Lögberg - 10.01.1946, Page 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 10. JANÚAR, 1946
0r borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kveníélags Fyrsta lúterska
safnaðar 1 Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Avenue, Mrs. F.
Thordarson, 996 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
*
Deildin “Isafold” heldur al-
mennan (ársfund) í Parish Hall
21. janúar n.k. kl. 8.30 e. h. Auk
kosninga embættismanna verða
mörg mikilsvarðandi mál tekin
til umræðu.
Að endingu verður stutt
skemtiskrá.
Allir velkomnir!
+
Fréttst hefir frá Cranberry
Lake, B.C., að nýlega er látinn
Jón Sigurðsson, 73 ára. Hann
kom ungur maður til þessa lands
úr Borgarfirði, sonur Sigurðar
hreppstjóra Sigurðssonar á
Kárastöðum, en bróðursonur
Kristjáns og Daníels Sigurðsson-
ar, frumbyggja í Grunnavatns-
nýlendu. Eftirlifandi kona er
Guðrún systir Kjartans og Þuru
Goodman, og þeirra systkina, er
ólst upp í Winnipeg.
*
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
fund á miðvikudagskvöldið þann
16. þ. m. á heimili Mr. og Mrs.
E. Breckman, 646 Beverley St.,
kl. 8.
+
Mr. Magnús Anderson frá Ár-
borg, dvaldi í borginni nokkra
daga í vikunni sem leið; kom
hann hingað til fundar við Njál
son sinn, er þá var að koma
heim eftir því nær fimm ára
þjónustu í canadiska flughern-
um.
M essuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands,
prestur.
Guðsþjónustur:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12:15.
*
Messur þrjá síðustu sunnudagana
í janúar hjá ísl. lút. söfnuðinum
í Vancouver:
13. .janúar—Guðsþjónusta helg-
. uð unga fólkinu, fer fram á
ensku kl. 7.30 e. h.
20. janúar — Guðsþjónusta á
ensku helguð minningu prest-
anna í kirkjufélagi voru, sem
nú eru látnir, séra N. S Thor-
lakssons sérstaklega minsit þá á
afmæli hans. Offur í Minning-
arsjóð presta.
27. janúar—Messa í Pt. Roberts
kl. 11 f. h. íslenzk messa í
Vancouver kl. 7.30 e. h. Allir
boðnir og velkomnir.
Messurnar fara fram í dönsku
kirkjunni, Corner E. 19th Ave.
og Burns St.
+
Næstkomandi sunnudag verð-
ur messað í Lundar kirkju kl.
2.30 e. h.
B. T. Sigurdsson.
+
+
Síðastliðinn föstudag varð
bráðkvaddur við vinnu sína hjá
Jewel Stores Limited hér í borg,
Jón Magnússon, 1856 William
Ave., 51 árs að aldri, hinn ágæt-
asti maður, er eigi vildi vita
vamm sitt í neinu; hann fluttist
af Islandi með foreldrum sínum
um aldamótin, og átti um hríð
heima í Álftavatns-nýlendunni;
hann lætur eftir sig ekkju, Ár-
nýju, dóttur Guðlaugs Sigurðs-
sonar að Lundar og tvö börn,
Margréti og Jón. Útför þessa
mæta manns fór fram frá Fyrstu
lútersku kirkju á mánudaginn,
að viðstöddu fjölmenni. Séra
Valdimar J. Eylands jarðsöng.
+
Mr. og Mrs. Gordon Josie frá
Ottawa, dvelja í borginni um
þessar mundir; er Mrs. Josie
Svanhvít lögfræðingur, dóttir
þeirra Dr. Sigurður Júl. Jó-
hannessonar og frú Jóhannesson.
+
Stúkan Skuld hbldur sinn
næsta fund á venjulegum stað
og tíma á mánudaginn kemur.
+
Mr. Gunnbjörn Stefánsson
skáld frá Salmon Arm, B.C.
dvaldi hér ^ borginni um hátíð-
irnar; hann lagði af stað heim-
leiðis seinni part fyrri viku. Mr.
Stefánsson er frænd- og vin-
margur í þessari borg, og var þar
af leiðandi mörgum það mikið
fagnaðarefni, að eiga þess kost,
að taka í hönd honum á ný. Mr.
Stefánsson bað Lögberg að
flytja hinum mörgu vinum sín-
um hér um slóðir alúðarþakkir
fyrir ástúðlegar viðtökur.
*
Icelandic Canadian Club News
The Icelandic Canadian Club
will hold it’s annual meeting
Monday, Jan. 14th, at 8.15 in the
lower auditorium of the First
Federated Church. Reports will
be given by officers and com-
cittees. Election of officers will
take place. All members are
urged to make every effort to be
on hand.
An interesting movie will be
shown.—Refreshments. — Every-
body welcome.
M. Halldorson, Sec’y. j
Árborg - Riverton prestakall —
13. jan. — Riverton, íslenzk
messa kl. 2 e. h.
B. A. Bjarnason.
+
Lúterska kirkjan í Selkirk —
Sunnudaginn 13. janúar:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Islenzk messa kl. 7 síðd.
Ársfundur safnaðarins þriðju-
daginn 15. jan. kl. 8 síðd.
S. Ólafsson.
+
Gimli prestakall —
13. jan. — að Gimli, ensk messa
kl. 7 e. h.
Skúli Sigurgeirsson.
Ungmenni, sem hafa í
hyggju, að leggja stund á
nám við verzlunarskóla í
Winnipeg, ættu að leita
upplýsinga á skrifstofu
Lögbergs; þeim getur orðið
að því hreint ekki svo lítill
hagur.
Það fólk, sem hefir aflað
sér verzlunarmentunar, á
margfalt hægra með að fá
atvinnu, en hitt, sem slíkra
hlunninda fer á mis. Spyrj-
ist fyrir um kjör á skrif-
stofu Lögbergs nú þegar;
það getur margborgað sig.
The Swan Manufacturing
Company
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
281 James St. Phone 22 641
ÞURHREINSUNAR
KOSTABOÐ
Karlmannaföt,
tvær ogþrjár flíkur
Karlm. buxur
og kjólar
Karlmanna hattar
59c
69c
39c
Kjörkaup á allri annari
þurhreinsun.
CASH and CARRY
PERTH’S
888 SARGENT AVE.
ÍSLENDINGAR!
ELLIHEIMILISFUNDUR!
Almennur fundur verður hald-
inn í Swedish Community Hall,
1320 E. Hastings St., Vancouver,
B.C., fimtudagskveldið 17. jan.
Fundurinn byrjar kl. 8. Er þessi
fundur kallaður til að ræða elli-
heimilismálið og til að kjósa
nefnd fyrir þetta ár sem nú er
að byrja.
Það er áríðandi að sem flestir
sæki þennan fund, því hér er
brýn þörf á að stofna heimili
fyrir eldra fólkið.
Magnús Elíasson.
skrifari nefndarinnar.
+
Stúkurnar Hekla og Skuld
héldu mannfagnað mikinn í
Goodtemplarahúsinu á mánu-
dagskvöldið var; fór þar fram
margt til skemtana, svo sem
ræðuhöld, söngvar og hljóðfæra-
sláttur; að lokinni skemtiskrá
voru veitingar framreiÖdar.
Samkomustjóri var Mr. Jón
Halldórsson.
+
The Icelandic Canadian Club
will hold a “Tally-Ho” party at
Silver Heights Riding Academy,
Deer Lodge on Saturday, Jan.
12th. Cost will bé $1.00 per per-
son. All those attending are
asked to meet in Waiting Room
at the end of Portage Ave. car
line at 8.15 p,m. sharp.
After “Tally-Ho” the remain-
der of evening will he spent in
dancing. Refreshments will be
served. — For further informa-
tion phone George ÁSgeirsson,
71 182 og Miss Steinunn Bjarna-
son, 61 284.
Kanínuungi tvöfaldar þyngd
sína á 7 dögum, en það tekur
barn 180 daga að tvöfalda þyngd
sína.
ÞEIR VITRU SÖGÐU:
TÓMAS GUÐMUNDSSON:
“Þegar tíminn hefir gengið af
einhverju listformi dauðu, getur
það upp frá því ekki svarað öðr-
um tilgangi en þeim, sem beinist
gegn því sjálfu.”
FRANK L. McVEY: “Háskóli
er staður; hann er andi; hann
táknar lærdómsmenn, bókasafn;
hann er uppspretta fræðslu um
fegurð þá, er býr í bókmentum
og listum. Hann verndar erfða-
kenningarnar, virðir nýjungar og
sannprófar gildi þeirra. Hann
trúir á sannleikann, andmælir
staðleysum og leiðbeinir mönn-
um með skynsemd, en ekki með
ofbeldi.”
A. LUNT: “Eg þarfnast einskis
eins og næringar fyrir sjálfs-
traust mitt og sjálfsvirðingu.”
ALEXANDER WOOLCOTT:
“Alt, sem mig langar verulega
til, er annaðhvort ósiðlegt, ólög-
legt eða fitandi.”
WENDELL L. WILLKIE:
“Fjarlægir og afskekktir staðir
eru ekki framar til á jörðunni.
... 1 framtíðinni verðum við
því að miða hugsun okkar við
heiminn allan.”
HJÖRVARÐUR ÁRNASON:
“Margar eru skilgreningarnar á
því, hvað sé listaverk, en sú al-
gengasta og sú, sem jafnframt
er mest tæmandi, er þessi: Lista-
verk er verk manns, sem lýsir á
skiljanlegan hátt einhverjum
þeim sannleika, sem hann hefir
orðið áskynja á lífsleiðinni.”
OVID: “Menn girnast meira
annað en það, sem þeir eiga
sjálfir.”
—(Samtíðin).
Utsala Islenzku blaðanna
Umboðsmaður okkar á íslandi er Bjöm Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík. Hann tekur á móti pöntunum á
blöðunum og greiðslum fyrir þau.
LÖGBERG og HEIMSKRINGLA
“You Can Whip Our Cream, But You Can’t
Beat Our Milk”
PHONE 201 101
MCDERN IAII1EI
_____________ L I M I T E' D
MILK - CREAM - BUTTER - ICE CREAM
Saga
VESTUR ÍSLENDINGA
Þriðja bindið af Sögu íslendinga í Vestur-
heimi eftir Þ. Þ. Þorsteinsson, er nú nýlega
komið út, mikil bók og merk, 407 blaðsíður að
stærð, og í fallegu bandi. Þetta er bók, sem
verðskuldar það að komast inn á hvert einasta
og eitt íslenzkt heimili í þessari álfu; bókin
kostar póstfrítt $5.00. Bókin fæst á skrifstof-
um Lögbergs og Heimskringlu, og einnig í
Björnson’s Book Store, 702 Sargent Ave., og
hjá J. J. Swanson, 308 Avenue Building, Win-
nipeg; svo og hjá útsölumönnum í hinum ýmsu
bygðarlögum.
FRÁ VANCOUVER
Victory Bond
100.00
Eg sendi hér með lista, sem eg
bið þig að gjöra svo vel að birta
við fyrsta tækifæri, og hafðu
góða þökk fyrir.
Gefið til að stofna íslenzkt
elliheimili í Vancouver. B.C.:
Mr. G. J. Oleson, Glenboro,
Man., í heiðraðri minningu fjög-
urra íslendinga, er létu líf sitt
fyrir frið og frelsi þessa heims:
F.O. Turner Frederickson, Theo-
dor Jónsson, Barney ísleifsson
og Paul Pennycook, allir frá
Glenboro, $25.00; Mr. og Mrs.
K. Einarsson, Osland, B.C.,
í minningu Jóhannesar Lárus-
sonar, d. 29. júlí 1945, í Vancou-
ver, B.C., $10.00; Mr. L. H. Thor-
lakson, $23.00; Mr. og' Mrs. B.
Eyjólfsson, $2.00; Raymond Eyj-
ólfsson, $1.00; Hilmar Eyjólfs-
son, $1.00. Með þessu samanlögðu
ernúísjóði $672.97
Samtals ........ $772.97
Votta eg samúð og innilegt
þakklæti,
S. Eymundsson féh.
1070 W. Pender St.
Vancouver, B.C.
Minniát
BETEL
í ©rfðaskrám yðar
THE IDEAL GIFT
ICELAND#S THOUSAND YEARS
A series of popular lectures on the History
and Literature of Iceland.
172 pages — 24 illustrations Price $1.50
Send Orders to:
MRS. H. F. DANIELSON,
869 Garfield St., Winnipeg, Canada.
All Gift Orders Sent Promptly, With Gift Cards
No. 15 —VETERANS' LAND ACT
With men returning in ever increasing numbers from overseas
everyone should become familiar with details of the Veterans’
Land Act.
The Winnipeg District Office of the Veterans’ Land Act gives
the following outline of the various benefits of this Act.
The Act covers:
(a) full time farming—for those qualified to carry on
the particular type of farming contemplated;
(b) small holding — for those whose main source of
income is other than from the operation of the
holding;
(c) small holding coupled with commercial fishing—for
those whose normal occupation is in the commercial
fishing industry and who have the requisite experi-
ence; and
(d) first mortgage loans on farms already owned by
veterans.
It should be clearly understood that (b) does not mean urban
housing.
This space contribuf ed by
THE DREWRYS LIMITED
MD138
VERZLUNARMENNTUN
Hin mikla nýsköpun, sem viðreisnarstarfið út-
heimtk á vettvangi iðju og framtaks, krefst hinnar
fullkomnustu sérmenntunar sem völ er á; slíka mennt-
un veita verzkmarskólamir.
Það getur orðið unga fólki til verulegra hags-
muna, að spyrjast fyrir hjá oss, munnlega eða bréf-
lega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla
borgarinnar.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
TORONTO AND SARGENT, WINNIPEQ
The Fuel Situation
♦
Owing to shortage of miners, sirikes, etc., certain brands
of fuel are in short supply. We may not always be able
to give you just the kind you want, but we have excellent
brands in slock such as Zenilh Coke, Berwind and Glen
Roger Briquettes made from Pocohontas and Anthracite
coal.
We suggest you order your requirements in advance.
McCurdy Supply Co. Ltd.
BUILDERS' SUPPLIES AND COAL
Phones 23 811 —23 812 1034 Arlington St.
r