Lögberg


Lögberg - 14.11.1946, Qupperneq 3

Lögberg - 14.11.1946, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. NÓVEMBER, 1946 3 Samvinnumenn hafa eignast stærsta skip íslenska fiotans Skipið á að halda uppi beinum flutningum milli dreifbýlishafnanna og útlanda Skip það, sem Samiband ísl. sarrwinnufélaga keypti í Italíu og blotið hefir nafnið Hvassafell, kom til Akureyrar um klukkan 7 síðastliðinn föstudagsmorgun. Blaðamiönnum var boðið í flugvéí norður til þess að skoða skipið og sitja hóf sambandsstjórnarinnar að Hótel KEA i tilefni af komu þess. Hvassafell' er fyrsta skipið, sem Samibandið eignast, og mlá segja, að myndarlega sé af stað rarið^þar sem skip þetta er stærsta og vandaðasta skip íslenzka flotans. Ákveðið hefir verið, að heimahöfn Hvassafells verði Ak- ureyri, og verður skipið notað til þess að flytja vörur beina leið frá útlöndum og til hafna utan Reykjavíkur, einkum á Norður- landi. Hvassafell fer næstu daga hlaðið síld til Finnlands og bem- ur þaðan aftur með timburfarm til samvinnufélaganna. Strax og bomið var til Akur- eyrar var gestum boðið um borð í hið nýja skip, sem þá var lagst að bryggju. Sýndi skipstjóri, Gísli Eyland, skipið sem er mjög vandað að öllum frágangi. Er betur séð fyrir þörfum skipverja en áður hefir sézt í íslenzkum skipum. Yfirbygging skipsins er öll að aftan, og þilfarsrúm því d einu lagi, og notast við það betur en ella. Tveir- klefar eru á skipinu ■handa farþegum, og er útbúnaður þeirra eins og hið bezta, sem þekkist á farþegaskipum. Er hver klefi fyrir tvo farþega. Þá er einnig sérstakur klefi fyrir hafnsögumann. Gerð skipsins. Skipið er byggt af Ansaldo Ltd. — skipasmlíðastöð í Genúa, samkvæmt samningi dagsettum 2. apríl 1946, gerðum af Gunnari Larsen f. h. Sambands íslenzkra samvinnufélaga. — Skipið er 1665 brúttó smálestir að stærð, 1208 smálestir nettó, burðarmagn 2,300 smálestir. Lengd 83.6 metrar; breidd 12.3 m. Meðal djúprista 17y2 fet ‘full- hlaðið. Það er því langstærsta skipið sem Islendingar eiga nú. Aðalaflvél skipsins er Ansaldo- fiat dieselvél, 1200 til 2000 hesta- landi formaður S. I. S., sem setti hófið og báuð gesti velkomna, Vilhjálmur Þór forstjóri S. I. S., sem rakti aðdragandi þess, að öfl, að auki er það búið öllum nauðsynlegum hjálparvélum. kyntum gufukatli fyrir vindur Skipið er 'einnig útbúið með olíu- skipsins, stýrisvél, til upphitun- ar og fleira. Veizla að Hótel KEA. Stjórn Sambandsins og fram- kvæmdarstjóri höfðu boð inni að Hótel KEA fyrir ýmsa forystu- menn samvinnuhreyfingarinnar á fslandi og nokkra aðra, er sér- staklega hafði verið boðið. Undir borðum voru fluttar ræður, sem ekki er riúm til að rekja ihér, þótt full ástæða vðeri til. Meðal þeirra, er ræður fluttu, voru Einar Ámason á Eyrar- skip þetta er nú komið til land- sins og lýsti því, Pálmi Loftsson forstjóri, Þorsteinn M. Jónsson bæjarfulltrúi, Sigurður Jónsson á Arnarvatni og fleiri. Margra ára draumur rætist. Einar Árnason þakkaði öl'lum þeim er stuðlað hefðu að því, að Sís gat eignazt þetta skip. Hann þakkaði og áhöfn skipsins og skipstjóra. Hann skýrði frá því, að Akureyri ætti að verða heim- ili Þessa fyrsta skips, Sís. Hann minntist á nauðsyn þess, að Sam- bandið annaðist sjálft flutninga á mili landa, og með komu þessa skips rætist margra ára daurmur íslenzkra samvinnumanna, sagði Einar á Eyrarlandi. « Norðlendningar fá beinar sigl- ingar til útlandi og frá Vilhjálmur Þór, forstjóri S. í. S., rakti ýtarlega sögu skipakaup- anna. Hann skýrði frá því, að í v o r hefði Samibandið ráðið sænskan skipaverkfræðing til að skoða skipið og hefði hann gefið þann úrskurð að skipið virtist í alla staði hið vandaðasta og full- nægði kröfum þeim, er gerðar eru á Norðurlöndum og víðar um smíði slíkra skipa. Enda er skipasmíðastöðin Ansaldo í Genúa viðurkent fyrirtæki, er smíðað hefir mörg kunn skip. Hvassafell hafði líka reynst vel á heimleiðinni, þrátt fyrir vont sjóveður. Verð skipsins er ná- lægt fjórum miljónum króna. Vilhjálmur iÞór gat þess, að ein af ástæðunum fyrir því, að skipinu var valin heimahöfn á Akureyri, væri sú, að Akureyri liggur í samvinnusvæði Norður- lands, en skipið mun einkum flytja vörur beint frá útlöndum ti'l samvinnufélaganna, einkum á Norðurlandi. Akureyri hefir líka um langt skeið haft forgöngu um myndarlega sanwinnu. Hann gat þess, að þegar sambandið eignaðist fleiri skip, myndu þau ef til vill verða gerð út frá hinun. ýmsu höfnum, þar sem sam- vinnuféilögin starfa. Hann lýsti því sem von sinni og trú, að þetta skip gæti orðið liður í þeirri við- leitni samvinnufélaganna að gera nauðsynjar fólks ódýrari og bæta samgöngurnar við útlönd. Hinn nýi “borgari”. Þorsteinn M. Jóinsson skóla- stjóri mintist á það, hvers virði það væri Aéureyrarbæ, að “eign- ast þennan stóra borgara,” eins og hann komst að orði, og benti á þá þýðingu, sem það hefði fyrir atvinnuMf bæjarins, að skipið sé gert út þaðan. Kvað hann skips- komu þessa vera atburð, sem lengi yrði minnst í sögu Akur- eyraribæjar. Þorsteinn kvað það vel við eiga, að skipið héti Hvassafell, þar sem það eyfirzka bæjarnafn hefir komið mjög við sögu samvinnuhreyfingarinnar á íslandi. Tíðindamaður blaðsins hafði tal af nokkrum af áhöfn skipsins og spurði þá um ferðalagið. Á- höfnin er, alls 22 menn, og eru þeir fflestir frá Akureyri. Skips- höfnin lagði af stað frá Reykja- vík 16. júlí og fór með hraðbát ana, sem skilað var aftur, til Englands um leið. Voru þeir rúmar 40 klst. á leiðinni þangað. Síðan var haldið til Lundúna og dvalið þar í fáeina daga, en farið svo með járnbrautarlestum það- an til Parísar. Þar var stanzað einn dag, og síðan farið með járn br;aut suður til Genúa. Þar beið skipshöfnin í mánaðartíma. Dvalið á Italíu. Ástandið á ítalíu er mjög bágt um þessar mundir og afkoma aiL- mennings afleit. Dýrtíðin er mjög mikil — verð á llífsnauðsynjum ekki lægri en hér á landi. Kaup er hins vegar mjög lágt. Það naá segja, að allar vörur séu fiáan- legar þar í landi, þótt sumar fáist ekki nerna með okurver ði á svört- um markaði. Sykur er t. d. e'kki til nema á svörtum markaði, og kostar hann um 40 kr. kílóið. Til dæmis um hin erfiðu MfS' kjör og eymd þá, sem ríkir i landinu, má nefna það, að al- gengt kaup framleiðsllustúlkna á veitingahúsum er 200 lírur á dag, en þolanleg máltíð kostar ekki undir 250 lírum. Góðar máltíðir kosta varla minna en 800 lírur Kaup verkamanna er aðeins 8— 10 þúsund Mrur á mánuði og geta FRÁ BLAINE, WASHINGTON Það ihefir ekkert sézt frá Blaine, í ís'l. blöðunum pú um tíma, svo mér datt í hug að stinga niður penna aðeins til að láta kunningjana vita að land- arnir í Blaine eru ekki allir dauð- ir. Sannleikurinn er, að þeir hafa aldrei verið betur lifandi en nú. Félagslíf þeirra er frið- samt, en þó fjörugt. Islendingadagurinn i sumar var einn hinn fjölmennasti og skemtilegasti, er við höfum nokkru sinni haft. Hefi eg eng- an heyrt láta öðruvísi en vel af honum. Veður var hið ákjósan- legasta og flestir lluku lofsorði á skemtiskrána. Samvinna sú um Islendingadaginn er staðið hefir nú í nokkur ár, milli landanna í Vancouver, Point Roberts, Blaine og Bellingham, virðist festa dýpri rætur með hverju líðandi ári, og staðurinn, Peace Arch Park, er táknrænn fyrir þann bróðurhug sem er ríkjandi með- al landanna hér á ströndinni og sem við óskum og vonum að tengi að lokum allar þjóðir einu bróðurbandi. Þjóðræknisdeildin “Aldan” er við ágæta heidsu. Elliheimilisnefndin er nú aftur tekin til óspiltra málanna, eftir nokkurt uppihald yfir sumar mánuðina. Á þeim tíma hefir henni þó borizt nokkurt fé í oyggingarsjóð sinn. Vildi hún gjarnan geta byrjað að byggja á komandi vori eða sumri, ef iþá kynni að verða orðið ögn rýmra um byggingaefni og verðlag. Hún á þó enn alllangt í land að því takmarki sem hún hefir sett eér með fjársöfnun, og væri það nú ekki nema drengilegt af vinum l'yrirtækisins, hvar sem þeir eru, að minnast þess svo um munaði fyrir jólin. Lestrarfélögin 'í Blaine og Bdll- ingham—“Jón Trausti” og “Kári” höfðu sameiginlegt skógargildi í sumar í fögrum lystigarði í Bell- ingham. Var það eitt það glað asta samkvæmi sem eg hefi ver ið í lengi. Þar voru allir ræðu- menn, söngmenn og skáld og kvæðamenn. Þar var meðal ann- ars kastað fram þessari stöku: Drögum voðir hátt að hún, höfum ró í nausti. Örugt sigli um ægis tún ætið Kári og Trausti. — Fleira mætti nú tína til, en eg læt hér staðar numið að sinr. Sendi máske línu seinna ef þetta er vel þegið. A. E. K. Deir því ekki keypt sér margar slíkar máltíðir á dag. Gengi lír- unnar er nú þrír aurar, miðað við gengi íslenzkrar krónu. Skipið reyndist vel á heimleiðinni. Er skipið var fullbúið, var því siglt suður til Sikileyjar, þar sem 3að tók saltfarm til íslands. En áður en lagt var af stað hingað fór skipið aftur til Genúa, en hafði þar þá skamma viðdvöl. Höfnin í Genúa er ennþá að miklu leyti lokuð vegna sokfc inna skipa, sem liggja í höfninni. Fyrir nokkru er hafin vinna við að ná þessum skipum upp. Er það sama fyrirtækið, er bygði Hvasaafeljt, er annast það verk, en það er risafyrirtæki með 15— 30 þús. manns í vinnu. Á leiðinni til íslands kom skip- ið við í Englandi, og var aðeins þrjá sólarhringa á leiðinni þaðan hingað til lands. Fékk skipið þó vont veður á þeirri leið. Gang hraði Hvassafells var 12,6 mílur í reynsluför, en yfirleitt hefir ganghraði skipsins verið um 11 rnílur. Er þó ekki farið að láta það ganga eins hratt og hægt er. —Tíminn, 1. okt. Menntaskólinn annist vörn og gróanda íslenzkrar menningar (Frh. af bls. 2) var um íslenzkan listamann - finni laun og lán í fögru starfi. Eg óslka nemöndum hans, að námsmaðurinn í þeim lengi lifi, að þeir gerist aldriei æsingamenn né hópsálir, en fasttækir á hverju máli, er þeir láta sig nokkru skipta, og vilji jafnan nema það og “hafa það, er sannara reyn- ist,” og hlíta því. Mbl., 2. okt. DAMPWASH 5C Phone 37 2 Ml LATTNDERERS Verzlunarmennlun! i Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf- ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks, krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól- arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn- um og konum fer mjög vaxandi. Það getur orðið ungu fólki til vemlegra hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn- lega eða bréflega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla borgarinnar. THE COLUMBIA PRESS LTD. COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG Business and Professional Cards OCTOBER SPECIAL ! ! All photos taken on approval with no obligation — 4 Poses To Choose From — SPECIAL PRICES Phone or Write for Appointment LINIVECSAL STIJDICS 292 KENNEDY ST. (Jusl North of Portage) — Phone 95 653 WEDDING AND BABY PHOTOS — OUR SPECIALTY DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDINQ Telephone 97 932 Home Telephone 202 39S Dr. S. J. Jóhannesson 216 RUBY STREET (Beint suður af Bannlng) Talsimi 30 877 ViBtalstlmi 3—5 efUr hádegi Talslmi 95 826 Heimllis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN SérfrceOingur i augna, eyrna, nef og kverka sfúkdómum. 704 McARTHUR BUILDINQ Cor. Portaga & Main Stofutlml: 2.00 Ui 5.00 e. h. nema á laugurdögum. DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 DR. ROBERT SLACK SérfrœOingur i augna, eyma, nef og hdlssjúkdómum. 416 MEDICAL ARTS BLDQ. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 93 851 Helmaslml 42 154 Office Phone Res Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDO. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. islenekur lyfsali Fölk getur pantaS meCul og annaö meC pösU. Fljöt afgrreiðsla. Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDINQ Cor. Portage Ave. og Smith St. i PHONE 96 952 WINNIPEO A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkklstur og annaat um Ilt- farir. Allur útbúnaður sá beeti. Ennfremur selur hann allskonar minnhrvajrBa og legstelna. Skrifstofu talslml 27 324 Heimllis taislmi 26 444 DR. J. A. HILLSMAN Surgeon 308 MEDICAL ARTS BLDO Phone 97 329 Phone 97 291 Eve. 26 002 J. DAVIDSON Real Estate, Financial and Insurance ARGUE BROS. LIMITED Lombard Bldg., Winnipeg Dr. Charles R. Oke Tannlceknir For Appointments Phone (4 565 Offlce Hours 9—5 404 TORONTO OEN. TRU8TS BUILDINO 283 PORTAQE AVB. Wlnnipeg, Man. Phone 31 400 Electrlcai Appliances and Radlo Servlce Furniture and Repairs Morrison Electric 674 SARQENT AVE. SARGENT TAXI • PHONE 34 556 For Quick Reliable Service ÞRINC Jtll MESSENQER SERVIOE ViB flytjum klstur og tðskur, húsgög-n úr smærri IbúBum, og húsmuni af öllu tæl. 58 ALBERT ST. — WINNIFEQ Slml 26 8,88 C. A. Johnaon, Mgr. J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVBNUE BLDQ WPO. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega penlngalán og eldsábyrgB. bifreiBaábyrgS, o. s. frv. , PHONE 97 638 TELEPHONE 94 358 H. J. PALMASON and Company Chartered Accountants 1101 McARTHUR BUILDINQ Wlnnlpeg, Canada Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrœOingar . 209BANK OF NOVA SCOTIA BO. Portage og Garry St. Slmi 98 291 Phone 49 469 Radio Service SpeclaLlsts ELECTRONIC LABS. S. THORKSLSOS, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST„ WINNIPBO GUNDRY PYMORE Limited British QuaUty Fish Netting 80 VICTORIA ST., WINNIPEO Phome 98 211 Manager T. R. THORVALDBOM Your patronage wlll be appreclated O. F. Jonasson, Pree. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited 404 8COTT BLOCK SlMI 95 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH C A N A D 1 A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Direoter Wholesale Dlstributors of Ttmih and Frozen FtSh. 311 CHAMBERS STREBT Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 7* »XT Manitoba Fisheries WINNIPEO, MAN. T. Beroovitch, framkv.stf. Verzla I helldsölu meB nýjan og frosinn flsk. 808 OWENA STREET Skritet sfml 35 355 Helma 55 455 II HAGBORG II n FUELCO. n • Dlal 21 331 21 331

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.