Lögberg - 06.12.1945, Side 3
LÖGBEKG, FIMTUDAGINN 6. DESEMBER, 1945
3
Óbrotgjarnt gler
Eftir Laurence N. Galton.
í framtíðinni mun glerið verða
notað sem byggingarefni í stór-
um stíl ásamt hertu tréni, al-
míni og öðrum léttum málmum.
Á síðustu árum hafa vísinda-
menn framleitt hvert kynjaefnið
af öðru.
Eitt slíkra kynjaefna er gler,
sem enginn kísill er í. Með rönt-
gengeislum hefir loks tekist að
komast til botns í því, hvað gler
er í raun og veru. Þetta harða,
brotgjarna efni er að mestu leyti
úr lofti. Um 95 hundraðshlutar
af rúmfangi þess er súrefni eða
ildi, en aðeins einn hundraðs-
hluti er kísill, sem hefir ekki
annað hlutverk en að binda súr-
efniseindirnar og þjappa þeim
saman í gler.
Það var þegar ljóst, að önnur
efni geta komið þar í staðinh fyr-
ir kísilinn. Nú eru Ijósgler í flug-
myndatækjum úr nýrri glerteg-
und, sem gerð er úr tungspati og
efni því, er tantalum nefnist.
Enn fremur hefir að mestu
leyti verið komið í veg fyrir hinn
gamla agnúa glersins, að það
endurkasti nokkru af ljósgeisl-
um í stað þess að hleypa þeim
öllum í gegn. Flúorsýrugufa er
látin verka á yfirborð glersins
og myndar hún örþunna. gegn-
sæa himnu úr flúorkalsíum á
því, sem hindrar því nær alveg
endurkast. Slíkt gler hleypir
því meira ljósi í gegnum sig eða
verður ljósnæmara en venjulegt
gler, og kemur það einkum að
góðu haldi í myndatækjum og
sjónaukum.
Með nákvæmum útreikningi
á efnasamsetningu glersins má
ýrnist láta það stöðva eða hleypa
í gegnum sig ákveðnum bylgju-
lengdum ljósgeislanna. Til dæm-
is eru ljóskúlur, sem notaðar
eru til þess að sótthreinsa loft-
ið í skurðarstofum í sjúkrahús-
um, gerðar úr gleri, sem hleypir
í gegnum sig sóttkveikjueyðandi
geislum. Önnur tegund glers
skilur hina ósýnilegu hitageisla
úr sólarljósinu, svo að sólskinið
lýsir aðeins, en vermir ekki
gegnum gluggann, þótt um há-
sumar sé.
Hleðslusteinar úr gleri eru
eitthvert bezta byggingarefni,
sem hægt er að hugsa sér. Bæði
kemst birta í gegnum þá og auk
þess eru í þeim speglandi fletir,
er beina ljósinu upp á við, svo
að það fellur á loftið og efri
hjuta veggjanna. Á þann hátt
nýtist dagsljósið betur og birtan
verður þægilegri en frá venju-
legum gluggum. Enn fremur er
svo um búið, að ekki sézt inn
um veggina, þótt birta falli í
gegnum þá. Þeir einangra gegn
öllum veðurbreytingum, og
bendir alt til þess, að þeir verði
mikið notaðir í íbúðarhús eftir
stríðið.
Gömlu gluggarúðurnar hafa
líka tekið breytingum. Þær eru
nú gerðar úr tvöföldu gleri með
algerlega þéttu og þurru loft-
rúmi á milli. Þessi breyting á að
geta sparað um 30% af upphit-
unarkostnaði á heimilunum.
Glervefnaður er sú nýjung,
sem mesta undrun og eftirtekt
hefir vakið. Úr bráðnu gleri eru
dregnir hárfínir þræðir og undn-
ir í hespur, sem síðan er spunn-
ið úr í venjulegum spunavélum
og ofin úr teppi, fataefni og alls
konar dúkar. Er glerþráður nú
þegar mjög notaður í glugga-
tjöld, dyratjöld, leiktjöld og enn
fremur sem einangrunarefni í
rafmagnstæki, flugvélar, herskip
o. þvl.
Síðast, en ekki sízt, er farið að
nota glerþráð í stað manilla-
hamps, sem nú er næsta torfeng-
inn, svo að kaðlar eru meira að
segja búnir tli úr gleri.
Ein tegund af nýju gleri virð-
ist eiga gamla og ævintýralega
sögu að baki. Þegar Tíberíus var
keisari í Rómaveldi, veitti hann
eitt sinn áheyrn glergerðar-
manni, er sýndi honum undra-
verða nýlundu. Glergerðarmað-
urinn tók glerílát úr vasa sín-
um og grýtti því af öllu afli á
marmaragólf hallarinnar. Glerið
brotnaði ekki. Þá tók hann ham-
ar og lamdi á það. En samt
brotnaði það ekki.
Keisarinn varð sem steini lost-
inn af undrun. Því næst spurði
hann glergerðarmanninn, hvort
hann væri eini maðurinn, sem
þekti aðferðina til að gera þetta
kynjagler. Hinn játaði því all-
hreykinn. “Ágætt,” sagði Tíber-
íus, og skipaði hann svo fyrir,
að glergerðarmaðurinn skyldi
umsvifalaust tekinn af lífi. —
“Því að hvers virði mundi alt
gull Rómaveldis, ef slíkt efni
væri á boðstólum.” — Óbrjótan-
legt gler mátti alls ekki verða
verzlunarvara.
Þetta gerðist árið 34 e. Kr. Nú
hafa amerískir vísindamenn gert
sams konar gler. Glerplötur eru
stæltar með því að hita þær
þangað til að þær eru komnar
að bráðnun. Þá eru þær skyndi-
lega kældar, svo að ytra borðið
herpist ákaft saman og þrýstir
geysilega á miðbik plötunnar.
Gler, sem þannig er meðhöndl-
að, fær mikið þanþol, og má
beygja það og mishita furðu
mikið, án þess að það springi.
Það má leggja slíka glerplötu á
ís og hella bráðnu blýi ofan á
hana, án þess að hún láti á sjá.
Venjulegt gler mundi splundr-
ast. Átta millimetra þykk gler-
plata þolir, að járnkúla, sem
vegur 1 kg. detti á hana úr 2
metra hæð. Rúða, sem er 1 ferh.-
metri að stærð og 18 mm. á þykt
og hvílir á stöplum til beggja
enda, þolir þriggja smálesta
þunga, án þess að brotna.
Þess konar gler er notað í
hurðir á bökunarofnum, svo að
hægt sé að sjá hvað bökuninni
líður, án þess að opna hurðina.
Það er líka notað í búðarhurðir
og leikhúshurðir.
Gler er líka notað í stað almíns
í útvarpstæki og hefur þar marga
kosti fram yfir málminn. Gler-
hillur hafa komið í stað hillna
úr stáíi eðJ^ré í eldhúsum, kæli-
skápum o. þh. Það er notað í
dansgólf, þakhellur, og glugga á
geðveikrahælum í stað járn-
rimla. Gormfjaðrir úr gleri hafa
sama styrkleika og málmfjaðrir,
en ryðga ekki.
Það hefir verið komist svo að
orði, að æfintýri Aladdíns kom-
ist varla í hálfkvisti við hin nýju
furðuverk, sem vísindi og tækni
hafa framleitt á síðustu árum.
Og þar eru samt engan veginn
öll kurl komin til grafar.
—Samvinnan.
Öháð blað hefur göngu
sína
í gæ hóf göngu sína hér í
hœnum nýtt fréttablað, Út-
sýn. Ábyrgðarmaður þess er
F. R. Valdemarsson, fyrv.
ritstjóri Alþýðublaðsins.
í ávarpsorði blaðsins til les-
endanna segir svo um tilgang
þess:
“Blaði þessu er ætlað að flytja
fréttir, innlendar og útlendar,
greinar um þjóðfélags- og menn-
ingarmál, svo sem bókmentir,
listir, tækni og vísindi. Ennfrem-
ur, þegar hún leyfir, framhalds-
sögu og stuttar smásögur og ann-
að til skemtilesturs og dægra-
styttingar. Þá hafa og verið
gerðar ráðstafanir til þess, að
blaðið gæti flutt meira af mynd-
um með efninu, þegar fram líða
stundir.
Stjórnmál mun blaðið ekki
láta afskiftalaus með öllu, en er
þar óháð öllum flokkum. Hefir
blaðið að því leyti sérstöðu meðal
þeirra blaða, sem nú koma út
hér, þeirra sem nokkuð láta
stjórnmál til sín taka.
Blaðið er að þessu leyti, og
ýmsu öðru, tilraun og hlýtur
reynslan að skera úr því, hvern-
ig lesendunum geðjast að slíkri
nýbreytni.”
I fyrsta blaðinu birtast grein-
ar um herverndarmálin, grein
um húsnæðismálin eftir Arnór
Sigurjónsson, Innlendar fréttir,
Erlendar fréttir, Vettvangur vik-
unnar, Nýjungar í tækni og vís-
indum, Bækur. — Frágangur
blaðsins er hinn snyrtilegasti.
í blaðinu er skýrt frá því, að
dr. Eiríkur Albertsson, Jóhann
Sæmundsson læknir, Jón Blön-
dal hagfræðingur, Klemens
Tryggvason hagfræðingur, Sig-
fús Halldórs frá Höfnum og fleiri
þektir menn muni skrifa í blað-
ið.
—Tíminn 16. okt.
DÁNARFREGN
Þann 23. júlí 1945 andaðist í
Cavalier, N.D., öldungurinn Gísli
Gíslason; hann var fæddur 27.
júlí 1850, á Þórsholti í Mýrdal í
Vestur-Skaftafellsýslu. Foreldr-
ar hans voru Gísli Einarsson og
JÖN EINARSSON
F. 15. ágúst 1871
D. 18. október, 1945
Þar sem torfan föl og fögur
fagnar sínum jurta-arð,
eftir sjötíu ár og fjögur
ertu kominn þann í garð.
Þegar mannlífsins lestaferð
hefir runnið skeið sitt til enda,
verður síðasti áfangastaðurinn
okkar flestra í garði hjá henni
Torfu. Annálar þjóðanna geta
þess hvergi, að hún hafi úthýst
þeim, sem hjá henni hafa leitað
skjóls og gistingar, hún þekkir
ætterni sitt og hveitikorn og veit
að það á þar lögfest óðalsheimili.
Og nú ert þú, kæri samtíðarbróð-
ir minn, einn af þeim, sem
straumur tímans hefir borið
þangað; góð verði þér og ástúð-
leg, gistingin þar í faðmi jarðar.
Jón Einarsson var fæddur 15.
ágúst 1871, í bænum Kollavík í
Þistilfirði, í Norður-Þingeyjar-
sýslu, foreldrar hans voru þau
hjónin Einar Eiríksson og Malin
Sigurðardóttir, alsystir Vigfúsar
prófasts á Sauðanesi á Langanesi
í sömu sýslu. Jón ólst upp hjá
foreldrum sínum í Kollavík og
Fjallalækjarseli í sömu sveit, til
tvítugs aldurs, vistaðist þá sem
bústjórnarmaður til frúarinnar
Sigríðar Guttormsson, sem þá
var orðin ekkja eftir áður nefnd-
an prófast. Árið 1894 fluttist
hann frá gamla íslandi til Nýja
íslands í Manitobafylki í Canada,
tók þar heimilisrétt í svo nefndri
Árnesbygð og nefndi heimili sitt
þar Búastaði.
Árið 1895 giftist hann heitmey
sinni, Sigríði Jónsdóttur Einars-
sonar frá Skarði 1 Þykkvabæ í
Rangárvallasýslu. Frá Búastöð-
um í Árnesbygð fluttust þau
Guðlaug Jónsdóttir, er áttu 1903 Red j)eer Point við bæ-
heima í Þórsholti í Mýrdal V:nn Winnipegosis í Manitoba.
Vestur-Skaftafellssýslu. Til Ame-'
ríku kom Gísli árið 1884 (þá
fulltíða maður) settist að í
Pembina, N.D., U.S.A., og vann
þar við smíði þar til heilsa og
sjón bilaði. í nærfelt 3 síðustu
árin var Gísli til heimilis hjá
Jóni og Björgu Hannesson í
Svoldar-bygð, N.D., er önnuðust
hann með alúð og umönnun.
Hann var jarðsunginn frá Picoes
Funeral Parlors í Cavalier, N.D.,
af Rev. W. L. T. Patterson, og
jarðaður í grafreit Péturssafn-
aðar í Svoldarbygð.
Vinur.
Kaupendur á íslandi
Þeir, sem eru eða vilja ger-
ast kaupendur Lögbergs á
Islandi snúi sér til hr. Björns
Guðmundssonar, Reynimel
52, Reykjavík. Hann er gjald-
keri í Grænmetisverzlun
ríkisins.
Business and Professional Cards
Mynd þessi er af húsi í Baggeridge á Englandi, þar sem
velferðarmál námumanna eru skipulögð, og tillögur gerð-
ar námuiðnaðinum til trausts og halds.
Heimili sitt þar nefndu þau
Brautarholt; þar bjuggu þau til
vorsins 1913; fluttust þá til bæj-
arins Winnipegosis. Þar í bæn-
um og á eignarjörð sinni þar í
nágrenninu bjuggu þau snotru
búi í allmörg ár; atvinna þeirra
var mest kvikfjárrækt. Þeim
búnaðist vel. Samstörf þeirra
voru bygð á kristilegu hugarfari
til orða og verka, enda voru þau
vel metin í nágrenni sínu, þau
eignuðust 5 börn, eitt þeirra dó
í fyrstu æsku. Þau, sem lifa eru
þessi: 1. Margrét, nú ekkja eftir
Bjarna Kristjánsson (Walters),
á 2 sonu; 2. Einar Malvin, giftur
Sigurborgu Þorvaldsdóttur; hún
ættuð úr Vopnafirði. Þau eiga
3 börn, búa í Winnipegosis. 3.
Sigurþór, giftur Vigdísi Stefáns-
dóttur, fóðurætt hennar úr
Skagafjarðarsýslu, þau hafa eign-
ast 6 börn, Sigurþór stundar
fiskveiði við Flin Flon. 4 Guðjón
Ólafur, tvígiftur, fyrri kona hans
var af enskum ættum, nú dáin,
þau eignuðust 2 sonu, seinni kona
hans heitir Edna, íslenzk að ætt-
um, þau eiga 1 son og eru búsett
í Flin Flon, hér í fylkinu Mani-
toba. Öll eru börn og barnabörn
Jóns og Sigríðar prýðilegt mynd-
arfólk, og yndi foreldra sinna.
Þegar fjör og starfskraftar
gömlu hjónanna fóru að hrörna,
hættu þau búskap og áttu eftir
það heimili hjá Margréti dóttur
sinni. Nokkur síðustu ár æfinn-
ar, var Jón þrotinn að heilsu-
fari og blindur
Nú lifa hann Sigríður kona
hans, háöldruð og blind, 4 börn
þeirra og 13 barnabörn.
Kæri reisubróðir, nú hafa önd-
vegissúlur feðra þinná vísað þér
til hinztu hvíldar hjá þeim í gröf,
verði þér grafarróin vær.
Manna endar œfiskeið
eftir bendingunni;
þig ei hendir nokkur neyð
náðir lendingunni.
F. Hjálmarsson.
DR. A. V. JOHNSON
Denttot
>•« SOMERSET BI.IX3
Thelephone 97 932
Home Telephone 202 SM
Talsími 95 826
Heimilis 53 893
Dr. K. J. Austmann
SérfrœOingur i augna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
704 McARTHUR BUILDING
Cor. Porage & Main
Stoíutími 4.30 — 6.30
Laug-ardögum 2 — 4
DR. ROBERT BLACK
SérfrnOtngur I Augna, Eyrna, nef
o* h&lesjúkdömum
416 Medic&l Arts Bullding,
Graham and Kennedy St
Skrifstofuslmi 9 3 851
Helmastml 42 164
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N.D
tslenzkur lyfsatt
Pdlk getur ' pantaO meCul ok
annaO meS pðsti.
Fljðt afgrelOsla
A. S. BARDAL
848 8HERBROOK 8T.
Melur llkkietur og annast ura 4t-
farlr. AÍÍúr atbnnaOur s4 bestl
Bnnfremur setur hann allskonar
mlnnlsvarOa ec legatelna.
Skrifstofu talslml 27 824
Helmllls talstml 2« 444
HALDOR HALDORSON
byggingameistari
23 Muslc and Art Bulldin*
Broadway and Hargrave
Winnipeg, Canada
Phone 93 055
A e
INSURE your property wlth
HOME SECURITIES LTD.
4(8 MAIN ST.
Leo E. Johnson A. I. I. A. M*r.
Phones Bus. 23 377 Rea. 39 433
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON 8f CO.
Chartared Accovntantt
1101 McARTHUR BUILDING
^INNIPEG, CANADA
Phone 49 489
Radio Servlce Speciallsts
ELECTRONIO
LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equlpment System.
1M OSBORNE 8T., WINNIPEO
Q. F. Jonasson, Pree. A Man. Dlr.
Keystone Fisheriee
Limited
404 Scott Block
Slmi 85 217
Wholatala DUtributort af
rHESH AND TRÖZEN FIBH
MANITOBA FISHERIES
WINNlPttO, maS.
T. Btrcovitch. fratnhveti.
Versla I heildsttlu mstt ntjan efl
frnsinn flsk.
808 OWENA ST.
Skrlfstofuelml 16 811
Heimaslml 55 4<t
Hhagborg
FUEL CO.
H
Dial 21 331 kaFí}> 21 331
Argue Brothers Ltd.
Real Estate — Financlal —
and Insurance
Lombard Bulldlng, Wlnnipe*
J. DAVIDSON, Rep.
Phone 97 291
DR. A. BLONDAL
Phytician A Burgeon
4*2 MEDICAL ART8 BLDO
Slmi 93 996
Helmlll: 108 Chataway
Slml 61 028
Dr. S. J. Johanneeson
215 RUBT STREHT
(Beint sutlur af Bhnnlngr)
Tslelml 30 877
Vltttalstlml 8—8 e. h
Dr. E. JOHNSON
804 Eveline St. Selkirk
Offlce hrs. 2.30—8 P.M
Phone offiee 26. Ree. 88«
OfTice Ptione
94 762
Rei. PhoM
72 409
Dr. L. A. Sigurdeon
116 MEDICAL ARTS BLDO.
V
Offlce Houre: 4 p.m.—8 R.sa.
and by appolntment
DRS. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlaknar
•
401 TORONTO GKN. TRCMT8
BUILDINQ -
Oor Portage Ave. o* 8œ)tk 8V
PHONE 96 952 WINNIPEQ
Dr. J. A. Hillsman
SURGEON
308 Medical Arts Bldg.
PHONE 97 329
Dr. Charles R. Oke
Tannlæknir
For Appointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
283 PORTAGE AVE.
Winnipeg, Man.
L«git«lnir
sem skara framúr
Orvais bl&grFtl
og Manltoba marmarl
BkrifiO eftir verOshri
GILLIS QUARRIES. LTD.
1400 Spruce St. Slml II 191
Wlnnlpeg. Man.
J. J. SWANSON A OO.
LIMITED
808 AVENUE fiLDG., WM.
•
Fastelgnasalar. Lelgja htts. Ot-
vega penlngal&n o* eldedbyrg*.
blfreiCaAhyrgC, o. s. fry.
Phone 97 688
ANDREWS. ANDRBWi
THORVALDSON AJfD
EGGERTSON
UigfræOlngar
109 Bank 6? ííovg ðootla Mdl
Portage og Gfcpry ■«.
Slmi 88 Ml
Blóm stundvislega tigreUi
THIROSERY
LTD.
StofnaC 1101
4 27 Portage Ave. Slml 97 489
Wlnnlpeg.
GUNDRY PYMRRE LTO.
Brltteh Quallty — Fieh N
80 VICTORIA STRHHT
Phone 98 211
Vlnnipe*
Hanaoer, T. R. THORYA
Tour patronage wUl
• pprecUited
CANADIAN FI8H
PRODUCERS, LTD.
/ R. Page, Sfanaging
Wfeolesale Distrlbutore e«
Freeh and Frosen FWh.
U1 Chamben 8L
Office Phone 2« 121
Phone 71917.