Lögberg - 29.03.1945, Qupperneq 1
PHONE 21374
\\\U"
iot
LO'1
ndererS
prV
i
Cieane
A Complete
Cleaning
Institution
58- ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 29. MARZ, 1945
NÚMER 13.
Heimsfrægur stjórnmálaskörungur
látinn
Lávarður LloycL George
Síðastliðið mánudagskvöld lézt
a hinu 400 ára gamla bænda-
býli í North Wales, stjórnmála-
skörungurinn heimsfrægi, lávarð
Ur Lloyd George, forsætisráð-
herra Bretlands hins mikla síð-
ari hluta heimsstyrjaldarinnar
ira 1914, svo mikill mælskumað-
Ur> að engu var líkara, en hann
Jafnan hefði þrumur og elding-
ar á tungu sinni. Hinn látni
stjórnmálavíkingur var tvíkvænt
Ur> og lætur hann eftir sig fjög-
ur börn af fyrra hjónabandi;
seinni konu sinni, sem lifir mann
sinn, giftist lávarður Lloyd
George 1943.
Framan af æfi var Lloyd George
afar róttækur í skoðunum, og
hlífði lítt andstæðingum sínum,
ef svo bauð við að horfa; hann
var um langt skeið foringi
Liberal flokksins á Bretlandi, og
var árum saman hreint og
beint átrúnaðargoð flokks síns.
Hann var 82 ára, er dauða hans
bar að. *
^andamenn herða sókn á öllum orustusvœðum.
Varnarlína Þjóðverja að vestan hrynur
QENERAL EISENHOWER lýsti yfir því síðastliðinn þriðjudag,
^ að varnarlína Þjóðverja á vesturvígstöðvunum sé eigi aðeins
r°fin á mörgum stöðum, heldur hvorki meira né minna en blátt
“fram hrunin til grunna; innrásin austur yfir Rín, hófst að nætur-
-agi í lok fyrri viku, og kom þýzkum hernaðarvöldum auðsjáanlega
’hjög að óvörum, því vörn sú, er þau komu við, var harla veik; fyrsx
Sendu bandamenn yfir ána heila hersveit, sem flutt var í flugvélum,
1 kjölfar hennar sigldu geisi-
, §lr skarar fótgönguliðs, kynstr-
in öll af skriðdrekum, fallbyss-
uhi og hvers konar smærri her-
fögnum; nutu innrásarsveitirnar
°takmarkaðs flugvélastyrks. Nú
eru herjirnir að vestan komnir
Sv° að segja inn í mitt Þýzka-
nnd, 0g lætur General Eisen-
hower þess getið, að sókninni
Verði eigi lint, fyr en herjirnir
að
vestan taki höndum saman
Vlð hina rússnesku herskara í
erlín, og benda nú flest eykta-
mbrk til þess, að slíks samfundar
verði ekki ýkja langt að bíða úr
þessu.
Eússar hafa dregið saman ó-
Vl§an her, staðráðnir í því, að
ata brátt til skarar skríða við-
Vlkjandi fullnaðarárás á Berlín;
lnnrás þeirra frá Ungverjalandi
j.eiir tekið slík risastökk síðustu
lmm daga, að nú eru rússnesk-
r hersveitir á þeim orustuvett-
Vangi innan við 20 mílur frá
andamærum Austurríkis, og
ata hvergi bilbug á sér finna;
eru rússnesku herjirnir komn-
inn í hafnarborgina Danzig
Vl baltiska flóann, og þess
Vaenst, að hún falli þá og þegar.
anadaherinn er á óstöðvan-
egri hraðför yfir slétturnar í
v estPhalen,‘ og er sagður að
1 f rett í þann veginn að um-
ja borgina Emmerick.
Slðastliðnum tíu dögum, hafa
erskarar Bandamanna að vest-
þá
ir
an verðu, tekið til fanga 250 þús-
undir þýzkra hermanna, og gáf-
ust þúsundir þeirra upp án nokk-
urs minsta viðnáms.
Hitler hefir nýlega haldið
fund með skósveinum sínum í
hinu innilukta fjallbyrgi sínu, og
er honum nú auðsjáanlega ekki
farið að lítast á blikuna; húsa-
málarinn austurríski, sem hugði
á alheimsyfirráð, og tróð undir
hæl eina þjóðina eftir aðra, er nú
í þann veginn að verða rúinn
sínum síðustu fjöðrum; ganga
hans var ill frá uphafi, en þó
mun verst verða hin síðasta.
Höfuðborgir sameinuðu þjóð-
anna vænta nú hvern daginn sem
er, mikilla tíðinda; þau tíðindi
geta ekki orðið nema á einn veg,
algert hrun Nazismans þýzka.
CANADISKRI
HERSNEKKJU SÖKT
Flotamálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Mr. Macdonald,
hefir lýst yfir því, að canadisku
hersnekkjunni Trentonian, hafi
verið sökt; áttatíu og fimm menn
björguðust af, en sex týndu lífi.
MANNSKÆÐUR ELDSVOÐI
Á aðfaranótt laugardagsins þ.
24. þ. m., kom upp eldur í Robin-
son-Webber vörugeymsluhúsinu
hér í borginni, er kostaði tvo
slökkviliðsmenn lífið, auk þess
sem þrír aðrir sættu meiri og
minni meiðslum.
VITJAR VtGSTÖÐVA
Churchill forsætisráðherra
vitjaði nýverið vígstöðvanna á
vestanverðu Þýzkalandi í fylgd
með General Montgomery, og
bar þá svo til, er hann var að
yfirvega rústir Wesel-brúarinn-
ar, a^ þýzk sprengja misti hans
á 50 yards vegalengd, eða tæp-
lega það.
MÖNDULVELDUNUM SAGT
STRÍÐ Á HENDUR
Þau tíðindi hafa gerst, að
Argentína hefir sagt þeim aðilj-
um möndulveldanna, sem enn
eru að nafni til við lýði, Þýzka-
landi og Japan, formlega stríð á
hendur; gerði lýðveldisforseti
Argentínu þenna atburð heyrin-
kunnan á mánudaginn.
SALOyONSEÝJAR
Eyjaklasi þessi samanstendur
af tíu stórum eyjum og fjölda
smærri eyja, og liggja í tvöfaldri
röð, sem tekur yfir 600 mílna
langt, og alt að 100 mílna breitt
svæði. Flatarmál þeirra er milli
14,000 og 17,000 fermílur.
Eyjar þessar fann Spánverjinn
Mendana. Þjóðsaga ein segir, að
musteri Salómons hafi verið
skreytt gulli frá þessum eyjum
og þaðan hafi þær fengið nafnið.
AMERÍSKUR HER LENDIR
Á OKINAWAS
Japanska útvarpið hefir stað-
fest þá fregn, að amerískur her
hafi stigið á land á Okinawas, og
náð þar traustri fótfestu; eyja
þessi liggur aðeins 360 mílur suð-
vestur af Japan; varnir Japana á
eyjunni, reyndust harla veiga-
litlar, er til innrásarinnar kom.
PÓLITISKAR
ERJUR í ONTARIO
Þau tíðindi gerðust í fyrri
viku„ að fylkisþingið í Ontario
samþykti vantrausts yfirlýsingu
á hendur ráðuneyti því, sem Col.
Drew, hefir veitt forstöðu í síð-
astliðin tvö ár, og verður því
þing rofið og nýjar kosningar
fyrirskipaðar við fyrstu hentug-
leika. Drew-stjórnin var frá upp-
hafi tilveru sinnar minnihluta-
stjórn, er einungis réði yfir 38
þingsætum forhertra afturhalds-
manna; á fylkisþinginu eiga
sæti 90 þingmenn alls.
Það var C.C.F. flokkurinn,
undir forustu Mr. Jolliffs, er bar
fram vantraustsyfirlýsinguna, og
naut við atkvæðagreiðsluna, auk
sinna eigin samherja, stuðnings
af hálfu Liberala, Labor- Pro-
gressives, og fjögra utanflokka
þingmanna.
Hvenær kosningar fara fram, er
enn eigi að fullu vitað.
HAFN ARAÐGERÐ
VIÐ HNAUSA
#
Símað er frá Ottawa á þriðju-
daginn, að í fjárhagsáætlun sam-
bandsstjórnar vegna opinberra
mannvirkja í Manitoba, sé gert
ráð fyrir 25 þúsund dollara fjár-
veitingu til hafnaraðgerða við
Hnausa í Nýja íslandi.
Fallinn í stríðinu
iv
Capt. A. Ó. Thorwaldson
Hann var fæddur að Akra, N.
Dak., 2. marz 1918, og var sonur
hjónanna Mr. og Mrs. Björn S.
Thorwaldson er nú búa í Hunt-
ington Park, Calif., í Bandaríkj-
unum.
Fullu nafni hét hann Albert
Ólafur, en var, af ættingjum sín-
um og vinum alment kallaður
Bud, og því nafni nefni eg hann
hér.
Hvenær Bud heitinn gekk í
Bandaríkja flugherinn .er mér
ekki kunnugt, en kominn var
hann í herinn tal^vert áður en
hann sigldi austur um haf, sem
var í sept. mánuði 1944. Hann
gekk þá í þá deild flughersins er
nefnd er “China National Avia-
tion” og varð þá strax flugfor-
ingi að tign. Bud fékk það hlut-
skifti að fljúga með grjónasekki
til Kínverja er voru við vinnu
eirhverstaðar á Burma-braut-
inni, og sem engin leið var að
koma nokkru til nema loftleiðis.
Hafði hann farið nokkrar þessar
ferðir og tekist ágætlega, þó
hann yrði ávalt að fljúga lágt til
að koma sendingunum á rétta
staði. Og í eina þessa ferð lagði
hann 14. jan. s. 1. og varð það
hans hin síðasta ferð í þessum
heimi; hann dó í flugslysi er
hann lenti í einhverstaðar í
Burma-héruðunum.
Bud var efnismaður og prýði-
lega vel gefinn til sálar og- lík-
ama, siðprúður og kom sér hvar-
vetna vel; er hans því saknað
með sárum trega, ekki eingöngu
af foreldrum og skyldmennum,
heldur og af öllum er kynni
höfðu af honum. Sv.
OF MIKILL LÆRDÓMUR
Skólastjóri kennaraháskólans í
London, lét þess fyrir skömmu
getið í ræðu, að unga fólkið ætti
því nær ótrúlega auðvelt með
að finna upp ástæður fyrir því,
að það þyrfti ekki að gera skyldu
sína; hann sagði að þetta væri
ef til vill ekki gert af ásettu ráði,
heldur væri það bein afleiðing
af of miklum lærdómi eða bók-
viti, sem litla áherzlu legði á
gildi hinna daglegu skyldustarfa.
SONARSONUR JÓNS ÓLAFS-
SONAR RITSTJÓRA í HER
ÞJÓNUSTU Á ÍSLANDI
Nýlega er kominn hingað til
lands Páll Ólafsson sjóliðsforingi
í Bandaríkjaflotanum. Páll er
sonur Ólafs Ólafssonar tann-
læknis í Chicago, en hánn er sem
kunnugt er sonur Jóns Ólafsson-
ar ritstjóra. Ólafur kom hingað
til Islands 1925.
Páll Ólafsson, sem nú tekur
við starfi í Bandaríkjaflotahum
hér við ísland, hefir verið tæp-
lega tvö ár í þjónustu á Kyrra-
hafi. —Mbl. 10. jan.
ÞRJÚ ÞÚSUND HÚS
í RÚSTUM
Samkvæmt nýjustu skýrslum
grískra stjórnarvalda, eru að
minsta kosti þrjú þsúund hús í
hinni fornfrægu höfuðborg
Grikklands í rústum; þess er enn
jafnframt getið, að alvarlegur
vistaskortur sverfi mjög að
grísku þjóðinni, enn sem komið
er, og skjótra viðreisnarathafna
sé þörf, ef koma eigi í veg fyrir
hallæri.
DAUÐUR KONUNGUR
SAKFELDUR
í Sofía, höfuðborg Búlgaríu,
fara sem stendur einkennileg
réttarhöld fram. Er þar verið að
dæma andaðann konung landsins,
Boris, sem stríðsglæpamann og
leiða vitni á hendur honum, til
þess að sanna að hann hafi svik-
ið þjóð sína. Einnig eru þar fyrir
rétti þeir, sem voru í ríkisráðinu
eftir að Boris dó, 38 fyrverandi
ráðherrar og 139 fyrverandi þing-
menn. Aðalákæruatriðin eru
sögð vera hlutleysisbrot og það
að Búlgarar hafi sent her til
Grikklands og Júgóslavíu. En
hvernig ætti að fara að því að
refsa hinum látna konungi, var
ekki minst á.
NÝR VITI VIÐ VOPNAFJÖRÐ
Á Kolbeinstanga við Vopna-
fjörð er nú lokið byggingu á nýj-
um vita. Vitinn sýnir hvítan,
rauðan og grænan blossa.
Hæð logans yfir sjó er um 24
m. Ljósmagn um 1100 HK. Vit-
inn stendur í neshlíðinni 1 sm.
fyrir utan þorpið. Vitahúsið er
16 m. hár ferstrendur hvítur turn
með svörtum lóðréttum röndum
og gráu ljóskeri. Logtími 1. ágúst
- 15 maí. Kveikt hefir verið á
vitanum nýlega. —Mbl. 25. jan.
Ókominn fram
Flg. Serg. Hinrik Guttormsson
Samkvæmt símskeyti til for-
eldranna, þeirra Mr. og Mrs.
Einar Guttormsson, að Poplar
Park, Man., er sonur .þeirra
Flight Sergeant Hinrik Guttorms
son, ókominn fram úr loftárás,
er háð var þann 6. þ. m. Þessi
bráðefnilegi maður var fæddur
að Poplar Park þann 19. janúar
1925; hann naut alþýðuskóla-
menntunar í heimabygð sinni,
en stundaði framhaldsnám við
Daniel Mclntyre skólann í Win-
nipeg.
Flight Sergeant Guttormsson
innritaðist í canadiska herinn í
október mánuði 1943, gaf sig við
heræfingum í Edmonton og
Winnipeg, en fór austur um haf
í júlí 1944.
Annar sonur þeirra Mr. og Mrs.
Guttormsson, Friðrik, særðist í
orustu í ágústmánuði síðastliðn-
um; hann er nú á Skotlandi, og
sagður að vera á ágætum bata-
vegi.
•
FYRSTIR TIL BERLÍN
General Eisenhower var spurð-
ur að því nýlega, hvaða innrás-
arherjir kæmu fyrst til Berlín.
“Sennilega þeir rússnesku,” var
svarið.
Skýjaborgir
Eftir Einar P. Jónsson
Þeir skopast að skýjaborgum,
sem skilja’ ekki neitt í því
að alfagur, æðri heimur
sé ofan við reyk og blý,
að fólkið, sem fórst um daginn,
þar finni sig sjálft á ný.
Þó lönd séu böðuð blóði
og bannfærð öll heilög rök,
og bikarinn barmafyltur
af brjálaðra þræla sök,
þá virðir þó aðalseðlið
hin andlegu Grettistök.
Þó bæn stigi hæst til hæða,
er Heródes enn á ferð,
og þúsundum barna bana
býr blóðdrifið níðingssverð,
sem hert var á heiftar-afli
við hræsninnar suðugerð.
í álögum enn þá bíður
mörg útvalin hetjuþjóð,
sem dreymir um friðað frelsi,
þó friðurinn kosti blóð.—
I skýjunum brosa bprgir
við bjarma frá kvöldsins glóð.
Svo dimt verður aldrei yfir,
að eygi’ ekki neina borg
í skýjanna huldu hafi
með hafnir og friðsæl torg.
Þar á sér að lokum útför
hver ógn og hver mannlífssorg.
Tímarit Þjóðræknisfélagsms.
Kvæði þetta er endurprentað vegna afleitrar prentvillu
byrjun 5. línu annars erindis, “Þú” fyrir “Þá”.—Höf.