Lögberg - 13.02.1947, Side 1
/
PHONE 21 374
LÍO*d
y^soVte
cwaners
& A Complete
Cleaning
I: isiilution
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 13. FEBRÚAR, 1947
NÚMER 7
HLÝTUR 1200 DOLLARA
NÁMSSTYRK
Snjólaug Sigurdson
Fyrir tæpum tveim mánuðum
ákrvað Icelandic Canadian Club
að stofna Sdholarship Fund, sjóð,
sem inotaður yrði til þess að
veita úr honum námsstyrk fólki
af islenziku ætterni, sem skarar
fram úr að námsihæfileikum eða
1 emhverri sérstakri list. Þess
eru nokkur dæmi að íslendingar
frafa tekið sig saman um að
styrkja einstaklinga, sem hafa
sýnt afburða haófileika t. d. í tón-
’list; og fanst 'þvá almenningi að
stofnun þessa sjóðs vera imjög
tímabært spor, og með því kæm-
tst á varanlegan grundvöll sú
viðleitni, sem fólk hefir sýnt í þá
átt að efla listir með námsstyrk
á ýmsan hátt.
Hugmyndin var vinsæl meðal
rneðlima félagsins og var nefnd
kosin til Iþess að hafa á hendi um-
sjón með sjóðnum. Sú gleðifrétt
barst funidinum að nokkrir ein-
stakungar, bæði innan og utan
fólagsins, hefðu hreyft þessari
sömu hugmynd fyrir skömmu,
°g varð það til þess að auka enn
moira áhugann fyrir þessu máli.
^etta utanfélagsfólk og nefnd
félagsins ákváðu að sameina
krafta sína, og gekk starfið mjög
greiðlega frá byrjun; einkum er
almenningur varð þess áskynja,
að Miss Snjólaug Sigurdson yrði
su fyrsta, sem námsstyrk hlyti
úr þessum sjóði.
Sjóðurinn er nú þegar orðinn
avo stór að nefndin sá sér fært
að veita Snjölaugu $1200 Travel-
úng Scholarship til framhalds-
Hárns í tónlist í New York. Atllir
uiunu á eitt mál sáttir um það,
að hér hafi verið heppilega valið.
Hinir frábæru hæfiiei'kar Snjó-
laugar og listhæfni hennar sem
píanó-leikara eru almenningi
kunnir.
í nefndinni sem vann að því að
stofna sjóðinn voru: Mrs. K. J.
Haokman, Mrs B. H Olson,
Helga Johnston, Mrs.
Lincoln Jdhnson, Misses Guðrún
Hildfell, Mattie Halldorson, S.
Hydal, Dr. L. A. Sigurdson, Paul
Hardal, Hólmfníður Danielson
°g W. J Lindal dómari. Hin þrjú
síðastnefndu skipa nefnd þá er
umsjón hefir með sjóðnum, og er
þeim ant um að alnienningur
úaldi áfram að styrkja þetta fyr-
irtæki svo hægt verði í framtíð-
,rini að veita námsstyrk þeim
nemendum, sem eiga það skilið.
fcelandic Canadian Club hefir
úeðið Lögberg að flytja þakkir
°Uum þeim, sem svo fúslega og
rausnarlega hafa styrkt þetta
fyrirtæki og um leið því utanfé-
fagsfólki, sem svo alúðlega
starfaði með nefndinni.
Lögbergi er það mikið ánægju-
engu síður en Icelandic
Canadian Club, að flytja Miss
Snjólaugu Sigurdson hugheilar
árnaðaróskir.
ÍSKYGGILEGAR HORFUR
Mr. Richard Law, innanríkis-
ráðherra í samsteypuráðuneyti
Winston Churdhills meðan á
síðustu heknsstyrjöld stóð, flutti
ræðu í brezka þinginu þann 5.
þ. m., er í sér fól ömurlegar lýs-
ingar á ásigkomulaginu í Þýzka-
landi og ýmsum öðrum sundur-
tættum löndum Norðurálfunn-
ar; kvað Mr. Law milli tuttugu
og þrjátíu miljónir manna og
kvenna og barna vera að rotna
til dauðs í vesturhluta álfunnar,
en slíkt eymdar og ófremdar á-
stand gæti auðveldlega, er fram
í sækti, leitt til þriðja stríðsins,
með því að vegna vaxandi ör-
birgðar, sem lítið væri gert til
að bæta úr, yxi hatri og hefndar-
hug ásmegin.
Mr. Law sagðist 'hafa verið
staddur í Hamburg um jólaleytið,
og komið á iþeim slóðum í kjall-
araholu, þar hefði hann hitt hálf-
ruglaða konu, sem í raun-
inni hefði ekki verið annað en
hein og bjór; hún hefði ilitið út
fyrir að vera um sextugt, en að
fengnum upplýhingum hefði það
komið á daginn, að þessi píslar-
vottur grimmra örlaga, hefði ein-
ungis verið 25 ára gömul stúlka.
ábyggilegar upplýsingar, að með
Mr. Law kvaðst hafa fengið
því að nema á brott 1,000 smá-
lestir á dag af skrani og rústum
hruninna halla, rnyndi það taka
að minsta kosti þrjátíu ár, að
gera Berlín byggilega á ný.
4- ♦ -f
Enginn miðlungsmaður
kemur til greina
Á fjölmennum fundi Liberal-
samtakanna í Canada, sem hald-
inn var nýlega í Ottawa, flutti
King forsætisráðherra ræðu, sem
kom víða við; 'hann sagði meðal
annars, að Liberal-stefnan væri
þjóðleg jafnvægisstefna, er skap-
aði æskilega festu í þjóðfélaginu,
og hnékti framgangi tveggja
öfga í stjórnmálunum, hins aft-
asta aftunhalds, og ógrundaðs,
yfirborðs frjálslyndis; ekki lét
Mr. King neitt uppi um það, hver
verða myndi eftirmaður sinn sem
leiðtogi Liberal-flökiksins, er víst
væri, að það yrði ekki Coldwell,
þó því hefði verið fleygt í blöð-
um og á ræðupöllum; sá maður,
er á sínum tíma tæki við forustu
ihins sögúfræga Liberal-flofcks,
yrði enginn miðlungsmaður;
hann yrði að vera þjóðkunnur að
festu og sönnu frjálslyndi.
Fram að þessu hefir Mr. King
ekki látið neitt ákveðið pppi um
það, nær hann láti af forustu
flokks síns að öðru leyti en því,
að hann lét svo um mælt í síð-
ustu sambandskosningum, að þá
myndi hann háð hafa síðasta
kosningaibardaga sinn.
♦ ♦ ♦
FRIÐARSAMNINGAR
UNDIRSKRIFAÐIR
Síðastliðinn mánudag undir-
skrifuðu sendiherrar sameinuðu
þjóðanna í París, friðarsamninga
við fjögur fyrverandi óvinaríki,
ítalíu, Búlgaríu, Rúmeníu, Ung-
verjaland og Finnland; flestum
mun ríkjum þessum bafa þótt
hart að sér gengið, þó mest bæri
á slíku í Rómaborg, þar sem ó-
eirðir nokkurar brutust út við
þinghúsið og múgurinn kallaði
þingmennina landráðamenn.
íslepzkir frumherjar koma
við sögu
Mr. W. J. Sisler flutti þann
4. þ. m., erindi um frumherjana
í bygðarlögunum milli Winnipeg
vatns og Manitobavatns, þar sem
hann vitnaði í ummæli íslenzku
landnemanna, svo sem Vigfúsar
Guttormssonar á Lundar, sem
var einn þeirra, er lentu við
Gimli 1875 “Þeir voru leitend-
ur, sem altaf voru að selflytja,”
telur Mr. Sisler Vigfús hafa sagt;
og víst var um það, að þeir hik-
uðu ekki við að flytja búferlum,
og lögðu grundvöll að nýbygð í
Argyle, North Dakota og við
Manitobavatn.
Mr. Sisler vitnaði í Mrs. Sig-
urdson frá Mikley, sem lengi
hefir búið að Lundar, og lýsti
hún fyrir honum ferðaiögum
með uxavögnum og hundasleðum
milli Gimli og Winnipeg; ferða-
fólkið hefði orðið að hvílast við
veginn, og þá befðu karlmenn
skipst á um það, að kynda elda.
Mr. Sisler segir frá frú Sofíu
Lindal á Lundar og manni henn-
ar, er átt hefðu gullbrúðkaup í
sumar, sem leið, þar sem við-
stödd voru 16 börn þeirra; hún
komst meðal annars þannig að
orði, að því er Mr. Sisler sagðist
frá.
“Stjórnin er að fara með 'land-
ið í hundana, öllurn er greiddur
styrkur, og svo rakar hún saman
fé á ölstofum.”
•f -f -f
PALESTÍNUMÁLIN
Varðandi Palestínumáhn er
það síðast að frétta, að brezka
ráðuneytið hefir orðið á eitt sátt
um það, að skipta 'landinu í
tvent; að stofnuð skuli þar tvö
ríki, annað er Gyðingar ráði með
tíð og tíma yfir, en hitt verði
undir yfirráðum Araba; en sá
böggull fylgir skammrifi, að yfir-
stjórnin á að vera í höndum
Breta um óákveðinn tíma, eða
þangað til að full skipulagning sé
komin á í hvorurn landshluta um
sig; báðir aðilar eru sagðir að
vera stranglega mótfallnir skipt-
ingu landsins, og verður því enn
sem 'komið er, ekki með vissu
sagt, að áminstar ráðstafanir
stjórnarinnar geti ta'list til lausn-
ar á ágreiningsefnum þeim, sem
kveikt hafa í landinu helga.
Brezk stjórnarvölid eru nú í
óða önn að flýtja brezkar fjöl-
skyldur burt úr Palestínu til þess
að firra þær vandræðum, ef til
hernaðariegra átaka kæmi, sem
auðveldlega getur þá og þegar
orðið, því stjórnin er' staðráðin
í því, að binda enda á deilur og
skæruhernað í landinu eins fljótt
og auðið má verða, og því er nú
ekkert annað fyrinsjáanlegra en
það, að alt landið verði sett í
herkví
-r -f -f
FLYTUR RÆÐU
Carl Freeman
frá Fargo, N.D., er flytur erindi
og sýnir litmyndir frá íslandi, á
samkomu Icelandic Canadian
Club, mánudaginn 24. febrúar.
-f -f -f -f -f -f -f
Kristján skáld Pálsson
látinn
Aðfaranótt síðastliðins þriðju-
dags varð bráð'kvaddur að heim-
ili sínu í Selkirk, Kristján skáld
Pálsson,. 'gáfumaður mikill og eitt
hið bezta ljóðskáld Vestur-ís-
lendinga.
Útförin fer fram frá lútersku
kirkjunni í Selkirk á föstudag-
inn kemur, kl. 2.30 e.h.
-f ♦ -f
FYRRUM FYLKIS-
FÉHIRÐIR LÁTINN
Á föstudaginn var lézt á Al-
menna sjúkrahúsinu hér í borg-
inni, Hon. Edward Brown, fjár-
málaráðherra Manitobafylkis á
dögum Norris-stjórnarinnar, 81
árs að aldri; hann þótti glöggur
fésýslumaður og mikill fyrir sér
um margt.
-f -f -f -f -f -f -f
VILHJÁLMUR ÞÓR
í samsæti 9. ágúst, 1939.
Nú andar hlýtt frá íslands fögru ströndum,
og ilmblæ fyllir sérhvern Vestmanns bæ
frá minnis-þingi því,
að helgum stað, sem heim frá Vesturs löndum
hvern horfinn landa bar um kaldan sæ
í föðurhúsin hlý.
Og inn í þetta andrúmsloft þú gengur
úr Islands skála, þjóðbraut stærstu við.
Og sittu sæll með oss.
Við gleðjumst hvar sem góður starfar drengur,
sem gengi og orðstír veitir bezta lið,
og eykur íslands hnoss.
Hoover í Þýzkalandi
AFTAKA FYRIRBYGÐ
Þess er getið í nýlegum frétt-
um frá Washington, að fyrrum
forseti Bandaríkjanna, Herbert
Hoover, sé kominn til Þýzkalands
í því augnamiði, að skipuleggja
vistamál Þjóðverja þannig, að
þau fjárframlög, er Bandaríkin
láta af hendi til lausnar þeim
vandamálum, verði eigi amerísk-
um gjaldendum um megn.
-f -f -f
>
LÍKLEGUR TIL
KONUNGDÓMS
Eins og nú horfir við, eru lík-
ur taldar á, að Leopold Belgíu-
konungur muni formlega láta af
völdum í ár, að sonur hans,
Baudouin prins, taki við kon-
ungdómi; ýmsir stjórnmála-
flokkar, eða flöfcksbrot, hafa bor-
ið Leopold konungi það á brýn,
að þann hafi verið hlyntur Naz-
is'tum og á bak við tjöldin greitt
götu þeirra, er innrásin í Belgíu
hófst; en er þetta órannsakað
mál, og mi'kill fjöl'di manna í
landinu, er ófús til þess, að trúa
slíkum aðdróttunum um konung
sinn.
Rannsóknarnefnd var fyrir all-
löngu sett í málið, og þó hún
hafi enn eigi opinberlega lokið
störfum, er þvtí spáð, að niður-
stöður hennar muni falla Leopold
konungi í vil.
-f -f -f
Nefnd sú af hálfu sameinuðu
þjóðanna, sem nú er st'ödd í
Grifeklandi, ti'l þess að kynna
sér með eigin augum innbyrðis-
óeirðirnar í llandinu, kom í veg
fyrir 'það, að firnm grískir menn,
þar á meðal umkomulaus ungl-
ingur, er sakaðir voru um þátt-
töku í skæruh^rnaði, yrði teknir
af lífi; þetta er í fyrsta skiptið,
að því er London Times segist
frá, sem hið nýja þjóðabandalag
hefir skorist þannig í leik; nefnd-
armennirnir, sem tóku það að sér,
að fyriríbyggja aftöku áminstra
manna, vöktu innanríkisráð-
herra Gri'kkja upp úr rúminu,
og eftir tveggja klukkustunda
þjark, varð hann að lokum við
kröfu þeirra.
-f -f -f
Rýmkað um innflutninga
Náttúrufríðinda ráðherra sam-
íbandisstjórnarininar, Hon. Alli-
son Glen, lýsti yfir því, að rýmk-
að yrði þannig um innflutning
fólks til Canada á næstunni, að
mönnum, sem vissa væri fyrir að
fengju atvinnu við land'búnað og
námurekstur yrði veitt landsvist;
ennfremur að canadis'kum borg-
urum yrði gert hægra fyrir með
að fá nána ættingja in í landið,
ef 'þeim væri fyrirfram trygð
atvinna.
-f -f -f
HARMSAGA
Þann 5. þ. m., gerðist sú harm-
saga að St. Anne, 30 mílur suð-
austur af Winnipeg, að móðir,
ásamt fjórum' dætrum sínum,
brann inni, er bændabýli þeirra
jafnaðist við jörðu af völdum
eldsvoða; heimilisfaðirinn, An-
toine Gagnier, er háði frækilega
baráttu til þess að reyna að
bjarga fjölskyldu sinni, skað-
brendist og iliggur á St. Boniface
sjúkrahúsinu.
SENDIHERRA LÁTINN
Hinn nýskipaði sendiherra
Bandaríkjanna fyrir Bretland,
Hon. Max Gandner, varð þann 6.
þ. m. bráðkvaddur í New York,
er hann var ferðbúinn til Lon-
don til þess að taka við sínu nýja
og virðulega embætti. Mr. Gard-
nes var 66 ára að aldri, er dauða
hans bar að; hann var um eitt
skeið ríkisstjóri í North Caroline,
en gegndi síðar aðstoðar fjár-
málaráðherra embætti í Wash-
ington.
Og hérna ertu gestur goðum-líkur
sem gæfumenn, er sigla byrinn heim
þá sýnt þeir hafa sig.
En bera snjáðar vesturfarans flíkur,
var fæla í gamla daga öllum þeim,
sem gengu gleðistig.
Og svona breytast ár og föt og auður,
og allra góðra hálsa kragagerð,
í framsókn fólks og trú.
Og víst er gott að vera ekki dauður,
en vegi lífsins kanna þar á ferð,
sem ísland á sér bú.---------
Eg man svo vel frá árum æsku minnar,
er afi þinn kom Vesturheimi frá
— sá kvæða og fræða karl.
Hann kendi börnum málið móður sinnar,
og marga forna speki löndum hjá.
Nú fyrnist fræða spjall.
Og Fróns og Vínlands smá var mjóddin milli,
er mældu nornir þína æfibraut
í snotri Svarfaðs sveit.
En íslands lán: að öll þín skerpa og snilli
í Elyjafirði smiðshögganna naut
— þeim vaxtar vermireit.
Þar Grímsey varði Þveræingur þétti,
mót þengils vélum beitti skygnri lund,
því hann sá gegnum heilt.
Og þegar Smiður ægði öllum rétti
lét Urða-Þorsteinn blóð hans drjúpa á Grund
svo félli vald hans veilt.
Og líkt og Einar sá við refsins ráðum,
og röksamlega Þorsteinn varði lög
í hálfrar aldar ár,
svo þarfnast nútíð fólks með fremstu dáðum,
og forsjá dýpstu lands hjá hverjum mög,
og speki er ræður spár.
Sem afinn kendi yngri lýðnum fræði,
þú eldri lýðnum getur margt það kent,
sem þjóðin þarfnast mest:
að vernda og læra að nota göfug gæði,
en giysið steypa upp í fornri ment,
sem hóf oss hæst og bezt.
Þér allir séu vegir vega beztir,
og vinnulaunin dagleg töðugjöld,
og lof úr löndum tveim.---
Og kveðjur allra heilla, heiman-gestir,
sem heiðriö Vestmenn þetta ágúst kvöld. —
Eg bið að heilsa heim.
Þ. Þ. Þ.
♦ ♦♦♦♦♦