Lögberg - 13.11.1947, Side 2
18
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
Samband trúar, siðgæðis og listar
í vetur sem leið var ég þeirrar
ánægju aðnjótandi að sjá sjónleik
inn “Brúðuheimilið” eftir Ibsen
leikinn í Reykjavík Mér hefir
jafnan þótt mikið koma til þessa
leikrit^ hins norska skáldjöfurs,
og þetta kvöld jók það talsvert
á ánægju mína, að aðalhlutverk-
ið var leikið ágætavel. Svo sem
sæmir góðum leikhúsgesti, not-
aði ég að leikslokum óspart lóf-
ana til að láta í ljós hrifningu
mína, og til þess að gjalda leik-
endum maklegar þakkir fyrir
góða frammistöðu. — Eg mun
ekki hafa verið búinn að skella
lófunum saman nema svo sem
20—30 sinnum, þegar sjötta skiln
ingsvit mitt tók að gefa mér til
kynna, að þetta athæfi mitt væri
tekið að baka mér nokkra gagn-
rýni einhvers í námunda við mig.
Eg leit ósjálfrátt til hliðar og
varð þá var við tvö augu, sem
horfðu á mig með svip, sem lýsti
í senn undrun, samúð og fyrir-
litningu. Augun tilheyrðu ung-
um menntamanni, sem sat við
hlið mína, sýnilega ósnortinn af
því, sem fram hafði farið á leik-
sviðinu. — Eg lét mér ekki fat-
ast, þó að þetta kæmi fyrir, held-
ur hélt áfram með lófatakið,
eins og ekkert hefði í skorizt. —
Þegar ég var loksiná' hættur að
klappa, gat sessunautur minn
ekki lengur orða bundist. Hann
ávarpaði mig og spurði,, hvort
mér þætti svona mikið koma til
þéssa leiks. — Eg sagði svo vera.
Hann kvaðst fús til að játa að vel
hefði verið farið með hlutverk-
in, en leikurinn hefði samt ekki
getað náð neinum tökum á sér,
vegna þess h've verkið væri mis-
heppnað frá höfundarins hendi.
Það væri blátt áfram hlægilegt
að sjá allan þennan spenning og(
gauragang í leiknum rísa út af
því, að einkadóttir hefði tekið
nafn vellauðugs föður trausta-
taki á smávíxil, til að bjarga lífi
eiginmanns síns. Ef einhver ann
ar en Ibsen hefði samið þennan
leik, bætti hann við, er vafasamt
hvort nokkur leikstjóri myndi
hafa fengizt til að fara með hann
á svið.
Þarna var hvorki staður né
stund ti lað taka upp rökræður
um málið. Eg varð að láta mér
nægja að benda hinum unga
manni á, að vanmat hans á leik-
ritinu stafaði sennilega af því,
að honum væri ekki kunnugt
um, að á dögum Ibsen hefði ver-
ið tekið mjög hart á því að falsa
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888
1948
Wflton Transfer
E. M. Wilton, Manager
CYPRESS RIVER
MANITOBA
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Jimmy Hemenway
Tailor and Cloihier
B27 SARGENT AVE. PHONE 22 1G6
nafn, hvernig sem á hefði stað-
ið.
-------Á leiðinni heim tók ég
að íhuga nánar afstöðu hins
unga mnntámanns til skáld-
verksins, sem sýnt var þetta
kvöld. Sú íhugun leiddi til þess,
að mér varð allt í einu ljóst,
hversu illa skáld og listamenn
vorra tíma standa orðið að vígi
um val og úrlausn verkefna
sinna. — Ungi maðurinn hafði
að vissu leyti rétt fyrir sér. Ef
leikritið “Brúðuheimilið” hefði
verið samið af nútíma höfundi,
myndi sá sennilega hafa fengið
skömm eina í hattinn. Fyrst og
fremst vegna þess að hann hefði
þótt gera of mikið veður út af
litlu tilefni. — Það er ekki hægt
að gera menn æsta í leikhúsinu
út af því, sem er hætt að róta
við mönnum í daglega lífinu. —
Tímabil, sem eru mjög gróm-
tekin af almennum mórölskum
slappleika gera listinni erfitt um
vik. Yrkisefni skáldanna hafa
löngum verið bundin við þær
hömlur, sem hinn siðaði maður
leggur á líferni sitt. Eftir því
sem þessum hömlum fækkar,
fækkar yrkisefnunum. Sjónleik-
urinn “Fjalla Eyvindur” gat orð
ið til vegna þess, að það sagðist
á því að stela kindum. Sjónleik-
urinn “ótelló” vegna þess, að á
dögum Shakespears vildu menn
búa einir að sínum eiginkonum.
Sjónleikurinn “Lygamörður”
vegna þess, að eitt sinn var það
talið til mannlýta að ganga ljúg-
andi og rægjandi um mannheim-
inn. Skáldsagan “Kamilíufrúin”
vegna þess, að í gamla daga var
stúlka, sem hafði gengið mjög
mörgum karlmönnum á hönd,
ekki talin æskileg sem húsfreyja
á góðu heimili. Og þannig mætti
lengi telja. —> Flest af slíkum
yrkisefnum eru nú sem óðast að
fölna — sum þegar alveg búin
að tapa lit sínum. — Það væri
t. d. áreiðanlega enginn skussi,
sem megnaði nú að gera ein-
hvern Lygamörð eða Gróu á
Leiti að virkilega dramatískri
persónu í leikriti. Þó væri hitt
sennilega ennþá betur af sér vik
ið, ef einhverjum tækist á vor-
um dögum að gera það að uppi-
Stöðu í skáldverki, að eiginmað-
ur hefði uppgötvað á fyrstu nótt
hjónabandsins, að brúðurin
væri ekki ósnortin mey. — Rit-
höfundur, sem megnaði að koma
nútíma lesendum í geðshræringu
út af því, kynni áreiðanlega tök-
in á Pegasusi. —
— Ýmsir af áberandi rithöf-
undum vorra tíma virðast gera
sér sérstakt far um að draga í
verkum dár að trú og siðgæði.
Aðalsöguhetjur þeirra eru ósjald
an menn, sem skortir þetta hvort
tveggja, en eru þrátt fyrir það
leiddir í gegnum atburði skáld-
verksins á þann hátt, að ætla
má að höfundurinn sé þar að
stilla upp fyrirmyndum. Iðulega
eru þessar fyrirmyndir látnar
eiga í höggi við einhverja máls-
svara trúarinnar eða gamalla og
góðra siða, og þá venjulega þann
ig, að hinir síðarnefndu eru látn-
ir láta í minni pokann. — Senni-
lega gera slíkir höfundar sér
ekki ljósa grein fyrir því, hversu
mjög sum list er háð trú og sið-
gæði. Sennilega hafa þeir ekki
áttað sig á því, að flest af mestu
listaverkum heimsins myndu
ekki hafa getað orðið til nema
fyrir kraft þessara mannlegu
eiginleika. Og þá líklega ekki
heldur á hinu, að fólk, sem stend
ur á mjög lágu trúar- og siðgæð-
isstigi, er lítt hæft til að njóta
slíkra verka. Matteusar-passían
eftir Bach fær ékki náð til sálna,
sem hafa allan hugann bundinn
við jarðneska muni. Skáldverkið
Faust ekki fundið hljómgrunn
hjá þeim, sem aldrei hafa reynt
að hugsa alvarlega um þýðingu
og tilgang lífsins. Og fyrir fólk,
sem hefir tamið sér að líta á ásta
mál mannanna eingöngu í ljósi
kynferðilegrar tækni, hljóta töfr
ar kofasenunnar í “Pétri Gaut”
óumflýjanlega að verða sem lok
aður heimur.
Hin f^andsamlega afstaða
margra nutímahöfunda til trúar
og siðgæðis er fordæmanleg frá
tveim sjónarmiðum. — Maður,
sem notar listagáfu sína til þess,
að draga umhverfi sitt niður á
lægra menningarstig, gerir sig
fyrst og fremst sekan í svikum
við lífið. Listin er fyrir lífið. —
Hún á að vera jafn órjúfanlega
bundin þjónustunni við það,
eins og ilmur og litskrúð blóm-
anna er bundið þjónustu við
frjóvgunina. — En trúlaps og
siðlaus listamaður gerir sig ekki
síður sekan í svikum við sjálfa
listina. Með því að þrýsta áhang
endum sínum niður í trú og sið-
gæði er hann jafnframt að draga
úr hæfni þeirra til að njóta
sannrar og göfugrar listar. Sú
Huffheilar árnaðar óskir -
d TIL ÍSLENZKA VIKUBLAÐSINS LÖCBERGS f TILEFNI AF SEXTfU ARA AFMÆLIS ÞESS
EIGENDUR EVENSON VÉLA FÉLAGSINS SELJA HIN ÁGÆTU CROSLEY RAFÁHÖLD. SJER- FRÆÐINGAR í AÐ GJÖRA VIÐ MAGNETOS OG UMBOÐSMENN FYRIR ALLIS-CHAL- MERS, VERKFÆRI, VJELAR OG BÍLA.
EVENSON MACHINE1 IIKORKS
SIMI 19 - EDINBURG. N.D-
• SELMER EVENSON og STANLEY STENERSON, Eigendur
vanhæfni hlýtur svo aftur að
hafa áhrif á verkefnaval lista-
mannsins. Áhrifin verða gagn-
kvæm, og á þá leið, að listin er
njótendum hennar þoka hvort
öðru hægt og hægt niður á við.
List nútímans ber greinilega
merki slíkrar öfugþróunar. Þjón
ar hennar eru flestir smátt og
smátt að fjarlægast hin gömlu
og góðu yrkisefni. — Trúin á Guð
trúin á dyggðina, trúin á ástina
eru hætt að gefa skáldunum byr
undir vængina. Tónverkið Messí-
as gæti naumast orðið til á vor-
um dögum, sorgarleikurinn
Romeó og Júlía ekki heldur. —
Ný trú virðist nú óðum vera að
taka við af hinum forna átrún-
aði, að minnsta kosti hjá mörg-
um hinna nýrri höfunda — trú-
in á auðvirðileik manneðlisins, og
trúin á tilgangsleysi lífsins. Sú
trú er nú í seinni tíð boðuð af
ýmsum höfundum af slíkri kost-
gæfni, að vel mætti ætla, að þeir
teldu að án hennar væri trúar-
leg og eilíf velferð mannfólksins
í veði.
Það hefir borið við, að ég hafi
lagt fyrir einhvern slíkra hér-
lendra höfunda þá spurningu,
hvað hann ætlaðist fyrir með
því, að láta skáldfák sinn sýknt
og heilagt vera að sullast niðri í
verstu forarvilpum mannlífsins
— hvort hann gerir það í því
skyni að siðbæta fólkið, eða hvort
hann gerir það vegna listarinn-
ar. — Svarið hefir venjulega
verið á þá leið, að það sé bæði
vegna listarinnar og fólksins. —
Listin sé vanhelguð, ef hún sé
ekki látin segja sannleikann;
hún verði að sýna mannlífið
eins og það er. Auk þess sé það
fyrsta skilyrðið til þess að menn
bæti ráð sitt, að þeim sé gefið
rækilega til kynna, á hve lágu
menningarstigi þeir standi. —
Eg er sannfærður um, að sumir
þessara manna hafa talað af
fullri einlægni.
En ég er jafn sannfærður um
hitt, að aðferð þeirra er bæði
röng og háskaleg. Viðkvæðið:
“Allir eru þeir fallnir frá; allir
spilltir orðnir” er ekki leiðin til
þess að hefja mannlífið. List,
sem helgar sig fyrst og fremst
því hlutverki, að draga upp ó-
geðslegar myndir af sora mann-
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Sinclair’s Tea Rooms
SELKIRK
MANITOBA
1
LANDSBAN Kl
ÍSLANDS
THE NATIONAL BANK OF ICELAND
REYJAVÍK — ICELAND
• i
Stofnaður 1885. — Þjóðbanki íslands síðan 1927
REKUR AUK ÞESS HVERS
KONAR BANKAVIÐSKIFTI
Hefir einkarétt til seðlaútgáfu og annast önnur
opinber bankastörf.
◄
Otibú á efitirtöldum stöðum:
AKUREYRI ÍSAFIRÐI
ESKIFIRÐI SELFOSSI
►
Aðalviðskiftabankar í New York:
THE NATIONAL CITY BANK OF NEW YORK
FEDERAL RESERVE BANK OF NEW YORK
MANUFACTURERS TRUST COMPANY
Viðskiftabanki í Canada:
BARCLAYS BANK (Canada), MONTREAL
*