Lögberg - 26.10.1944, Side 1
PHONES 88 311
Seven Lines
LÍOt^
ZZ
I^U11,V a.t'A
rtO>Vt *
Cot-
Service
and
Satisfaction
57. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. OKTÓBER, 1944
NÚMERi
Verum einhuga um Sjöunda Sigurlánið, sem nú er í uppsiglingu
Frá skrifstofu ræðismanns Islands í Winnipeg
Ritstjóri Lögbergs, Winnipeg.
24. okt. 1944.
Ræðismannsskrifstofunni hefir í dag borist eftirfarandi sím-
skeyti frá sendiráði íslands í Washington, D. C.
“Góðfúslega tilkynnið íslenzku vikublöðunum eftirfarandi
íregn frá utanríkisráðuneytinu, Rieykjavík. Ný ríkisstjórn var
mynduð síðastliðinn laugardag. Ólafur Thors er forsætis- og utan-
ríkisráðherra, Pétur Magnússon er fjármála- og viðskiptamálaráð-
herra, Brynjólfur Bjarnason kennslumála- og menntamálaráðherra,
Áki Jakobsson sjávarútvegs-, síldarmála- og flugmálaráðherra,
Emil Jónsson er kirkjumála-, iðnaðarmála- og samgöngumálaráð-
herra, Finnur Jónsson dómsmála-, heilbrigðismála- og félagsmála-
ráðherra. Þetta er ríkisstjórn þriggja flokka, Ólafur Thors og Pétur
Magnússon eru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Brynjólfur Bjarna-
son og Áki Jakobsson eru fulltrúar Sósíalistaflokksins. Emil Jóns-
son og Finnar Jónsson eru fulltrúar Alþýðuflokksins. Þessir þrír
flokkar hafa samtals 37 þingsæti af 52. Allir ráðherrarnir eru
alþingismenn.
Thor Thors, sendiherra.”
Virðingarfyllst,
Grettir L. Jóhannsson, ræðismaður.
Tímabær
frœðslustafsemi
Þeir, sem láta sér annt um
varðveizlu íslenzks máls og menn
ingarerfða vorra í landi hér, hafa
áreiðanlega lesið með ánægju
fréttina um það í vikublöðum
vorum, að félagsskapurinn Ice-
landic Canadian Club hafi í sam-
vinnu við Þjóðræknisfélagið, efnt
til kennslu í íslenzkri tungu,
sögu og bókmenntum.
Er þar um eftirtektarverða og
sérstaklega tímabæra fræðslu-
starfsemi að ræða, og fer ágæt-
lega á því, að félög yngri og
eldri íslendinga hafa hér tekið
höndum saman um mikilvægt
þjóðræknismál; er þess og fylli-
lega að vænta, að sú samvinna
beri tilætlaðan árangur. En því
marki verður aðeins náð með
þeim hætti, að sem allra flestir
færi sér í nyt fræðslu þá, sem
hér stendur áil boða, eigi aðeins
í fornfrægri feðratungu vorri,
heldur einnig í sögu þjóðar
vorrar og bókmenntum, en þær
eru um allt hinar merkilegustu,
svo sem löngu er viðurkennt af
fræðimönnum víða um lönd.
Vafalaust er það viturlega ráð-
ið, að samfara sjálfri íslenzku-
kennslunni eru haldnir fyrirlestr
ar á ensku um land vort, sögu
þess og bókmenntir, því að
bæði er slík fræðsla nauðsynleg
yngri kynslóð vorri og jafnframt
líkleg til að glæða hjá náms-
fólkinu áhugann fyrir íslenzku-
náminu.
Nefnd þeirri, sem stendur að
þessari fræðslustarfsemi af
hálfu félaga sinna, hefir emnig
tekist að ráðstafa fyrirlestrun-
um þannig, að þeir eru bæði
fjölbreyttnir að efni og veita um
leið samfelda yfirsýn yfir sögu
þjóðar vorrar og menningu henn
ar, sem speglast í mörgum mynd-
um í bókmenntum hennar að
fornu og nýju.
Með fræðslustarfsemi þessari
er því nýtt og þarft spor stigið
í þjóðræknisstarfi voru, og verð-
skuldar sú viðleitni sem víðtæk-
asta þátttöku af hálfu yngri kyn
slóðar vorrar og heilhuga stuðn-
ing allra þeirra, sem unna varð-
veizlu og ávöxtun menningar-
verðmæta vorra hér á vestur
vegum.
Richard Beck.
VERKAMANN ASAMTÖKIN
CANADISKU
1 vikunni, sem leið, héldu verka
manna samtökin canadisku, sem
ganga undir nafninu Canadian
Congress of Labor, ársþing sitt
í borginni Quebec, og voru megin
tjllögur þingsins á þessa leið:
1. Að samningsréttur verka-
manna við atvinnuveitendur,
verði í eitt skipti fyrir öll, við-
urkenndur með lögum.
2. Að canadisk stjórnarvöld
hlutist til um að hverjum ein-
asta og einum þjóðfélagsþegn, sé
greidd lífvænleg laun fyrir vinnu
sína.
3. Að þannig verði um hnúta
búið, að fulltrúar verkamanna
eigi sæti í öllum þeim nefndum,
er sambandsstjórn skipi með hlið
sjón af viðreisnarstarfsemi að
loknu stríði.
4. Að með tilliti til utanríkis-
málanna, verði eins og sakir
standa, aðaláherzla á það lögð, að
vinna stríðið.
5. Að sambandsstjórn beiti sér
fyrir náinni samvinnu meðal
allra friðelskandi þjóða.
6. Að hömlur á gagnkvæmum
viðskiptum þjóða á milli, verði
sem skjótast numdar úr gildi.
7. Að Canada gerist meðlimur
í ameríska , þjóðasambandinu.
8. Að stofnað verði til náinn-
ar samvinnu milli Canada og
Rússlands á iíkum grundvelli og
samvinnu milli Breta og Rússa
nú er háttað.
9. Að þingið sé einróma sam-
þykt kröfu kennarasambandsins
canadiska í þá átt, að lágmarks-
laun kennara verði bundin við
$1,200 um árið.
Verkamannaþing þetta tjáðí
sig mótfallið skipun Howe’s
birgða- og hergagnaráðherra í
viðreisnarnefnd sambandsstjórn-
ar að loknu stríði, því hann hefði
ekki að jafnaði látið sér sérlega
annt um hag hinna vinnandi
stétta.
•
TVEIR ÍSLENZKIR FRUM-
HERJAR FALLNIR 1 VAL
Þær fréttir bárust Lögbergi á
mánudaginn, að tveir íslenzkir
frumherjar, hnignir mjög .'3
aldri, væri þá nýverið fallnir í
val; öldungar þessir voru þeir
Bjami Jones í Minneota, Minn.,
og Magnús Snowfield í Seattle;
voru þeir báðir hinir mætustu
menn, vinmargir og höfðinglynd-
ir. Vonandi verður þessara merku
frumherja ítarlega minst á næst-
unni.
FLYTUR RÆÐUR
UM ÍSLAND
Dr. Richard Beck forseti Þjóð-
ræknisfélagsins og vararæðis-
maður Islands í Norður Dakota,
hefir þegar flutt á ensku all-
margar ræður um Islandsferð
sína.
í september flutti hann erindi
um ferðina og lýðveldisstofnun-
ina á fundi Kiwanis-klúbbsins og
Rotary-klúbbsins í Grand Forks.
I sama mánuði útvarpaði stöðin
í Fargo, N.-Dak., sem er stærsta
útvarpsstöðin í ríkinu, ítarlegu
viðtali við hann um ferðalagið
og hátíðahöldin í tilefni af lýð-
veldisstofnuninni. Þann 11. okt.
flutti hann ræðu um ferð sína á
fjölmennri samkomu norskra
þjóðræknisfélaga í Grand Forks.
Ýms víðlesin blöð hafa einnig
flutt löng viðtöl við Dr. Beck
um Islandsferðina, svo sem
“Nordisk Tidende” í Brooklyn,
New York, annað helsta blað
Norðmanna í Bandaríkjunum.
NÁMSSKEIÐIÐ HEFST
Námskeið það í íslenzkum
fræðum, sem auglýst hefir verið
í blöðunum undanfarið, og Ice-
landic Canadian Club og Þjóð-
ræknisfélagið standa fyrir, hófst
í Fyrstu lútersku kirkju á mánu-
dagskvöldið, 23. okt. kl. 8.15.
Yfir hundrað manns munu hafa
verið viðstaddir. Forstöðukona
námsskeiðsins, Mrs. Hólmfríður
Danielson setti mótið með nokkr’
um inngangsorðum þar sem hún
skýrði tilgang þessarar viðleitni.
Því næst flutti Mrs. Ingibjörg
Jónsson einkar vandað og fróð-
legt erindi um Island, legu þess,
lögun og eðli. Sýndi hún einnig
fjölda fagurra mynda af landinu,
og skýrði þær, en Arinbjörn S.
Bardal lagði til vélina og önnur
áhöld og aðstoðaði við sýning-
una. Að loknum fyrirlestri frú-
arinnar skráði fjöldi fólks á
ýmsum aldri, og af mismunandi
þjóðflokkum sig til íslenzkunáms,
sem gert er ráð fyrir að fari fram
á eftir hverju erindi sem flutt
er á meðan á námsskeiðinu stend
ur.
Var yfirleitt gerður ágætur
ágætur rómur að þessu fyrsta
kvöldi námsskeiðsins; og virðist
margt benda til þess að þetta
fyrirtæki ætli að heppnast prýði-
lega. Næsti fyrirlestur og kenslu
stund fara fram á sama stað, 13.
nóvember. Þá flytur séra V. J.
Eylands fyrirlestur um sögu Is-
lands á tímabilinu frá 871 til
930.
MERKILEG
ÞJÓÐRÆKNISSAMKOMA
Síðastliðið laugardagskvöld
efndi íslenzkuskólinn á Gimli til
merkilegrar samkomu fyrir at-
beina Þjóðræknisdeildarinnar
þar í bænum; samkoman var
haldin í hinu rúmgóða samkomu-
húsi Gimlibæjar, og var hún
eins vel sótt og bezt varð ákosið.
Forseti Þjóðræknisdeildarinn-
ar, Dr. Kjartan Johnson, hafði
samkomustjórn með höndum, og
tókst hið bezta til.
Þetta var samkoma íslenzku-
skólans, og voru það nemendur
hans, er í skemmtiskrá tóku þátt,
að undanskildu stuttu erindi,
sem Einar P. Jónsson flutti;
skemmtu börnin með framsögn,
sjónleik og margháttuðum söng;
var það veruleg unun að horfa
á hinn glæsilega barnahóp, og
veita því athygli, hve aðdáanlega
börnin gerðu hlutverkum sínum
skil; kom það hvarvetna í ljós,
hve frábærlega góðrar tilsagnar
börnin höfðu notið; framburður
íslenzkunnar var skýr og hreim-
fagur.
Eins og nú standa sakir,
sækja íslenzkuskólann : Gimli
liðlega hundrað börn, undir um-
sjón fimm ágætra kennara. Það
hvíla engin dauðamörk yfir
þjóðræknisstarfsemi þeirra
Gimlibúa; þar eru það verkin
sem tala.
íslendingar í Winnipeg og víða
annarsstaðar, mættu vel taka sér
átök Gimlibúa viðvíkjandi ís-
lenzkukennslunni, til hollrar eft-
irbreytni.
0r borg og bygð
Síðastliðinn laugardag komu
til borgarinnar frá íslandi, Hall-
grímur læknir Björnsson og ftrú
sennilega til ársdvalar; þenna
sama dag kom einnig hingað
Kristinn Guðnason, verksmiðju-
eigandi frá Oakland, California.
1 næstu viku birtir Lögberg
myndir af þessum þremur gest-
um, og mun þá skilgreina þá
nokkru nánar.
•
Dr. P. H. T. Thorlákson fór
flugleiðis austur til Toronto og
Ottawa á miðvikudagskvöldið til
þess að sitja fund< í Canadian
Research Council; hans er von
heim á laugardaginn.
•
Minningarorðin um frú Sigríði
Thorsteinson, sem birtust í síð-
asta blaði, voru endurprentuð úr
Wynyard Advance.
•
Fimtundaginn 19. okt. voru
þau Pálína Valgerður Johnson
frá Steep Rock, Man., og Adolph
Scheské frá Grahmdale, Man.,
gefin saman í hjónaband af presti
Fyrsta lúterska safnaðar, á heim-
ili hans, 776 Victor St., í Win-
nipeg. Brúðurin er dóttir hinna
velþektu hjóna, Einars Johnson
fyrrum verzlunarmanns í Reykja
vík, sem nú eru búsett í Steep
Rock, og konu hans Solveigar
Þorsteinsdóttur, sem einnig er
ættuð úr Reykjavík. Er hún sér-
staklega myndarleg og vel gefin
stúlka. Er hún hafði lokið barna-
og miðskólanámi í heimasveit
sinni, gekk hún á verzlunarskóla
í Winnipeg, lauk þar námi og
stundaði síðan skrifstofustörf.
Jafnframt verzlunarskólanáminu
lagði hún fyrir sig hljóðfæra-
slátt undir tilsögn Snjólaugar
Sigurðsson, og söngnám hjá
Stanley Hoben. Alt nám gekk
henni vel. Snemma mun hafa
tekið að bera á hæfileikum henn-
ar á sviði söng og hljómlistar,
því 8 ára gömul var hún látin
hefja nám á þeim sviðum, og
hefir það haldist síðan. Á barns-
aldri tók hún að spila fyrir guðs-
þjónustur og sunnudagaskóla.
Brúðguminn er af þýzkum ætt-
um, af ágætu fólki kominn, og
sjálfur glæsimenni í sjón. Faðir
hans með fyrstu landnámsmönn-
um í Grahamdale, og kom þang-
að með tvær hendur tómar.
Hefir honum farnast búskapur-
inn svo sem bezt lætur; rekur
nú einnig umfangsmikla verzl-
un í bænum, og hefir á sér al-
menningsorð fyrir drengskap og
dugnað. Heiipili ungu hjónanna
verður á föðurleyfð hans í
Grahamdale. Hugheilar blessun-
aróðkir vina og vandamanna
fylgja þeim þangað.
•
Það var hátíðleg athöfn í
Baldur kirkju þann 28. júlí s. 1.
þegar elsta dóttir Kára S. John-
sonar og konu hans Önnu (Dal-
mann) , gekk að eiga liðsforingja
úr flughernum, ungan mann að
nafr.i George Drummond aí
skoskum ættum, austan frá
Toronto, Ont., en nú sem stend-
ur starfi bundin við flugskólann
A. Anderson vinur fjölskyld-
unnar söng bundust hin glæsi-
legu ungmenni heitum og stýrði
séra E. H. Fáfnis athöfninni.
Kirkjan var alskreytt fegurstu
blómum og grænum vöndum
sem juku á fegurð athafnarinn-
ar. Að giftingunni afstaðinni var
setin veizla á heimili Mr. O. A.
Andersonar. Þar hafði brúðurin
verið skírð í bernsku sinni og
fór vel á að hér einnig yrði hin
í Souris, Manitoba. Foreldrar ; önnur mikla veizla í lífi ung-
brúðgumans George Drummond
og Hannah Foster eiga heima í
Toronto, þar sem faðir hans er
skrifstofustjóri við stóra hús-
gagnaverzlun. Kom faðir hans
vestur til giftingarinnar einn af
skyldfólki brúðgumans. Brúður-
in, Jennie Violet, hefur altaf
átt heima í Baldur, þar sem hún
er fædd og uppalin, en hefir þó
nú síðast unnið hjá Royal bank-
anum við skrifstofustörf, og er
mikilsvirt í starfi. Við sálma-
söng og einsöngva sem Hr. Ó.
meyjarinnar. Fjöldi manna O'g
kvenna sátu veizlu þessa, ætt-
ingjar vinir og nágrannar, því
fjölmargir eru vinir foreldra
brúðarinnar og hennar sjálfrar.
En svo margir sem komu þarna
að garði, veittu þau Johnsons
hjónin öllum með stakri höfðings
lund og hógværri vintryggð. Hin
ungu hjón fóru brúðkaupsferð
sína um Austur-Canada, en að
henni endaðri hvarf brúðgum-
inn aftur að starfi sínu í Souris
og settu þau þar heimili sitt.
TILKYNNING
frá skrifstofu íslenzka ræðismannsins
Góðfúslega tilkynnið íslenzku blöðunum eftirfarandi fregn,
frá utanríikisráðuneytinu í Reykjavík. Forsætisráðherra Ólafur
Thors, skýði stefnuskrá hinnar nýju stjórnar á laugardaginn á
Alþingi: Tvö höfuðmarkmið stjórnarinnar eru að tryggja sjálf-
stæði og öryggi Islands út á við og hefja stórvirka nýsköpun
atvinnulífsins í landinu. Fyrra markmiðinu verður reynt að ná
með alþjóðasamningum og samstarfi við United Nations, þátt-
töku friðarráðstefnu og n'ánu menningar- og félagsmálalegu
sambandi við önnur Norðurlönd. Tryggja Islandi þátttöku í
ráðstefnu um framleiðslu- og viðskipti í framtíðinni, til þess að
I fyrsta lagi: Að ná sem beztum samningum um söiu á íslenzkri
framleiðslu og hagkvæmustum innkaupum. I öðru lagi: Að fá
viðurkenndan rétt íslands til sölu á öllum útflutningsafurðum,
með tilliti til alþjóðlegrar verkaskiftingar á framleiðslusviðum.
1 þriðja lagi. Að vinna að rýmkun landhelginnar og friðun fisk-
klakstöðva, svo sem Faxaflóa.
Ríkisstjórnin skipar nefnd er áætli nauðsynleg ný atvinnu-
fyrirtæki til að forðast atvinnuleysi.
Alls þrjú hundruð miljón króna, í erlendum gjaldeyri, setjist
á sérstakan reikning til kaupa, er sundurliðast: Tvö hundruð
miljónir krónur, til kaupa á skipum, vélum, skipaefni. 50 miljónir
til kaupa á vélum og öðru til síldarverksmiðja, frystihúsa og
niðursuðuverksmiðja. 50 miljónir til áburðarverksmiðja, jarð-
yrkjuvéla og rafvirkjunarefnis. Ríkisstjórnin hlutast til að tækin
sem keypt eru erlendis eða smíðuð á Islandi seljist félögum og
einstaklingum. Nefnd verður skipuð til þessara starfa, hún hefur
sjálfstæða framkvæmd og aðstoðar þá, sem þess óska. Gjaldeyrir-
inn verður frjáls öllum til kaupa á tækjum innan nýsköpunar-
innar, er nauðsyn reynist vegna viðskiftareglna annara þjóða og
annast ríkisstjórnin sjálf alla milligöngu.Ef ríkið þarfnast fjár,
skulu lán tekin eventuelt sem skyldulán. Til athugunar er
skylduþátttaka í slíkum lánum.
Thor Thors, Icelandic Minister.
INNRÁS HAFIN
Á FILIPPSEYJAR
Þau tíðindi gerðust í lok fyrri
viku, að Bandaríkin hófu magn-
aða innrás á Filippseyjamar;
lentu fyrstu innrásarsveitirnar á
Leyteeynni, og mættu þar tiltölu-
lega veikri mótspyrnu af hálfu
Japana; nú segja síðustu fréttir,
að ameríski herinn sé kominn
yfir San Juanico sundið og hafi
þegar náð haldi á eynni Samar.
LINA HVERGI Á SÓKN
Síðustu fregnir frá rússneskum
hernaðarvöldum láta þess getið,
að rauði herinn sé kominn um
30 rnílur inn í Austur-Prússland
og hafi þar þegar á valdi sínu
eitthvað um ellefu bæi og þorp;
standa á vígstöðvum þessum nú
yfir. afar mannskæðir bardagar,
og hallar allstaðar á Þjóðverja
þar, sem til hefir spurst.
BRETAR SÆKJA FRAM
Á GRIKKLANDl
Frá London er símað á mið-
vikudagsmorguninn, að Bretar
hafi nú þegar því nær tvo þriðju
Grikklands á valdi sínu; veita
Þjóðverjar á þessum stöðvum
lítið viðnám, en láta sér auð-
sjáanlega frekar hugarhaldið um
það, að reyna að koma undan
eins miklu af het sínum og auð-
ið má verða.
•
LEITAR KOSNINGA
í NEEPAWA
Seinnipart vikunnar sem leið,
héldu Progressive-Conservativar
útnefningarþing í Neepawa, til
þess að velja sér þingmannsefni
fyrir kjördæmið við næstu sam-
bandskosningar. Eins og vitað
var, hafði Mr. Bracker. gefið
Neepawa kjördæminu hýrt auga
síðustu árin, og lauk útnefningar-
þinginu með því, að hann var í
einu hljóði útnefndur merkisberi
áminsts stjórnmálaflokks.