Lögberg - 29.03.1945, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 29. MARZ, 1945
7
lesendurnir
Að hverju leitar þú?
Spekingurinn Hassan sat úti
fyrir dyrum sínum, er hann sá
þrjá unga menn skunda fram-
hjá.
‘Að hverju leitið þér sveinar?”
m®lti Hassan.
“Eg leita gleðinnar”, mælti
hinn elsti.
“Eg leita auðæfa”. mælti sá
naesti.
“En þú, sonur minn”, mælti
Hassan við hinn yngsta. “Að
hverju leitar þú?”
“Eg leita skyldunnar”, svaraði
hann.
Síðan héldu sveinarnir leiðar
sinnar.
Mörgum árum síðar sat Hass-
an við dyr sínar. Sér hann þá
Þrjá miðaldra menn nálgast, og
hennir, að þar fara sömu menn-
irnir, er hann hafði rætt við
forðum, er þeir lögðu ungir af
stað út í veröldina.
Fanst þú gleðina?” spurði
hann hinn elzta þeirra.
“Nei, faðir”, svaraði hann.
Gleðin hvarf mér jafnharðan,
oins og skuggi, er eg þóttist
hafa hana höndum tekið”.
“Fanst þú auðæfin?” spurði
hann hinn næsta.
‘Fann að vísu, en varð þó
hvorki fyrir það ríkari né sælli”.
“En þú, sonur minn. Hvernig
gekk þín leit.”
“Skyldunnar hefi eg leitað, en
þó ekki enn fundið hana til fulls
eða hlýtar. Aftur á móti hefi eg
bæði fundið gleðina og daglegt
brauð.”
“Þannig er því jafnan varið,
synir mínir,” mælti hinn vísi
Hassan.
“Sá, sem skyldunnar leitar,
finnur jafnan bæði gleðina og
nægjusemina, því þær eru æfin-
lega í för með henni.”
(Austurlenzkt æfintýri).
Orðasafn.
spekingur wise man, sage
skunda — hasten
leita — to seek
sveinar — boys
gleði — pleasure
auðæfi — wealth, riches
skylda — duty
miðaldra — middle aged
kénnir — recognizes
forðum — a long time ago .
fannst þu — did you find
hvarf — disappeared
jafnharðan — immediately
sælli — happier
daglegt brauð — daily bread
jafnan — always
nægjusemi — contentment
Huldukona.
Fyráli veðurspá-
maðurinn
Grein þessi birtist upphaf-
lega í tímaritinu “Chamber
Journal” í Edenborg og er eft-
ir Arthur Nettleton. Hún segir
frá starfi Alexanders Buchans
páttúrufrœðings og veðurfrœð
lngs sem manna mest barðist
fyrir stofnsetningu veðurat-
hugunarstöðva og fullkomn-
Qði mikið rannsóknir á því
sviði á sínum tíma.
£*að má undarlegt heita að
a sjálfri öld vísindanna, sem vér
1111 lifum, skuli vera viðurkennd
aðferð og kenning nítjándualdar-
verðurspámanns, sem uppi var í
^hotlandi á sínum tíma og ekk-
ert hafði lært í þeirri grein nema
grúski í skræðum sem ekki
v°ru kenndar við nokkurn skóla.
<( Hann lézt árið 1907. Rit hans
Whitakers Almanak” hélt þó
aHam að koma út og birti spá-
hórna Mr. Buchan “varðandi
ita og kulda í veðráttunni.”
Margir líta svo á, að Buchan
afi verið dularfullur náungi,
Sern uppgötvað hafi lögmál
v®ðurfarsins á einhvern óskilj-
aolegan, dularfullan hátt. En í
raUn og veru var hann með allra
eHirtektarverðustu og um leið
shemmtilegustu mönnum sinn-
ar stéttar á þeim tíma, — og að
ahta hann hafa verið “þurran
Vjsindamann” eða þá einhvers-
°nar galdramann er algjörlega
rangt.
Hefði AlexanÖer Buchan ver-
* hyltur af fjöldanum, hefði
ar>n átt eitthvert annað áhuga-
en grasafræði, eða hefði
e ^Ur^ræðistofnunin skozka
? verið sérstaklega heppin
vali ritara sinna er það öld-
^ngis óvíst, að Bucham hefði
,. kurn tíma verið skráður á
^a nafnkunnra Hálendinga.
•^lexander Buchan fæddist í
^°rPinu Kinroo 11. apríl 1829.
°reldrar hans sendu hann í
þ^nnaraskólann í Edinborg og
jg r sóttist honum svo vel nám-
ag’ að hann fékk styrk til þess
*ara í Edinborgar-háskólann,
rúmlega nítján ára að aldri
sv. hann kennari og síðar
°iastjóri í Dunblane.
' Hann veiktist í hálsi og missti
eðlilegan raddblæ, og enda þótt
veikindin væru ekki alvarleg,
ollu þau því, að hann átti mjög
bágt með að stunda kennslu.
Vanmáttur hans í því að láta
hlýða sér og hlusta á sig með
nógu mikilli eftirtekt olli því,
að hann varð að segja starfi
sínu lausu og sækja um ein-
hverja aðra atvinnu. Einmitt
um þessar mundir vantaði Veð-
urfræðistofnunina skozku rit-
ara og hinum afdánkaða skóla-
stjóra var veitt staðan. Hann
hafði ekki neitt fram að bera
sem sýndi að hann hefði lagt
nokkurn minnsta skerf til veð-
urrannsókna og veðurathugan-
ir þær, sem hann hafði gert um
æfina höfðu eingöngu snert
ferðalög hans í leit að plöntum.
Samt sem áður taldi stjórnar-
nefnd Veðurfræðistofnunaíinn-
ar hann hæfan í starfið.
En upp frá þessu tók Buchan
að stunda veðurathuganir af
mesta áhuga; og svo vel og giftu-
samlega sóttist honum á þeirri
braut, að hann komst brátt fram
úr vísindum samtíðar sinnar á
þessu sviði og framkvæmdi
sjálfstæðar athuganir. Hann
byrjaði á því að athuga sem ná-
kvæmast áhrif veðráttunnar á
allan jarðargróður, en fram að
þeim tíma hafð|i þessu atriði
verið furðu lítill gaumur gef-
inn. 1 þessu efni naut hann mik-
ils stuðnings af plöntufræði-
þekkingu sinni. Sömuleiðis
sýndi hann fram á áhrif veðurs
á heilsufar manna nákvæmar
en áður hafði verið gert, og
hann var sá fyrsti sem gerði til
raun til að athuga hver áhrif
hinir svonefndu “sólblettir”
hefðu á ýmsa staði jarðarinn-
ar. Auk þess safnaði hann sam-
an heimildum frá fyrri tímum
um veðurfar á ýmsum stöðum,
skrásetti þær formlega og not-
aði þær ásamt heimildum síð-
ari tíma í athugunum sínum á
veðrinu, sem hann síðan birti
og urðu vinsælar og viður-
kenndar.
Samkvæmt athugunum Buc-
hans á vissu tímabili, skiptist
veðurfarið í sex köld og þrjú
heit tímabil, sem skiptast mjög
reglulega. Þessi tímabil eru:
Kuldatími: 7. til 10. febrúar; 11.
til 14. apríl; 9. til 14. maí; 29.
júní til 4. júlí; 6. til 11. ágúst
og frá 6. til 12. nóvember. Hita
tímabil eru aftur á móti 12. til
15. júlí; 12. til 15. ágúst og 3.
til 9. desember (síðasta tíma-
bilið er þó aðeins “tiltölulega
hlýtt”, samanborið við árstíð).
En það skyldi athugast, að tak-
mörkun og skipting “hita” og
“kulda”, eins og hún kemur
fram hjá Buchan er í samræmi
við meðaltal tekið á tiltölulega
stuttu árabili og er hvergi
nærri einhlítt að leggja trúnað
á þessa skiptingu hans.
“Handbók veðurfræðinnar”
eftir Buchan, sem kom út í
fyrstu útgáfu árið 1867, var
löggilt sem kennslubók í veður-
fræði. Hann varð einna fyrstur
vísindamanna sem barðist fyr-
ir því, að koma öruggu skipu-
lagi á veðurathuganir og að
reglulegar skýrslur voru gerð-
ar og athuganir færu fram, bæði
á sjó og landi. Niðurstöður veð-
urathugana, sem gerðar voru í
fjögurra ára könnunarferð, er
farin var af H. M. S. Challeng-
er, voru rannsakaðar og skráð-
ar af Buchan. Það var árið
1876.
iRannsóknir Buchans veittu
honum margvíslega sæmd og
frægð, m. a. veittist honum inn
ganga í Konunglega vísindafé-
lagið í Edinborg, hann var síð-
ar gerður að forseta þess og
Plönturannsóknarfélagsins í Ed-
inborg.
Buchan var ekki ólíkur
Tennyson í útliti. Hann hafði
fyrirferðarmikið skegg eins og
hann, hátt enni, djúp og skær
augu og arnarnef.
Árið 1864 kvæntist hann
Söru Ritchie frá Musselburgh.
Hjónaband þeirra var hið bezta.
Meðal beztu vina þeirra voru
Stevenssonarnir, sem getið
höfðu sér frægð í starfi sínu
og voru iðjusamir eins og Buc-
han.
Buchan var annálaður fyrir
góðvilja sinn, skynsemi og fyr-
irmyndar framkomu í daglegri
umgengni. Og á heimili hans
var griðastaður hinna nýju
hreyfinga og grósku í vísind-
um þeirra tíma.
Bæði þjóðfélagið í heild og
einstakar stéttir þess höfðu
gagn af rannsóknum Buchans.
Enda þótt megnið af athugun-
um hans væru framkvæmdar í
Skotlandi, gerði hann þó ýtar-
legar rannsóknir á loftslaginu
á úthöfunum. Með upplýsing-
um sínum gerði Buchan síld-
veiðiskipunum mikið gagn.
Með samanlagðri þekkingu
sinni á jurtaríkinu og veðurfar-
inu gat Buchán t. d. alltaf séð
fyrir breytingar á verðlagi jarð-
arafurða marga mánuði fyrir-
fram. Og í öllu starfi hans hjálp-
aði honum hin stöðuga íðni og
hárviss nákvæmni.
Eins og svo margir aðrir braut-
ryðjendur á flestum sviðum,
varð hann að berjast harðri bar-
áttu til þess að sanna ráðandi
mönnum og öðrum gildi starfs
síns. Samt tókst honum að fá
samþykki þingsins til þess að
reisa veþurathuganastöðvar,
aðra á tindi Ben Nevis en hina
við rætur þess. Stöðvarnar voru
fullgerðar árið 1904, þremur ár-
um fyrir lát Buchans.
Hvarvetna hafa veðurathug-
anastöðvar verið settar á stofn
og öðlast viðurkenningu sem
nauðsynlegar stofnanir í öllum
menningarlöndum. Reynsla
þeirra á friðartímum jafnt sem
stríðstímum hefur haldið í
heiðri nafni þess manns, sem
fyrstur allra vísindamanna barð-
ist verulega fyrir því, að þær
yrðu settar á stofn fyrir meira
en 60 árum síðan. Rannsóknir
hans hafa reynzt annað en
“töfrar” eða eitthvað ennþá
verra. Þær hafa reynzt raun-
hæf vísindi.
Alþbl. 25. jan.
Sberbrook Florist
Flowers For All Occasions
618 PORTAGE AVE. cor. Furby
PHONE 36 809
N*TIONal
PAMíLV
mcaltm
Vý Pb tor ihr ö'i
P*/ab|*
*uPPori«d b;
***Tlf ,
FORELDRAR
Þér vinnið börnum yðar í hag er
þér gerið skrásetningu vegna
Fjölskyldustyrksins
Gefið út að tilskipan HON. BROOKE CLAXTON, rdðherra
Skrásetjist nú þegar vegna
FJÖLSKYLDUSTYRKSINS
Fjölskyldustyrkur verður greiddur mánaðar-
lega fyrir hvert barn, sem rétt hefir til þess
innan 16 ára aldurs. Fyrsta greiðsla verður
póstuð í júlí 1945.
Fjölskyldustyrkurinn er greiddur til þess
að aðstoða foreldra við uppeldi barna sinna;
til þess að tryggja heilsu barnanna og afla
þeim læknishjálpar, svo og tannaðgerðir og
tryggja þeim gott fæði, skjólgóð föt og koma
á jöfnuði meðal allra barna varðandi undir-
búning undir lífið.
Eyðublöð hafa send verið hverri fjölskyldu.
Fyllið út eyðublaðið um leið og þér fáið það
— það .er mjög auðvelt, aðeins sjö spurningum
að svara, og upplýsingarnar, sem fylgja,
greiða mjög fyrir þessu. Gerið þetta strax,
því einungis er unt, að pósta ávísanir til
þeirra, sem fylt hafa út eyðublöðin á réttum •
tíma.
Ef þér fáið ekki eyðublað, skuluð þér
vitja þess á næsta pósthús.
1. Spurning. Skrifið stórum
stöfum nöfn barna yðar innan
16 ára. Tiltakið fæðingarmán-
uð, fæðingardag og ár. Nefnið
staðinn þar sem hvert barn
var fætt. Fyllið út hverja línu
varðandi aðstöðu yðar til
barnsins, ef bæði faðir og móð-
ir senda umsókn, skal fylla út
báða “relationship” dálkana.
2. Spurning. Séu bæði foreldr-
anna heima, undirrita þau
bæði umsóknina. Þá skal tekið
fram hvert ávísanir skuli send
ar. Móðir á ekki að skrifa
skírnarnafn manns síns held-
ur skal hún skrifa nafn sitt t.
d. Mrs. Alice. Mary, Joan, etc.
,Uc« Chtld
•houlJbe
b,
,uch orher
. -n
■
°° side, of ihj.
—
hj
If,r <>ea(h
»í«lhw
PtlT
p*r,y. 'tc.j oo.o/
»W«MlLLS
r®*'»ootobuin.b|*.
1 '■'•■,,
3. Spuming. ,
Skrifi aðeins ein persðna undir 2. spurningu, skal skýrt frá því vegna
hvers önnur undirskrift fékkst ekki — segið ekki að faðir eða móðir
séu í burtu, heldur hvað lengi og hvar.
4, 5, 6 og 7 Spurning.
Hinumegin á eyðublaðinu, verður að svara annaðhvort með “jái” eða
‘‘Neii’’. Sé svar við spurningum 4, 5 og 6 nei, skal greina ástæður, tiltaka
nafn barns eða barna. 1 sambandi við 5. spurningu, er nauðsynlegt að
tilgreina nöfn barna innan við 16, sem ekki búa hjá yður, skýra frá
heimilisfangi þeirra, og hvernig hægt sé að heimsækja þau. Sé 7. spurn-
ingu svarað játandi, þá skulu ástæður gefnar fyrir því.
Tekjuskattur: Ekki má hagnast I senn af fjölskyldustyrk og tekjuskatti og
lækkar þvi undanþága eftir styrksupphæð. Foreldrar ráða, hvort
þau vilja sækja um fjölskyldustyrkinn eða ekki. Sérhver, sem er í vafa
um hvort hann eða hún hagnist meira á fjöskyldustyrk en skattsundan-
þágunni, ætti að láta skrásetja vegna fjölskyldustyrksins og vera viss
í sinni sök.
DEPARTMENT OF NATIONAL HEALTH AND WELFARE, OTTAWA