Lögberg - 13.11.1947, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
23
LEOPOLD AUER - 1885 - 1930
Vió rússnesku keisarahirðina
hélst sú venja lengur en við hirð
ir annarra þjóðhöfðingja Norð-
urálfu, að hafa á mála hjá sér
merka tónsnillinga t. d. fræga
fiðluleikara, hvern af öðrum,
sem sumir settust að til langs-
dvalar í Pétursborg. Hinn síðasti
þessara fiðlusnillinga, var Leo-
pold Auer, sem upphaflega réð-
ist sem prófessor og aðalkennari
í fiðluleik að keisaralega tónist-
arskólanum í Pétursborg — 1868
— en á undan honum hafði gegnt
því starfi hinn ágæti pólski fiðlu
leikari Wieniawski, f. 1835, d.
1880, sem getið var um hér í
síðasta þætti. Jafnframt því að
taka við þessu embætti fylgdi
það, að vera “keisaralegur hirð-
fiðluleikari, en því fylgdi sú
kvöð aðallega að leika einleik á
fiðlu, og þá einhver glæsileg
verk, eitt eða fleiri, í sambandi
við hinar hefðbundnu “ballett”-
sýningar í keisaral. óperuleik-
húsinu. Þessu starfi hafði
Wieniawski að sjálfsögðu einnig
gegnt en á undan honum belg-
iski fiðluvirtuósinn og tónskáld
ið Vieuxptemps, f. 1820, d. 1888.
Keisararnir höfðu þannig haft
hjá sér þrjá snillingana, sem
einna fremstir voru taldir fiðlu
leikara á þessu tímabili. Var
Auer í Pétursborg þangað til af-
staðin var byltingin í Rússlandi
1917, í maímánuði.
Leopold Auer var ungverskur
að ætt og uppruna og fæddur
hinn 7. júní 1845 í Vesprém í Ung
verjalandi. Ekki þótti það neitt
tiltökumál þar um slóðir, frekar
en annarsstaðar í Ungverjalandi
þó að þessi snáði vildi snemma
fara að fást við fiðluna. Og auð-
vitað var honum fengið fiðlu-
kríli, eins og öðrum strákum, og
hann var látinn “valsa” með
hana jafnt úti sem inni. En ein-
hver tók eftir því, þegar frá leið
að einhver annar hljómur var í
því sem Leopold lék, en hinir
drengirnir, meira var í það
spunnið, og að hann lagði sig
fremur eftir því, þegar hann var
farinn að ráða við hljóðfæri, að
bjástra við langar syrpur, sem
hann heyrði til hinna fullorðnari
fiðlara, en stuttu stefin og dans-
bútana, sem aðrir leikbræður
hans létu sér nægja. Og brátt
varð hann þeim öllum langsam-
lega fremri. Var hann þá sendur
til Buda-Pest, höfuðborgarinn-
ar, til hins besta kennara, *sem
þar var völ á þá, Ridley Kohne,
barn að aldri, en síðan til Vínar-
borgar, og þar fékk hann upp-
töku í tónlistarskólann 12 ára
gamall. Loka-“fágunina” fékk
hann loks hjá Joachim — en
hans hefir’oft verið getið í þess-
um þáttum — og var hjá hon-
um um nokkurt skeið í Hanover.
Var hann talinn fullþroska tón-
listarmaður innan við tvítugsald
ur, og fjölmenntaður, enda var
hann ráðinn hljómsveitarstjóri
í Drusseldorf 1863 — þá 18 ára
að aldri — og þaðan réðist hann
til Hamborgar 1866, einnig sem
hljómsveitarstjóri. Til marks um
það, hvert álit menn höfðu á
honum sem tónsnillingi, bæði
fyrir menntunarsakir, fjölhæfa
listagáfu og tækni er það, að
þegar farið er að svipast um
eftir hæfum manni til þess að
taka við prófessorsembætti því,
sem Wieniawski hafði gegnt, til
ársins 1868, við keisaralega tón-
listarskólann í Pétursborg, verð
ur L. Auer fyrir valinu, þá að-
eins 23 ára gamall, og gegndi
hann þessu embætti í 49 ár sam-
fleytt. Á þessu tímabili stjórnaði
hann þrásinnis hljómleikum
symfoni-félagsins í Pétursborg,
og var sóló-fiðlari þriggja keis-
aranna rússnesku, þeirra Alex-
anders II. og Alexanders III. og
loks hins síðasta keisara Rússa-
veldis, Nikulásar II., en hann
aðlaði L. Auer árið 1894. Heið-
urslaun voru honum greidd fyr-
ir þessa sérstöku þjánustu sína
við hirðina, sem mun hafa svar-
að til um 8000 króna á þeim
árum. En fyrir þessa hljómleika
sem hann hélt við keisarahirð-
ina, urðu ýms hinna merkari
tónskálda, rússnesk og annarra
þjóða, að semja tónsmíðar, sem
t \
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1 888 - 1 948
Independent Fish Company
941 SHERBROOK ST. WINNIPEG. MAN.
Hamingjuóskir til Lögbergs '
á sextíu ára afmœli þess
’ \
Við þekkjum Lögberg, og Islendinga í Argyle byggð, því við erum
nálega jafn gamlir þeim á- þessum stöðvum. Við þekktum erviðleika
^ frumbýlingsára Argyle byggðar, eins og þeir, við liðum þar súrt og sætt
eins og þeir, og við uxum og þroskuðmst þar, eins og þeir og því er os^
s einkar ljúft að minnast þessa sextíu ára afmælis Lögbergs sem sirin þátt
hefir átt í fram þróun og þroska Argyle byggðar.
Cleghorn's Drug Slore
SIMI 91 BALDUR. MANITOBA
honum voru sérstaklega tileink-
aðar. Þannig er t. d. um fiðlu-
konsert Tchaikovskys op. 25.
Hann hélt sig mjög að klassisk
um formum og hafði t. d. á
efnisskrá sinni alla hina merk-
ustu klassisku fiðlukonserta, og
þótti túlka þá með ágætum. Og
auðvitað lét hann til sín heyra
í stórborgum álfunnar, og hlaut
jafnan hinar virðulegustu við-
tökur hvar sem hann kom. Um
nokkurt skeið hélt hann hljóm-
leika í Lundúnum eða lék þar
á merkum hljómleikum árlega,
og þótti góður gestur, og þar
hafði hann fast aðsetur nokkur
sumur — 1906—1911, og tók til
kennslu efnilega fiðlara, en
síðan tók hann upp sömu háttu
í Dresden sumurin 1912—T4. En
Auer var um langt skeið rómað-
ur kennari og mjög eftirsóttur.
Leituðu margir til hans til Pét-
ursborgar frá öðrum löndum
og heimsálfum, en hann tók þá
eina að sér, sem hann taldi af-
burða efnilega, og á því sviði
hefir hann eflaust unnið tónlist-
inni mest gagn, að hann hefir
búið úr garði með svo miklum
ágætum ýmsa þá fiðlusnillinga
sem heiminn hafa mest glatt á
okkar dögum og vinsælir hafa
orðið og má þar nefna m. a.
Mischa Elman, Jascha Heifetz,
Efrem Zimbalist, Toscha Seidel,
Kathleen Parlow og Isolde
Menges. Öll voru þau hjá hon-
um árum saman og á unga aldri,
og hann sleppti ekki af þeim
hendinni fyrr en þau voru orðin
algildir listamenn í fremstu röð.
Og enn gleðja sum þeirra veröld
vora með sinni göfugu og glæsi-
legu list, en hverjir eru að hugsa
um Leopold Auer, þegar þeir
sitja agndofa af aðdáun og hlýða
t. d. á Heifetz.
Þegar Auer flýði Pétursborg
1917, hélt hann fyrst hljómleika
víðsvegar um Norðurlönd, eri
fór síðan vestur um haf í febrú-
ar 1918 og settist að í New York
og fékkst þar aðallega við
kennslu. Þangað hafði hróður
hans borist löngu á undan hon-
um sjálfum, með hinum glæsi-
legu nemendum hans, svo að til
hans leituðu fleiri en nokkur
tök voru á fyrir hann að anna.
Sagt er að Auer hafi talsvert
af því gert, að leika fyrir nem-
endur sína í kennslustundum,
tónsmíðar þær, sem þeir voru að
fást við í hvert sinn. Þetta hafði
Joakim og gert. En Auer hafði
aldrei gert sér far um að halda
fram einstrengningslega sínum
skilningi á hverju verki, ef hon-
um þótti gæta sérstaks þersónu-
leika og sjálfstæðs, listræns
skilnings hjá nemenda. Af þessu
er það auðskilið, hve ólíkur er
stíll hinna einstöku nem. hans,
sem kunnir hafa orðið um gjör-
vallan hinn menntaða heim. .
Hann samdi allmargt tón-
smíða, og umritaði aðrar fyrir
fiðluna. Eru tónsmíðarnar að
vísu ekki ýkja mikilfenglegar,
en einkar ljúfar og lifandi. Auer
lést 7. júlí 1930. Fálkinn
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
The Corner Store
Inga Anderson
CAVALIER
NORTH DAKOTA
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
The Dahl Company Tld.
325 LOGAN AVE. WINNIPEG. MAN. !
Hamingjóskir
til Lögbergs . . .
Á SEXTUGASTA AFMÆLI ÞESS
V. F. Hannesson, Mountain, North
Dakota, forstöðumanni Vick’s Serv-
ice Stati'on sem selur Texaco Gas,
olíu og aðra Texaco Vörur sem
bifreiðum tilheyra.
Lítið inn hjá Hannesson landar
þegar þið þurfið á slíkum vörum
að halda.
VICK’S SERVICE 5TATI0N
MOUNTAIN NORTH DAKOTA
Hamingju óskir til Lögbergs
í TILEFNI AF SEXTÍU ÁRA AFMÆLI ÞESS
Frá
H. A. Morrison, Cavalier, North Dakota, sem selur J. I. Case akruryrkju
vélar af öllu tægi
ZENITH RADIOS
NORGE ELECTRICAL
APPLIANCES
CLARION RADIOS
APEX WASHERS
'WILSON HOME FREEZERS
THE CAVALIERIMPLEMENT CO.
CAVALIER
NORTH DAKOTA