?”
“Já, ef þú vilt. Hr. Harkort er svo góður
maður, að eg vil ekki leyna hann neinu.”
Theresa veitti því sem Dora sagði nákvæma
eftirtekt, til þess að geta sagt Hr. Harkort það
þegar hann heimsækti þær næst. Hann brosti
þegar hann heyrði það, og las bréfið.
“Hann er nógu skynsamur til að veikja ekki
traust Doru á sér,” segði hann þegar hann lagði
bréfið frá sér. “Mér Jaykir slæmt að það hryggir
Doru, en svo þykir vér vænt um að hann segist
ekki skifta sér af hvað hún geri. Það er þá
ekkert framar sem stendur í veginum.”
“Þú meinar að hann komi aldrei aftur?”
“Að minsta kosti ekki fyr en eftir mörg ár,
og þá vona eg að eg geti vísað honum á dyr,
ef hann getur ekki sannað mér, að hann hafi
lifað heiðarlegu og lastvöru lífi.”
“Dora slítur aldrei trygð við hann.”
“Það held eg þó, undir eins og hún sér og
sannfærist um hverslags maður hann er.” Hann
leit aftur á bréfið og hleypti brúnum, eins og
eitthvað nýtt kæmi í huga hans.
“Hvað er það?” spurði Theresa.
“Og, ekki svo sem neitt. Eg var að horfa á
rithöndina, sem mynnir mig á rithönd ungs
manns, sem eg þekki, Hr. Sittards. Hann er
sonur mannsins sem steypti svo mörgum í vol-
æði, og sem, ef til vill, hefur eyðilagt framtíð
hans, að miklu leyti. Hann var lengi í skrif-
stofunni minni, eins og þú hlýtur að muna.
Það er hugsanlegt að hann, og bróðir Doru,
hafi gengið í sama skóla. Það er svo vanalegt
að lærisveinar frá sama skóla, skrifa nærri því
eins.”
“Eg er alveg hissa að þú skulir enn muna svo
vel, hvernig hann skrifaði.”
“Það er mjög óalgeng skrift,” sagði hann
og rétti henni bréfið.
“Það er óvanalegt að slíkur maður sem hann,
skrifi svo aðdáanlega hönd,” sagði hann, svo
fékkst hann ekki meira um það mál.
15. KAFLI.
Það var nú engin ástæða framar fyrir Hr.
Harkort, að fresta bónorði sínu við Doru, því
það var varla hugsanlegt, þar sem hún lét í
ljósi svo mikið traust og þakklæti fyrir hlut-
tekningu hans, að hún mundi neita honum.
Theresa aftur á móti hélt að vinur sinn væri
alt of viss í sinni sök, og mynti hann á með
tilliti til sjálfrar sín, að ungar stúlkur eru ekki
ætíð svo auðvelt unnar, eins og menn halda.
Horst hafði myndað sér alveg ákveðnar skoð-
anir um lyndislag Doru, því þar sem hún var
í allri framkomu sinni, algjör mótsetning við
Thesesu, hélt hann, að þó Theresa elskaði hann
ekki, að þá mundi Dora gera það. Hún var svo
blíð og barnslega saklaus, að honum fanst hún
ekki geta sagt nei, þegar hann héldi í hendi
hennar.
Theresa hristi höfuðið.
“Þú ert of vongóður,” sagði hún rólega, en
hún yðraðist brátt þess er hún sagði, þegar
hún sá vonbrigðin, sem þau orsökuðu á and-
liti Horst.
“Þú heldur þá-að eg sé eitthvert hrokafullt
flón?”
“Nei, langt frá því,” svaraði hún hlæjandi.
“En þú gleymir því, að Dora er bara ungling-
ur ennþá.”
“Nei, þvert á móti, eg tek tillit til þess. Henn-
ar eðlilega framkoma og hispursleysi, ásamt
góðleik og mildi, og umfram allt að hjarta
hennar er ósnortið af ást til nokkurs manns,
mælir allt með áformi mínu.”
“Það getur vel verið — eg veit það ekki.
Margra orsaka vegna óska eg þér góðs árang-
urs, og þrátt fyrir það — eg veit ekki hvað það
er,” sagði Theresa, hálf kjökrandi og hálf bros-
andi, og sneri sér frá honum. “Eg held eg sé
kaldlynd og tortryggin.”
“Þú getur þó ekki verið tortryggin gagnvart
Doru?” sagði hann með óþolinmæði og ergelsi
í málrómnum.
“Ekki gagnvart henni, en gegn ættingjum
hennar og uppeldi.”
“Eg skil þig ekki.”
“Eg gæti mint þig á allar þær athugasemdir
sem þú gerðir, þegar frú Mendal réði Doru
til sín, en nú vilt þú giftast henni, án þess að
vita nokkuð um fjölskyldu hennar né fortíð.”
Horst hleypti brúnum. Hann var ekki reiður,
en hann vildi láta Thesesu hætta þessum mót-
bárum.
• “Eg hefi hugsað nákvæmlega um það allt,”
sagði hann í alvarlegum róm.
“Eg veit að það muni vera eitthvert leyndar-
mál, kannske eitthvað þvingandi leyndarmál,
sem hvílir á henni, annars hefði hún verið búin
að segja okkur meira um það.”
“Eg hélt að þú mundir ekki hugsa til að gift-
ast henni fyr en hún væri búin að segja þér
frá þessu leyndarmáli.”
“Auðvitað vildi eg gjarnan vita um það, en
eg er reiðubúinn að giftast henni, eins þó hún
veigri sér við að segja mér frá því.”
“Það getur valdið stórri hættu.”
“Það getur verið. Eg þarf ekki að taka tillit
til neinna annara en mín. Systir mín er gift,
og eg á lítið saman við hana að sælda. Hún
lætur sig varla miklu skifta það sem eg gjöri, eg
ber ábyrgðina einsamall. Hugsaðu bara sem
snöggvast um Doru. Hugsaðu um, hvað hún er
barnslega saklaus, hrein og elskuleg. Þú getur
verið alveg fullviss um, að það er enginn blett-
ur né skuggi á hennar karakter. Geturðu efast
um það, þegar þú horfir í andlit hennar?”
“Eg elska Doru”, svaraði Theresa dræmt,
“og efast ekki um hennar persónulega hrein-
leika. Eg er bara hræddur um að það hvíli
einhver stór skuggi á familíu hennar, eða ætt-
ingjum —”
“Jafnvel þó svo væri, væri það þá svo hræði-
legt? Eg trúi ekki svo' mjög á karaktérslegar
erfðir. Erfða tilhneyingar vorar, eru með upp-
eldinu og umgengninni leiddar inn á aðrar braut
ir —”
“Já, en það hefur engin sagt okkur ennþá,
hvernig uppeldi að Dora hefur fengið.”
“Enginn sem sér hana og talar við hana getur
efast um, að uppeldi hennar hefur verið hið
besta, og henni samboðið,” svaraði Horst ró-
lega. Það var auðheyrt að traust hans á Doru
var óhagganlegt.
“Svo þér væri þá sama um, þó það kvisaðist,
að foreldrar hennar hefðu haft slæmt orð á sér,
kannske verið tugthúslimir?” spurði Theresa.
Hún áleit það sem skyldu sína að setja honum
fyrir sjónir þá hættu sem gæti legið í .þessu
vali hans.
“Nei, það væri mér ekki sama um, það mundi
valda mér djúprar hrygðar. En eg mundi aldrei
láta Doru gjalda þess, sem hún væri saklaus
af.”
“En eg hún skyldi nú sjálf hafa lent í eitt-
hvert------”
“Við skulum ekki vera að brjóta heilann um
slíkar ímyndanir, Theresa.”
Þessi orð æstu dálítið tilfinningar hennar,
svo hún sagði:
“Þú ’ert mjög góður og nærgætinn maður,
Horst, en það er mögulegt, að nærgætni og
góðvild geti leitt menn út í gönur. Það er
skylda þín að láta Doru gera þér fulla grein
um foreldra sína og ættingja, áður en þú fram-
réttir henni hendi þína; annars er eins líklegt,
að þú kunnir einhverntíma að iðrast þess sár-
lega.”
“Eg yrði að hafa mjög lítið traust á Doru,
ef eg færi að neyða hana, á móti vilja sínum
til að segja mér nokkuð sem hún vildi ekki,”
sagði Horst með þótta.
“Eg er alveg viss um að hún, af frjálsum
vilja, segir mér allt sem eg þarf að vita um
hana.”
Út af þessum meiningarmun, var dálítil fæð
í nokkra daga, milli þessara gömlu vina; en
það varaði ekki lengi, því Horst vissi að Theresa
hafði talað af einlægni og umsorgun fyrir ham-
ingju sinni.
Meðan þessu fór fram var Dora ósnortin af
þeim forlögum, sem biðu hennar. Hún var
stundum dálítið óróleg er hún hugsaði til
Richards, sem hafði skilið hana svo einmana
eftir í heiminum. . -
Þegar hún hugsaði um hve einmana að hún
var, greip hana sársaukakend vantrausts til-
finning. Hún heyrði ekkert frá föður sínum, og
óskaði ekki framar að heyra neitt frá honum,
en hún þráði að vita hvað orðið hafði af
Richard.
Hr. Horst Harkort mætti henni einn dag á
götu, er hún var í órólegu hugarástandi, hann
sá strax að hún v^r á leið heim til frú Sandon,
og vildi fylgja henni heim.
“Veðrið er svo indælt í dag, að við ættum
helst að ganga okkur til skemtunar í gegnum
Kensington lystigarðinn, hvernig líst þér á það,”
spurði hann.
“Það væri indælt, en eg er hrædd um að
það taki of langan tíma,” svaraði Dora.
“Eg skal afsaka þig ef þú kemur of seint
heim, og ef þér líkar það betur, þá getur þú
fengið leiguvagn, eins og seinast.”
Dora roðnaði ofurlítið, og hló, eins og hún
æfinlega gerði, þegar hann myntist á töpuðu
peningana, en hún samþykkti boð hans þegjandi,
og gekk með honum niður að hinum skreytta
skemtigöngu vegi. Veðrið var unaðslegt og glaða
sólskin, og í skuggum hinna stóru trjáa var
svo svalt og hressandi, að Dora næstum óaf-
vitandi svalg loftið með gleði og ánægju.
“Ó, hvað hér er fallegt og indælt. Þegar eg
mætti þér var eg svo þreytt, að eg gat varla
gengið; það var svo heitt á strætunum,” sagði
hún.
“Eg hélt líka að þú værir þreytt, þú lítur svo
sorgmædd og þreytulega út.
Dora þagði, svo sagði hún hikandi:
“Já, eg er líka sorgmædd.”
“Þú mátt ekki vera sorgmædd, vegna bróðir
þíns,” sagði Harkort. Eg er alveg viss um að
hann bjargar sér vel áfram.”
Dora klökknaði við.
“Veslings Richard,” hvíslaði hún blítt.
“Mig langar til að berja þennan veslings
Richard,” hugsaði hann, en sagði það ekki.
“Eigum við að fá okkur sæti hér undir trján-
um?” spurði hann. “Það er þægilegur bekkur
fi) að sitja á rétt hérna, ef þú getur hvílt þig í
fáeinar mínútur.”
Dora samþykkti það. Þegar þau sátu þar í
kælandi forsælunni, og sólskinið markaði stór-
ar gullnar myndir á rykuga brautina, sagði
Dora allt í einu.
Hr. Harkort, heldurðu að það sé mögulegt að
finna Richard aftur?”
“Ekki ómögulegt — en ekki auðvelt, úr því
að hann vill ekki láta vita um sig.”
“Ef eg gæti talað við hann, gæti eg kannske
fengið hann til að breyta skoðun sinni á því,
að það sé okkur báðum fyrir bestu að vera
aðskilin.”
“Hann hlýtur að hafa sínar, sérstöku ástæð-
ur til þess,” sagði Harkort, og hugsaði til
Rósu.
“En það er svo undarlegt, eins o£ honum þykir
vænt um mig.”
“Honum þykir sjálfsagt vænt um þig, en
þeim mun meiri ástæðu hlýtur hann að hafa
til þess að halda sig í fjarlægð frá þér ”
“Dóra leit á hann og sagði:
“Veistu hvaða ástæða það er? Þú talar eins
og þér sé kunnug hver ástæðan er —”
“Eg veit ekki annað en það sem húsmóðir
hans sagði, og það sem eg dreg út úr síðasta
bréfinu, sem hann skrifaði þér,” sagði Horst,
með varfærni; “en bróðir sem þykir vænt um
systur sína, skilur ekki við hana að ástæðu-
lausu.”
“Mér getur alls ekki komið til hugar hvaða
ástæðu að hann getur hafa haft.”
“Væri ekki hugsanlegt, að hann væri að
hugsa um að fara að gifta sig?”
“Hann — að gifta sig! Richard? Nei, Hr.
Harkort.”
“Nú”, sagði Harkort brosandi, “það kemur
þó fyrir, af og til, að ungum mönnum dettur
í hug að gifta sig, — og jafnvel eldri mönnum
kemur það til hugar líka.”
Dora veitti þessum síðustu orðum hans enga
athygli, en sagði:
“Richard er bara unglingur, hvernig ætti
honum að koma til hugar að fara að gifta sig.
Og ef það væri, því ætti hann þá endilega að
vilja skilja við mig?”
“Það er kannske ekki aðalástæðan. Það getur
skeð að hann haldi, að þér mundi ekki líka,
eða geðjast að kærustunni sinni.”
“Það nær engri átt. Þú þekkir ekki Richard,
Hr. Harkort, að minsta kosti —”
Dora lauk ekki við það sem hún ætlaði að
segja, en leit óttaslegin til hans. Henni datt
í hug að Hr. Harkort mundi þekkja Richard —
en undir öðru nafni. Hann gat ekki gert sér
neina eðlilega grein fyrir þessari skjótu breyt-
ingu sem hún tók, og hélt, að minningin um
bróðir hennar hefði valdið því.
“Eg er viss um að þú mundir ekki elska
bróðir þinn svo innilega ef hann væri ekki
elsku þinnar maklegur,” sagði hann vingjarn-
lega.
“Eg vildi óska að hann hefði gefið mér tæki-
færi að kynnast sér, og héldi sig ekki svona
duldum fyrir okkur. Það er líklega tilfellið að
hann hefur farið til útlanda, og þá kemur hann
ekki svo fljótt aftur hingað.”
“Það er það sem eg er svo hrædd um,” sagði
Dora, hrygg í huga.
' Að því er eg veit, ert þú þá ein þíns liðs i
heiminum?”
Hann lagði sérstaka áherslu í spurninguna.
“Já alveg einsömul,” svaraði Dora lágt
“Fyrirgefðu, kæra jómfrú, þó eg spyrji þig
fáeinna spurninga — áttu enga ættingja, nema
bróðir þinn? Engan föður eða móðurbróðir, eða
föður eða móðursystir, enga. ættingja?”
“Nei,” svaraði Dora, snöggt, eg hefi aldrei
átt ættingja, föður né móðurbróðir, né föður
eða móðursystir, eg á engin skyldmenni á Eng-
landi nema Richard, og hann er, eins og þú
heldur farinn utanlands.”
#‘Það er undarlega einmanalegt líf fyrir þig>
sagði Harkort hugsandi. Svo hélt hann áfram,
og sagði:
“Hefur þú nokkurn tíma hugsað um, hvað
þú mundir gera ef þú — ef frú Mendal þyrfti
ekki framar á lagskonu að halda.”
“Eg mundi reyna að fá mér aðra stöðu.”
“Og ef það yrði svo ekki sem auðveldast?
eins og Jdú mættir búast við, heimilislaus, ein-
stæðingur án vina, ellegar nokkrar manneskju,
sem vildi rétta þér hjálparhendi? Hefur það
aldrei flogið í huga þinn, að slíkt gæti komið
fyrir?”
Svipbrigðin á andliti hennar var honum
nægilegt svar. Hún fölnaði í andliti og hin
blíðu og barnshýru augu hennar fylltust tár-
um.
“Eg spyr þig ekki þessara spurninga af for-
vitni, eða til að hryggja þig,” sagði Horst alvar-
lega.
“Eg vildi bara minna þig á, að hugsa fyrir þér,
um framtíð þína, svo þú yrðir betur undir það
búin að íhuga þá uppástungu sem eg ætia að
bera fram.”
“Dora leit órólega á hann, henni fanst hann
tala svo alvarlega.
“Uppástunga?” endurtók hún, vitandi varla
hvað hún sagði.
“Já, — eg meina, — það er ekki rétta orðið.
Það er erfitt að finna rétta orðið fyrir það
sem eg ætla að segja.”
Svo þagði hann um stund, svo Dora gerði til-
raun til að hjálpa honum út úr vandræðunum.
“Kannske að þú hafir heyrt um einhverja
aðra stöðu, hentugri fyrir mig, Hr. Harkort.”
“Já, það er einmitt það,” sagði hann og hló
uppgerðarhlátur.
“Varanlega stöðu, eg veit ekki hvernig eg á
að koma orðum að því — en það sem eg vildi
segja er — Dora, vilt þú verða konan mín?”
“H.r Harkort!”
Henni brá háskalega við, rétt eins og hún
yrði hrædd, og færði sig fjær honum.
■“Fyrirgefðu — eg held eg hafi ekki skilið
hvað þú sagðir,” sagði hún, eins og hálf rugl-
uð.
“Ó-jú, þú skildir mig, Dora. Með því að
samþykkja að verða konan mín, gerðir þú mig
hamingjusaman. Finst þér það svo hræðilegt?”
“Ó, Hr. Harkort, það get eg ekki — það er
mér ómögulegt.”
“Geturðu það ekki, Dora? Þú veist ekki hve
innilega eg elska þig.”
“Hvað þú elskar mig,” endurtók Dora. Hún
horfði á Horst, sínum sakleysislegu augum. eins
og hún væri að virða hann fyrir sér í fyrsta
sinn.
“Lít eg ekki þannig út, eins og eg gæti elskað
þig?” spurði hann, með dálitlum sársauka í
rómnum.
“Nei,. nei, eg meina það ekki,” sagði hún
og roðnaði. Hún leit niður fyrir sig, og sneri
sér frá honum.
“Hvað meinar þú þá?” spurði hann og tók
hendi hennar, sem hún lét hann halda í hendi
sér, mótstöðulaust. “Vissirðu ekki að eg elskaði
þig?”
“Jú, eg vissi — eg held að minsta kosti —
að þér kanske litist á mig, en það er allt annað.”
“Já, eg veit það er — allt annað! En viltu
þá ekki leyfa mér að elska þig? Þykir þér það
miður?”
“Nei”, svaraði Dora, undirleit, í veikum róm,
“ekki miður en —”
“Hvað þá?” >
“Eg hélt að þú elskaðir Theresu,” sagði hún
í barnslegri einlægni. Þegar hún léit á hann,
iðraðist hún þess sem hún sagði, hún sá þján-
ingarsvip á andliti hans.
“Mér þykir svo mikið fyrir því, að eg hef
sært þig — eg meinti það ekki á þann veg,”
sagði hún.
“En Theresa er svo miklu fullkomnari og
fríðari en eg — hún samsvarar þér að öllu
leyti betur en eg —”
“En eg elska þig Dora.”