Lögberg - 24.07.1947, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. júlí, 1947
5
AHDGAMAL
LVCNNA
Ritstj&ri:
MAMMA ÞARFNAST
HVÍLDAR EINS OG AÐRIR
Nú er vinnandi fólk að fá sum
arleyfi sín; heilar fjölskyldur
hafa tekið sig upp og flutt úr
borginni, út í sveit í sumarbú-
staðí sína. Mikið hefir fólk hlakk
að til að hverfa burt af stein-
strætunum út í guðsgræna nátt-
úruna, þar sem loftið er hreint
jörðin græn og angandi og vatn-
ið heillandi. Mikið hafa blessuð
börnin hlakkað alt árið til að
komast út að vatninu, skvampa
í því og synda, hlaupa eftir fjör-
unni, tína skeljar, byggja sand-
kastala. Þar ná þau sér aftur
eftir hina löngu skólasetu og
verða sólbrún og hraustleg, og
safna orku fyrir komandi vetur.
Það er nauðsynlegt fyrir börn-
in að komast úr borgunum, út
á land á sumrin. Það er því eink-
ar þakkarvert að ýms félög hafa
reist sumarbúðir við vötnin til
þess að gefa börnum kost á að
dvelja nokkra daga í sveit á
sumrin, þeim, er annars myndi
ekki eiga kost á að fara þangað.
Gert er einnig ráð fyrir því að
þreyttar mæður dvelji nokkra
daga í þessum sumarbúðum sér
til hressingar.
Ef til vill gera ekki allar fjöl-
skyldur, sem flytja út í sumar-
bústaði sína, sér grein fyrir því
að „mamma" þarfnast hvíldar
eins og aðrir. Oft kemur það fyr
ir að hún kemur heim aftur,
miklu þreyttari en þegar hún
fór, vegna þess að hún hefur
haft meira að gera í sumarfrí-
inu heldur en á nokkrum öðr-
um tíma ársins. Fjölskyldan
þarf að borða, sofa og vera hrein
til fara, þótt hún sé úti í sum-
arbústað og ætlast er til að móð
irin hafi umsjón með þessu eins
og endranær, en svo bætast við
ýms aukastörf og óhjákvæmileg
óþægindi. Fyrst þarf að hressa
upp á húsið eftir umhirðuleysi
vetrárins, hreinsa það og koma
fyrir áhöldum og húsgögnum.
I mörgum sumarhúsum er
hvorki rafmagn né vatnsleiðsl-
ur, svo hin venjulegu hússtörf
verða húsmóðurinni miklu erfið
ari en heima; hún verður að
kveikja í eldavél og elda allan
mat á henni; bera inn, og hita
alt þvottavatn ofan á eldavéi-
inni; þvo í bala með bretti; panta
í einu nægileg matvæli fyrir
marga daga. Auk þessa er stöð-
ugur gestagangur; börnin bjóða
vinum sínum úr borginni, að
dvelja hjá sér í nokkra daga og
faðirinn kemur með nokkra
kunningja úr borginni um helg-
ar. Að öllu þessu athuguðu, er
ekki að furða þótt móðirin sé
orðin ærið þreytt þegar sumar-
fríinu lýkur.
Eini vegurinn til þess að bæta
úr þessu er, að öllum meðlimum
fjölskyldunnar, ungum og göml
um sé það ljóst, áður en lagt er
af stað, að þeir verði að gera
ýms störf og snúninga í sumar-
bústaðnum, auk þess að skemmta
sér; að “mamma” á ekki að vera
þjónn allra, hún verður að fá frí
líka. Engin má skerast úr leik;
sá sem ekki vill vinna, á ekki
skilið að skemmta sér.
Börnin hafa alveg eins mikið
gagn og gaman af sumarfríinu,
þótt þau hafi ákveðnum skyldu
störfum að gegna; Það er síður
en svo að það sé holt fyrir stálp-
uð börn að leyfa þeim ávalt að
skemmta sér á kostnað móður-
innar; að koma þeim upp á að
hún dekri við þau og þjóni
þeim, þannig verða þau eigin-
gjörn, frek og leiðinleg, og
verða sennilega seinna að súpa
út á slíkt uppeldi, því ekki mun
hún altaf verða til staðar til þess
INGIBJÖRG JÓNSSON
að taka á herðar sér áhyggjur
þeirra og skyldur; þeim mun
ganga ver að venjast því að
vera sjálfstæð, þegar þau eru
orðin fullorðin.
Sumarfríið er mikið æfintýri
í lífi fjölskyldunnar; með lægni
er hægt að láta börnunum finn-
ast gaman og æfintýralegt að
gera ýms störf, sem þau eigi hafa
átt að venjast: Jón litli sækir
vatnið, ber inn eldiviðinn, nær
í ísinn, býr um rúmið sitt, heng
ir upp baðfötin sín og sér um
sín eigin föt; hann getur verið
mjög hjálpsamur maður, þótt
hann sé aðeins 10 ára gamall. —
Anna litla býr upp rúmin, þríf-
ur til í stofunni, leggur á borð-
ið, þvær upp leirtauið, passar
yngri börnin. Vinnan gengur
fljótt og vel þegar margar
hendur eru að verki.
Fjölskyldufaðirinn er sjaldn-
ast nema tvær vikur og um
helgar í sumarbústaðnum, svo
ekki er hægt að ætlast til of
mikilla snúninga af honum. —
Hann ætti þó að hafa það í
hyggju að það er ágæt líkams-
æfing og heilsubót í því að slá
grasið, reita illgresið úr blóma-
garðinum, kljúfa eldivið og
dytta að húsinu. Börnin taka
líka oft meira tillit til þess sem
faðir þeirra segir þeim, vegna
þess að þau eru ekki eins mik-
ið með honum eins og móður-
inni; hann getur mikið létt und-
ir með henni með því að hafa
áhrif á börnin, þannig að þau
skilji að þau eigi að vera um-
hyggjusöm og hjálpsöm við móð
ur sína.
Sjáið um að “mamma”, engu
síður en aðrir, fái góða hvíld í
sumarfríinu; hún á það skilið.
Edik er iil margra hluia
Ef eggið, sem á sjóða, er
sprungið, er ágætt að láta eina
teskeið af ediki í vatnið svo
eggjahvítan fari ekki út í vatnið.
♦
Ef maður þarf að ná blettum
af dragtarpilsinu sínu t. d. eða
einhverjum öðrum flíkum og hef
ir ekki annað en edik við höncþ
ina, er ágætt að nudda blettina
úr því með hreinum klút.
Ef ykkur finst kállyktin. vond,
þegar þið sjóðið kálmeti, og vilj
ið ekki að lyktin komist inn í
stofuna, sérstaklega ef þið eigið
von á gestum, vindið þá klút
upp úr ediki og látið hann kring
um lokið á pottinum.
Kvenréitindi
Árið 1616 gekk svohljóðandi
lagaboð í gildi á Englandi:
Hvert skipti, sem hlaupár er,
skal hver ógift kona hafa lög-
fulla heimild til að tjá ást sína
hverjum þeim manni, sem hún
kýs sér að eiginmanni, og má
hann ekki taka málaleitun
hennar með fyrirlitningu né
spotti.
Löngu fyrr — 1288 — hafði
verið gefin út svohljóðandi til-
skipun í Skotlandi:
Á stjórnarárum hennar há-
tignar, Margrétar drottningar
skal hver ógift kona í Skotlandi
hvort sem er af háum eða lág-
um stigum, hafa frelsi og full-
an rétt til þess að biðja þess
manns, sem henni best fellur í
geð, á því ári, sem hlaupár
nefnist, og skal hann taka sér
hana til ektakvinnu, eða að
öðrum kosti greiða henni skaða-
bætur í peningum. En geti
hann fært sönnur á, að hann sé
heitbundinn annarri konu, skal
hann laus allra mála.
Þessu lík lagaboð hafa verið
gefin út í fleiri löndum.
Vísir til Búnaðarskóla á
Hvanneyri í Borgarfirði
Framhaldsnámskeið hefst þar
í haust.
Viðtal við Guðmund Jónsson,
skólastjóra.
Á Hvanneyri ber allt vott
traustrar stjórnar vel menntaðs
dugnaðarmanns. Innan húss
sem utan er öllu smekklega fyrir
komið, og gestrisni og alúð hús-
bændanna er ramísleenzk.
Tíðindamaður blaðsins spurði
Guðmund Jónsson skólastjóra
frétt, er vhann kom að Hvann-
eyri um helgina. Sagðist Guð-
mundi svo frá:
1 vetur voru 44 nemendur í
skólanum, 17 í yngri deild og 27
í eldri deild. Luku þeir allir
burtfararprófi. Aðalnámsgrein-
ar skólans eru: Jarðræktarfæði,
búfjárfræði og arfgengisfræði.
Auk þessara námsgreina er kend
íslenzka, stærfræði, þjóðfélags-
fræði, steinafræði, búnðaarsaga
íslands, mjólkurfræði, efna-
fræði, grasafræði, líffærafæði,
landbúnaðarlöggjöf, búnaðar-
landafræði, leikfimi og búsmíð-
ar.
Skólinn starfar frá miðjum
október til sumarmála. — Verk-
lega námið hefst strax að bók-
lega náminu loknu. Er einkum
lögð áhersla á að kenna nemend
um meðferð ýmissa jarðyrkju-
véla, t. d. dráttarvéla. Nemend-
ur læra að aka til og fara með
mjólkurvélar, þá læra þeir
ýms jarðræktar- og garðyrkju-
störf. 1 júlí og ágúst fá piltarnir
leyfi. En verklega námið hefst
á ný í september.
Fjórir kennarar
Við skólann kenna fjórir kenn-
arar auk sr. Guðmundar Sveins-
sonar, sem keenndi íslenzku og
söng síðastliðinn vetur. Kennar-
ar eru, auk skólastjórans,
Gunnar Bjarnason ráðunautur,
Hailkur Jörundsson og Ellert
Ellert Finnbogason, sem kenndi
leikfimi og búsmíðar.
Með haustinu er í ráði að
koma á framhaldsnámi í bú-
fræði, og geta allir innritast í
íina nýju deild, sem lokið hafa
burtfararprófi frá Hvanneyri eða
Hólum. Eins og nú standa sak-
ir, er enginn skóli til í landinu,
sem veitir framhaldsmenntun í
DÚfræði; nýja deildin hér verður
fyrsti vísirinn. Til þess að hægt
verði að reka þessa deild, þarf
a. m. k. einn kennara í viðbót.
Minni áhugi
Nemendum fer heldur fækk-
andi á bændaskólanum. Hér er
rúm fyrir fimmtíu, en 44 sóttu
skólann. Hólaskóli tekur 40, ea
hann var ekki heldur fullskipað-
ur s. 1. vetur. Þeir piltar, sem
hingað koma, eu áhugasamir um
landbúnaðarmál, en þeir þyrftu
að vera fleiri.
1 fyrra var bygður ráðsmanns
*bústaður og prestabústaður
hér á Hvanneyri, og nú er verið
að leggja inn rafmagn frá Anda
kílsvirkjuninni. Ætti því að
verða lokið um miðsumar. Auk
Hvanneyrar fá bæði Borgarnes
og Akranes rafmagn þaðan, og
á næstunni er gert ráð fyrir raf-
magni handa 100 sveitabæjum,
og í náinni framtíð verður raf-
magn leitt víðar um héraðið.
Vísir, 10. júní.
Gömlu íslendingarnir
á Gimli biðja að
heilsa heim
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri
Elliheimilisins Grund, er ný-
kominn heim úr ferðalagi til
Ameríku, en hann fór þangað
til að kynna sér rekstur elliheim
ila fyrir vestan haf. — Hafði
hann meðferðis meðmælabréf
*
frá Gunnari Thoroddsen borgar
stjóra hér í Reykjavík, til yfir-
borgarstjórans í Nev York og
opnaði það honum allar dyr að
elliheimilum fyrir vestan.
Gísli fór í heimsókn að Elli-
heimilinu Gimli í Manitoba og
segir hann, að sá staður finnist
sér íslenzkastur allra staða er
hann hafi komið á, að Grund
einni undantekinni.
Gamla fólkið á Gimli bað
hann að færa kveðjur til Is-
lands. Guðmundur Brynjólfsson,
sem er 91 árs, sagði: “Eg bið að
heilsa fjöllunum heima“. Kona
á níræðisaldri sagði: „Ef nokk-
ur kannast við mig heima, þá
bið ég að heilsa“.
Gísli færði Elliheimilinu að
Gimli stækkaða ljósmynd af
Heklu, að gjöf. Á myndinni voru
nokkrir íslenzkir hestar. Þeir
vöktu svo mikla athygli gamla
fólksins, að sjálft Heklugosið
var aukaatriði á myndinni sam-
anborið við myndina af hestun-
um.
Mjög rómar Gísli allar mót-
tökur og gestrisni Vestur-ís-
lendinga, sem allir kannast við,
er vestur hafa komið. Hann
varð og var við hve íslendingar
eru í miklum metum vestra. 1
Toronto heyrði bráðókunnugur
maður, að Gísli sagði tollverði.
að hann væri Islendingur. —
Hann gaf sig á tal við Gísla og
sagðist þekkja marga Islendinga
í Winnipeg og annað eins sóma-
fólk hefði hann aldrei komist í
kynni við, fyrr né síðar.
Mbl., 13. júní.
HVERT STEFNIR?
(Frh. af hls. 4)
í sálu hins göfuga manns við
einlæga og alvarlega Guðs leit.
Kross Jesú Krists sigraði þar og
hélt áfram smátt og smátt að
sigra grimdina og guðleysið í
mannssálinni, þrátt fyrir það þó
hveitinu gengi oft seint að vaxa,
og gangi því miður all seint enn
víða. Það er samt ekki erfitt að
að sjá, sé vel að gætt, upp af
hverju hveitið sprettur né upp
af hverju þyrnar og þistlar vaxa.
Eg er í hópi þeirra, sem lang-
ar til þess að íslenzk tunga mætti
lifa sem lengst vestan hafs. —
Einnig að það besta, sem er til í
íslenzkum bókmenntum mætti
komast inn í vitund afkomenda
íslenzka þjóðarbrotsins hér. Þar
með eitthvað úr sögu landsins.
Eg er af öllu hjarta þakklát þeim
sem af óeigingjörnum hvötum
vinna að þessu máli. Eg rek mig
altaf á það annað slagið, að það
er nauðsyn — ekki síst með bók-
menntimar og söguna. Samt
sem áður, ef við eigum að gera
slíka vinninga á kostnað krist-
innar trúar, þá er betra að
stansa þar sem maður er nú. Að
minsta kosti ættum við með
kostgæfni og alvarlegri athygli,
að athuga hvert stefnir með
þetta mál.
„Öllum hafís verri er hjartans ís,
því hann heltekur skyldunnar
þor.
Ef hann grípur þjóð, þá er glötun
vís,
þá gagnar ei sól né vor.
En sá heiti blær, sem til hjartans
nær,
frá hetjanna fórnarstól,
glæðir andans ís,
þaðan aftur rís,
fyrir ókomna tíma sól”.
Með hugheilum óskum til
Álftavatnsbyggðar.”
As orders for new telephone service are received,
they are placed on a waiting list and filled in
rotation.
Your telephone service will be installed on that
basis. In that way, fair distribution is made of the
equipment and material as it seaches us from the
manufacturer.
2-47
mnniTOBR teiiEphono
snsTEm
Rannveig G. Sigurbjörnsson
auit'iau
fó&M, cojffee.'t/uui
FORT
GARRYV
For flavour, richness and strength, Fort Garry Coffee is
coffee at its best —always roaster-fresh—delicious!
Enjoy Fort Garry Tea, too.
A HUDSON’S BAY COMPANY PRODUCT
Inn köllunarmenn LÖGBERGS
Amaranth, Man.............. B. G. Kjartanson
Akra, N. Dak..................
Backoo, N. Dakota.
Árborg, Man ............ K. N. S. Fridfinnson
Árnes, Man.................... M. Einarsson
Baldur, Man................... O. Anderson
Bellingham, Wash........... Árni Símonarson
Blaine, Wash............... Árni Símonarson
Boston, Mass................Palmi Sigurdson
384 Newbury St.
Cavalier, N. Dak..............
Cypress River, Man............. O. Anderson
Churchbridge, Sask ..... S. S. Christopherson
Edinburg, N. Dak .......... Páll B. Olafson
Elfros, Sask. ..... Mrs. J. H. Goodmundson
Garðar, N. Dak............. Páll B. Olafson
Gerald, Sask.................... C. Paulson
Geysir, Man............. K. N. S. Friðfinnson
Gimli, Man. ................. O. N. Kárdal
Glenboro, Man ............... O. Anderson
Hallson, N. Dak............. Páll B. Olafson
Hnausa, Man. ...........K. N. S. Fridfinnson
Husavick, Man. .............. O. N. Kárdal
Langruth, Man. .......... John Valdimarson
Leslie, Sask. Jón ólafsson
Lundar, Man. ................. Dan. Lindal
Mountain, N. Dak. Páll B. Olafson
Point Roberts, Wash. ......... S. J. Mýrdal
Riverton, Man. ......... K. N. S. Friðfinnson
Seattle, Wash.................. J. J. Middal
6522 Dibble N.W., Seattle, 7, Wash.
Selkirk, Man................Mrs. V. Johnson
Tantallon, Sask............. J. Kr. Johnson
Vancouver, B.C................F. O. Lyngdal
5975 Sherbrooke St., Vancouver, B.C.
Víðir, Man. .......... K. N. S. Friðfinnson
Westbourne, Man. Jón Valdimarson
Winnipeg Beach, Man. O. N. Kárdal