Lögberg - 04.01.1945, Page 8
8
Ur borg og bygð
Þakklœti.
Gefið í byggingarsjóð Banda-
lags lút. kvenna, frá Immanuel
Mission Society, Wynyard,
Sask. $10.00 í minningu um
kæra félagssystir, Mrs. Sigríði
Thorsteinson, látin 6. október.
Meðtekið með þakklæti.
H. D.
•
Jón Sigurðson félagið þakkar
fyrir þessar peningagjafir send-
ar í War Service sjóðinn: Mrs.
D. S. Curry, 724 First St., Coron-
ado, Calif., $10.00. Miss. B. Jones,
1401 Muirlands Dr., La Jolla
Calif. $22.00. ísl. kvenfél. Leslie,
Sask. $5.00.
Félagið þakkar þessum góðu
vinum gjafirnar og óskar þeim
af heilum hug gleðilegs nýs árs.
H. D.
•
Hið yngra kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaðar, heldur fund
í samkomusal kirkjunnar á
þriðjudaginn þann 9. þ. m., kl.
2. 0 e. h. k
•
Andvökur Stefáns G. Stephan-
sonar fást til kaups gegn vægu
verði nú þegar. Ritstjóri Lög-
bergs veitir upplýsingar.
•
Tryggið yður nú þegar að-
göngumiða að Rljómleikum Miss
Agnesar Sigurðson, sém haldnir
verða í Concert Hall, Winnipeg
Auditorium á miðvikudagskvöld
ið þann 10. þ. m., kl. 8. Afar
vönduð skemtiskrá. Aðgöngu-
miðar kosta 50 og 75 cents, og
fást hjá Björnson Book Store,
702 Sargent Ave., og á skrifstofu
Lögbergs, 695 Sargent.
•
Icelandic Canadian Evening
School
Aðsókn að fyrirlestrunum um
ísland hefir verið ágæt og um
60 manns eru nú innritaðir í
skólann. Síðah starfið hófst hefir
það komið í ljós að almenningur
yfirleitt, yngri sem eldri hefir
brennandi áhuga fyrir því að
fræðast um Island. Þakkarbréf
og árnaðaróskir hafa borist for-
stöðukonu skólans úr ýmsum átt
um, og einnig fyrirspurnir um
það hvort ekki verði hægt að
láta prenta erindin svo að þeir,
sem lengra eru í burtu geti haft
not af þeim. Nefndin er að at-
huga möguleikana á því að koma
þeim á prent. Það er alls ekki
ómögulegt að íslendingar í öðr-
um bygðarlögum geri samtök
með sér og setji á stofn fræðslu-
starf með svipuðu fyrirkomulagi
og Icelandic Canadian Eyening
School, og gæti það orðið þeim
mikil hjálp að nota að einhverju
leiti þessi erindi.
Þann 11. des. flutti séra H. E.
Johnson fyrirlestur, “The Ice-
landic Republic 930—1262”, —
ágætt erindi sem fjallaði allítar-
lega um lagasetningu þessa
tímabils, sem var grundvölluð á
“Réttvísi bygð á skynsemi.”
Næsta kenslustund verður
mánudagskveldið 8. jan. í Fyrstu
lút. kirkju, þá flytur séra P. M.
Pétursson erindi, “The Introd-
uction of Christianity”, sem
byrjar stundvíslega kl. 8.15. ísl.
kenslan byrjar ki. 9. Aðgangur
25c fyrir þá sem ekki eru inn-
ritaðir.
H. D.
Ársfundir hinna ýmsu félags-
heilda Selkirk safnaðar.
Ársfundur Sunnudagaskóla-
kennara, á prestshAmilinu, föstu
daginn 5. jan. kl. 8 síðd.
Ársfundur Djáknanefndar
sunnudaginn 7. jan., kl. 8.30 sd.
Ársfundur Yngra kvenfélags
(Junior Ladies Aid), mánud. 8.
jan., kl. 8 sd. á prestsheimilinu.
Ársfundur Trúboðsfélags Sel-
kirk safnaðar, þriðjud. 9. jan.,
á heimili Mrs. R. S. Benson, kl.
8 sd.
Ársfundur hins eldra kvenfél.
safnaðarins, miðvikudaginn 10.
jan., á prestsheimilinu, kl. 2,30
síðd.
Ársfundur Soldiers Welfare
Clúb, miðvikud. 10. jan. kl. 8
síðd. á heimili Mrs. Birgittu
Björnsson.
Ársfundur Selkirk safnaðar,
mánudaginn 15. jan. kl. 8 síðd.,
í samkomuhúsi safnaðarins.
Hlutaðeigandi nefndir og safn-
aðarfólk vinsamlega beðið að
bera í minni téða fundi.
•
Mánudagskvöldið 8. þ. m. efna
stúkurnar Hekla og Skuld til
afmælis samkvæmis í G. T. hús-
inu. Gott program og veitingar.
Fjölmennið.
Herra ritstjóri:
Um leið og eg sendi blaðinu
borgun, bið eg Lögberg að óska
öllum Vancouver íslendingum
gleðilegs' nýárs og þökk fyrir
gestrisnina.
Mrs. E. Hólm,
Box 66,
Árborg, Man.
•
Þeir bræður, Eggert Stefáns-
son söngvari, Guðmundur bróðir
hans, séra Valdimar J. Eylands
og Miss Snjólaug Sigurðson, fóru
norður til Gimli á þriðjudaginn,
þar sem Eggert skemti vistfólki
á Betel með söng og upplestri,
er hvorttveggja vakti mikla hrifn
ingu hjá áheyrendum. Séra Ey-
lands flutti ræðu, en séra Skúli
Sigurgeirsson þakkaði aðkomu-
fólki komuna, og nytsama og
uppbyggilega skemtun.
•
Mr. Búi Thorlacius, fyrrum
bóndi í grend við Ashern, Man.,
lézt hér í borginni síðastliðinn
laugardag eftir langvarandi van-
heilsu; krabbamein varð honum
að bana. Búi heitinn hafði fyrir
rúmu ári flutt vestur til Van-
couver ásamt fjölskyldu sinni, en
kom hingað í haust til að leita
sér lælfhinga; nú hefir hann,
þessi ágæti íslendingur og vin-
ur safnast til feðra sinna; hann
lætur eftir ekkju og einn son.
Útför Búa heitins fer fram frá
Silver Bay á föstudaginn, undir
forustu séra V. J. Eylands.
•
Þann 23. des. s. 1., voru gefin
saman í hjónaband af Canon
Calvert í St. Matthews kirkj-
unni, þau Miss Margaret Kat-
hleen Bertam og Mr. Steingrím-
úr ísfeld, R.C.A.F. Er brúðgum-
inn sonur þeirra Mr. og Mrs. H.
ísfeld, sem búsett eru að Agnes
St. hér í borginni; eftir fárra
daga dvöl hér, fór brúðguminn
vestur til Caigary.
•
Þann 18. des. s. 1., flutti Lt.
A. J. Thorsteinson, sem nú er
á Englandi, útvarpsræðu, sem
útvarpað var frá B.B.C. til Austur
Afríku; fjallaði ræðan um
canadiskan landbúnað. Móðir Lt.
Thorsteinson, Mrs. H. Thorsteins-
son, er búsett í St. Vital, en kona
hans, Mildred Anderson, á heima
í Vancouver.
Svo fáránlegt illviðri geysaði
yfir suðurhluta Ontario fylkis
milli jóla og nýárs, að umferð
um bílvegu því nær stöðvaðist
með öllu; var þetta eitt hið mesta
aftaka veður, sem sögur fara af
austur þar; lenti ferðafólk í
margháttuðum hrakningum, og
komst í mörgum tilfellum við
illan leik til byggða; sem betur
fer mun manntjón ekki hafa
orðið af völdum fárviðrisins.
•
Síðastliðinn nýársdag brann
til kaldra kola Como hótelið á
Gimli; var hótel þetta gömul og
næfurþunn timburbygging.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 4. JANÚAR, 1945
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands,
Heimili: 776 Victor St. Sími
29 017.
Guðsþjónustur á sunnudögum.
Kl. 11 f. h. á ensku.
Kl. 12.15 sunnudagaskóli.
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Söngæfingar:
Yngri söngfíökkurinn á fimtu-
dögum kl. 8.
Eldri söngflokkurinn á föstu-
dögum kl. 8.
Lúterska kirkjan í Selkirk.
Sunnudaginn, 7. janúar.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Ensk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
Lúterska kirkjan í Selkirk.
Sunnudaginn 14. janúar.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
Séra Skúli Sigurgeirson mess-
ar að Langruth, 7. þ. m., kl. 2 e.
h. Ensk guðsþjónusta, kl. 7 e. h.
sama dag.
CHURCHILL
SÝNT BANATILRÆÐI
Neðan Churchill forsætisráð-
herra dvaldi í Aþenuborg um
jólaleytið vegna grísku ágrein-
ingsmálanna, var honum sýnt
banatilræði; þetta gerðist með
þeim hætti, að rétt um þær mund
ir, sem Mr. Churchill var að fara
inn í brezku sendiherra höllina
þar í borginni, skaut að honum
úr marghleypu útsendari eða
flugumaður, sem enn hefir eigi
náðst til, en ætlað er að verið
hafi úr flokki grískra lýðveldis-
sinna; kúlurnar mistu marks.
Mr. Churchill komst með öllu
óskaddaður inn í sendiherra höll-
ina, og tók til óspiltra málanna
við störf sín eins og ekkert hefði
í skorist.
Svör við spurningum fyrir
yngstu lesendurna.
1. Grænland, Bretland, New-
foundland, ísland.
2. Um 40,000 fermílur.
J3. Nova Scotia (um 21.00 fer-
mílur).
4. Norðvestur, austur.
5. Grænland.
6. Nyrsti tangi íslands snertir
Norðurskauts bauginn.
7. Northwest Territories.
8. Hlýtt.
9. Hlýr hafstraumur, sem
heitir Golfstraumur, vermir sjó-
inn umhverfis landið.
10. Hafísár.
11. Votviðrasamt.
12. Flóki Vilgerðarson.
13. Frá Noregi.
14. Nærri ellefu aldir.
15. Hann sá fjörð, sem var full-
ur af ís.
John Keats
(Frh. af bls. 4)
leg; en sjálfur var Keats þess
vel vitandi að hún var, svo að
notuð séu hans eigin orð: “flóns-
legt tískugerpi” og honum als-
endis óverðug — og vissulega
ekki þess umkomin að kunna að
meta ritstörf hans að verðleik-
um. Ofsi hans og afbrýðissemi
varð síður en svo til að mýkja
ástarbraut hans, og bréf hans til
hennar, %em hafa verið gefin út,
lýsa vel geðbrigðum hans, frá
dýpsta harmi til óstjórnlegs
fagnaðar. Að hin brennandi ást
hans hafi haft áhrif á skáldskap
hans á síðasta og mikilsverðasta
skeiði æfi hans er óneitanlegt;
þetta var fyrsta og eina ást hans
og hún hrærði hvern streng í sál
hans.
Keats gaf út fyrsta ljóðasafn
sitt, sem hann nefndi blátt áfram
Poems, rúmlega tvítugur. Hann
hafði lagt stund á læknisfræði,
en hætti algerlega að leggja
stund á læknisstörf til þess að
gefa helgað sig allan ljóðlistinni,
þó að hann væri snauður maður.
Þegar Endymion, fyrsta langa
kvæðið hans, kom út, var það
gagnrýnt harðlega; en þó að hann
tæki sér það nærri gat það ekki
fengið hann til að hvarfla frá
þeim vegi, sem hann hafði ætlað
sér að ganga. Hann var sann-
færður um að skáldagáfan byggi
í sér. —Fullyrðing hans: “Eg
býst við að eg verði talinn með
enskum skáldum eftir að eg er
dauður”, var sannfæring hans;
og svo mikið er víst að þetta
reyndúst orð að sönnu síðar. Á
hinu örlagaríka ári, er hann varð
ástfanginn af Fanny Brawne, var
heilsa hans veil, og þó hnignaði
henni meir næsta ár, er hann
stundaði bróður sinn í löngum
veikindum, er drógu hann til
dauða. En hann hélt áfram að
skrifa af brennandi kappi, og
næsta ár, gaf hann út nýja ljóða-
bók, en í henni eru ýms af bestu
kvæðum hans. Hét hún “Óður
til grísks leirkers” og er athyglis-
verð eigi aðeins fyrir hina tæru
fegurð ljóðanna heldur fyrir hina
undursamlegu innsýn, sem höf-
undurinn hafði fengið í anda
Forn-Grikkja. Þó Keats kynni
ekkert í grísku hafa sumir hinir
ágætustu menntamenn lýst þeim
ljóðum sem “líklega því grískasta
sem til er í enskum bókmennt-
um”. En hann hafði líka drukkið
í sig æfintýraanda hinna fornu
ensku þjóðkvæða og kemur þetta
fram í kvæðum eins og La Belle
Dame Sans Merci (Fagra konan
miskunarlausa) og The Eve of
St. Agnes (Kvöldið fyrir Agnes-
armessu). Um “Ode to the
Nightingale” (Óð til næturgal-
ans) sagði Robert Bridge, hinn
næmi gagnrýnandi og lárviðar-
skáld Breta á sinni tíð, að hann
gæti “vart nefnt nokkurt enskt
kvæði jafn stutt, sem hefði eins
mikla fegurð að geyma og þetta
ljóð”.
í Hyperion, sem skáldið lauk
aldrei við, sjást þess glögg merki
að skáldið er að þroskast og
vaxa af andagift.- — En með
hverjum mánuði sem leið hrak-
aði heilsu hans. Hann hafði aldrei
hlíft sjálfum sér lifað í ákefð í
sviftingum hugaræsinga, og ást-
ríðna, sökkt sér niður í starfið og
kvalist af hugarangri vegna ásta
sinna. Var nú afráðið að hann
skyldi fara til annars lands og
leita sér hvíldar og lækningar
á brjóstveikinni, sem hann gekk
með. Besti vinur hans, málarinn
Severn, hvarf frá störfum sínum
og fór með honum til ítalíu.
Keats fanst þetta hryllilegt að
eiga að skilja við Fanny Brawne,
og þegar heilsu hans hnignaði
enn, skildi hann að hann mundi
ekki eiga langt eftir. Hann bað
um að þessi orð yrðu letruð á
legstein sinn: “Hér liggur maður
— nafn hans var ritað í vatn” og
í öngum sínum var hann jafnan
að láta sig dreyma um hið mikla
ljóð, sem sér entist ekki aldur til
að semja.
Fálkinn.
The Swan Manufacturrng Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-BTRIF
Winnipeg.
Halldór Methusalems Swan
Eigandi
281 James Street Phone 22 641
Dýrtíðin í Kína
• (Frh. af bls. 5)
Þegar eg fór frá Chungking,
hafði enn ekki verið tekin fulln-
aðarákvörðun um það, hvernig
gulli þessu skyldi varið. En það
má ráðstafa því með ýmsum
.hætti. En þess ber að minnast, að
allar líkur eru til þess, að gull
þetta lendi fyrst og fremst í hönd
um þeirra manna, sem hafa auðg-
ast á styrjöldinni og hyggjast
auðgast enn meira á henni. Þess
vegna kann vel svo að fara, að
allmikill hluti þessa gullforða
fari til hinna hernumdu héraða
Kína, en það er sama og fá Jap-
önum það í hendur sem gefur
að skilja.
Það er auðvitað öllum mönn-
um ljóst, að dýrtíðin í Kína tor-
veldar mjög alla aðstoð Banda-
ríkjamanna Kínverjum til handa.
En eftir að hafa rætt við þá
menn, sem hafa framkvæmdir
þessa með höndum, hef eg sann-
færzt um það, að þ^ssi þjálpar-
starfsemi hefur bjargað óteljandi
mannslífum meðal kínversku
þjóðarinnar. Eg hygg því, að það
ætti fremur að auka þessa hjálp-
arstarfsemi en hitt. Arthur Duff,
sem dvaldist síðast liðið sumar
að Toishan, heldur því fram, að
fjörutíu af hverjum hundrað í-
búanna hafi þegar beðið bana af
völdum hungurs og harðréttis. í
okt. tilkynnti hann, að tíu þúsund
ir barna myndu deyja af skorti
áður en nóvembermánuður væri
liðinn og þess væri enginn kost-
ur að bjarga þessum barnafjölda.
Þetta er skattur sá, er Kína hef-
ur orðið að greiða fyrir viðnám
sitt gegn Japönum.
Nýlega hafa auknir skattar ver
ið lagðir á kínversku þjóðina, til
þess að unnt væri að gera her-
inn úr garði og stjórna landinu.
Verulegur hluti af framleiðslu
bænda hefur verið af þeim tek-
inn upp í skatta, eins þeim, sem
hafa átt við hinn bágasta hag að
búa. Iðulega hefur það komið
fyrir, að fé, sem ráðstafað hefur
verið Kínverjum til hjálpar, hef-
ur farið í það að festa kaup á
hrísgrjónabirgðum fátækum
bændum til handa — hrísgrjóna-
birgðum, sem þeir hafa orðið að
láta af hendi við hið opinbera
upp í skatta.
Dýrtíðin í Kína er orðin slík,
að hún hlýtur að teljast hin vá-
legast.a ógn, en leiðtogum lands-
ins er Ijóst, að ekki er hægt við
algeru hruni að minnsta kosti á
tveim næstu árum, ef hún vex
ekki enn úr hófi fram. Kína er
eitthvert bezt ræktaða land
heimsins og hefur jafnan verið
sjálfu sér nægt á vettvangi mat-
vælaframleiðslunnar. Bændurn-
ir munu einhvern veginn kom-
ast> af — þrátt fyrir hina miklu
erfiðleika. Þeir hafa átt við þraut
ir að stríða fyrri. En þegar bænd-
urnir telja sig til neydda að
kvarta, er traust þeirra á stjórn-
arvöldunum úr sögunni.
Ef til þess myndi koma, ætti
stjórn Chiang Kai-sheks ekki
annars kosta völ en leggja niður
völd. En ef hún yrði að víkja úr
sessi, myndi engin önnur ábyrg
stjórn geta við tekið af henni.
Þá myndi Kína loga í innanlands
erjum eins og var forðum daga,
og aðstaða bandamanna í bar-
áttunni gegn Japönum myndi
torveldast að miklum mun.
Mun dýrtíðin í Kína hafa þau
áhrif, að landsins bíði algert fjár-
hagshrun? Um slíkt getur enginn
sagt með vissu. En allir, sem til
þekkja, eru haldnir ugg og kvíða.
H. H. Kung, fjármálaráðh. Kína,
lýsti viðhorfunum með eftirfar-
andi orðum: Við erum líkt settir
og maðurinn, sem féll af þaki
Woolworthshússins í New York.
Þegar hann fór fram hjá tuttug-
ustu og annari hæð þess, varð
honum að orði: Enn er þó alt í
lagi.
Alþbl.
Minniál
BETEL
í erfðaskrám yðar
FARIÐ EKKI Á MIS VIÐ
HIN UNDURSAMLEGU
KAUP Á LC®FÖTUM
HJÁ
Perth’s
1945 TÍZKA
ÚRVALSEFNI
ÓVIÐJAFNANLEG GÆÐI
Heimsœkið PERTH’S
MASTER FURRIERS
484 PORTAGE AVE.
Just west of the Ma.ll
Verum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir
hverju nafni, sem þcer nefnast, og látum ekki undir
höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini.
DREWRYS
LIMITED
HOUSEHOLDERS
--- ATTENTION --
We have mosl of the popular brands of coal in
slock at present, but we cannot guarantee that
we will have them for the whole season.
We would advise that you order your fuel at
once, giving us as long a lime as possible for
delivery. This will enable us to serve you better.
MCfURDY CUPPLY fO
V/BUILDERS'O SUPPLIES V/ í
'BUILDERS'
Phone 23 811—23 812
LTD.
and COAL
1034 Arlington St.