Lögberg - 09.01.1947, Síða 1
PHONE 21 374
*vúi**‘?5* »
jvVtc^
A Complele
Cleaning
Insiiiuiion
PHONE 21 374 „ . A
^0*^0* Compleie
Cleaning
Insiiiuiion
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 9. JANÚAR, 1947
NÚMER 2
VANDRÆÐIN AUKAST
I landinu helga er enn alt í
uippnámi, og óróaseggjum af
Gyðingastofni kent um alt, enda
bendir flest til, að þeir séu vald-
ir að óspöktunum; allmargir
brezkir 'herforingjar og lögreglu-
menn, hafa látið líf sitt af völd-
<um þessa óvinafagnaðar, því
einkum hefir verið að þeim
veitzt; nú er umboðsmaður Breta
í Palestínu kominn til London
til þess að ráðgast um það við
stjórnarvöldin þar hvað tekið
skuli til bragðs; sýnast ýmsir
háttsettir brezkir valdamenn
þeirrar skoðunar, að óhjákvæmi-
legt muni verða, að setja nokk-
urn hluta landsins í herkvi, þótt
vitað sé jafnframt, að slíkt hlyti
að mælast víða illa fyrir, og þá
ékki hvað sízt í Bandaríkjun-
um, sem skorað hafa hvað ofan
í annað á Breta: að leysa áminst
deilumál með óvopnuðum samn-
ingatilraunum; að öðru leyti má
gera ráð fyrir að Palestínudeil-
an verði eitt allra vandasamasta
viðfangsefni sameinuðu þjóð-
anna, verði því á ar.nað borð
vísað þangað til lausnar, sem orð-
ið getur óumflýjanlegt.
♦ 4- ♦
FJÖLGUN FÆÐINGA
Á árinu, sem leið, fæddust í
Winnipeg 7,010 börn; tala svein-
barna var 190 hærri en mey-
barna; árið 1945 nam tala barna-
fæðinga í borginni 5,641.
♦ ♦ ♦
SEGIR AF SÉR
Abel Pommerant sakdómari
Bandaríkjanna í Neurnberg á
Þýzkalandi, hefir sagt af sér því
embætti, og byggir embættisaf-
sögn sína á því, að ýmsir iðju-
höldar þýzkir, 'hafi verið sakaðir
um glæpi án þess að mál þeirra
hafi verið nægilega undirbúin
eða rökstuddar ákærur bornar
fram á hendur þeim; ýmsir hinna
ákærðu eiga að koma fyrir rétt
þann 1. febrúar næstkomandi.
♦ ♦ ♦
SAMRÆMD vopna-
framleiðsla
Það hefir nýlega flogið fyrir,
að umræður séu hafnar milli
amerískra og brezkra hernaðar-
valda varðandi samræming
vopnaframleiðslu með hvorri
þjóð um sig, og jafnvel urn sam-
eiginlegar loftflotaaefingar.
♦ ♦ ♦
BLÆS EKKI
BYRVÆNLEGA
Með skjótum og óvæntum at-
burðum hafa nú þau tíðindi
gerst, að fylkisstjórnin í New
Brunswick hefir rofið skatta-
málasamning sinn við sam-
bandsstjórnina, og krefst nú óð
og uppvæg nýrra fríðinda og
margháJttaðþa kjarabóta; hefir
þetta tiltæki vakið mikið umtal
hjá stjórnum annara fylikja, er
nýlega höfðu að hliðstæðum
samningum gengið, og þykir nú
engan veginn óhugsandi að þær,
að minsta kosti sumar hverjar,
kunni að feta í fótspor New
Brunswick og krefjast frekari
ívilnunar af hálfu stjórnarvald-
anna í Ottawa, sem sagt er, að
ékki sé farið að lítast sem bezt
á blikuna.
ILLVIÐRI VELDUR
TRUFL.UNUM
Afskapleg. illviðri hafa geisað
á ýmsum stöðum í Ontario und-
anfarna daga; hafa orkuleiðslur
víða farið svo úr skorðum, að
iðnframleiðsla hefir stöðvast
með öllu um hríð, svo sem í
borginni Hamilton.
♦ ♦ ♦
HÆZTARÉTTARDÓMARI
LÁTINN
i
Síðastl. þriðjudagsmorgunn
lézt að heimili sínu í Ottawa,
Hon. A. B. Hudson, dómari í
hæztarétti Canada 71 árs að
aldri, hið mesta valmenni; hinn
látni hæztaréttardómari gaf sig
um alllangt skeið við opinber-
um málum, var kosinri á fylkis-
þingið í Manitoba árið 1915 og
tók sæti í Liberal ráðuneyti því,
er Hon. T. C. Norris þá mynd-
aði, sem dómsmálaráðherra;
því embætti gegndi hann
aðeins í tvö ár, og varð þá Hon.
T. H. Joihnson eftirmaður hans;
þessi látni roerkismaður átti um
nokkurt skeið sæti á sambands-
þingi sem óháður Liberai fyrir
Suður-Winnipeg kjördæmið, en
dómari í hæztarétti var hann
skipaður árið 1936.
♦ ♦ ♦
*
ÁSAKAR BÁÐA JAFNT
Sendiherra Bandaríkjastjórnar
í Kína, Mr. George Marshall,
sem nú er á heimleið til skrafs
og ráðagerða við Truman forseta,
hefir lýst yfir þvl, að það sé þrá-
kelkni (kínversku miðstjórnarinn-
ar og forsprökkum kommúnista
jáfnt að kenna, að ekki lánist að
koma á friði í landinu.
♦ ♦ ♦
KREFST NÝRRAR
LÖGGJAFAR
í erindisbréfi til þjóðþingsins
í Washington, hefir Truman for-
seti kráfist þess af þinginu, sem
nú er þannig skipað, að Republi-
canar njóta meirihluta í báðum
deildum, að það afgreiði löggjöf,
er ó'helgi með öllu verkföll í
höfuð-iðngreinum þjóðarinnar,
svo sem í kolanámum, stáfverk-
smiðjum og rafframleiðslu, að
ógleymdum nauðsynlegustu
samgöngutækj um; hvernig þing-
ið verður við kröfu forseta í
þessa átt, er enn vitaskuld ó-
rannsakað mál.
♦ ♦ ♦
SKÆRUHERNAÐUR
Að því, er síðast fréttist, er
skæruhernaður enn í algleym-
ingi á Grikklandi, og daufar
horfur um samkomulag, eins og
sakir standa; í skærum þessum,
sem einkum eiga sér stað í út-
kjálkum landsins, létu líf sitt á
föstudaginn um þrjátíu manns.
Nefnd sú af hálfu sameinuðu
þjóðanna, sem til þess var valin,
að rannsaka deilumál Grikkja,
er enn ókomin til Aþenuborgar.
♦ ♦ ♦
Þórður Sveinsson, læknir
Þórður Sveinsson prófessor
andaðist í nótt. Hann var fædd-
ur 20. des. 1872 að Geithömrum
í Svínadal. Var hann yfirlæknir
geðveikrahælisins á Kleppi í
rúmlega 30 ár og kennari í
iæknaskólanum og síðar háskól-
anum um fjölmörg ár. Þessa
mæta manns verður nánar getið
síðar hér í blaðinu.
—Vdsir 21. nóv.
CONCERT TIL
MANNÚÐARÞARFA
Bruno Esbjörn
“A Musical Journey Around
the World with Bruno
Esbjorn.”
verður haldinn í Fyrstu lútersku
kirkju á Victor Street á mið-
vikudagskvöldið þann 22. þ. m.
kl. 8.30.
Mr. Esbjorn er fæddur í Sví-
þjóð, en hefir dvalið í Banda-
ríkjunum Síðastliðinn aldar-
fjórðung; hann stundaði nám í
fiðlulei'k bæði í Berlín og Prag
við hinn ágætasta orðstír, og
hefir túlkað list sína vítt um
heim. Mr. Esbjorn hefir um tíu
ára skeið gégnt prófessors em-
bætti í fiðluleik við hinn fræga
Bush-hljómlistarskóla í Chicago.
Á áminstum hljómleikum túlkar
Mr. Esbjörn hvorki meira né
minna en músík fjórtán þjóða.
Aðgöngumiðar, sem kosta 50
cents, 75 cents og $1.00, fást hjá
hinum ýmsu lútersku söfnuðum
í borginni.
♦ ♦ ♦
24 manns húsviltir í Eyjum
“Héðinslhöfði” í Vestmanna-
eyjurn brann í gær. 24 manns
mistu húsnæði sitt og mest af
innanstokksmunum sínum.
Þetta var íbúðarhús. sem var
eign bæjarsjóðs Vestmannaeyja.
Á efri hæð bjó Gísli Gíslason
með konu sinni og 9 börnum
þeirra. Á neðri hæðinni bjó
Páll Guðmundsson, kona hans
og 8 börn þeirra, og á þeirri hæð
bjó einnig Ólafur Fálsson og
kona hans með ársgamalt barn
þeirra.
Bjargaðist lítið af innanstokks
munum, en það litla, sem bjarg-
aðist, varð fyrir miklum skemd-
um. -Fólk þetta var bláfátækt og
á vafaiaust afar erfitt með að
bæta upp þetta mikla tjón, sem
það hefir orðið fyrir.
—Vísir 8. nóv.
♦ ♦ ♦
INNFLUTNINGSMÁL
Staðhæft er, samkvæmt nýj-
um fregnum frá Ottawa, að eitt
þeirra meginmála, er til um-
ræðu koma á næsta sambands-
þingi, og ebki ósennilega til end-
anlegrar lausnar verði það, um
fólksfLutninga til landsins; er
mælt að ihaldsflokkurinn sé þess
mjög fýsandi, að nýjum innflytj-
endum verði 1 stórum stíl veitt
innganga og framtíðar landvist í
Canada; fram að þessu hefir
stjórnin ekki svo vitað sé tekið
ákveðna afstöðu til þessa máls,
þótt slíks megi nú vænta áður en
langt um líður, að því er inn-
flutningsmálaráðherranum, Mr.
Gardiner nylega sagðist frá, á
för sinni um vesturlandið; naum-
ast mun þó þurfa að gera þvi
skóna, að stjórnin, eins og enn
hagar til, verði fús til þess að
opna dyrnar upp á víða gátt
varðandi nýjan fólksstraum inn
í landið.
Afstaða íslands
til Franco’s
Thor Thors gerir grein jyrir
ajstöðu íslands í Þ. S.
Thor Thors sendiherra og for-
maður íslenzku fulltrúanefndar-
innar á þingi sameinuðu þjóð-
anna tók þátt í umræðunum um
Spánarmálin í stjórnmálanefnd-
inni í dag og gerði þar grein
fyrir atkvæði íslands og afstöðu
til Franco. Raeðu hans var út-
varpað, en þetta er fyrsta ræðan,
sem sendiherrann heldur í nefnd
á þingi S. Þ.
AFSTAÐA ÍSLANDS
Thor Thors sagði, að Island
myndi sitja hjá við atkvæða-
greiðslu um tillögu Pólverja um
það, að Sameinuðu þjóðirnar
slitu allar stjórnmálasambandi
við Franco-Spán. Það gerðu þeir
vegna þess, að ísland væri ekki í
stjórnmálasambandi við Franco-
Spán og þess vegna ekki rétt að
þeir greiddu atkvæði um það
atriði.
Um tillögu Hvíta-Rússlands,
þar sem farið er fram á, að Sam-
einuðu þjóðirnar setji viðskifta-
bann á Franco-Spán, til viðbót-
ar því, að shtið verði stjórn-
málasambandi við þjóðina, sagði
Thor Thors, að íslenzka nefndin
hefði ekki trú á viðskiftabanni,
nema að trygt væri að allar
þjóðir heimsins stæðu að því, og
að stórveldin trygðu, að það yrði
meira en pappársplagg eitt, eins
og áður hefði komið fyrir, er
viðskiftabann hefði verið sett.
íslenZka nefndin myndi því
greiða atkvæði gegn viðskifta-
banni.
Sendiherrann sagði hinsvegar,
að íslenzka nefndin styddi til-
lögu Kúba, að sett ýrði undir-
nefnd í málið til að rannsaka
bvaða leiðir væri heppilegastar
til að koma á lýðræðisstjórn á
Spáni.
ISLENDINGAR ANDVÍGIR
EINRÆÐI
í ræðu sinni minti sendiherr-
ann á, að íslenzka þjóðin væri
andvíg einræði. — í aldir hafi
lýðræði og frelsi verið í heiðri
haft á Islandi og svo væri enn
í dag. Islendingar væru á móti
einræði í hverri mynd, sem það
birtist.
MIKLAR UMRÆÐUR
Miklar umræður urðu um
Franco-málið í stjórnimála-
nefndinni í dag. Næstur á eftir
Thor Thors talaði fulltrúi Kúba
og mælti með tillögu sinni um,
að undirnefnd yrði skipuð í
málið. Hann þafckaði íslenzka
fuLltrúanum og öðrum, sem
hefðu lýst því yfir, að þeir
myndu styðja tillögu Kúba.
—Mbl. 5. des.
♦ ♦ ♦
Karmel-systrum fjölgar
á íslandi
Á síðastl. sumri komu hing-
að til landsins frá Hollandi átta
nunnur af hinni svonefndu
Karmel-reglu, og verða þær í
Hafnarfjarðarfclaustri. Eru því
núna 10 nunnur aff þessari reglu
í klaustrinu en ráðgert er að
þrjár komi til viðbótar.
Þá hafa tveir prestar komið
hingað, þeir eru einnig hollenzk-
ir og mun annar þeirra starfa í
Hafnanfirði en hinn við sjúkra-
húsið í Stykkishólmi, sem rekið
er af kaþólsku fólki.
—Vísir 12. nóv.
Flug til lækninga
Fyrir tólf árum var læknir
einn í Strassbourg, sem var afar
hrifinn af flugi og átti flugvél
sjálfur. Einu sinni datt honum í
hug, af rælni að fara í flugferð
með barn, sem hafði kíghósta,
og vita hvort það hefði áhrif á
það að komast á loft. Honum
var ekki grunlaust um, að hin
snögga loftbreyting gæti haft
einhver áhrif á ‘hóstann. Það
reyndist líka svo, en ekki fyr en
hann var kominn í meira en 2000
metra hæð.
Þessari tilraun var veitt at-
hygli í Sviss. Tveimur árum
eftir að tilraunin var gerð í
Strassbourg tók maður einn þar
upp hugmyndina, og síðan 1938
hafa verið starfræktar “kíghósta
flugstöðvar” í Bern, Basel og
Zurich. Árangurinn hefir verið
glæsilegur, svo góður að jafnvel
á stríðsárunum lét ríkisstjórnin
stöðvarnar fá bæði bensín og
flugvélar, þótt hörgull væri á
hvorttveggja. Flugstöðin “Alp-
ar” í Bern heffir farið 200 slíkar
læikningaferðir, með yffir 2000
sjúklinga.
Til flugsins eru notaðar tveggja
hreyfla farþegaflugvélar. Sjúkl-
ingarnir verða að vera vel
klæddir, því að allir gluggar í
flugvélinni eru hafðir opnir,
annars hafa loftbrigðin ekki
nægilega sterk áhrif. Og þegar í
hæðina kemur verður loftið kalt.
Þegar vélin fer að ‘hækka í lofti
sofna börnin oftast. vegna þess
hve loftið er þunnt.
Flugvélin fer upp í 4000-5000
m. hæð og sveimar í klufckutíma
í þeirri hæð. Reynslan hefir
orðið sú, að 70-80% aff sjúfcling-
unum verða albata. En stundum
hverfur hóstinn ekki fyr en eftir
viku.
í hverri flugvél er áhald, sem
Skráir hæðina og hitastig loftsins
og rafcastig. Er þetta borið sam-
an við lækningaárangurinn til að
sjá hvaða veðrátta hefir best á-
hrif.
I Svíþjóð er um þessar mundir
verið að byrja kíghóstaflug. Það
er Gautaborgarflugmaður Gösta
Frankel, sem hefir forgöngu fyr-
ir þessu í Svíþjóð. Hann hefir
átt við mikla örðugleika að etja
frá yfirvaldanna hálfu um fi rm-
kvæmd flugsins, en loksins hefir
honum þó tekist að fá leyfi fyrir
benzíni. <|
♦ ♦ ♦
NÝ UNGLINGABÓK
Síðasta bindið af Hrokfcin-
skeggja, sem Sigurður heitinn
Thorlacius skólastjóri valdi og
þýddi fyrir Helgafell, er nú kom-
ið út. Fyrra bindið kom út í
fyrra og þótti frábær unglinga-
bók. Með þessu síðara bindi er
sagan af Hrokfcinskeggja, kon-
ungi undirheima, öll komin út.
Á þingi uppeldisfræðinga í Genf,
sem Sigurður sat voru valdar
nokkrar bækur, sem samkomu-
lag var um að mæla með til út-
gáfu fyrir unglinga Fer í þeim
bókum saman Skemtilegt og
spennandi lestrarefni og heil-
brigð siðfræði. Er hiklaust ó-
hætt að mæla með Hrokkin-
sfceggja handa unglingum.
—Mbl. 3. des.
♦ ♦ ♦
Aðalfundur félags Vestur-
íslendinga
Aðalfundur Félags Vestur-ís-
lendinga var haldinn I Tjarnar-
café, miðvikudaginn 20. þ.m.
Meðlimir félagsins eru nú á
annað hundrað og hefir þeim
fjölgað verulega á starfsárinu.
Stjórn féLagsins var endur-
kosin:
Hálfdán Eiríksson formaður.
Þórarinn Gr. Víkingur, ritari.
Guðni Sigurðsson gjaldkeri.
Varaformaður var einnig end-
urkosinn, séra Jakob Jónsson.
Fjáihagur félagsins er góður.
Séra Jaköb Jónsson flutti ítar-
legt og snjallt erindi um vestur-
-íslenzfcu skáldbonuna Guðrúnu
Finnsdóttur.
Heiðurgestur á fundinum var
Birgir Halldórsson söngvari, sem
er nýkominn heim að vestan.
Fundurinn var hinn ánægju-
legasti, mikill áhugi og bjart-
syni um framtíðarstörf félagsins.
—Vísir 25. nóv.
Vinirnir
Valt er að treysta á vinina,
eg varla þekki neinn,
sem er í hugsun einlægur
og alveg hreinn og beinn.
í vilja og skoðun viðkvæmur
á vinum hafði eg trú;
með aldri og reynslu hún entist lítt
og öll á burtu nú.
•
Þó af þeim heyrist eitthvað gott,
þeir eru dauðir mér.
Þá eins og líkfylgd út við gröf
minn innri maður sér.
Eg kveð þá alla kalalaust
er kvöldið fer í hönd;
og svo er alveg sama mér
hvar sigla þeir frá strönd.
En sökum þess þeir sviku trygð,
Eg sver þess dýran eið
að sækja kraft í sjálfan mig
og sigla eigin leið.
Eg óska þess þó ýfist sjór
eg aldrei mæti þeim,
en standi framar fylking í,
sem frelsar þennan heim.
J. ,S. FRÁ KALDBAK.