Lögberg - 04.10.1945, Blaðsíða 1
PHONE 21374
t..w\ \j$Z
A
,raOe
Complete
Cleaning-
Institution
Cleanng
Institution
58. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. OKTÓBER, 1945
NÚMRR 40
Frambjóðandi sam-
vinnustjórnarinnar
í St. George
Chris Halldórsson
Hinn nýi merkisberi samvinnu
stjórnarinnar í St. George kjör-
dæmi, Chris Halldórsson, er
fæddur að Lundar þann 27. febrú
ar 1891. Foreldrar hans voru hin
merku landnámshjón þar í bygð-
inni, Halldór Halldórsson og
Kristín Pálsdóttir ættuð af ísa-
firði. Chris naut barnaskólament
unar í heimabygð sinni, en stund-
aði nám við Manitoba Agricult-
ural College 1910—1911. Hann
tók þátt í fyrri heimsstyrjöld-
inni, gekk í 108 herdeildina, og
fór til vígstöðva með 3. Cana-
dian Engineers sveitinni; hann
kom heim aftur í maí 1919, og
gekk brátt í þjónustu Confedera-
tion lífsábyrgðar félagsins. Heim
ili hins nýja frambjóðanda hefir
verið í Eriksdale síðan 1934, þar
sem hann rekur bíla og bensín-
sölu, ásamt bílaviðgerðum.
Chris er kvæntur Guðlaugu,
dóttur j>eirra Mr. og Mrs. Jón
Eyjólfsson að Lundar; þau Chris
og frú Guðlaug eiga tvö mann-
vænleg börn, Roy Oscar, sem því
nær árlangt var í þjónustu
canadiska flugliðsins austan við
haf, en er nú nýkominn' heim,
og Doris, er starfar í þjónustu
Trans Canada Airlines í Winni-
peg-
Chris Halldórsson er hinn
mesti atorkumaður, og mun reyn
ast kjördæmi sínu liðtækur full-
trúi á fylkisþingi, en fyrir kosn-
ingu hans verða íslendingar í
St. George að beita sér af ráði
og dáð.
■ . i
lilillllilllliiillll
Farinn til London
Forsætisráðherrann, Mr. King,
er nýfarinn til London að því er
nýjustu fregnir herma, í þeim
tilgangi, að ræða við brezk
stjórnarvöld og kynnast með eig-
in augum stjórnarfarslegu og
hagsmunalegu viðhorfi Norður-
álfuþjóðanna, sem vera mun
harla ískyggilegt vegna vista-
skorts og pólitískrar togstreitu;
um leið og Mr. King gerði þing-
inu aðvart um för þessa til Lon-
don, létu allir foringjar þing-
flokkanna í ljósi ánægju sína yf-
ir þeirri ákvörðun.
Mr. King lét í hafa frá New
York á sunnudaginn, en áður átti
hann stutta viðdvöl í Washing-
ton og ræddi þar við Truman
forseta um ýmis sameiginleg
vandamál.
1 fjarveru Mr. Kir.gs gegnir
fjármálaráðherrann, Mr. Ilsley,
forsætisráðherra embættinu.
Fræðsluvika um
krabbamein
Það hefir orðið að ráði, að
tímabilið frá 1 til 6. yfirstand-
andi mánaðar, að báðum dögun-
um meðtöldum yrði helgað al-
mennri fræðslu um krabbamein
og varnarráðstafanir gegn. út-
breiðslu þessa sjúkdóms, er svo
hárra skatta hefir krafist af börn-
um jarðarinnar upp á síðkastið.
Forustumönnum læknavísind-
anna ber saman um það, að
krabbamein megi lækna, sé lækn
is leitað meðan sjúkdómurinn er
á byrjunarstigi; þess vegna er
það í rauninni lífsnauðsyn, að
upplýsinga sé þegar leitað hjá
læknum, auk þess sem jafnan má
snúa sér bréflega til Manitoba
Canc^r Insititute, Winnipeg.
Til þess að afla þessari þörfu
mannúðarstofnun fjár, er svo til
ætlast, að seld verði á götum
borgarinnar merki einhvern
hinna áminstu daga, og er þess
að vænta, að borgarar bregðist
drengilega við slíkri málaleitun.
lllllllllillilill
Tilkynning
Áætlað er að Laugardagsskóli
Þjóðræknisfélagsins byrji á laug
ardaginn 13. okt. kl. 10 f. h. 1
Fyrstu lútersku kirkju. Meðal
annara ágætra kennara, sem
nefndin hefir fengið til að kenna
við skólann, er hr. Ólafur Páls-
son kennari frá íslandi, en hann
sem kunnugt er, dvelur hér um
skeið til þess að kynna sér skóla-
fyrirkomulagið í Manitoba.
Skólanefndin hvetur nú for-
eldra og aðstandendur barna að
nota sér þetta góða tækifæri og
senda börn sín í skólann til ís-
lenzkunáms. Áríðandi er fyrir
nefndina að vita hvað mörg börn
munu sækja skólann, því tala
kennaranna fer eftir því; þeir,
sem hafa í hyggju að senda börn
sín, eru því vinsamlega beðnir
að tilkynna það einum nefndar-
manna. Ennfremur æskir nefnd-
in álits foreldra um það hvort
það myndi heppilegra að breyta
til um kennslutíma og kenna
heldur eftir hádegi á laugardög-
um.
A. P. Johannsson, sími 71 177
V. J. Eylands, sími 29 017.
Bergthor E. Johnson sími 87 987
G. L. Johannsson, sími 28 637
Ingibjörg Jónsson, Ste. 12 Acadia
Apts.
iiilliillliilliiill
Hörmulegur atburður
Nýlega vildi sá hörmulegi at-
burður til, að íslenzk stúlka 28
ára að aldri, Miss Sigríður Gísla-
son, var myrt í Chicago, og hefir
19 ára amerískur sjóliði, Daniel
P. Hurley að nafni verið sakaður
um morðið. Miss Gíslason var
gáfuð og vinsæl stúlka, er dval-
ið hafði um átta ára skeið í
Chicago og vann þar í lyfjabúð.
Foreldrar Sigríðar heitinnar eru
þau dugnaðar og sæmdarhjónin,
Mr. og Mrs. Ingvar Gíslason, sem
um langt skeið hafa búið rausn-
arbúi í Reykjavíkurbyggðinni
við Manitobavatn; auk foreldra
sinna lætur Sigríður heitin eftir
sig mörg systkini. Lík Sigríðar
var flutt hingað norður og jarð-
sungið í Reykjavíkurbygð á
þriðjudaginn, af séra Philip M.
Péturssyni.
Lögberg vottar sifjaliði hinnar
látnu stúlku innilega hluttekn-
ingu vegna þess þunga harms,
sem því hefir að höndum borið.
Laugardagsskólinn
Nú hefir svo skipast til, að
Laugardagsskóli Þjóðræknisfél-
agsins taki til starfa kl. 10 ár-
degis í Fyrstu lútersku kirkju,
laugardaginn þann 13. þ. m.
Munu margir fagna þessari ráð-
stöfun, því skóli þessi á djúp
tök í hugum þeirra manna og
kvenna, er unna íslenzkri tungu
og ant láta sér um viðhald henn-
ar sem mælts, lifandi máls; á
öðrum stað hér í blaðinu mun
fræðslumálanefnd Þjóðræknis-
félagsins skýra nánar frá kenslu-
kröftum og tilhögun kenslunnar.
Laugardagsskólinn hefir fag-
urt menningarhlutverk með
höndum, sem íslenzkir foreldrar
hér í borg ættu alment að meta
og sinna, barnanna vegna og
sjálfra sín vegna.
Aðsókn að skólanum ætti að
fara sívaxandi; fólk verður al-
mennt að láta sér skiljast, að við-
hald íslenzkunnar hér um slóðir
sé menningarleg nauðsyn, sem
auki á manngildi hinnar upp-
rennandí æsku vorrar.
Iiiiiiiiilinilliiiili
Orðsending til íslendinga
í St. George
Eins og kjósendum þessa kjör-
dæmis er þegar kunnugt, var eg
á framboðsfundi, höldnum að
Lundar þann 24. f. m., valinn til
þess að vera merkisberi sam-
vinnustjórnarinnar í St. George
kjördæmi við kosningar þær til
fylkisþings, sem fram fara þann
15. yfirstandandi mánaðar; eg er
borinn og barnfæddur í þessu
kjördæmi, og mér þykir vænt um
fólkið, sem þar býr.
Eg er sannfærður um, að við
njótum góðrar og framtakssamr-
ar stjórnar þar sem Garson
stjórnin er; mér er ant um að
hún verði endurkosin, og hún á
ósíciptan stuðning minn.
Eg get fullvissað kjósendur
mína um það, að nái eg kosningu
þann 15 þ. m., og taki sæti á
þingi, mun eg leitast við að vinna
af fremsta megni að hagsmun-
um allra stétta jafnt er innan
vébanda kjördæmisins dvelja, og
þá ekki hvað sízt þeirra heim-
komnu hermanna, er svo fræki-
lega hafa varið frelsi okkar og
fósturland.
Mér liggur það ríkt á huga,
að geta orðið ykkur og kjördæm-
inu í heild til nokkurrar nytsemd
ar, og með það fyrir augum leyfi
eg mér að leita fulltingis ykkar
og fylgis á kosningadaginn.
Eriksdale, 2. október 1945.
Virðingarfylzt,
Chris Halldórsson.
iiliiiiiiíiiiilil
Tilkynning frá rœðis-
mannsskrifstofunni
Hr. Grettir L. Johannson ræð-
ismaður íslands, hefir látið Lög-
bergi þær upplýsingar í té, að
úr þessu sé hægt að senda bréf
héðan úr landi flugleiðis um
Bretland til Islands; burðargjald
nemur 35 cents á hálfa únzu,
eða brot úr þeirri þyngd.
IIIIIIIIIIIIHIIIM
JAKOB MÖLLER
GERÐUR SENDIHERRA
Þau tíðindi spurðust í bænum
í gær og vöktu sérstaka athygli,
að ríkisstjórnin hefði skipað
Jakob Möller sendiherra í Kaup-
mannahöfn.
Jakob mun vitanlega láta af
þingmennsku. Varamaður hans
á þingi er Hallgrímur Bene-
diktsson stórkaupmaður.
Tíminn 21. ág.
Merkur lœknir kominn
heim
Dr. J. A. B. Hillsman
Þessi kunni og merki skurð-
læknir, er nú nýlega kominn
heim eftir 5 ára herþjónustu;
dvaldi hann í hálft þriðja ár á
hinum ýmsu vígstöðvum Norð-
urálfunnar, og gat sér í hvívetna
hinn bezta orðstír fyrir dugnað
sinn og tækni á sviði læknavís-
indanna.
Dr. Hillsman hefir nú opnað
lækningastofu að 308 Medical
Arts Building, en þar starfaði
tengdafaðir hans, hinn víðfrægi
skurðlæknir, Dr. B. J. Brandson;
kona Dr. Hillsman er Margaret,
áður Brandson; þau eiga tvö börn
Deane og Nönnu Margaret.
Dr. Hillsman á meðal íslend-
inga stóran hóp vina, sem hann
vonast eftir að fari stækkandi í
framtíðinni.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiini
Yfirlýsing um
fræðslumál
Stjórnarnefnd Þjóðræknisfél-
agsins lætur í ljósi ánægju sína
yfir þeim áhuga á íslenzku-
fræðslu í landi hér, sem fram
hefir komið í greinum um það
efni í íslenzku vikublöðunum
undanfarið.
Óþarft er að fjölyrða um
það, hvert grundvallaratriði ís-
lenzkukennsla barna og unglinga
er í allri þjóðræknisviðleitni
vorri, enda mun félagið leggja
alt kapp á að efla þá hlið starf-
seminnar með því að hlynna sem
mest að starfi laugardagsskóla
félagsins og deilda þess í ís-
lenzku, jafnframt og það heldur
áfram samvinnu við Icelandic
Canadian Club um íslenzku nám-
skeið fyrir eldri nemendur.
Með tilliti til umræðna um
stofnun kennaraembættis í ís-
lenzkri tungu og bókmentum við
Manitoba-háskóla, leyfir nefndin
sér að draga athygli að því, að
Þjóðræknisfélagið hafði þetta
mikilvæga mál árum saman á
stefnuskrá sinni. þó það hafi ver-
ið í annara höndum hin síðari
árin. En þar sem félagið telur
sér viðkomandi öll þau mál, er
varða viðhald íslenzkra menn-
ingarverðmæta í landi hér, og
sérstaklega umrætt mál, þar sem
í raun og veru er um að ræða
beint framhald af íslenzku-
kennslu þess, tjáir nefndin sig
fúsa til samvinnu um það má.
við aðra hlutaðeigendur og er
reiðubúin að leggja það fyrir
næsta Þjóðræknisþing til frek-
ari fyrirgreiðslu.
í umboði stjórnarnefndar Þjóð
ræknisfélagsins.
H. E. Johnson,
nefndarskrifari.
Kosningar í Danmörku
í október
Vilhelm Buhl, forsætisráðherra
Dana, flutti ræðu um stjórnmála-
ástandið í Danmörku á flokks-
þingi danska Alþýðuflokksins í
dag.
Buhl sagði, að í þessi stríðslok
væri ekkert landamæraspursmál
uppi í Danmörku, — Danir ósk-
uðu þess ekki að fá þau héruð
Suður-Slésvíkur, sein væru bygð
Þjóðverjum, inn fyrir landamæri
sín.
Forsætisráðherrann sagði, að
landvarnir Danmerkur myndu
verða teknar til rækilegrar at-
hugunar með það fyrir augum
að koma í veg fyrir, að nýr 9.
apríl geti skollið yfir þjóðina.
: sambandi við þetta gat for-
sætisráðherrann þess, að
14.400 manns hefðu nú verið
teknir fastir í Danmörku fyrir
óþjóðlega framkomu á hernáms
árunum.
Buhl boðaði almennar þing-
kosningar í Danmörku í lok okt-
óbermánaðar í haust og myndi
íosningarréttaraldurinn að lík-
indum verða lækkaður niður í
21. ár. Taldi forsætisráðherrann
líklegt, að landsþingið yrði með
öllu afnumið.
Engu vildi forsætisráðherr-
ann spá um það, hvort kom-
andi stjórn í Danmörku yrði
samsteypustjórn eða hrein jafn-
aðarmannastjórn, en lét þá von
í ljósi, að hún yrði hið síðar
nefnda.
Alþbl. 23. ág.
Mr. og Mrs. Sigvaldi Nordal
frá Selkirk, voru stödd í borg-
inni í gær.
Verkföllin magnast
Undanfarna daga hafa verk-
föll í Canada og Bandaríkjunum
svo margfaldast, að til raun-
verulegra vandræða horfir; eins
og nú standa sakir, er áafetlað að
tala verkfallsmanna í Canada
nemi nítján þúsundum, en í
Bandaríkjunum nokkuð á þriðja
hundrað þúsund; í Canada eru
það einkum þeir menn, sem
vinna í kolanámum og bilaverk-
smiðjum, sem nú sitja auðum
höndum.
IIIIIIIIIIUIIIIIIIiiH
Hij5 eldra kvenfélag Fyrsta lút.
safnaðar, er nú í óða önn að und-
irbúa hina árlegu þakkargerð^r-
samkomu, sem haldin verður í
kirkjunni á mánudagskvöldið þ.
8. okt., n. k.; verður venju seim-
kvæmt hið bezta til samkomu
þessarar vandað; eru slíkar sam-
komur jafnan skemtilegar og
fjölsóttar.
•
Mrs. G. Grímsson frá Van-
couver. var nýverið stödd hér í
borginni; kom hún hingað úr
heimsókn til Fargo, N. D.
•
Mr. Einar Haralds málarameist
ari frá Vncouver, er staddur í
borginni um þessar mundir.
•
Mr. Walter Samson fyrrum
lögregluþjónn, er nýlega kominn
til borgarinnar vestan frá Van-
couver til framtíðardvalar ásamt
fjölskyldu sinni.
•
Mr. Jón J. Johnson frá Vogar,
var staddur í borginni í fyrri
viku ásamt frú sinni.
KÁRI TRYGGVASON:
Horfin Yrsa Danadrottning
Harmur er í höllu
Helga konungs.
— Drúpa lögur og láð —
Horfin er hin unga
Yrsa drottning,
’ — alt er örlögum háð. —
Hvílir einn
í útiskemmu
mæringur bleikur á brá.
Daprir eru dögglings
draumar og þungir.
— Sár er saknaðarþrá.
Sér hann í anda
saxneska hjarðmey
ganga um grænklæddan skóg.
er hann sem stafkarl
ókunnur leyndist.
— Blærinn í bjarkviði hló.
Bjart var um blómskóg,
er þau bundu tryggðir.
— Freyja ástarvef óf.
Dagaði í Danmörk,
er drottning unga
gylfi í hásæti hóf.
Harmur er í hjarta
Helga konungs.
— Drjúpa dimmbrýn ský.
Hvílir nú hin unga
Yrsa drotting
fjandmanns faðmi í.
Skjálfa stormar
við skemmu þiljur.
— Dimmt er um Danaláð. —
Sigurglöð fagnar
Saxa drottning. —
Köld eru kvenna ráð.