Lögberg


Lögberg - 12.06.1947, Qupperneq 2

Lögberg - 12.06.1947, Qupperneq 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. JÚNÍ, 1947 Frá Kvöldvökufélaginu „Nemö" á Gimli: Karí frá Ási kemur til himnaríkis Eftir Johan Bojer Erlendur Guðmundsson þýddi Karí á Ási var gift Pétri á Ási, þau höfðu hreinsað litla landblettinn sinn, og margt kvöldið höfðu þau lagst niður uppgefin í stóra rúmið sitt; þau höfðu sem tveir púlsklárar strit- að hvort við annars hlið, og þeim datt ekki í hug að neitt það gæti komið fyrir annað án þess það einnig kæmi fyrir hitt. Satt er það að vísu að þegar Pétur fór til bæjarins, þá kom hann heim drukkinn, og barði þá konu sína, en iðraðist þess svo mikið daginn eftir að hapn barði sig sjálfan. Það var einu sinni að Karí veiktist og lagðist í rúmið, og Pétur sat á stól við rúmið og spurði stöðugt, hvort henni ekki væri að batna. Hún reyndi að svara: “Jú, fyrir guðs náð var hún ofurlítið betri. Loksins fór svo að Pétri virtist að best mundi vera að sækja prestinn. Þá nótt varð Karí vör við, að það var ekki Pétur, sem sat í stólnum, heldur maður, klæddur hvítum klæðum, sem kominn var til að sækja hana en þá fór hún að gráta og sagði: “Nei, nei! Eg vil heldur vera hjá Pétri!” “fivað varstu að segja?” spurði Pétur er sat við hlið hennar og horfði á hana. Svo sá Karí að hvítklæddi mað urinn breiddi út vængi, og hún heyrði hann segja: “Þú verður að koma með mér, Karí.” Og Karí varð að hlýða, því hann tók hana í fang sér, og svo fóru þau út úr húsinu og upp í loftið, og Ásheimilið smá minkaði. Síðan fóru þau framhjá sólunni og stjörnunum, og mikið, mikið lengra. Þá fór Kgrí að kjökra og kvarta, en sá ókunni þurkaði tárin og mælti: “Gleðst þú í hjarta þínu, því nú eru allar þrautir þínar á enda.” “Ó, mér leið svo vel þar sem ég var,” sagði Karí — og svo er Pétur skilinn einn eftir eins og hann er þó orðinn þreyttur og slitinn maður.” “Guð mun sjá fyrir honum,” sagði sá ókunni. “Fagnaðu, því nú ertu bráðum komin til himna- ríkis.” Og Karí reyndi að gleðjast, því hún hafði stöðugt haft það í huga þegar hún (^ei og færi til himnaríkis, en hún gat samt ekki losað sig við hugsunina um Pét- ur, hvort hann gleymdi að gera við gatið á kindagirðingunni. Loksins námu þau staðar við hlið mikið, gylt, mikið stærra hlið en hjá dómaranum heima; þau fóru gegnum það og inn í garðinn, þar voru mörg börn að leika sér; kannaðfet Karí þar við bam úr nágrenninu, sem hafði dáið úr skarlatsveiki, og hún sagði með sjálfri sér, að kæmi hún nokkurn tíma aftur til jarðarinnar, skyldi hún segja móður þess frá, hve því liði vel þar sem það væri niður komið. Þá mundi hún eftir drengjunum sínum litlu á jörðunni, sem að líkindum voru að spyrja eftir, hvar hún mamma sín væri. Svo fóru þau upp á fjall, sem að utan var með stórum stöllum, og á þeim stóðu lítil hús hvít að lit, lík húsum, sem hún hafði séð á myndum einu sinni. —*Þar kom hún auga á bróður sinn er stóð úti fyrir einu húsinu. Hann sem hafði verið svo fátækur og lánleysingi á jörðunni. “En hvað, er það ekki þú sjálf?” spurði bróðir hennar/ — “Þetta er mitt hús,” og breytti svo umtalsefninu._ “Nú þarf ég ekki að bera áhyggjur af skuld- unum eður sköttunum, hér höf- um við nægtir að bíta og brenna, það er svo guði fyrir þakkandi, og þurfum ekki að drepa okkur á vinnu til þess að alt standist á. Þegar þú hefir lokið erindinu hjá þeim almáttuga, máttu ekki gleyma að líta hérna inn.” Karí kom engu orði upp, en hugsaði því meira: Vesalings Pétur! Hann er nú orðinn ein- mana á jörðunni að strita og stríða eins og áður. Um síðir komust þau upp á fjallið, og þarna var hús þess al- máttuga. Það var mikið stærra en stóra kirkjan sem hún einu sinni hafði séð, þegar hún kom inn í þorpið. Sá almáttugi var að ganga inn í húsið, klæddur biskupsskrúða, en nam staðar og leit til hennar. Karí fór að titra, því hún hafði heyrt að sá almáttugi væri ákaf- lega harður, en hún vissi að hún hafði oft breytt þvert á móti því, sem henni bar að gera, svo hún stóð í sömu sporum með niður- slegnum augum og feldar hend- ur. “Góðan daginn, Karí.” — Og sér til mikillar undrunar heyrði hún að það var sá almáttugi er talaði í óvanalegum þýðum mál- róm og aðlaðandi. “Velkomin til himnaríkis. Komið og takið í hönd mína, svo sem er siður ykk- ar.” Þó Karí væri einurðarlítil, gekk hún til hans, féll á kné og fór að gráta, því hún áleit að hann væri henni svo óumræði- lega æðri, að sér bæri ekki að eiga orðaskifti við hann, jafn syndum hlaðinn vesalingur og hún var. “Stattu á fætur, barnið mitt,” mælti sá almáttugi og þerraði tár hennar, og sagði að nú gæti hún verið ánægð, því hér í himnaríki væri öllum raunum hennar snúið upp í gleði og gæfu. Nú hafði Karí aukist það kjark ur að hún gat stundið upp: „Þér munuð ekki trúa öllum sögunum sem gengið hafa af samkomu- laginu, og það er aðeins vonda fólkið sem segir að Pétur hafi barið mig. Eg man ekki eftir að hann nokkurn tíma hafi tekið inn deigan dropa, þegar hann fór til þorpsins. Hann var svo brjóstgóður og Mpur og við vor- um svo hamingjusöm í sam- búðinni, og ég get ekki munað að okkur hryti eitt stygðaryrði af vörum.” “Það er bæði sanngjarnt og rétt af yður að tala vel um manninn yðar,” sagði sá almátt- ugi, “en nú verðið þér að fara með englinum og litast um hér í Paradís, og þar næst að ákveða hvað yður geðjast best að taka yður fyrir hendur, því sá er sið- ur hér, hvort heldur er um karl eða konu að ræða. “Ó,” hugsaði Karí, “ég held að það sé ekki margt sem ég er hentug til,” — en engillinn sem nú var kominn, tók hana með sér og sýndi henni hina hlið fjallsins; þau liðu yfir smá vötn, er glóðu í himinljómanum, þar syntu hópar af hvítum svönum, er sungu fagurlegar en hún nokk urn tíma hafði áður heyrt. Eng- illinn sagði henni að Svanir þessir hefðu áður verið fólk á jörðunni, sem hafði gáfur til að syngja, en vegna fátæktar gátu ekki borgað kennsluna svo drottinn hefði breytt þeim í, og nú fengu þeir að syngja eins fagurlega eins og þeir vildu. — Meðfram vatnsbakkanum sá Karí mikið af vatnsliljum sem vögguðust í bárunni með opna bikara. er allir bentu til him- ins. Engillinn hvað þetta verið hafa konur, sem sérstaklega höfðu verið hneigðar fyrir skáld skap, en ekki átt kost á að verða það á þennan hátt. Hann fræddi hana einnig á því að fiðrildin sem flögruðu kringum þau, væru hugsanir drottins sem kæmu stundum og hvíldu sig á krónublöðunum. Engillinn spurði svo Karí hvort hún kysi sér að vera Svanur, eða vatnslilja. “Guð komi til, nei,” svaraði Karí því henni kom Pétur í hug; ef það ætti fyrir honum að liggja að koma þangað þá var undir hælinn lagt, hvort hann kannað- ist við hana, væri hún orðin að vatnslilju. Þá sýndi engillinn henni önnur vötn. þar voru rauðir og hvítir bátar á siglingu með skrautklæddu fólki, sem lék á hljóðfæri. Hún sá einnig stóran garð, þar dansaði ungt fólk, karlar og konur og renndu ástföngnum augum hvort til annars. Það hafði verið aðskilið á jörðunni, en fundist hér, og þær stúlkurnar sem á jörðunni höfðu verið ófríðastar og lakast búnar, voru hér fríðastar og mistu aldrei af dansi. , Og engil-linn spurði Karí, hvort hún vildi eyða tímanum í bátunum eða verða ung og fögur og ganga í danssveitina, en Karí kaus sér hvorugt, og enn hvarfl- aði í hug hennar heyskapartím- inn og hvernig það myndi ganga heima, hvort Pétri aðstoðarlaus- um yrði mögulegt að afla heyj- anna. Þá kom Karí auga á hátíða- samkvæmi. Þar sat fólk að bor- um við mat og vín. Flestir höfðu rósir í hárinu, en klætt silki og flaueli; hölluðust hverir að öðr- um og drukku hver annars minni og þar var hlegið svo hátt að heyra mátti langar leiðir. Engill- inn sagði að þetta hefðu verið allsleysingjar á jörðunni,í og margir þeirra hefðu þráð veizlur líkar þessari; nú lifðu þeir eftir' óskum sínum í lífinu. Þar var einnig garður; um hann reikuðu afar grannar konur með karl- mönnum í riddaraklæðum, eftir þröngum og grasi grónum trjá- göngum. Var hver tvímenningur hulin sjónum þess næsta vegna trjáa og runna, en þetta var sam- kvæmt óskum þeirra sjálfra. Þá sýndi engillinn Karí þyrp- ingar miklar af körlum og kon- um er ræddu flókin vandamál, sömdu samþykktir með greidd- um atkvæðum, og kusu sér fund- arstjóra, og engillinn sagði að þetta hefðu verið þær innileg- ustu þrár þeirra í lífinu, því væri þeim gefið færi á að seðja þrá sína um alla eilífð. Þeir sýndust óumræðilega glaðir, því andlit þeirra lýstu sem sólin. Karí hristi höfuðið og sagði að þetta væri nú eitt af því sem hún hefði aldrei getað skilið. Að lokum sýndi engillinn henni inn í garð, þar sem.konur margar voru og gættu barna. — Engillinn sagði að sumar þess- ara kvenna hefðu mist böm sín og fundið þau aftur hér, en aðr- ar hefðu í lífinu þráð að eiga barn en aldrei eignast, vana- legast af því þær höfðu aldrei gifst. Hér fengju þær börn sem þær svo oft hafði dreymt um; hér þvoðu þær börn, klæddu og svæfðu, en aldrei hafði þeim dottið í hug að svona gæti verið skemtilegt, og jafnvel ekki í himnaríki. Karí hélt nú raunar, að úr því að litlu drengirnir hennar væru móðurlausir á jörðunni, færi hún ekki að taka á sig ábyrgð á ann- ara börnum. Að þessu afstöðnu fór engill- inn með Karí aftur til drottins og varð að segja að hún hefði ekki komist að nokkurri niðurstöðu. “Hvað!” sagði Drottinn, “er þá hér í himnaríki enginn staður, sem yður er boðlegur?” Karí féll á kné og fór að gráta. “Ó, það er ekki af því, hér er alt mikið betra en ég á skilíð, en — en,” og hún gat ekki sagt meira. Verið ekki hræddar við að segja huga yðar, því að hér eru allar óskir uppfyltar.” Karí óx hugur við þessi orð og sagði: , “Ef að svo er, þá kysi ég öllu öðru fremur að áhúa aftur til jarðarinnar, því ég get ekki skil- ið, hvernig hann Pétur kemst af einn.” Allir englarnir, sem stóðu í kringum Drottinn, urðu ótta- slegnir því þess voru engin dæmi að þeir sem á annað borð komust inn í himnaríki, vildu hverfa það an aftur til jarðarinnar, en Drott- inn aðeins brosti og sagði: “Vilduð þér að ég léti sækja manninn yðar tafarlaust.” “Eg þakka auðmjúklega,” sagði Karí, “en þá yrðu þeir Kristján og Símon eftir föður- og móðurlausir.” “Eg hefi verkefni handa þeim einhversstaðar á jörðunni,” svar- aði Drottinn. “Hvað viljið þér þá,” “Gæti ég fengið að fara að Ási aftur?” spurði Karí mjög hrædd. “Eg held ég verði að lofa yður að fara,” sagði Drottinn, “en líkami yðar er grafinn, svo þér verðið ósýnilegar; það er því mjög lítið sem þér getið aðhafst.” “Eg fylgdist með Pétri, hvort sem hann færi og sama væri með drengina,” sagði Karí, “og þá þá væri ég jafn sæl englunum hérna í himnaríki.” “Eg verð þá að lofa yður að fara,” sagði Drottinn góðlátlega og klappaði ofur þýtt ofan á höf- uðið á henni um leið og hann sagði englinum að flytja hana til jarðarinnar. Þegar þau höfðu farið svo langt gegnum skýin, að Karín kom auga á Ás, varð hún gagn- tekin af unaði; hún kannaðist við húsið, fjósið og girðingarnar lengr aút í fjarlægðinni; reykinn lagði út um strompinn, svo það var matreitt. Engillinn skildi nú við hana, því nú þurfti hún ekki lengur að halda á leiðbeiningum hans. I Þegar Karí nálgaðist, sá hún að þetta var snemma morguns, því náttfall var á jörðu og margt fólk með orf á öxlum og hrífur í höndum, voru á leið til vinnu sinnar á enginu. Pétur kom út úr fjósinu og, teymdi rauðflekk- ótta kú, sem hann ætlaði að tjóðra, að því búnu fór hann inn með mjólkina. Vesalings maður- inn, og nú varð hann að mjólka kúna, og það var nú verk, sem honum lét aldrei vel. Karí veitti því eftirtekt að hann hvorki heyrði til hennar né sá, en hún fór með honum inn í eldhúsið og settist á hlóðar- steininn, og horfði á hann sýja mjólkina; hvað hann gerði það hirðuleysislega og ekki eins og átti að vera. Hún tók eftir að sýr- an mundi súr og hefði ekki verið þvegin, hann helti einnig niður á gólfið, þegar hann renndi úr fötunni; mjólkurbakkinn var ekki heldur hreinn. Vissi hann ekki, asninn sá arna, að með þessari aðferð súrnaði mjólkin undir eins, Svo fylgdi hún honum þegar hann fór inn í svefnherbergið til að vekja drengina og hjálpa þeim til að klæða sig. Yngri drengurinn, sem hét Símon, spurði hvort mamma hefði kom ið heim, en pabbi hans sagði að hann yrði að venja sig af öll- um spumingum, mamma kæmi heim þegar hún gæti. Karí klappaði báðum drengjunum á kinnina, en hvorugur virtist taka eftir því, þó Kristján horfði oft þangað sem hún stóð. Upp frá þessu byrjaði alger- lega nýtt líf fyrir Karí í Ási. — Þegar drengirnir voru sendir eftir við út í skóginn, fylgdist hún með þeim til að bægja frá þeim slysum. Þegar Pétur í hita dagsins flutti heim hey, var 'hún með honum og reyndi að létta honum vinnuna, og á nóttunum sat hún hjá rúminu hans og drengjanna, til að bægja frá þeim erfiðum draumum. Þegar Pétur fór á fætur á sunnudagsmorgn- ana, þá reyndi. hún að laumast inn í huga hans og hvetja hann til að fara til kirkjunnar. Einu sinni á hverjum degi fór hún inn í fjósið til að verja kýrnar fyrir veikindum, og á haustin, þá frost gengu um nætur, fór hún út á akurinn til að telja sér trú um að frostið hefði ekki snert byggið hans Péturs. Undir sumarmálin, datt Pétri í hug að fara inn í þorpið, en þá vissi Karí ekki, hvort hún ætti að fara með honum eða vera heirna hjá drengjunum meðan þeir berðust við að sjóða matinn handa sér, og líta eftir kúnum í fjósinu. Þó varð það úr að hún varð heima og bar sig við að segja þeim til. Þegar Pétur kom heim, var hann drukkinn, þá barði hann drengina, eins og hann áður hafði barið hana, en daginn eftir iðraðist hann þess, eins og hann ávalt hafði gert, vegna þess — guði sé lof — hann hafði ekki drukkið frá sér vitið. Dag nokkurn skeði það, að ókunnug kona, með böggul und- ir hendinni, kom að Ási; gerði hún sig heimakomna, tók að sér öll matarverkin og fjósið, og litlu seinna varð Kári vör við að Pétur var í undirbúningi með að gifta sig í annað sinn. “Vesalings maðurinn,” hugsaði Karí. “Ætl- ar hann virkilega að fleygja sér í fangið á öðrum kvenmanni," — Og hún varð að horfa á að kona þessi klæddist fötunum hennar sjálfrax. Seinna um sumarið varð hún þess vör að búist var við giftingu, og svo bráðlega komu náungarnir með körfu á handleggjunum og drukku þeim til sem hjónum. Drengirnir litu leynilega hver til annars; því þeir voru að hugsa um hana mömmu sína. — Karí fór með fólkinu til kirkj- unnar og sat aftarlega í kómum og horfði á þegar Pétur giftist þessum kvenmanni. “Það var afleitt,” hugsaði Karí, hún kunni ekki einu sinni að hnýta klútnum um hálsinn, það var öðruvísi hjá mér.” Nú breyttist margt hjá Pétri. Hann og nýja konan flugust á, og drengirnir fengu svo illa með- ferð hjú stjúpu sinni, að þeir grétu sig í svefn. Og Drottinn hafði horft á þetta alt saman, og einn daginn kom engill fljúgandi til Karí og spurði hana að, hvort hún ekki vildi koma með sér til hiimna- ríkis. “Ó, nei,” sagði Karí. “Eg held mér líði þar engu betur, meðan Pétri líður ekki betur en nú er.” Svo hún varð kyrr og huggaði sig við að Pétur hugsaði oftar og oftar um sig og talaði um sig við drengina, þegar kona þessi var ekki viðstödd. Og árin liðu. Drengirnir urðu fullorðnir menn og tóku stöðu í söfnuðinum. Seinna giftist ann- ar bóndadóttur, og erfði bæði hús og jörð, og hinn fékk ríka stúlku, hann keypti sér bát og (Frh. á hl&. 3) ■' 'í' * P ,/ 111 rynr stor og smá býlier notkun s " COCKSHUTT * verkfæra allra best .•tóS-ÍS: Hjá Cockshutí fásl nýtízku verkfæri til allrar búnað- arvinnu. Og það sem meira er, að Cockshutt. vélar fást svo að segja af öllum hugsanlegum stærðum . . . ásamt úrvali af varahlutum. Þess vegna stendur á sama hvernig jarðvegur er, eða uppskerutegundir hvori býlið er stórt eða smált, hvort notaðir eru hestar eða dráttar- vélar, þá gelið þér ávalt feng- ið Cockshuli á höld, sem full- nægja þörfum yðar. COCKSHUTT CONDE MJALTAVEL Að öllu öðru jöfnu, fáið þér meiri ágóða af hverri kú, ef notuð er Cockshutt Conde mjaltavél. Þess vegna nota forystumenn mjólkuriðn aðarins Cockshutt Conde mjalta- vél til að auka mjólkurframleiðsl- una við auknum hagnaði. COCKSHUTT DRÁTTARVELA BINDARA Hraði við kornslátt leiðir oft til aukins uppskerumagns . . . og aukins ágóða. En slíkt af orkunni, sem veitt er frá dráttarvél yðar í Cockshutt bindarann. Hann er til þess gerður að inna af hendi mikla og jafna vinnu, klukkustund eftir klukkustund . . . dag eítir dag með- an á, uppskeruönnum stend- COCKSHUTT HARVESTER COMBINE Útilokar kostnað við bindaratvinna, og dregur úr kostn- aði við stökkun og þreskingu. Einn maður vinnur vél- inni greitt og auðveldlega. Fæst annaðhvort sjálfknúin eða af dráttarvélagerð. /

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.