Lögberg - 04.10.1945, Page 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. OKTÓBER, 1945
7
Innsetning í Vancouver
Dr. Haraldur Sigmar
Fimtudagsmorguránn, 6. sept.,
var eg enn einu sinni kominn
til Vancouver. Þetta var níunda
ist fólki hans: konu og börnum.
Safnaðarkvenfélagið bar fram.
ríflegar góðgerðir og ágætar öll-
um sem þarna komu.
Mikill fögnuður ríkti við þessa
athöfn alla og góðar vonir um
drengilega og athafnaríka fram-
sókn. Söfnuðurinn er smár og
verkið stórt. Hann á enn enga
kirkju, en margir eru fslending-
arnir í Vancouver, og mikið má
framkvæma ef unt er að ná sam-
vinnu þeirra um þetta göfuga
starf.
Um leiðsögn Heilags anda í
starfinu bið eg af öllu hjarta.
Þetta er hin eina útfærsla Kirkju
félagsins um langan langan tíma.
Guð gefi þessu nýja landnámi
þess sigur.
Rúnólfur Marteinsson.
írskir einsetumenn
fara til Islands
Grikkinn Pytheas fann óbyggt
land norður við íshafið, sumarið
325 árum fyrir Krists burð, sem
hann nefndi Ultima Thule. Sumir
halda að þetta hafi verið ísland,
en aðrir halda að það hafi verið
norðurhluti Noregs.
Nú líða margar aldir og ekki
er þess getið í sögunni að nokk-
ur hafi farið til hinnar óbygðu
eyjar norður við íshafið, en þó
getur það verið að einhvern bát
hafi hrakið þangað á þessu tíma-
bili. Bátarnir, sem fólk ferðaðist
á í þá daga voru litlir og ef þeir
lentu í óveðri, þá hrakti þá
oft undan vindi og hafstraum-
um.
Á sjöundu öld er þess getið að
írskir einsetumenn hafi farið til
stórrar eyjar norður við íshaf-
ið. írar voru þá kristnir og munk
arnir voru svoleiðis gerðir að
þeir vildu sem minst vera með
öðrum mönnum; þeir vildu vera
þar sem þeir höfðu kyrð og næði
við bænahöld sín. Fyrir þessa á-
stæðu leituðu þeir að eyjum og
afskektum stöðum.
ísland var afskekt og þar var
því tilvalinn staður fyrir einsetu-
mennina, en mikið lögðu þeir á
sig til að komast þangað. Sagt
er að þeir hafi ferðast þangað í
skinnbátum, líkum þeim er Eski-
móar ferðast á. Milli Islands og
írlands eru í kringum sex hundr-
uð mílur, svo ekki hafa þetta
verið neinar skemtiferðir, ef að
þetta er satt.
Þegar Norðmenn komu til ís-
lands í kringum 850 þá voru þar
nokkrir kristnir menn. Norð-
menn kölluðu þá Papa. Þegar
Hinir norrænu víkingar komu til
landsins, þá var vitanlega allur
friður úti fyrir vesalings einsetu-
mennina og sízt af öllu vildu þeir
búa innan um heiðna menn. Þeir
höfðu sig á burtu það snarasta
en skildu eftir írskar bækur og
bjöllur og þess vegna vissu Norð-
menn að þeir voru írskir.
»
Orðasafn.
einsetumenn — hermits
óbyggt — uninhabited
saga — history
að hrekja — to drift
tímabil — period of time
óveður — storm
hafstraumur — ocean current
að hafa kyrð og næði — to be
undisturbed
bænahald — prayers.
ástæður — reason
afskektur — isolated
tilvalin — excellent, ideal
að leggja mikið á sig — to toil
hard
skemtiferð — pleasure trip
heiðinn — heathen
snar — fast, quick
bjöllur — bells
fer^in mín í þessa borg. Og það
var gaman að koma á þessar
gömlu slóðir. Vancouver hefir
átt sterkari ítök í huga mmum
því oftar sem eg hefi komið þang
að. Nú var viðdvölin þar stutt.
Aðeins frá fimtudegi til næsta
þriðjudags; en allir þeir dagar
voru yndislegir sólskinsdagar.
Þó bar sunnudagurinn, 9. sept.,
af öllum hinum: heiðríkt um
tinda fjallanna, og geislaflóð yf-
ir öllu útsýninu
Svo var,í Vancouver að koma
til samverkamanna, vina og
skyldfólks: sonar, tengdadóttur
og sonardóttur. Sonur minn,
Hermann að nafni, er læknir og
Wing Commander í flugliðinu.
Hjá þeim dvaldi eg meðan eg
var í Vancouver í þetta sinn.
Það var samt ekki þetta, sem
eg ætlaði að segja; það aðeins
fléttaðist saman við unun dags-
ins. Klukkan 7 að kvöldinu, þenn
an áminsta dag var danska kirkj-
an í Vancouver, þar sem ís-
lenzki söfnuðurinn heldur guðs-
þjónustur sínar, alskipuð fólki.
ISöngflokkqr safnaðarins undar
stjórn Mr. L. H. Thorlakssonar,
söngstjóra, og Mrs. H. N. Sumar
liðason, organista, söng fagran
kórsöng meðan fimm prestar
gengu inn kirkjugólí, upp að
•«ltari. Prestarnir voru: Dr. Har-
aldur 'Sigmar, sem átti að setja
í prestsembætti í bessum söfn-
uði, séra Rúnólfur Marteinsson
frá Winnipeg, sem stýrði inn-
setningar athöfninni, séra Harald
S. Sigmar, frá Seattle, Wash.,
sonulr Dr. Sigmars, séra Guð-
mundur P. Johnsor. frá Blaine,
Wash., og séra T. A. Hartig, prest
ur þess ensk-lúterska safnaðar í
Vancouver, sem tilheyrir Sam-
einuðu kirkjunni lútersku eins
og við. Séra Haraidur Sigmar
stýrði fyrra hluta guðsþjónust-
unnar og flutti ávarpsræðu til
safnaðarins. Séra Harting las
pistil og guðspjall. Séra Guð-
mundur P. Johnson las ritningar-
kafla, sérstaklega valinn fyrir
innsetninguna, Jóh. 10:1—1, og
flutti bæn. Skrifari safnaðarins,
Mr. Cornell T. Eyford, las upp
bréf, frá séra Valdimar J. Ey-
lands, varaforseta Kirkjufélags-
ins, með blessunaróskum til
prests og safnaðar, sömuleiðis
samskonar bréf frá öðrum manni.
Einnig las hann umsögn um köll-
un séra Haraldar til starfs í þess-
um söfnuði. Séra Rúnólfur fram-
kvæmdi innsetningarathöfnina
sjálfa. Svo tók hinn nýi prestur
safnaðarins við, ávarpaði söfnuð-
inn og stýrði guðsþjónustulok-
um.
Offur safnaðarins var ríflegt.
Á eftir offrinu, söng söngflokk-
urinn annan fagran kórsöng.
Þó þrjár ræður væru þarna
fluttar voru þær til samans, ekki
mikið lengri en vanaleg prédik-
un, lítið yfir hálfan klukkutíma.
I
Um 260 manns sóttu guðsþjón-
ustuna.
Að henni lokinni gengu menn
niður í neðri sal kirkkunnar. Þar
færði guðsþjónustufólkið nýja
prestinum heillaóskir og kynnt-
VIÐ GETUM EKKI
LAGT ARAR I BAT ...
að hálfnuðu verki
CANADA er kjörland vort. Úr öllum átt-
um heíir fólk streymt hingað og gert Can-
ada að heimkynni sínu.
Fólk af öllum hugsanlegum þjóðflokk-
um, hefir rent augum til Canada, sem
"lands vona og sæmdar," og það hefir síður
en svo orðið fyrir vonbrigðum; á þúsund
iungumála blæbrigðum hafa innflytjend-
ur hingað, dáð fegurð, frið og farsæld hins
nýja föðurlands.
Vér erum nú allir Canadamenn ... sumir
ungir . . . aðrir aldnir, og sem slíkir deil-
um vér örlögum við Canada.
Vér höfum unnið stríðið gegn Þýzka-
landi og Japan, en vér höfum enn þá mik-
ið verk að vinna . . . mikið og þý*6ingar-
mikið verk.
Vorar fyrstu skyldur liggja í því, að
tryggja hag hinna heimkomnu hermanna
vorra og kvenna. Þúsundir þeirra eru nú
að koma heim frá Evrópu, er getið hafa sér
frægðarorð í hinum hrikalega, nýafstaðna
hildarleik. Margir þarfnast læknishjálpar,
og aðrir þarfnast aðstoðar til þess að setja
sig á laggirnar í hinu borgaralega lífi.
Verið viðbúin kaupum
VÉR CANADAMENN bregðumst ekki
mönnum þeim og konum, er vor vegna tóku
þátt í herþjónustu; þetta fólk skal verða
aðnjótandi allrar þeirrar aðstoðar, sem
nauðsynleg er til þess að lifa hamingju-
sömu lífi; fyrir þetta verður að borga, ann-
aðhvori í sköttum eða með kaupum Sigur-
láns veðbréfa, — eða með hvorutveggja.
Það er ánægjulegra að kaupa Sigurláns-
veðbréf, en greiða skatta. Kaupið tvisvar
sinnum meira í þetta sinn, og feslið í minni,
að sömu sparnaðarákvæði og gillu um hin
sigurlánin, borga fyrir tvisvar sinnum fleiri
veðbréf á 12 mánuðum.
Sigurlánsbréf má kaupa með fernum
hætti:
1. Fyrir peninga út í hönd.
2. Með reglubundnum greiðslum á 12
mánuðum af kaupi yðar.
3. Gegn afborgunarskilmálum; með
þeim hætti getið þér borgað fyrir
fleiri Sigurlánsbréf jaín óðum og þér
fáið peninga handa á milli.
4. Með persónulegum samningi við
banka, Trust eða lánfélög.
Munið, að sérhver dollar, sem þér leggið
í Sigurlánsbréf verður endurgreiddur með
vöxtum í réttan gjalddaga. Leggið dollara
yðar í yðar eigið Canada.
SIGURLANS VEflBRÉFA
9-46
NATIONAL WAR FINANCE COMMITTEE
\
_