Lögberg - 04.10.1945, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. OKTÓBER, 1945
a
ÁtiLGAHÁL
rVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
The Manitoba Health
Plan
Eftir Andreu Johnson
III.
1 síðasta kafla voru útskýrðar
þær ráðstafanir, sem fyrirhug-
að er að innleiða í Manitoba til
þess að fyrirbyggja sjúkdóma og
varna útbreiðslu þeirra. Nú vil
eg leitast við að útskýra þá hlið
málsins, sem lýtur að lækning-
um og hjúkrun.
I fylkinu eru fjórir allfull-
komnir spítalar: Winnipeg, St.
Boniface, Brandon og Dauphin;
þeir yrðu miðstöðvar fyrir 30
smærri sjúkrahús út um sveitir,
(The Community Health Centr-
es). Þessi smærri sjúkrahús hafa
frá sex til tólf rúm og munu
verða þannig í sveit sett að
almenningur geti hæglega náð til
þeirra. Þangað geta konur í um-
hverfinu farið til að fæða börn
sín; þangað er farið með fólk,
sem verður fyrir slysum og
þarna getur læknirinn fram-
kvæmt lækninga aðgerðir.
Eg vil nú leitast við að lýsa
eipu af þessum fyrirhuguðu smá-
sjúkrahúsum. Fyrst er komið inn
í móttökuherbergi, þar er hjúkr-
unarkona til staðar til þess að
taka á móti sjúklingum. Þar
næst er stofa læknisins, á bjart-
asta stað og útbúin með öllum
þægindum; inn af henni er lítið
herbergi, þar sem sjúklingurinn
er skoðaður; þetta herbergi er
þannig útbúið að læknirinn geti
framkvæmt smá uppskurði. Þar
verður að vera X-ray vél til stað-
ar og herbergi þar sem hægt er
að framkalla myndirnar. Þótt
ætlast sé til að aðeins smávægi-
legir uppskurðir séu framkvæmd
ir þarna, þá geta komið fyrir þau
tilfelli, að framkvæma verður
stærri uppskurði í hasti, ef t. d.
brautjr eru ófærar, verður því
að vera fullkomin útbúnaður við
hendina svo þetta sé hægt.
Þar næst er fæðingarstofan.
Að fæðingunni afstaðinni er móð
urin flutt inn í eitt af tveggja
rúma herbergjunum, en barnið
inn í barnaherbergið. Þar eru
sex lítil rúm fyrir nýfæddu
börnin. Verður alt gert, sem hægt
er, til þess að hlynna sem bezt
að móðurinni og marninu með-
an þau eru á sjúkrahúsinu. Áður
en þau fara heim, er þeim báð-
um veitt fullkomin læknisskoð-
un og skýrslur varðandi fæðing-
una eru geymdar á staðnum.
Á neðstu hæð eða kjallarahæð-
inni er borðstofa, eldhús, þvotta-
hús og upphitimartæki. Þar eru
einnig íbúðir fyrir starfsfólk
sjúkrahússins.
Talið er að kostnaður við stofn
un smásjúkrahúss (Community
Health Centre) eins og því er
hér hefir verið lýst, nemi í kring-
um $25.000.00. Ætlast er til að
þær fjórar sveitir, sem samein-
ast hafa í Health Unit, eins og
þeim er skýrt var frá í II. grein,
beri þennan kostnað. Byggja má
smásjúkrahús (Health Centre)
þar sem ekki hefur verið stofn-
að Health Unit. Samþykkji
heilsufarsráðherrans verður að
fást áður en lagt er út í að
byggja. Ætlast er til að þessi
sjúkrahús verði sem fullkomn-
ust og að þau verði öll eins.
Samkvæmt lögum fylkisins er
hægt að hrinda þessum málum
í framkvæmd ef þrír fimtu skatt
greiðenda eru því fylgjandi.
Stjórnin hefir boðist til að lána
fé, með mjög vægum skilmálum,
til þess að stofna sjúkrahús. Leit-
ast verður við að endurbæta þau
sjúkrahús, sem þegar hafa ver-
ið byggð, og fullkomna þau
þannig að þau geti komið að
fullum notum sem Health Cen-
tres.
Nú sem stendur, eru aðeins
4 Health Centres starfrækt í
Manitoba. Það fyrsta var stofn-
að í Dauphin, sem tilraun, og
hefir reynslan sannað að slík
smásjúkrahús eru nauðsynleg og
í raun og veru ómissandi. Hin
þrjú eru í St. James, St. Vital og
Brandon. Fyrirhugað er að
byggja mörg slík Health Centres
í nálægri framtíð, en alt tekur
tíma. Mesti örðugleikinn í þessu
sambandi er sá að fá hæft starfs-
fólk fyrir sjúkrahúsin. Alt starfs
fólkið verður að fá sérstaka upp-
fræðslu viðvíkjandi starfinu. Á
þessum síðustu árum hefir verið
svo mikil lækna og hjúkrunar-
kvenna ekla að ekki hefir enn
verið hægt að byrja á kennsl-
unni en reynt verður að bæta úr
því eins fljótt og mögulegt er.
Ef þið hafið áhuga fyrir því
að bæta heilsufarið og tryggja
heilbrigði í ykkar fjölskvldu og
þjóðarinnar, með því að stofna
Health Unit og ef þið hafið á-
huga fyrir því að þið og sam-
sveitungar ykkar fái notið þeirra
hlunninda er Health Centres
veita, ættuð þið að sýna þann
áhuga í verkinu.
Fyrsta sporið í þá átt er það að
kjósa nefnd og senda hana á
sveitarráðsfund til þess að leggja
þetta mál fyrir sveitarráðið. Sé
það andvígt málinu, gætuð þið
farið í kring með bænaskrá. Ef
10 af hverjum 100 sveitarbúa
lýsa yfir fylgi sínu við málefnið
með því að skrifa undir bæna-
skrána, getið þið krafist þes* að
sveitarráðið leiti samvinnu við
nærliggjandi sveitir til þess að
hrinda málinu í framkvæmd.
Fjórar sveítir verða að sam-
einast um málið, til þess að kostn
aðurinn verði ekki of mikill. Því
fleira fólk sem er í hverju um-
dæmi því minni verður kostn-
aðurinn fyrir hvern einstakling.
Ef þið æskið upplýsinga um
þetta mál, skuluð þið skrifa Miss
Margaret Nix, Director of Health
Education, 212 Sherbrook St.,
Winnipeg og mun hún fúslega
láta ykkur þær í té. Ef þið kall-
ið til fundar, til þess að ræða
þessi mál, mun hún koma á fund-
inn og útskýra þau fyrir ykkur
ef þið æskið þess, og eg ráðlegg
þá öllum, sem geta komið því
við, að sækja fundinn, því Miss
Nix er framúrskarandi greinar-
góð og skemtileg á ræðupalli. Við
erum lánsöm að eiga slíkan skör-
ung og hæfileika konu í okkar
hóp til þess að leiðbeina okkur
í umbótaviðleitni okkar í heilsu-
farsmálum í Manitoba.
í hverju bygðarlagi og hverri
sveit eru starfandi margskonar
félög, ættu sem flest þessara fél-
aga að taka heilbrigðismálin upp
á stefnuskrá sína, því það eru
mál, sem allir ættu að vinna að
í sameiningu. í meir en fimm ár
fórnuðu synir okkar og dætur
öllu sínu til þess að vernda frelsi
okkar. Nú er Jaetta unga fólk óð-
um að koma til baka. Hvernig
gætum við betur látið í ljósi
þakklæti okkar til þess, heldur
en með því að byggja upp varn-
ir gegn sjúkdómum og sorgum?
Og væri ekki tilhlýðilegt að
sjúkrahúsin (Health Centres)
væru byggð sem minnisvarðar í
minningu um þau ungmenni, sem
ekki koma til baka? Þau hafa
fórnað lífinu til þess að tryggja
frelsi okkar og frið í framtíðinni.
Guð blessi minningu þeirra
allra.
Alt, sem er þess virði að eign-
ast er þess virði að vinna fyrir
því; þegar okkur skilst að með
því að vinna saman getum við
yfirbugað alla erfiðleika, þá get-
uni við framkvæmt stórvirki. Við-
skulum því vinna af alhug og í
sameiningu að öllum þeim mál-
um sem eru þjóðfélagi okkar til
sóma og uppbyggingar.
(Eg þakka Mrs. Johnson fyrir
þrjár ágætar greinar um heil-
brigðismálin, hefir hún góðfús-
lega lofast til að senda smágrein-
ar af og til, er eg viss um að
þær munu vel þegnar af lesend-
um kvennadálks Lögbergs).
I. J.
Nýja sálmabókin
komin út
Nú um langt skeið hefir verið
von á nýrri sálmabók. Munu vera
sex ár síðan skipuð var nefnd
manna til þess að hefja undir-
búning að þessari nýju sálma-
bókarútgáfu. Voru upphaflega
þrír menn í nefndinni — herra
biskupinn, Sigurgeir Sigurðsson,
séra Hermann Hjartarson og
séra Jakob Jónsson. En síðar
voru kvaddir til samstarfs Jón
Magnússon skáld og Páll ísólfs-
son, er skyldi leiðbeina nefnd-
inni um það, er laut að sálma-
lögum. Mun meginstarfi nefnd-
arinnar hafa verið lokið og
sálmabókin nýja fullmótuð, er
Jón Magnússon féll frá fyrri
hluta árs 1944.
Alls .eru 687 sálmar í bókinni,
og er því sálmafjöldinn svipaður
og í gömlu sálmabókinni. En
talsverðar breytingar hafa verið
gerðar á efni hennar — gamlir
sálmar, sem þótt hafa miður vel
ortir eða falla mönnum nú orð-
ið ekki lengur í geð, hafa ver-
ií felldir niður og inn teknir
í staðinn nýir sálmar, bæði eftir
látin höfuðskáld þjóðarinnar
eins og Hallgrím Pétursson og
Matthías Jochumsson, og ýms
hinna yngri skálda. Eru þessar
breytingar yfirleitt til mikilla
bóta. Þá hefir líka verið tekin
upp sú nýbreytni að prenta nöfn
höfundanna undir sjálfa sálm-
ana, og er það miklu viðkunn-
anlegra heldur en að láta þeirra
aðeins getið í skýringum eða
efnisyfirliti annars staðar í bók-
inni. Séu sálmarnir þýddir, er
bæði getið hins erlenda höfund-
ar og þýðanda. 1 þessari nýju
sálmabók sjást nöfn skálda eins
og Einars Benediktssonar, Bólu-
Hjálmars, Einars H. Kvaran,
Gríms Thomsens, Jónasar Hall-
grímssonar, Bjarna Thoraren-
sens, Sveinbjarnar Egilssonar,
Davíðs Stefánssonar, Stefáns
frá Hvítadal, Guðmundar Guð-
mundssonar og margra fleiri
hinna ástsælustu Ijóðskálda ís-
lendinga.
Alls munu vera nálega 150
nýir sálmar í bókinni.
Hingað til hefir það viljað við
brenna við val sálma í sálma-
bækur okkar, að hinar fegurstu
ljóðperlur, þrungnar tilbeiðslu
og kærleika, yrðu að víkja fyrir
andlitlu stagli, þar sem meira
voru þræddar götur hefðbund-
I ins orðalags. Og enn getur verið
vafamál, hvort nógu djarfmann-
lega hefir verið breytt til í þessu
efni við sálmavalið, þótt lofs-
verð breyting hafi átt sér stað.
Framvegis verður að gera þær
kröfur, að ekki þyki sæma, að
í sálmabókum okkar séu aðrir
sálmar en þeir, sem eiga lífs-
mátt skáldlegrar fegurðar.
Þá má geta þess, hinni nýju
sálmabók til hróss, að þar er
á höfð sú sjálfsagða skipan, að
sálmarnir eru prentaðir eins og
önnur Fjóð, hv^r hending fyrir
sig, en ekki í belg og byðu, eins
og löngum hefir verið gert í
sálmabókum, en er hvimleitt.
Þessi nýja sálmabók verður
vafalaust fljótt tekin í notkun
í kirkjum landsins, en hins veg-
ar er ekki ráðgert að hún verði
lögtekin til fulls íyrr en eftir
fimm ár. Eiga þau að vera eins
konar reynslutími, svo að mönn-
um veitist ráðrúm til þess að
kynnast henni til hlítar og koma
fram með þá gagnrýni, er hún
kann að sæta, áður en notkun
hennar verður fyrirskipuð.
Gamla sálmabókin er orðin
um sextíu ára gömul, og því að
vonum allúrelt, enda nýlega
gefinn út sérstakur viðbætir til
þess að bæta úr ágöllum hennar.
Útgáfan er kostuð af Prest-
ekknasjóði Islands í samvinnu
við ísafoldarprentsmiðju. Bókin
er alls 766 blaðsíður og kostar
20.00 krónur í skinnbandi.
Tíminn, 28. ág.
Björn Kristjánsson vrað
sjálf kjörinn
Framboðsfrestur til þingkosn-
inga í Norður-Þingeyjarsýslu
rann út 17. þ. m., og hafði þá
ekki borizt framboð, nema frá
Birni Kristjánssyni kaupfélags-
stjóra, og verður hann því sjálf-
kjörinn. Þær spár reyndust því
réttar, að stjórnarliðinu myndi
ekki þykja fýsilegt, að sýna fylgi
sitt í sveitunum um þessar mund
ir og kysu því heldur að láta
frambjóðanda Framsóknarflokks
ins verða sjálfkjörinn, en freista
gæfunnar.
Stjórnarliðið reyndi að vísu að
færa sitthvað annað til afsök-
unar því, að það býður ekki
fram í Þingeyjarsýslu, t. d. að
fráfarandi þingmaður hafi orð-
ið að hætta vegna veikinda og
skammt sé til kosninga. Senni-
legt er þó ekki, að margir fáist
til að trúa því, að hjartagæzka
og tillitssemi stjórnarliðsins í
garð Framsóknarflokksins hafi
frekar ráðið þessari ákvörðun
þess en óttinn við fylgisleysi
þess í sveitunum.
Björn Kristjánsson kaupfé-
lagsstjóri, sem nú verður í ann-
að sinn þingmaður Norður-
Þingeyinga, er fæddur 22. febr.
1880. Hann hefir verið kaupfé-
lagsstjóri hjá Kaupfélagi Norð-
ur-Þingeyinga síðan 1916, og
gegnt fjölmörgum öðrum trún-
aðarstörfum heima í hraði.
Þingmaður Norður-Þingeyinga
var hann 1931—’34, en skorað-
ist þá undan endurkosningu.
Hann hefir átt sæti í stjórn S.
I. S. síðan 1937. í miðstjórn
Framsóknarflokksins hefir hann
átt sæti síðan 1933. Ýmsum
fleirum trúnaðarstörfum hefir
Björn gegnt utanhéraðs, m. a.
setið í síldarútvegsnefnd.
Starf Björns í þágu Norður-
Þingeyinga hefir bæði verið mik-
ið og gifturíkt, enda eru vin-
sældir hans miklar og traustar
í héraðinu. Hefir það að vonum
vakið mikla ánægju meðal Norð-
ur-Þingeyinga, að Björn skyldi
aftur gefa kost á sér til þing-
mennsku.
Tíminn, 22. ág.
Stafsetningarorðabók
með uppruna skýringum
orða
Halldór Halldórsson kennari í
íslenzku við Menntaskólann á
Akureyri vinnur nú að samningu
íslerizkrar Stafsetningaorðabók-
ar með upprunaskýringum orða.
Fyrir nokkrum dögum átti tíð-
indamaður Alþýðublaðsins við-
tal við Halldór, en hann hefur
nú í 9 ár stundað íslenzku
kennslu við Menntaskólann.
“Eg hef unnið að samningu
stafsetningarorðabókarinnar um
nokkurn tíma og eg mun ljúka
við hana í sumar. Geri eg ráð
fyrir að útgefandinn Þorsteinn
M. Jónsson muni koma henni
út í haust. — Bókin verður 16
arkir að stærð og er hún að því
leyti öðru vísi en aðrar staf-
setningarorðabækur, sem út
hafa verið gefnar að hverju orði
fylgja skýringar upprunna
þeirra. Er það gert til þess að
sýna hvaða ritháttur er réttur.
í þessu efni vitna eg aðallega
til skyldra mála norsku,
dönsku, sænsku, þýzku, ensku
og latínu. — Eg taldi rétt að
taka upp þessa nýbreytni og
ástæðan til þess er sú að eg á-
lít að stafsetningin festist bezt
í minni, ef menn vita ástæðuna
fyrir því hversvegna skai rita
orðin þannig. — Eg hef líka veitt
því athygli við kennslustörf
mín á undanförnum árum að
nemendur hafa mjög gaman af
upprunaskýringum orða, en til
þessa hefir engin handbær bók
til skýringar fræðslu verið til
— Eg hef fyrir nokkrum árum
áður ritað stafsetningaorðabók,
en hún var lítið kver. Þessi verð-
ur allmikið verk, eins og eg hef
áður skýrt frá.”
Halldór Halldórsson er einn
af fræðslu íslenzku fræðimönn-
um okkar og munu menn fagna
því að fá þessa nýju bók hans
Hún á að uppfvlla brýna þörf.
Gjafir til Betel í september 1945
Lutheran Ladies Aid, Gimli,
Man, í minningu um Mrs. Önnu
Jónasson, sem var ein af fyrstu
vistkonum á Betel, sem dó á
Betel 6. sept. 1945 $5.00. Dr.
Helgi P. Briem. gefið er hann
ásamt konu og dóttur heimsótti
Betel 29. sept. 1945 $10.00. Elfros
Icelandic Ladies Aid, in memory
of Mrs. J. Magnús Bjarnason
late of Elfros, Sask. $5.00. Mr.
og Mrs. George Freeman, Bot-
tineau, N. D. Five Doz Oranges.
Mr. og Mrs. Carl Goodman, Wpg.
$25.00.
Kærar þakkir fyrir þessar
gjafir.
J. J. Swanson, féhirðir,
308 Avenue Bldg, Wpg.
Kaupendur á íslandi
Þeir, sem eru eða vilja ger-
ast kaupendur Lögbergs á
lslandi snúi sér til hr. Bjöms
Guðmundssonar, Reynimel
52, Reykjavík. Hann er gjald-
keri x Grœnmetisverzlun
ríkisins.
C.C.F. ASAKAR
Samsteypustjórnina
HÉR ER FRAMKVÆMD CC.F.
I SASKACHEWAN
—hefir veitt iryggingu fyrir
alla bændur að meiru leyti
en þekkist í nokkru öðru
fylki.
—hefir þegar byrjað á stórri
vega- og landbúnaðar um-
bótaákvörðun.
—hefir hækkað gamalmenna-
styrkinn og útvegað öllum
sem þurfa, fulla læknis og
spítala hjálp ókeypis.
—v e i t i r endurgj aldslaust
lækningu við tæringu,
krabba, bilun á vitsmunum
og kynferðissjúkdómum.
—hefir stofnað samvinnufé-
lagadeild í stjórninnL
Við ásökum stjórnina um að vera að
draga borgara Manitobafylkis á tálar.
Lesið stefnuskrá Samsteypustjórnarinn-
ar og þar sjáið þið, að hún ætlar sér í
raun og veru gvarla að gera nokkuð.
Stefnuskrá hennar miðast mestmegnis
við það sem hún VONAR að sveitaráðin
og Sambandsstjórnin geri.
Hversvegna:
—hafa bændur enga verulega
tryggingu á löndum sínum?
—eru vegir og framræslur í niður-
níðslu um alt landið?
—er svo skammarlega farið með
gamalmennin?
—eru skólar í niðurníðslu og kenn-
urum svo illa borgað?
Stjórnin hcelir sér af að hafa nokkrar
miljónir dollara til góða. En til hvers
er að hafa peninga i sjóði ef að þeir eru
þar á kostnað fólksins?
C.C.F. vill nota alt ríkidæmi Manitoba yður til hagnaðar og fyrir fræðslu
barna yðar og heilsu þeirra til varnar.
Greiðið atkvæði með:
S. S. JOHNSON í Gimli kjördæmi
EIRÍK STEFÁNSSON í St. George kjördæmi
og í Winnipeg með:
S. J. FARMER GEORGE STAPLETON
M. A. GRAY L. C. STINSON
A. N. ROBERTSON DON SWAILES
GREIÐIÐ ATKVÆÐI MEÐC.C.F.