Lögberg - 14.08.1947, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. ÁGÚST, 1947
Ur borg og bygð
Islenzkir sjúklingar, sem liggja
á sjúkrahúsum hér í borginni,
eða aðstandendur þeirra, eru
vinsamlega beðnir að sóma Mrs.
George Jóhannesson, 89 208, ef
æskt er eftir heimsókn eða ís-
lenzku blöðunum.
Birt að tilstuðlan Djákna-
nefndar Fyrsta lút. safn.
-f
Þær frú Pálína Sigurðsson
frá Reykjavík og frú Kristín
Pálsson úr Köldukinn í Þing-
eyjarþingi, sem dvalið hafa vest
an hafs um þriggja mánaða
skeið, lögðu af stað héðan úr
borginni á mánudaginn flugleið-
is, til íslands.
-f
Mr. og Mrs. G. J. Olson frá
Glenboro, vory stödd í borginni
í byrjun vikunnar.
Mr. G. Lambertson frá
Glenboro var staddur í bofginni
í lok fyrri viku ásamt frú sinni
og dóttur.
f
Látinn er nýlega í hárri elli í
Selkirk, Hinrik Jónsson, ættað-
ur úr Borgarfirði hinum syðra,
mætur maður og velmétinn.
■f
Síðastliðinn miðvikudag lést
hér í borginni Marinó Elíasson
frá Riverton, rúmlega þrítugur
að aldri, prýðisvel gefinn og
vinsæll maður; hann var útskrif
aður af kennaraskóla Manitoba
Manitoba fylkis, stundaði skóla
kenslu um hríð, en gaf sig síðar
að búskap og póstflutningum;
orsök að dauða hans var sú, að
hann féll ofan af héyæki og
slasaðist gífurlega.
Marinó heitinn var sonur
þeirra Mr. og Mrs. Elías Elías-
son, er um langt skeið voru bú-
sett í Árborg; Auk ekkju
sinnar og foreldra, lætur hann
eftir sig tvö systkini, Gissur
fjöllistakennara í Winnipeg og
frú Láru Sigurðsson í Van-
couver.
Lögberg vottar sifjaliði
Marinós héitins innilega hlut-
tekningu í þeim þunga harmi,
sem að því hefir kveðinn verið.
-f
SKYGGIR í ÁLINN
Útlits súr og svipillur
svartur lúrir Hræsvelgur
Hæðum úr í hásuður
hanga skúradrög niður.
Björn Slefánsson
frá Kirkjuskarði
-f
Jón Jónsson frá Jackhead,
Man., var í borginni um síðustu
helgi.
Guðmundur Jónsson frá
Húsey kom til borgarinnar á
laugardaginn var.
4-
Gefið iil Sunrise Luiheran
Camp
Ágúst Vopni, $10.00. Mrs.
Ásdís Hinriksson, 1.00, Mr. og
Mrs. J. Davidsson, 5.00, Mrs. B.
J. Brandson, 5.00, Mrs. F. Step-
henson, 5.00. — Með innilegu
þakklæti.
Anna Magnússon
Box 296 Selkirk, Man.
-f
Laugardaginn 2. ág. voru þau
Milliam Arthur Harris, frá
Winnipeg, og Kristveig Lillian
Backman frá Oak Point,
Man., gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssvni,
að 800 Lipton Street. Þau voru
aðstoðuð af Kristjáni Allen
Backman og Helgu Backman,
systkinum brúðarinnar, frá
Oak Point. Nokkur hópur ná-
kominna vina var viðstaddur
giftinguna. Samdægurs fóru brúð
hjónin til Oak Point, þar sem
þeim var fagnað með gleði-
móti.
-f
Lagt í blómsveig íslenzka
Landnemans
Halldór og Anna Austman,
Viðir, P. O., $10.00, í minningu
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Guðsþjónustur hefjast að
loknu sumarfríi, sunnudags-
kvöldið 10. ágúst kl. 7.
-f
Messur í preslakaili séra Hall-
dórs E. Johnson:
— Lundar sunnudaginn
17. ágúst kl. 2 e.h. — Vogar
sunnudaginn 24. ágúst kl. 2e.h.
— Reykjavík sunnudaginn 31.
ágúst kl. 2 e.h. —
H. E. Johnson.
Arborg-Riverton prestakall
— 17. ágúst: Framnes, messa
kl. 2 e. h. — Geysir, messa kl.
8.30 e. h.
B. A. Bjarnason
■♦■
Gimli prestakall.
Sunnudaginn, 17. ágúst. Messa
að Mikley kl. 2 e. h. — Allir
boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirsson.
-f
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnudaginn 24. ágúst: — ís-
lenzk messa kl. 7 síðd. — Allir
boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
um ástkæran bróðir, Björn
Ingvar Sigvaldason, fyrsti land-
nemi Viðir-byggðar. — United
Farm Women, Framnes, 10.00,
í kærri minningu um Sesselju
Guðmundsson. — Sigríður Guð-
mundsson, Árborg, 5.00, áheit
til Bandalags Lúterskra kvenna.
— Guðmundur Magnússon,
Gimli, Man., 5.00, í minningu
um kæra vinkonu, Ólínu Theo-
dóru Erlendsson. — Meðtekið
með innilegu þakklæti.
G. A. Erlendson
féhirðir.
Þann 7. þ. m., lést að Wey-
burn, Sask., Guðfinna Thor-
geirsson, kona Halldórs J.
Thorgeirssonar, 81 árs að aldri,
fædd á Litla Vatnshorni í Hauka
dal í Dalasýslu; útförin fór fram
í Concordia grafreit í grend við
Churchbridge, þann 10. þ. m. —
Auk eiginmanns síns, lætur Guð
finna eftir sig þrjár dætur, Mrs.
K. G. Finnsson, Winnipeg, Mrs.
S. Einarsson, Regina, Sask., og
Mrs. Jónínu Johnson, Church-
bridge; ennfremur 5 barnabörn.
• ♦
Leiðrétting
Til þess að fyrirbyggja mis-
skilning vil ég gera eftirfarandi
leiðréttingu við ummæli herra
J. J. Bildfells í grein hans í síð-
asta Lögbergi um hátíðahöldin
að Mountain, N.-Dakota, þ. 17.
júní s. 1.:
Mér, sem konum annara
ræðumanna, var boðið að taka
sæti á ræðupallinum, en við
báðumst undan því, af því að við
kusum heldur að sitja þar, sem
við gátum notið ræðuhaldanna
og söngsins betur. En greinar-
höfundi hefir vafalaust eigi
verið kunnugt um þetta.
Jafnframt nota ég þetta tæki
færi til þess að þakka íslenzka
fólkinu að Mountain og Garðar
fyrir þá vinsemd og risnu, sem
það sýndi okkur hjónunum við
þetta tækifæri, eins og svo oft
áður.
Vinsamlegast,
Mrs. Richard Beck,
Grand Forks, N.-Dakota.
-♦
FOR SALE AT GIMLI
An exceptionally well kept
and well-equipped family
home; eight rooms and new
backshed; private flowing well
in yard; treed grounds and
Verðlagsnefnd fiskimála í Canada skipuð
Fiskimálaráðherra Canada,
Hon. H. Francis Bridges, til-
kynti 25. þ. m. að eftirfylgjandi
menn hefðu verið skipaðir í
fiski-verðverndarnefnd í Cana-
da, sem getið var um í grein hr.
G. F. Jónassónar í Lögbergi ný-
lega.
I aðalnefndina, undir forustu
aðstoðar fiskimálaráðherra,
Stewart Batez, voru kjörnir W.
Stanley Lee, Halifax, forseti
fiski-verðsverndarnefnd í Cana
da, og umboðsmaður O’Leary og
Lee sjófauga deildarinnar cana-
disku. Varaforseti Col. J. W.
Nichols British Columbia Pack-
ers Vancouver, K. F. Harding
of the Fishermen’s Co-operative
association Prince Rupert B.C.
og Louis Berub of the school of
Fisheries, ste Anne de-la Poca-
tiere, Quebec.
Upplýsinganefnd, sem er milli
liður á milli héraða nefndanna,
og. aðalnefndarinnar, hefir og
verið skipuð. í henni eru, forset
ar og varaforsetar allra héraða
nefndanna. En héraðsnefndirn-
ar eru sem hér segir:
Vestur ströndin. í nefnd þeirri
sem þar hefir verið skipuð eru:
S. M. Rosenberg, Canada Fis-
hing compay, Vancouver, for-
seti. J. Alex Sim, Kyuquot Lax
Trollara sambandsins. Varafor-
seti Ritchel Nelson, Nelson Bros
Fisheries Limited Vancouver.
George Miller United Fishermen
and Allied Workers Union,
Vancouver.
í austur stranda nefndinni
eru: J. H. Mickichan forstjóri
United Maritime Fisheries Limi-
ted Halifax forseti. Louis T.
Blais, Louis T. Blais company
Limited Quebec City varaforseti
J. B. Myrick, Myrick and Mc
Intosh, Tignish, P. E. I. kafteinn
Ben Mackenzie forseti fiski-
manna sambandsins í Halifax
og E. W. Richardson útgerðar-
maður sem á heima á Deer-eyj-
unni í N.B.
1 miðhéraðanefndinni, en það
hérað nær yfir Alberta Saskatc-
hewan, Manitoba og Ontarío,
eru: Earl F. Kolbe of W. F. Kolbe
and Company, Port Dover On-
tario forseti. S. V.. Sigurðsson
fiskiútgerðarmaður og framleið
andi Riverton Man., varaforseti.
J. F. Gay of the Saskatchewan
Lake and Forest corporation
Prince Albert Saskatchewan. W.
Schlader forstjóri Mclrmes Pro
ducts Corporation Edmonton
Alberta, og Ivan Purvis of Bay
Ontario fiskimaður við Superior
vatn.
Fiskimálaráðherrann tók fram
að ef fiskiverðsnefndin, eða ráð-
ið þætti nauðsyn bera til, þá
væri henni heimilt að skipa að-
stoðarnefndir, sem fjölluðu um
sérstakar greinar fiskiframleiðsl
unnar, og sölu á fiski. Tekið er
fram, að fiskiverðsnefndin og
héraðanefndirnar verði að starfa
án þess að þeim sé greitt fast
ákveðið kaup, en að nefndar-
lawn; cement basement and
walks; hard and soft water taps
at modern sink in kitchen; law
heating costs and good furnace;
electric lights and extra plugs;
wide veranda; centrallý located;
reasonable price; can be seen
anytime; ready for occupation.
Call 202411 — Winnipeg, — or
apply to W. W. Jónasson, 47
Fourth Ave., Gimli.
-♦■
DÁNARFREGN
Sunnudaginn, 27. júlí, andað-
ist á Almenna sjúkrahúsinu í
Winn^eg, Sigurður Sigurðsson
frá Lundar, Man. Hann var
fæddur í Winnipeg, 11. nóv.
1886. Foreldrar hans voru þau
hjónin Sveinbjörn Sigurðsson,
frá Húsavík á íslandi, og
Eirikka Einarsdóttir frá Seyðis-
firði. íÞegar Sigurður var 2ja
ára gamall fluttist fjölskyldan
í Grunnavatnsbyggð og þar átti
Sigurður heima rneir en 30 ár,
fyrst hjá foreldrum sínum og
síðar landnemi sjálfur. Árið
1924 fluttist hann til Lundar og
hefir átt þar heima síðan. Síð-
ustu 10 árin var hann starfs-
maður í verkstæði Jóhanns
Gíslasonar. Nokkra síðustu
mánuðina þjáðist hann af vatns-
sýki. Til þess að leita sér lækn-
ishjúlpar fór hann í júnímánuði
á sjúkrahúsið í Winnipeg, en
allar tilraunir reyndust árang-
urslausar.
Hann var jarðsunginn að
Lundar, af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni, miðvikudaginn 30.
júlí. Athöfnin fór fram í Lút-
ersku kirkjunni og grafreit
Lundarbæjar.
Sigurður var góður stuðnings
maður foreldra sinna, kynti sig
vel sem trúr verkamaður. Hann
var um nokkurt skeið organisti
Lundar-safnaðar, vel upplagður,
barngóður maður.
Systkini hans á lífi eru: —
Mrs. Sigurbjörg Kristjánsson,
Mrs. Guðný Halldórsson, Mrs.
Emilía Goodm., og fóstursystir,
Marja Brandson, allar á Lund-
ar. —
-♦-
Mrs. Kristján Oleson frá Glen
boro kom til borgarinnar á
fimtudaginn í vikúnni, sem
leið, til fundar við dóttur sína,
er þá var að koma vestan frá
Vancouver.
The FINEST oi ALL
h
MOST
Suits Of[
DressesvJt
CASH AND CARRY
For Driver
PHONE 37 261
Perth’s
888 SARGENT AVE.
Tfi/PlSACr/OM
EATON’S
qoES BACK
ro SCHOOL
with you/vc
CAMADA
ALT Á VERÐI SEM
FORELDRUM GEÐJAST
Með hinni frægu
tryggingu........
PENINGUM SKILAÐ EF Ó-
ÁNÆGÐIR MEÐ VÖRUR
að inniföldum flutningskostn-
aði.
*T. EATON C<2-,..
WINNIPEG CANADA
EATON'S
mönnum verði greitt dagkaup,
ferðakostnaður og lífeyrir, þeg-
ar þeir eru í þjónustu fiskimál-
anna.
Mr. Clarence Marrow, fyrsti
forseti fiskimálaráðs fiskimanna
í Canada, hefir verið kjörinn til
þess að mæta á F.A.O.-fundinum
í Geneva, sem haldast á 26. þ.m.
til þess þar að líta eftir hag Cana
da að því er fiskimálin snertir,
í samráði og sambandi við um-
boðsmenn Canadastjórnar sem
á því þingi mæta.
Á fyrstu fimm mánuðunum
sem af eru á þessu ári, nam
verð á útfluttum fiski, og fiski-
afurðum frá Canada, $31.464.000
Er það $1.617.000 meira en það
var, á sama tíma í fyrra.
Fiskiveiðar Þjóðverja í þeim
hluta Þýzkalands sem umsjá
Breta og Bandaríkjamanna er
nam á fyrstu fimm mánuðum
ársins 1947, 48.500.000 kíló.
Fisk þennan veiddu trollarar
sem gengu út frá Hamburg,
Cuxhaven og Bremerhaven,
með aðstoð nokkurra smærri
skipa. Á þeim sama tíma var
fiskur fluttur inn til þess' sama
hluta Þýzkalands sem hér segir:
Frá Bretlandi og brezku ríkjun-
um, frá Noregi, Belgíu og Dan-
mörku í allt 67.432.000 kíloz
upp á $6.539.000.00.
J. J. B.
The Swon Manufacturing
Company
Manuiacturers of
SWAN WEATHER STRJP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
281 James St. Phone 22 641
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar
LET
Alverstone Motors
Give Your Car the Attention It Deserves
Your New Neighbors ai
SARGENT and ALVERSTONE
Opening Date: SEPTEMBER Ist
K. N. J U L i U S:
KVIÐLINGAR
Fyrsta útgáfan af ljóðsafni þessa sérstæða kýmni-
skálds Vestur-íslendinga, og raunar íslenzku þjóðar-
innar í heild, sem Bókfel'lsútgáfan í Reykjavík sendi
frá sér fyrir rúmu ári, seldist upp á svipstundu, og nú
er 2. útgáfa komin á markaðinn; þetta er stór bók,
prentuð á úrvals pappír og í fyrirtaks bandi. Bókina,
sem kostar $7.50 að viðbættum 25 centa póstgjaldi, má
panta hjá
M R S. B. S, B E N S O N
c/o THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
Winnipeg, Manitoba
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð .æfiminninga, sem færu yfir 4 ein-
dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á
þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en
þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦✓♦♦♦♦♦
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, exiu vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
HOLTSGATA 9, REYKJAVIK