Lögberg - 18.04.1946, Page 4

Lögberg - 18.04.1946, Page 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 18. APRIL, 1946 i‘--------ilogberg------------------- Gefið út hvern fimtudagr af THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 f 'argent Ave., Winnipeg, Maniitoba ! Utanáskril't ritstjórans: i EDITOR LÖGBERG iU5 Sargent Ave., Winnipeg, Man. R tstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The -‘Eögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Averue, Winnipeg, Manitoba, Canada PHONE 21 804 Ein alheimsátjórn ? ► Hinn skarpskygni stjórnmálamaður Sumner Welles, fyrrum aðstoðar utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, ritar ný- lega í safnritið Readers’ Digest íhyglis- verða grein, er lýtur að hugmyndinni um eina allsherjar, aljijóðastjórn, það. sem með slíku mæli, og hvers konar annmörkum sú hugmynd yrði háð ef til framkvæmda kæmi í virkri athöfn; ótt- ast hann einkum að samkvæmt slíkir skipulagi yrði réttur smáþjóðanna fyr- ir borð borinn, og væri þá auðsjáanlega ver farið en heima setið. “Sú tilgáta,” segir Mr. Welles, “að framleiðslu leynd- ardómur atómsprengjunnar, sé að öllu leyti í höndum þriggja ríkja, hefir um- lukt veröldina í eiturþoku grunsemdar, ótta og móðursýki; þetta hefir styrkt einangrunarpostulana í þeirri trú, að úr því, sem komið er, sé ekki um annað að ræða en að herða á gamla kapp- hlaupinu varðandi aukinn og margauk- inn vígbúnað. en hugsjónamennirnir standa á öndinni, og þykjast eigi önnur úrræði vænlegri sjá, en kistuleggja sam- tök sameinuðu þjóðanna og byrja upp á nýjan leik. — í tímaritinu Atlantic Monthly, veitir prófessor Albert Einstein lesendum sín- um alvöruþrungnar leiðbeiningar um það, hvernig farið skuli með lausn þessa mikilvæga vandamáls; mér þykir fyrir því, að vera neyddur til að verða honum ósammála um eitt og annað, er hann leggur áherzlu á; en hjá þessu get eg ekki komist vegna þess, að eg ber kvíð- boga fyrir því, að ýmsum verði auðveld- lega talin trú um, að hann sé jafnvígur á viðhorf alþjóðamála og þau raunvís- indi, sem hann er víðfrægur fyrir. Grundvallaratriðin í grein prófessor Einsteins lúta í rauninni að því, að um- sjá atómsprengjunnar verði falin al- heimsstjórn, er Bandaríkin, rússnesku ráðstjórnarríkin og Bretland hið Mikla standi að; þetta eru einu ríkin. sem ráða yfir verulegum herstyrk, og vill pró- fessorinn, að þau heiti því, að hafa hann ávalt til taks heimsstjórnarhugmynd- inni til fulltingis; en með því að fram að þessu sé atómleyndardómurinn ein- ungis í höndum Bandaríkjanna og Breta, sé sjálfsagt og óhjákvæmilegt, að . þessi tvö stórveldi bjóði Rússum fulla samvinnu varðandi skrásetningu grund- vallarlaga fyrir hina væntanlegu al- heimsstjórn; að þessu fullkomnuðu skyldi svo smáþjóðunum boðin þátttaka. Prófessor EJinstéin er augljóslega þeirrar skoðunar, að lausn þessa máls, sé í raun og veru ofur einfalt atriði, en þar stöndum við á öndverðum meið; hugmynd hans er, eins og sakir standa, að mínum skilningi lítt framkvæman- leg; skoðun hans á málinu virðist bygð á þeim forsendum, að ekki þurfi að efa að rússnesku ráðstjórnarríkin væri fús á að játast undir alheimsstjórn með full- veldi yfir öllum hernaðaraðgerðum, ef þau sjálf ættu frumkvæði að grundvall- arlögunum. Eg get hugsað mér að Rúss- ar myndu ekkert hafa á móti því að taka þátt í alheimsstjórn, er gerði ráð fyrir heimssamtökum, sem grundvölluð yrðu einvörðungu á þeirra eigin stjórnarfari með Moskvu og höfuðborg; en á hinn bóginn tel eg næsta ólíklegt, að þeir myndu telja sig fúsa til slíkrar samvinnu á nokkrum öðrum grundvelli. Engin alheimsstjórn, samsett á líkan hátt og prófessor Einstein hugsar sér, yrði starfhæf nema því aðeins, að hún hefði full urnráð yfir herstyrk hlutað- eigandi ríkja, og að sérhver aðilji væri fús á að lúta reglubundnu aJþjóða eftir- liti varðandi svo að segja hvern þuml- ung lands, starfrækslu hverrar verk- smiðju og efnarannsóknarstofu; þetta eftirlit myndi einnig ná til innanríkis- mála, utanríkismála og fjármála; sér- hver krafa þessarar tegundar, myndi kippa með öllu fótunum undan núver- andi stjórnarfarskerfi rússnesku ráð- stjórnarríkjanna. Og það sýnist liggja nokkurnveginn í augum uppi, að Rússar myndu eigi sætta sig við það, að utanað- komandi öfl fengi umráð yfir stefnu þeirra í utanríkismálum og fjármálum; á hinn bóginn er það jafnmikil fjar- stæða, að ætlast til þess að Bretland eða Bandaríkin myndu gerast þátttakendur í nokkurri þeirri alþjóðasamkundu, er takmarkaði eða næmi úr gildi einstákl- ingsfrelsið, er þessar þjóðir, hvor um sig, hafa öldum saman verndað sem helgan dóm. Prófessor Eíinstein heldur því fram, að sú tegund alheimsstjórnar, er hann dreymir um, þurfi að hafa íhlutunarvald þar sem svo hagi til, að minnihlutinn þröngvi kosti meirihlutans og skapi með því þær aðstæður, er haft geti stríð í för með sér; hann viðurkennir að í Rúss- landi sé það minnihlutinn, sem með völdin fari, en staðhæfir jafnframt að ef hann hefði verið fæddur í Rússlandi, myndi hann hafa samið sig að þeim að- stæðum, sem þar væru fyrir hendi. Skilji eg þessa nýju stjórnmálakenn- ingu prófessor Einsteins rétt, ætti minnihlutastjórn að skoðast ranglát og óverjandi, annarsstaðar en í rússnesku ráðstjórnarríkjunum; hinum drottnandi þjóðum yrði veittur íhlutunarréttur að vild, að Rússlandi undanskildu. Mér skilst, að hér liggi fyrir eitt það mesta alvörumál, sem mannkynið um þessar mundir horfist í augu við. Eru nokkrar líkur á að enskumælandi þjóðir sætti sig við nokkur þau samtök, er veiti erlendum öflum rétt til að segja þeim fyrir um stjórnháttu, eða hve þrengja megi að einstaklingsfrelsinu, eða hvort ósamhljóða raddir meiri- og minnihluta flokka skuli kæfðar niður? fhlutunar- vald það, sem prófessor ECinstein mælir með, myndi fá “hinum þremur stóru” algert einræðisvald í hendur, og gera allan fjölda fólks að auðvirðilegum þræl- um; frjáls veröld verður aldrei grund- völluð á slíkri lífsskoðun, og með það fyrir augum, að útiloka slíkan óvina- fagnað, háðum vér hið nýlega afstaðna stríð. Ef á hinn bóginn að valdið til íhlut- unar varðandi málabætur, er frelsi ein- staklingsins væri þröngvað, lægi ein- vörðungu í höndum hins væntanlega þjóðabandalags í heild, þar sem smá- þjóðirnar væru í miklum meirihluta, en ekki einvörðungu í höndum öryggisráðs- ins, yrði hættan miklu minni, og trygg- ari von um réttláta málamiðlun ágrein- ingsefna. Þeir, sem að undirbúningi sáttmála hinna sameinuðu þjóða stóðu, skildu brátt við hve ramman var reip að draga; hleypidómar skutu upp trjónu ásamt síngirni, sem stjórnaðist af ofurmetn- aði; þarna voru erindrekar fimmtíu þjóða saman komnir, og í jafn f jölmenn- um hópi gat naumast hjá því farið, að nokkurrar tortryggni yrði vart; þó lán- aðist að samræma þannig skoðanir, að grundvöllur að alþjóðasamtökum var lagður heimsfriðnum til öryggis. Engin stjórn, og fáir einstaklingar, telja sáttmála sameinuðu þjóðanna full- nægjandi, þótt megin þorri fólks ali þá óbifandi sánnfæringu í brjósti, að svo framarlega sem lánast megi að afstýra ófriði meðan endurskipunartímabilið stendur yfir, megi svo endurbæta á- minstar grundvallarreglur eða sátt- mála, að þjóðasamtökin nálgist al- þjóðastjórn, er grundvölluð sé á sönn- um lýðræðisreglum, Langt fram yfir forskrift prófessor Elinsteins, tek eg þær hagkvæmu bend- ingar, er Senator Hatch nýlega gaf, en þær eru á þessa leið: Við verðum að hagnýta okkur þau tæki, sem við höfum við hendi, endur- bæta þau svo, sem framast má verða á þroskans braut að því takmarki, þar sem alþjóðaforráð með lögum taka við af ofbeldi og hnefarétti. — Ef mannanna börn hafna hinum ungu samtökum sameinuðu þjóðanna, horfast þau í augu við vonlausan glund- roða, og víst er um það, að slíkur glund- roði myndi fæða af sér flest annað, en bjartsýni og trúnaðartraust.”----- Það er ekki nema rúm vika síðan, að þjóðabandalagið frá 1919 var form- lega borið til moldar; við vöggu þess söfnuðust hópfylkingar miljónanna, er sárþreyttar voru orðnar á því laumu- spili pólitískra undirhyggjumanna, er jafnan leiddi til styrjalda og stríðs; þessar þjökuðu miljónir manna og kvenna þráðu frið, og því máttu þær ekki njóta hans? Útför gamla Þjóða- bandalagsins var fámenn; svikararnir, svo sem Benito Mussolini, höfðu þegar troðið helveg, og hlotið enn óvirðulegri dauðdaga. Draumur Wilsons forseta um varan- legan frið á jörð, hafði vegna sviksemi og ofurmetnaðs borðalagðra stiga- manna, fokið út í veður og vind; yfir innrásina í umkomulaust Blámanna- land var lögð blessun og hið sama varð efst á baugi varðandi hermdarverkin á Spáni. Svo fór um sjóferð þá. — Og nú er nýtt þjóðabandalag í upp- siglingu, sem margar vonir eru tengdar við; vonandi er að þær vonir láti sér ekki til skammar verða. Sérálætt Jólarit Eftir prófessor Richard Beck Jólavaka. Safnrit ár íslenzkum bókmentum. Jóhannes úr Kötl- um gaf út. Þórhallur Bjarnason, Reykjavík, 1945. ^ Þessi bók er einstæð í sinni röð, fyrsta safnrit á íslenzku, sem helgað er ein- göngu jólahátíðinni. Hér er því um að ræða jólabók í sönnustu og fegurstu merkingu orðsins. í snjóllum formála gerir Jóhannes skáld úr Kötlum, er safnað hefir efninu í þessa sérstæðu og innihaldsríku bók, svohljóðandi grein fyrir tilorðningu hennar: “Þegar hæst hafa látið í blöðum og útvarpi auglýsingarnar um svokallaðar “jóíabækur,” — bækur, sem raunar hafa ekki komið nær jólunum, að efni til, en kötturinn sjöstjörnunni, — þá hefur mér stundum dottið í hug, að gaman væri að gefa þjóðinni einhverntíma kost á að eignast reglulega jólabók, bók, sem hefði inni að halda hið helzta af því, sem ort hefir verið og skráð á íslandi 1 sam- bandi við þessa mestu og ástsælustu hátíð ársins. Vissi eg, að úr miklu var að moða um þetta efni í fornum bók- m^nntum vorum og nýjum, þar á meðal sumu því fegursta, sem vér eigum, og þóttist því sjá, að safnrit þeirrar teg- undar gæti orðið alþýðu manna kær- komnari jólagestur en flestar aðrar ó- viðkomandi bækur. í þeirri trú er svo bók þessi orðin til.” Safnandi skýrir síðan nokkuru nánar frá efni bókarinnar, en það er að formi til í'sex meginköflum: Kvæði og sálm- ar frá ýmsum tímum, úr katólskum og lúterskum sið; frásagnir, er gerast um jólin eða snerta þau, úr íslenzkum forn- sögum, íslendingasögum og þáttum og Biskupasögum; þjóðsögur, sem á ein- hvern hátt eru tengdar jólahátíðinni, en þar var af svo miklu að taka, að valið hefir verið bundið við safn Jóns Árna- sonar; smásögur frá síðari tímum, flest- ar eftir núlifandi höfunda; prédikanir frá ýmsum tímum; og loks ritgerðir og minningar um jólahátíðina. Viðvíkjandi efnisskipun hefir safn- andi valið þann kostinn, og vafalaust heppilega í alþýðubók, að f jölbrytni þess nyti sín sem bezt, látið “litbrigði teg- unda og tíða skiptast sem mest á,” eins og hann orðar það. En um það, hve vítt svið íslenzkra bókmennta að fornu og nýju þetta rit nær yfir, sem og um marg- breytni þess að innihaldi, fá menn góða hugmynd af þessum orðum úr niður- lagi formálans : “Nærri mun láta, að eitt hundrað gerendur íslenzkrar bókmenntasögu, allt frá Lofti ríka til Steins Steinars, allt frá höfundi Fóstbræðrasögu til Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, syngi hér, hver með sínu nefi, í jólakór kynslóðanna, og sýndist mér ráð að blanda röddum allra þessara kunnáttumanna sem mest sam- an og sanna þar með sem bezt eining- una í fjölvísi íslenzkrar orðlistar frá fyrstu tíð. Er sú von mín, að allir les- endur, jafnt trúaðir sem vantrúaðir, jafnt djúphyggjumenn sem formdýrk- endur, geti fundið hér eitthvað við sitt hæfi.” Eigi mun annað verða sagt með sanni, en að þeim tilgangi hafi verið náð að verulegu leyti, þegar litið er á hið marg- þætta og fjölbreytta efni bókarinnar. Hún er mikið rit, hátt á 4. hundrað blaðs. -í stóru broti. Einkunnarorð hennar eru þessar fögru og djúpúðgu ljóðlínur úr kvæði Einars* Benediktssonar “Landið helga,” og hvert heimaalið íslandsbarn getur eigi tekið undir þær af klökku og heitu hjarta? — Þótt allir knerir berist fram á bárum til brots við eina og sömu klettaströnd, ein minning fylgir mér frá yngstu árum, —þar er sem bliki á höfn við friðuð lönd. Eg man. Ein bæn var lesin lágt í tárum við ljós, sem blakti gegnum vetrarhúmið. Og svo var strokið lokki af léttri hönd, sem litla kertið slökkti og signdi rúmið. Þvínæst fylgir jólaguðspjallið úr Lúk- asar guðspjalli. Þá hefst aðalefni bók- arinnar með “Maríuvísum” Lofts ríka, en síðan skiptist á bundið mál og óbund- ið frá fornöld til samtíðarinnar, og eiga íslenzk höfuðskáld og andlegir leiðtogar að fornu og nýju þar sinn skerf, þó eigi verði það nánar rakið. Lýkur meginmáli ritsins með þessari kunnu og kæru “Jólavísu” Jónasar Hallgrímssonar: Jólum mínum uni eg enn, — og þótt stolið hafi hæstum guði heimskir menn, hef eg til þess rökin tvenn, að á sælum sanni er enginn vafi. Flestir munu verða sammála um það, að efnisvalið í þessa bók hafi vel tekist og að hér sé að finna á einum stað margt hið bezta og fegursta, sem ritað hefir verið um jólin á íslenzka tungu. Fram hjá því skerinu verður þó aldrei siglt, þegar um slíkt úrval er að ræða, að eigi verði skiptar skoðanir um- það, hvað taka beri með og hverju sleppa, enda slær safnandi varnagla við því í for- málanum. Eg hefði t.d. kosið, að vestur- íslenzk skáld og rithöfundar hefðu átt hér fleiri fulltrúa heldur en Stephan G. Stephansson, þó að þeir séu vitanlega meir en vel sæmdir af honum hvar sem er á skáldaþingi þjóðar vorrar. Hvað sem því líður, þá er rit þetta eigi aðeins ágætt og yfirgripsmikið safn þess, er um jólin hefir verið ritað á íslenzku, heldur einnig merkilegt úrval íslenzkra bókmennta í víðtækara skilningi, því að hér koma fram á sjónarsviðið flestir fremstu ritsnillingar þjóðarinnar, eins og þegar er gefið í skyn, og það, sem þeir hafa um jólin ort og ritað, er, að minsta kosti hvað snertir marga þeirra, meðal hins fegursta, sem eftir þá liggur. Eins og vera bar, fara einnig saman í þessari bók prýðilegur frágangur og fagurt innihald. Hún er prentuð á á- gætan pappír, vönduð að prófarkalestri, prýdd mörgum myndum af málverkum og teikningum eftir kunna íslenzka listamenn, sem eykur henni gildi og augnayndi. Eiga þeir safnandinn, Jóhannes úr Kötlum, og útgefandinn, Þórhallur Bjarnarson prentari, því miklar þakkir skilið fyrir þessa Jólavöku sína, sem er framúrskarandi vekjandi og ánægjuleg ur lestur, eigi aðeins um jólin, heldur einnig hvenær sem er á árinu, því að hinn algildi boðskapur jólanna er hvorki bundinn við stað né stund; það sanna jólasálmarnir og kvæðin í þessu safni ekki sízt. Á hér við eftirfarandi erindi, úr hinu frumlega og djúphugsaða jóla kvæði (“Afmælisvísur 25. desember”) Jakobs Thorarensen, um Meistarann mikla: í mannraunum sannleikans mest er það vert, að mennirnir skynji: hvað hann hefði gert. Fátt skýrir svo liti, — það skín ekki viti, við skerjum er vari jafn bert. UM SÉRA ARNGRÍM BJARNASON Séra Arngrímur Bjarnason, er síðast var prest- ur á Áiftamýri, var heldur tornæmur í æsku. Hann var 18 ár við skólanám, og eftir 8 ár fór hann fyrst að skilja hneigingar í latínu, og gat allvel numið hana að síðustu. Hann erfði mikl- ar eignir eftir *föður sinn, enda hafði hann helzt í hyggju að fara að búa er hann var útskrifaður. Þá fór hann að skygnast eftir konuefni, því að ekki var gott að, byrja búskap með ráðskonu. Þá bjó á Melum í Hrútafirði Jón sýslumaður Jóns- son, vel fjáður maður. Ein barna hans var Guð- laug, er síðar átti Ásgeir alþingismaður Einars- son. Þessi kostur leizt Arngrími einna álitleg- astuf; hann hafði aldrei séð stúlkuna, en spurn hefir hann haft af henni. Hann skrifaði henni því bónorðsbréf, er svo hljóðar:- “Innilega bið eg yður, elskaða góða jómfrú, að þér ekki álítið yður ofvaxið að taka tilmæl- um mínum um giftumál okkar, lofi guð, á næst- komandi vori. Af elsku til yðar vil eg sem hentugast er haga högum mínum; tvo þriðju partana af Leirá byggi eg góðum og vænum ábúendum, en einn þriðja partinn, eða 20 hndr., ætla eg sjálfum mér til ábúðar. Yður elska eg mikið af góðri afspurn og óska strax að mega sækja yður norður að vori til að ráða fyrir mínu litla búi, því skuldabú vil eg ekki hafa. Þrjátíu spesíur nægja mér að láni með rentum hjá föð- ur yðar. Lifið vel, yðar sannur og einlægur elskari. A. Bjarnason.”

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.