Lögberg - 14.06.1945, Side 1
PHONE 21374
U\U"1
>\\
\ «^VCl
irveTS
A Complete
Cleaning
Institution
58. ÁRGANGUR
..rn~
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 14. JÚNÍ, 1945
PHONE 21374
& M
„eXs a
CUa
A Complete
Cleaning
Institution
NÚMER 24
Canadisk þjóðeining vann glæsilegan sigur með endurkosningu Kings og
Liberalflokksins á mánudaginn
Fjallkonan á Hnausum
Mrs. Regina Eirickson
Glæsilegt brúðkaup
Seinni partinn á laugardaginn
var, voru gefin saman í hjóna-
band í Fyrstu lútersku kirkju
að viðstöddu miklu fjölmenni,
þau Miss Norma Esther Ben-
son, dóttir Mrs. B. S. Benson,
757 Home Street og manns henn-
ar Björns S. Benson, er stund-
aði lögmannsstörf í Selkirk, en
látinn er fyrir mörgum árum, og
LAC. Harold S. Sigurðson, son-
ur Mr. og Mrs. Sigurbjörn Sig-
urðson hér í borginni. Séra V. J.
Eylands gifti; systir brúðgum-
ans, Miss Agnes Sigurðson var
við hljóðfærið, en söngflokkur-
inn söng O, Perfect Love.
Svaramenn voru systir brúðar-
innar Miss Ruth Benson frá
Ottawa og bróðir brúðgumans
Frederick Sigurðson.
Að lokinni vígsluathöfn var
setin fjölmenn veizla að heimili
móður brúðarinnar, 757 Home
Street. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður í New York.
Lögberg árnar þessum glæsi-
legu brúðhjónum allra fram-
tíðarheilla.
Sendifulltrúi
Próf. Ásmundur Guðmundsson
Frá því er skýrt á ritstjórnar-
síðu þessa blaðs, að þjóðkirkja
íslands í sambandi við ríkis-
stjórnina, hafi auðsýnt lúterska
kirkjufélaginu íslenzka í Amer-
íku þá sæmd, að senda hingað á
sextíu ára afmælisfagnað þess,
próf. Ásmund Guðmundsson, frá
Reykjavík.
Flytur ræðu
Rev. Johan A. Aasgaard
The Rt. Rev. Johan A. Aas-
gaard D.D., L.L.D., heimskunn-
ur kirkjuhöfðingi og biskup
Norðmanna í Ameríku, flytur
kveðjur frá þjóðbræðrum sínum
og kirkju á afmælisþingi kirkju-
félagsins á laugardagskvöldið
23. júní kl. 8.
Mælir fyrir minni
íslands
Dr. Stefán Einarsson
Eins og þegar er vitað, hefir
skemtiskrá fyrir lýðveldishátíð-
ina, sem haldin verður á Iðavelli
við Hnausa á laugardaginn kem-
ur, þegar verið auglýst í Lög-
bergi, og verða víst flestir á eitt
sáttir um það, að svo hafi vel
verið til alls undirbúnings vand-
að, að treysta megi því, að þeir;
er mannfagnað þenna sækja,
búi lengi að ánægjulegum end-
urminningum frá þeirri sam-
verustund. Fólk það, sem byggir
Norður-Nýja ísland, stendur
vissulega engum að baki, er til
þess kemur að stofna til glæsi-
legra hátíðahalda, heldur stend-
ur þar oft í fremstu röð; um-
hverfi Iðavallar hins nýja, er og
frá náttúrunnar hendi fagurt og
vingjarnlegt, auk þess sem vita-
skuld eru við það tengdar margar
viðkvæmar endurminningar frá
fyrstu tímum hins örðuga, en
sigursæla landnáms. Sigur land-
námsmannanna og sigrar land-
námskvennanna, fallast í faðma
við sigurinn mikla, er íslenzka
þjóðin vann með endurreisn ís-
lenzka lýðveldisins á Þingvöll-
um þann 17. júní í fyrra, og þess
vegna má áminst hátíð í raun-
inni kallast tveggja sigra hátíð
í íslenzkum, þjóðræknislegum
skilningi; en í víðari merkingu,
verður hún að þessu sinni rétt-
nefnd þriggja sigra hátíð, þar
sem einn þáttur dagskrárinnar
lýtur að hinum innviðaríka sigri
sameinuðu þjóðanna yfir ofbeldis
öflunum á vettvangi Norðurálfu-
styrjaldarinnar, og þeim hinum
miklu fórnum, sem synir þessa
lands af íslenzkum stofni, báru
fram, vegna frelsismála mann-
kynsins.
Oss er það mikið ánægjuefni,
að geta skýrt lesendum vorum
frá því, að Dr. Stefán Einarsson,
prófessor í norrænum fræðum
við Johns Iiopkins háskólann í
Baltimore, Maryland, mælir fyr-
ir minni íslands á áminstri lýð-
veldishátíð að Hnausum næst-
komandi laugardag; hann hef-
ir, þótt tiltölulega enn sé ungur,
aflað sér slíks frægðar orðs fyr-
ir merkar málfræðirannsóknir,
einkum á sviði hljóðfræðinnar,
rað þar munu fáir standa
honum á sporði; hann hefir fyrir
skömmu samið og sent frá sér
mikla og merka kenslubók í ís-
lenzku fyrir enskumælandi fólk,
sem ætti að eiga mikið og brýnt
erindi til hinna yngri kynslóða
hér 4 álfu af íslenz^um stofni;
hefir Dr. Stefán með þessu unn-
ið hið þarfasta verk.
Dr. Stefán er austfirskur að
ætt; hann er hið mesta ljúfmenni
í framgöngu, og skemtinn í við-
ræðum.
S2E3
Sambandskosningar og
skifting flokka
Frá Sambandskosningunum er
að nokkru skýrt á ritstjórnar-
síðu þessa blaðs, en að því er
síðast hefir spurst til, er flokka-
skipting þannig:
Liberalar 118.
. Óháðir-Liberalar 8.
Conservativar 66.
C.C.F. 26.
Social Credit 13.
Afgangurinn af 245 þingsæt-
um gengur undir allskonar
brennimarki.
Flognir í suðurveg
Eins og vitað er, hafa dvalið
hér í borg við flugnám all-marg-
ir ungir menn frá íslandi yfir
mismunandi langan tíma, og
ýmsir dvelja hér enn; nú eru
nýlega farnir suður í Bandaríki
til framhaldsnáms í fluglist, þeir
Kristján Mikaelsson, Halldór
Bech, Magnús Ágústson, Kristján
Steindórsson, Hörður Jónsson og
Njáll Guðmundsson, og er ætl-
un þeirra að fullkomna sig í
fluglistinni við þekktan skóla í
borginni Tulsa í Oklahoma rík-
inu, áður en þeir hverfa heim til
virkrar þátttöku í athafnalífi ís-
lenzku þjóðarinnar.
Þetta eru alt saman efnilegir
atgerfismenn, sem líklegir eru
til góðra dáða í framtíðinni. Lög-
berg þakkar þeim góða viðkynn-
ingu og óskar þeim góðs braut-
argengis.
S'SSí
Samsæti
Vinir Jónasar Jónssonar al-
þingismanns héldu honum og
konu hans samsæti í héraðsskól-
anum að Laugarvatni á 60 ára
afmæli hans 1. þ. m. Mun á
þriðja hundrað manns hafa tek-
ið þátt í samsætinu.
Bjarni Bjarnason skólastjóri
stjórnaði samsætinu. Egill Thor-
arensen kaupfélagsstjóri flutti
aðalræðuna, en Sigurgeir Sig-
urðsson biskup talaði fyrir minni
frú Guðrúnar Stefánsdóttur.
Finnur Kristjánsson kaupfélags-
stjóri á Svalbarðsströnd flutti á-
varp frá Þingeyingum. Böðvar
Magnússon bóndi ræddi um störf
Jónasar Jónssonar fyrir bænda-
stéttina og minntist starfa hans
fyrir skólamál Sunnlendinga.
Ríkharður Jónsson talaði fyrir
hönd myndlistamanna. Að lok-
um talaði Jónas Jónsson sjálfur
og þakkaði fyrir sína hönd og
konu sínnar.
Jónasi Jónssyni og þeim hjón-
um báðum bárust margar veg-
legar gjafir. M. a. gáfu vinir
Jónasar hér syðra honum vand-
að skrifborð og vinir hans í
Þingeýjarsýslu og Eyjafirði
færðu honum 15 þús. kr. að gjöf.
Um 500 heillaskeyti bárust hon-
um í tilefni af afmælinu.
Tíminn 4. maí.
Kjarvalshús
Bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum 3. maí til-
lögu bæjarráðs um það, að bær-
inn gæfi kost á lóð undir fyrir-
hugaða byggingu handa Jóhann-
esi Kjarval málara á mótum
Mímisvegar og Eiríksgötu, enda
verði byggingin framvegis notuð
fyrir safn og þannig frá henni
gengið, að hún verði í samræmi
við aðrar fyrirhugaðar bygging-
ar við Skólavörðutorg.
Alþbl. 4. maí.
Prédikar
Rt. Rev. Franklin C. Fry, D.D.
The Rt. Rev. Franklin C. Fry, D.D., forseti stærsta lúterska
kirkjufélagasambandsins í Nrður-Ameríku (U.IaC.A.), prédikar
við árdegis guðsþjónustu í Fyrstu lútersku kirkju, Winnipeg,
24. júní n. k., kl. xl. Guðsþjónustunni verður útvarpað frá CKY.