Lögberg - 24.07.1947, Page 1
Cleaning
Insiiiulion
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 24. júlí, 1947
NÚMER 29
By courtesy of “The Winnipeg Tribune'
Efri röS, vinsiri iil hægri: Dolores, Jón, Ellene Eylands.
Neðri röð, vinsiri iil hægri: frú Eylands, Lilja og séra
Valdimar J. Eylands.
Séra Valdimar J. Eylands
kominn til íslands ásamt fjölskyldu
HERMDARVERK
Sá merkisviðburður hefir nú
gerst í meenningarsögulegu sam-
bandi milli íslendinga austan
hafs og vestan, að hinum fyrstu
prestaskiptum hefir nú verið
hrundið framkvæmd. Séra
Valdimar J. Eylands, prestur
fyrsta Lúterska safnaðar í Winni
peg, og forseti Þjóðræknisfélags
fslendinga í Vestuheimi, er kom
inn til íslands, og þjónar þar í
árstíma Útskálaprestakalli, í
skiptum við séra Eirík Brynjólfs
son þar, sem hingað er kominn
til þess að veita prestsþjónustu
Fyrsta lúterska söfnuði um jafn
langt tímabil. Þessum manna-
skiptum, sem íslenzk kirkju- og
stjórnarvdld, hafa á drengilegan
hátt stuðlað að, mun almeennt
fagnað verða beggja vegna hafs
ins, því með þeim er snúinn snar
þáttur í andlegu samstarfi milli
stofnþjóðarinnar og þjóðarbrots-
ins í vestri. — Þau séra Valdi-
naar og fjölskylda, lögðu af stað
til íslands flugleiðis í lok fyrri
viku, og samkvæmt eftirfarandi
símskeyti til Mr. Alberts
Wathne, kom ferðafólkið td
Reykjavíkur fyrri part síðastlið-
ins mánudags.
“Reykjavík, 21. júlí 1947. —
Komum í dag. Viðtökur ágætar.
Kveðjur."
Séra Valdimar er ágætur fs-
’ lendingur og mælskumaður
mikill; hann hafði lengi þráð að
líta ættjörð sína augum á ný, og
nú hefir þeirri þrá verið full-
nægt; vonandi er að dvölin í
faðmi fósturjarðarinnar verði
honum orkugjafi í þágu hugðar-
niála sinna og sifjaliði hans til
ánægju og blessunar.
1
MÓTMÆLIR HÆKKUN
FLUTNINGSGJALDA
Stjórnin í Alberta hefir sent
járnbrautarráðinu í Ottava
hvöss mótmæli gegn hækkun
úutningsgjalda með járnbraut-
um landsins; telur hún þá hækk-
un, sem járnbrautarfélögin hafa
* hyggju, með öllu óþarfa, og
hændum Vesturlandsins í óhag;
rannsókn um kröfu járnbrautar
félaganna um hækkuð flutnings
gjöld, hefir staðið yfir í fimm
^nanuði, og enn ekki fyrirsjáan-
fegt hvenær henni ljúki.
Seinni part vikunnar, sem-
leið, gerðist sá atburður, að
vopnaðir, pólitískir stigamenn,
réðust inn í þinghúsið í Ragoon
í Burma, þar sem' ráðuneytið
sat á fundi, skutu fyrst dyra-
♦ -f -f ♦ V -f -f
vörðinn til dauðs, en létu því
næst kúlnahíð dynja yfir ráð-
herrana, sex þeirra létust sam-
stundis, en tveir dóu litlu
seinna af sárum. Stigamennirn-
ir komust undan í jeppabíl.
Mætur Maður Látinn
Síðastliðinn þriðjudag lést á
Almenna sjúkrahúsinu hér í
borginni R.C. Findlay, 58 ára að
aldri, einn þeirra manna, er
drýgsta og happasælasta hlut-
deild áttu í skipulagningu hveiti
söluráðsins í.Canada; hann var
um eitt skeið féhirðir hveitisam-
lagsins í Saskatchevan og naut
almeennrar virðingar hvar sem
leið hans lá og þótti með afbrigð
um glöggur á alt, sem að kom-
sölu laut.
Sprengjuverksmiðja
Samkvæymt nýjum fregnum
frá Washington, D. C., er það nú
komið á daginn, að verksmiðjan
í Los Alamos í New Mexico-rík-
inu, þar sem fyrstu atomsprengj
urnar voru framleiddar, verði
stækkuð til muna í náinni fram-
tíð og fullkomnuð á margan
hátt; með þessu er sýnt, að verk-
smiðjan verði framvegis starf-
rækt á varanlegum grundvelli,
þó lengi vel væri þannig litið á,
að svo yrði ekki; staðhæft er,
að til endurnýjunar verksmiðj-
unni sé fyrir hendi fé sem skipti
milljónum dollara.
Ur borg og bygð
Frá Arborg, Manitoba,
17. júlí, 1947.
Herra ritstjóri Lögbergs:
Vilt þú vera svo góður að
birta í blaði þínu nokkur þakk-
arorð til Dr. K. J. Austman. Eg
er nýkomin heim undan upp-
skurði sem hann gjörði á öðru
auga mínu. Eg var sama sem
blind, sá aðeins mismun dags
og nætur. Vil ég kalla það krafta
verk sem hann framkvæmdi,
þar sem ég er níutíu ára og sex
mánaða gömul. Nú sé ég til að
ganga um húsið, og get lesið
stórt letur. Það er vonandi að
hann eigi eftir að hjálpa mörg-
um sjónlausum enn. Það. þarf
enginn að hræðast stórmensku
frá hans hálfu. Maðurinn er
sérstakt ljúfmenni. Vil ég óska
honum alls hins besta í bráð og
lengd.
Svo vil ég þakka öllum gömlu
kunningjunum sem komu til
mín á sjúkr^húsið og styttu tím
ann. —
Sérstaklega vil ég þakka Mrs.
Harvey Benson þar sem ég var
til húsa undan og eftir upp-
skurðinn.
Meeð kærri kveðju enda ég
þessar línur.
Með virðingu
Mrs. Dyrunn S. Árnason
♦
Gefið í minningarsjóð
Mrs. Guðrún Hólm $10.00, í
minningu um ástríkan eigin-
mann og tengdamóður, Sigurð
Holm og Guðnýju Holm.
Með innilegu þakklæti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk.
-f
Leiðréiiing.
f greininni Ársþing Bandalags
Lúterskra Kvenna, slæddist inn
þessi villa: Eitt nafnið í sumar-
búðanefnd er Mrs. Hrólfur Sig-
urðsson — á að vera Mr. Hrólf-
ur Sigurðsson, Gimli.
-f
DÁN ARFREGN
Hin háaldraða kona, Jóhanna
Þorbjörg Elíasdóttir, andaðist
fyrsta þ. m., á heimili dóttur
sinnar, Mrs. S. Guðmundssonar.
Hún var fædd 3. sept., 1850, á
Efstasamtúni í Glæsibæjar-
hreppi; foreldrar hennar voru
Elías Hálfdánarson, Ifrá Húna-
vatnssýslu og Karin Hansdótt-
ir, Buck. Jóhanna sál. kom til
Kanada með Jónínu dóttur
sinni, — Mrs. S. Guðmundsson,
— um aldamótin og átti heima
lengst af í Winnipeg, en síðustu
ellefu árin var hún hjá Mr. og
Mrs. Ingólfi Bjarnasyni á
Gimli.
Jóhanna var jarðsungin 4. þ.
m. frá Lútersku kirkjunni á
Gimli af sóknarprestinum.
-f
Frú Pálína Sigurðsson kom
flugleiðis hingað til borgar sunn
an frá New York, aðfaranótt
s.l. mánudags; maður hennar,
I Ingólfur Sigurðsson, starfsmað-
ur Eimskipafélags fslands, lagði
af stað heimleiðis samdægurs;
þau hjón ferðuðust víða um
Vestur-Canada og Kyrrahafs-
strönd, og nutu ósegjanlegrar
ánægju á ferðalaginu. Frú
Pálína dvelst hér um slóðir
fram í ágústmánuð.
-f
Mr. og Mrs. Th. Kjartansson
frá Amaranth, eru nýlega kom-
in heiin úr hálfs mánaðar ferða-
lagi suður um' Bandaríki; heim-
Sveitin mín
Sextíu ára afmæli Álftavatns
og Grunnavatnsbyggða
Sextíu ára sveitin mín,
Söng við hefjum nú til þín;
Frumbýlingsins fagra lag.
Dóttir sönn og sonur hver,
Sína lotning veita þér,
Þennan mæta merkisdag.
Enginn foss og enginn sjór
Engin mannavirki stór
Engin fögur fjalla sýn.
Sléttu blóm og gróin grund,
Grænir skógar, kjarr í lund;
Það er foldar fegurð þín.
Hokið bak og höndin þreytt,
Hárin grá og ennið sveitt,
Fumbýlingsins trega tár.
Hefja grjót og höggva skóg,
Heyja engi og draga plóg,
Er það saga um sextíu ár?
Lífsins ganga gegnum raun
Gengin er; og hvaða laun
Eru sett við söguþátt?
Niðji hver sem frama fann,
Föðurhúsum orðstír vann,
Lyfti manndóms merki hátt.
Barna þinna dygð og dáð,
Dýrstu laun, sem til var sáð,
Eru andans óðul þín.
Vinarhendi rétt að hönd
Hjálpar til, og trygða bönd;
Er þín saga sveitin mín.
Vina þinna vonar hönd,
Verndi öll þín draumalönd.
Ætíð stækki störfin þín.
Faðir ljóss og bræðrabands,
Blessi þig með sigurkrans,
Sextíu ára sveitin mín.
Berglhór Emil Johnson.
sóttu þau íslendinga í Madison,
Wisconsin, og eins í Chicago;
létu þau hið besta af förinni.
Fyrir skömmu brann skólahúsið
á Lundar til kaldra kola; var
þetta mikil bygging og verð-
mæt; er bruninn byggðarlaginu
til mikils hnekkis, ekki þó hvað
síst vegna þess hve liðið er á
ár og skamt til þess tíma, er
skólahald hefst af nýju.
-f
Mr. V. J. Guttormsson skáld
frá Lundar, lagði af stað ásamt
frú sinni vestur til Vancouver í
fyrri viku.
Dr. Richard Beck fimmiugur
Aldrei hefir mögur mær
móðurjörðu betur unnið.
Þú ert okkur öllum kær
Islendingum fjær og nær;
mentagyðjan guðleg fær
gull úr þínum anda spunnið.
Aldrei hefir mögur mær
móðurjörðu betur unnið.
H. E. Magnússon,
-f
Gefið iil Sunrise Luiheran
Camp
Kvenfélagið- Liljan, Hnausa,
$25.00. — Meðtekið með innilegu
þakklæti.
Clara Finnsson
505 Beverly St.
. -f
Gjöf afheni þingi B.L.K.
I greininni um ársþing Banda-
lags Lúterskra Kvenna, láðist
mér að geta afhending gjafar
sem þar fór fram 23. júní. Kon-
urnar sem saman voru komnar
á þinginu, gáfu forsetanum,
Mrs. Ingibjörgu J. Ólafsson,
“Sheaffer’s ball point pen”
gullbúinn með viðeigandi áletr-
un, ásamt dálítillri fjárupphæð,
í tilefni af hennar silfurbrúð-
kaupsdegi, 30. júní. Mrs. Han-
sína Olson, heiðursforseti Banda
lagsins talaði fyrir gjöfinni með
nokkrum fögrum oðrum. — Hún
óakkaði Mrs. Ólafsson hið mikla
leiðtogastarf hennar í þarfir fé-
lagsins, og óskaði að við mætt-
um njóta hennar sem lengst. —
Hún túlkaði hlýhug allra félags-
meðlima til forstjóra síns og
sagði að gjöfin ætti ætíð að
minna á þann hlýhug og velvild.
L. M. G.
♦
Gefin saman í hjónaband að
íslenzka prestssetrinu í Selkirk,
þann 12. júlí, John Reckeri, Sel-
kirk, Man., og Anioinefte Van
Bos, Rumst, Belgíu. — Vitni við
athöfnina voru: Mr. George Ed-
ward( Light, Fuller P. O. Man.,
og Miss Arlene Eleanor Trapp,
St. Queens, Man. — Giftingin
fór fram að viðstöddum hópi
ættmenna og vina brúðgumans.
Ungu hjónin setjast að í Selkirk.
-♦
Þorvaldur Reykdal, 82 ára
að aldri, lést þann 17. þ.m., að
heimili dóttur sinnar, Mrs. C. R.
Saul. 673 Valour Road. Kveðju-
athöfn fór fram í Winnipeg, en
síðan var líkið flutt til jarðsetn-
ingar að Lundar. Hinn látni læt-
ur eftir sig ekkju, Kristínu
Reykdal.
Þann 18. þ. m., lést á St. Boni-
face Sanatorium, Björn Ingvar
Sigvaldason frá Arborg, frpk-
lega 69 ára að aldri, dugnaðar-
maður hinn mesti og prýðisvel
gefinn; hann var um eitt skeið
oddviti í Bifröst í Nýja íslandi;
hann lætureftir sig ekkju, Láru
Guðjónu, ásamt sextán mann-
vænlegum börnum.
-f
Miss Kristín Skúlason kenslu-
kona frá Riverton, var stödd í
borginni um síðustu helgi.
-♦
SKYR
Sendið pantanir yðar að fyrir-
myndarskyri til Mrs. Thomp-
son 203 Maryland Street. Pott-
ur 65 c., mörk 35 c. — Sími 31570
-♦
KVEÐJUR FRÁ ÍSLANDI
Eftirfylgjandi símskeyti, bæði
dagsett í Reykjavík þ. 20. júní
s.l., hafa borist Hinu evang.
lúterska kirkjufélagi Islendinga
í Vesturheimi:
President Icelandic Lutheran
Church of America, Mr. Fáfnis,
Edinburg, N. Dak.
Cordial thanks for your kind
greetings and my best wishes
for the Synod.
Sveinn Björnsson
President of Iceland.
♦
President Icelandic Synod,
Edinburg, N. Dak.
Synod’s and mine heartfelt
thanks for most welcome mess-
age. May God bless you and the
Icelandic Synod.
Bishop.
♦
Hinn ötuli og framtakssami
iðjuhöldur og rithöfundur, Sof-
fonías Thorkelsson, lagði af stað
síðastliðinn miðvikudagsmorg-
un vestur til Victoria, B.C., til
framtíðardvalar; verður heimili
hans að 160 Beachwood Avenue
þar í borginni. Mr. Thorkelsson
leit inn á skrifstofu Lögbergs á
þriðjudaginn, og bað blaðið að
flytja öllum vinum, er hann
náði eigi til að kveðja, innilegar
kveðjur sínar.
Minni landnema, Lundar, 6- júlí 1947
Aldrei fyrnast frumherjanna
fremdarverk og þrautaspor
flestra, sem ei annað áttu
en ósérplægni, kjark og þor.
Æfintýra ljóminn lýsir
löngu horfin tímabil —
þegar byggða-sagan sýnir
sextíu’ ára reikningsskil.
Blöstu veiðivötn og skógar,
veglaus mörk og hrjóstursvið,
örbirgð, fár og erfiðleikar
útlendingsins sjónum við.
Eitt það mundi á að treysta,
er aflað varð með höndum tveim —
allar voru að baki brendar
brýr, sem lágu aftur heim.
Sumir komu á æskualdri,
aðrir hér um hálfnað skeið,
sumir áttu elli’ að fagna,
aðrir féllu’ á miðri leið.
Sumra báta bar að landi,
brutu öldur margra stafn. —
Svo er enn, að aldrei verður
allra manna hlutur jafn.
Þungt var starfið myrkra milli,
margt var lagt á gjörva bönd,
hreysin urðu’ að hallarkynnum,
hrjóstrin frjósöm gróðurlönd.
Flest er það, sem helgast hlýtur
hljóðri minning landnemans —
þrekraun mörg til þjóðlífs bóta
þögult vitni’ um manndóm hans.
Ljóma yfir grónum gröfum
geislar horfins sólarlags
þeirra, er höfðu hraustir borið •
hita og þunga liðins dags;
þeirra, er sig í sölur lögðu
x sjálfa, hagsvon, eigin þörf '
afhroðsgjöld, sem urðu’ að létta
afkomandans dagleg störf.
Heill þér Lundar — byggðin bjarta!
Berðu ættarmerkið hátt;
framtíð þína treysti’ og tryggi
trú á vorsins gróðrarmátt.
Gæfan krýni aldna’ og unga,
er undu glaðir hér við sitt —
Meðan geislum sólin sveipar
sextíu’ ára landnám þitt.
Ragnar Stefánsson