Lögberg - 14.08.1947, Page 1
I
PHONE 21374
\jú»'tc
J7cicau.cTS
A Complele
Cleaning
Insiiíuiion
PHONE 21 374
1 \>^tcA
d PTH
■'dcrers
TjttU- ■j'XJ'S ^ A Compleie
Cleaning
Insiiiuiion
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 14. ÁGÚST, 1947
NÚMER 32
Frá íslendingadeginum á Gimli, Manitoba
Nóttina á undan Islendinga-
deginum á Gimli geisuðu þrum-
ur og eldingar norður við vatn-
ið, og er fólk reis úr rekkju að
morgni hátíðisdagsins, var enn
steypiregn og þungar horfur um
batnandi veðurfar; þó fór að
rofa til á ellefta tímanum og að
aflíðandi hádegi var komin dýrð
ar blíða, er héltst til kvölds, þótt
ærinn væri hiti annað veifið; —
aðsókn mátti teljast góð, þótt
vafalaust hefðu margfalt fleiri
sótt hátíðina úr Norðurbyggð-
um Nýja íslands og jafnvel ann-
arsstaðar frá, ef vegir og veður-
horfur hefðu verið betri; íþróttir
takmörkuðust nokkuð vegna
rigningar fyrri hluta dags, þótt
nokkuð af þeim færi fram á til-
teknum tíma.
Forseti, Steindór S. Jakobsson,
kaupmaður, setti hátíðina og
stýrði henni af góðri háttlægni;
hann eyddi engum tíma í óþarfa
mælgi, heldur gekk hreint til
verks, og skal það að makleik-
um metið. Fjallkonan, Mrs. S. B.
Stefánsson, kom virðulega fyrir
og flutti ávarp sitt af góðri
rögg, og þá spiltu hirðmeyjar
hennar heldur ekki til, þær
Thora Ásgeirsson og Lilja John-
son.
Fyrir minni íslands mælti séra
Eiríkur Brynjólfsson; var ræða
hans hlý og mótuð fögru mál-
efni. Heimir Thorgrímsson mint
ist Canada í ræðu, og hefir hon-
um oft betur tekist. Karlakór
Islendinga í Winnipeg, undir
stjórn Sigurbjörns Sigurðsson-
ar skemti með fjölda söngva, er
veittu hátíðargestum óblandna
ánægju; mikla hrifningu vakti
hin styrka og karlmannlega
rödd einsöngvara kórsins, Elm-
ers Nordal við undirleik Gunn-
ars Erlendssonar. Kvæði fluttu
G. A. Stefánsson og Ragnar
Stefánsson.
Fjórir heiðursgestir ávörpuðu
mannfjöldann í skemtigarði
Gimlibæjar áminstan dag, en
það voru þeir Barney Egilsson,
bæjarstjóri, Dr. S. O. Thompson
þingmaður Gimli-kjördæmis, er
flutti ávarp fyrir hönd fylkis-
stjórnarinnar, G. L. Jóhanns-
son ræðismaður, er flutti kveðj-
ur frá forseta og ríkisstjórn
íslands, og Jón Helgason, blaða-
maður frá Reykjavík, voru
ávörpin prýðilega hugsuð og
röggsamlega flutt.
Betur hefði farið á því, að alt
hefði verið með kyrrum kjör-
um, og ræðumenn, skáld og
heiðursgestir komnir á ræðu-
pall, er Fjallkonan, táknræn
ímynd Islands, kom fram á
sjónarsviðið; þá hefði það heldur
ekki sakað að fleiri karlar hefðu
tekið ofan meðan sungnir voru
þjóðsöngvar íslands og Canada;
þeir gera það vonandi næst.
Forn-norræn íþrótt, bogfimi,
var um hönd höfð á íslendinga-
deginum fyrir atbeina Halldórs
M. Svan, verksmiðjueiganda, er
þótti hin besta skemtan. Fyrstu
verðlaun hlutu, karlar: J. A.
Davidson, Pétursson-bikarinn
fyrir ár og gullmedaliu. Terry
Dickson, silfurmedaliu, Ken
Stanford, bronsmedaliu.
Konur, fyrstu verðlaun: Hel-
len Dickson, $8.00, 2. verðlaun,
Mildred Dollman, $5.00. 3. verð-
laun, Merle Roberton, $3.00.
Þess skal að makleikum getið,
að Carl Thorláksson skraut-
muna-kaupmaður, gaf öll kven-
verðlaunin í bogfimikeppninni.
Eftirfarandi símskeyti las for-
seti íslendingadagsins upp á
hátíðinni, dagsett á Akureyri
þann 1. ágúst:
“Hamingjuóskir í tilefni
íslendingadagshaldi yðar.
af
Pétur Sigurgeirsson, Alma
Levy, Mr. og Mrs. Har-
aldur Ólafsson, GuðbjÖrg Sig-
urðsson, Louise Sigurðsson,
Kristján Thorsteinsson”; — var
þessum kveðjum tekið með
dynjanli lófataki.
Um kvöldið var stiginn dans í
hinum rúmgóða dansskála skemit
garðsins, en hljómsveit Óla Thor
steinssonar lék danslögin.
MERK KONA LÁTIN
Að kvöldi hins 9. þ. m., lést
að heimili tengdasonar síns og
dóttur, Jóns Árnasonar banka-
stjóra í Reykjavík og frú Sig-
ríðar konu hans, frú Ingunn
Jónsdóttir frá Melum í Hrúta-
firði, ekkja fyrrum alþingis-
manns, Björns Sigfússonar á
Kornsá í Húnaþingi, 92 ára að
aldri. Frú Ingunn var merkur
rithöfundur; eftir hana liggja
þrjár bækur, mótaðar af -fögr-
um hugsjónum og glæsilegu
málfari; hún var víst komin um
sjötugt er fyrsta bók hennar
kom fyrir almenningssjónir.
Fregnir um lát Ingunnar, barst
bróður hennar Finni Johnson,
Ste 14 Thelmo Mansions, í sím-
skeyti frá Reykjavík, síðastlið-
inn mánudag.
*
Avarp Fjallkonnunar
Frú Krislín Síefánsson, fluíí á
íslendingadaginn, Gimli, 4.
ágúsf 1947.
Herra forseti!
Eg heilsa yður, börn mín,
frændur og vinir í Vesturheimi.
í tuttugasta og fjórða sinn
veitist mér sú ánægja, að dvelja
með yður þessa hátíðlegu
stund, þegar þér komið hér sam
an að minnast mín og ætt-
menna yðar og vina heima.
Eg fagna því, að heyra yður
og sjá. Er stolt af því, að vita
hversu heilsteypt, djörf og drengi
leg framsókn yðar hefir verið
og er í þessu fagra, víðfeðma og
auðuga landi yðar — og fóstur-
landi.
Eg hefi fylgst með yður frá
því þér fluttust í þetta land. —
fylgst með andlegum og efnis-
legum átökum yðar og fram-
sóknarstarfi, í blíðu og stríðu,
gegnum fjallháa erfiðleika,
hættur og áföll og séð yður
styrkjast og þroskast með hverri
þraut og auðgast í áliti og dyggð
um til sigra.
Mér þykir vænt um yður,
börn mín, barnabörn og vinir.
Það er eins og sál yðar sé ótta-
laus. Þið berið höfuðið hátt. —
Þekking yðar er frjáls. Með ó-
þreytandi eljusemi réttið þér
höndina út eftir fullkomnuninni
og reynið að láta ekki skynsemi
yðar villast inn á ömurleg öræfi
vanans, því í yður endurspegl-
ast orð skáldsins.
“Sókndjarfi lýður, sjá
straumþunginn stríður
stælir þinn vilja og mátt
og lætur þig finna, að vit þitt og
vinna
er vopnið sem bitrast þú átt.
í dýpt þinnar sálar — í brjósti
þér bálar
bjartsýni, karlmenska og trú—”,
er vísa yður veginn til vax
andi átaka og sigra unz reist er
hin volduga brú. —
Yður hefir skilist með réttú,
að það er vegur og virðing í því,
að viðhalda “ástkæra, ylhýra”
málinu og því, sem best er og
fegurst úr íslenzkum erfðum.
Það er styrkur og gróði þess
lands sem þér byggið. — Haldið
því áfram meðan íslenzk orka
er við aflinn. Starfið og stríðið
heil og hamingjusöm að því,
sem glæðir yl kærleikans, rétt-
vísinnar og bræðrabandsins milli
einstaklinga og þjóða og verið
þess minnug, að “Traust við ís
land oss tengja bönd”.
Heill og hamingja sé með yð-
ur öllum.
Canada
Þér hafa fáir ástareiða svarið,
en undir niðri hlýir straumar leynst.
Að æskustöðvum þeim, sem frá var farið
fegurstu ástaljóðin hafa beinst. —
Vitandi samt, að því er þannig varið,
að þú hefir öllum mæðrum betur reynst
Þú undra heimur óuppfylltra vona
allra þeirra, er settu markið hæst.
Leituðu hingað margir, karl og kona,
er kynflokkar allra landa hafa mætst.
Fegurstu draumar dætra þinna og sona
um dáð og menning, hafa allir rætst.
Ragnar Stefánsson.
Málverksýning Emile Walters vekur athygli
Emilie Walters listmálari
lagði á stríðsárunum málara-
listina að miklu leyti til hliðar,
enda gegndi hann á þeim árum
ýmsum störfum í þágu stríðs-
sóknarinnar, bæði á íslandi og
í Bandaríkjunum.
En síðastliðið ár tók hann til
óspilltra málanna við listiðkun
sína á ný, og málaði á því tíma-
bili margar haust- og vetrar-
myndir. Efndi hann eíðan til
málverkasýningar á kunnu
listasafni, Munson Gallery, í
New Haven, Connecticut, heima
borg Yale háskólans víðfræga,
nú í maí-mánuði, með ágætum
árangri.
Hefir sýningin vakið mikla at-
hygli og hafa honum borist
beiðnir um sýningar í ýmsum
stórborgum austur frá, svo sem
New York, Pittsburg og Phila-
delphiu, ennfremur frá Kyrra-
hafsströndinni, en fyrri málverk
hans er að finna víðsvegar á
söfnum vestur þar.
Sérstaklega má geta þess, að
listafrömuðurinn Tomas J.
Watson í New York hefir látið
velja eina af myndum Emilie
Walters í allsherjar málverka-
safn sitt — United Nations Col-
lection, — sem búist er við, að
sent verði víðsvegar um lönd.
Er þar um mikilvæga viðurkenn
ingu að ræða, og hefir Emilie
listmálari með þeim hætti, eins
og svo oft áður á listabraut sinni,
aukið á hróður Islendinga hér-
lendis og ættþjóðar sinnar.
Richard Beck.
“Foldinni” hleypt af
stokkunum
Nýju, íslenzku kæliskipi, sem
verið er að ljúka við smíði á í
Kalmar í Svíþjóð, var hleypt af
stokkunum í fyrradag. Er það
skipið Foldin, eign samnefnds
hlutafélags. Skipið er 750 smá-
lestir og mun eiga að vera í för-
um með frystan fisk milli Is-
lands og Bretlands.
Foldin er nærri fullsmíðuð, er
aðeins eftir að setja í hana vél-
ina. Er þess vænst að skipið geti
orðið fullbúið í miðjum júlímán-
uði.
Mbl., 3. júlí.
HRAPALEGT SLYS
Krisíján Jónasson læknir deyr
af kolsýrueitrun í svefni
Kristján Jónasson læknir beið
bana aðfaranótt sunnudags af
kolsýrueitrun.
Hann hafði verið næturlækn-
ir aðfaranótt laugardags og
ekki sofið neitt þá nótt. En gert
uppskurð um morguninn og
síðan unnið á lækningastofu
sinni. Hafði hann haft svo ann-
ríkt allan laugardaginn að hann
gat ekki unnt sér hvíldar.
Aðfaranótt sunnudags hefir
hann lagst til hvíldar á legu-
bekk í dagstofunni á heimili
sínu við Miklubraut.
Faðir hans, Jónas Kristjáns-
son læknir fór til Heklu á laug'
ardag ásamt fleira fólki. Hann
á heima 1 sama húsi. Er hann
kom heim um kl. 5 um morgun-
inn, varð hann þess var að reyk
lagði út úr íbúð Kristjáns, svo
hann fór þangað inn. Er hann
kom inn í stofuna, var hún full
af reyk, en legubekkur sem þar
var, var að mestu brunninn. —
Sonur hans Kristján lá þá á
gólfinu hjá legubekknum, hafði
kafnað í reykjarsvælunni.
Ekki er vitað hvort kviknað
hefir í legubekknum út frá eldi
í vindlingi, ellegar frá raflampa
sem var þar skamt frá, og var
bilaður.
Herbergjaskipunin í íbúð þess
ari er þannig, að kona Kristjáns,
Anna Pétursdóttir og dóttir
þeirra hjóna, ung, urðu ekki
eldsins eða reyksins varar inni
í svefnherbergi íbúðarinnar.
Svo sviplegt er þetta dauða-
slys og hrapalegt, að menn set-
ur hljóða við að er maður á
besta aldri skuli láta líf s’tt með
þessum hætti. s
Mbl., 29. júlí
Or borg og bygð
Lík finnst í höfninni
Laust fyrir hádegi í gær varð
vaktmaður á bv. Skallagrímur,
þess var, að lík flaut upp á milli
Skallagríms og Islendings, en
skip þessi liggja við Löngulínu.
Rannsóknarlögreglunni var
þegar gert aðvart. Við rannsókn
kom í ljós, að hér var um að
ræða lík Bjarna Árnasonar skip-
verja á ms. Hafborg, er hvarf 24.
janúar s. 1.
Mbl., 30. júní.
Heklugosið 1716
Sandfallið mikla úr Heklu a
einmánuði 1766 barst mest yfir
Húnavatns- og Skagafjarðar-
sýslu. Feldu þeir þá fénað sinn,
sem ei gátu gefið fé inni til far-
daga, en þeir voru þó færri, er
það gátu. — Brandstaðaannáll.
Island
Rís í austri röðull fagur,
rofar fyrir, ljómar dagur.
Fjallkonuna signir sól.
Fagurt er um fold að líta,
fjöll og dali, jökla hvíta,
litmyndir um byggð og ból.
Situr þar hjá sævar öldum
sveipuð fögrum geisla-tjöldum,
tíguleg og björt á brá.
Ber á höfði lokka langa,
liðast þeir um hennar vanga
gullbjartir und sól að sjá.
Marga hefir sögu að segja
sagnaríka útafs Freyja
gegnum lífsins alda-ál.
Ber í skauti margar myndir,
minninganna helgu lindir
lifandi í sona sál.
Ljúft er um að lifa og dreyma
landið, sem við áttum heima,
góða vini, frænda fjöld.
Aldrei slitna ættarböndin.
Ávalt framrétt vinahöndin.
Hún er ekki í tölum töld.
Meðan fögur morgunstjarna
mótar hugi þinna barna
saman tengja í þjóðlífs þátt,
sendum vér þér sonarglóðir
söguríka, tigna móðir,
fljúgandi í austurátt.
Frú Anna Josephsson frá
Gimli, var stödd í borginni um
miðja vikuna á leið austur til
Fort William, Ont.
-t-
The St. John Ambulance hefir
með samþykki sambandsstj. tek
ið sér fyrir hendur almenna
blóðprófun í Canada með það
fyrir augum, að hafa ávalt við
hendi nægilegan blóðforða, er
slys og sjúkdóma ber að hönd-
um; talið er fullnægjandi að
hver einstaklingur leggi til tvo
blóðdropa.
í þessu augnamiði verður full
trúa frá St. John Ambulance að
finna í Parish Hall á Gimli
þann 18. þ. m., frá kl. 10.30 f.h.
til kl. 9 e. h.
Gefin saman í hjónaband að
prestssetrinu í Selkirk, þann 9.
ágúst, Hanns Harold Síevens,
Selkirk, og Frieda Florence
Buckholz, sama staðar. Við gift
inguna aðstoðuðu Mr. og Mrs.
Robert Stevens. — Ungu hjónin
setjast að í Selkirk.
Föstudaginn, 8. ágúst, fór fram
giftingarathöfn að 94 Noble
Ave., heimili Mr. og Mrs. G.
Rychman, er Harry Wilbert
McGlynn og Ingibjörg Hallsson,
dóttir Ólafs Hallssonar og konu
hans Guðrúnar Björnsson, í Er-
iksdale, voru gefin saman í
hjónaband. Séra Philip Péturs-
son gifti. Brúðurin var umjaokk
ur ár kennari á skóla heyrnar-
lausra í Winnipeg og seinna, eft
ir að stríðið brautst út, í Mon-
treal, er skólinn var fluttur
þangað. Brúðhjónin voru voru
aðstoðuð af Mr. og Mrs. G.
Rychntan. — Veisla fór fram að
athöfninni lokinni, og fór alt
sem ánægjulegast fram, er vinir
og ættmenni óskuðu brúðhjón-
unum til hamingju.
JÁTAR Á SIG TVENN
MORÐ
Fá, eða engin glæpamál hafa
nokkru sinni vakið meiri ótta
og ugg í þessari borg, en morð
þrettán ára piltanna tveggja,
þeirra McGregors og Smith, í
janúar og september 1946, og
fór það að vonum; eftir látlaus-
ar rannsóknir lögreglunnar nótt
sem nýtan dag, gerðust þau tíð-
indi, að lögreglustjóri borgar-
innar, Mr. Maclver, tilkynnti
blaðamönnum, að í haldi væri í
lögreglustöðinni maður, sem
játað hefði á sig bæði morðin;
maður þessi, sem er af ítölskum
ættum og tók þátt í síðustu
síðustu heimsstyrjöld, er ein-
ungis 22 ára að aldri, fæddur og
uppalinn í Port Arthurborg í
Ontario; hann heitir Michael
Angelo Vescio; sagt er að tvö
systkini hans frá Port Arthur
séu hingað komin til þess að
hlutast til um vörn í morðmáli
bróður síns.
Guðmundur A. Stefánsson
Merkur maður látinn
Síðastliðinn mánudag varð
bráðkvaddur að heimili sínu
í Vancouver, Senator G. G.
McGeer, borgarstjóri í þessari
fögru Kyrrahafsborg, 59 ára að
aldri; áhrifamikill stjórnmála-
maður, og róttækur umbótamað
ur um margt, mælskur með af-
brigðum og fylginn sér.