Lögberg - 13.11.1947, Page 8
24
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
Erindi um J. Magnús Bjarnason
(Framh. af bls. 21)
arverk þar sem annarsstaðar. —
Sennilega er þarna mynd móð-
ir hans og annara kvenna úr
frumbyggja-sögunni sem merki
manndóms og visku báru hátt,
og sem áttu andlegan auð og elda
bjarta, sem nú- eru að kulna út
og deyja, og sem áttu stærsta
þáttinn í því að undirbúa böm
annarar kynslóðar Islendjnga
hér undir lífið og starfið. Sögur
Magnúsar eru allar húgnæmar,
flestar heiibrigðar og sannar.
yfir þeim flestum hvílir drama
tiskur æfintýrablær, heillandi
og fagur. .
Þá vil ég að lokum nefna eitt
atriði enn í lífsstarfi þessa ágæta
manns, en það eru bréfin hans.
Eg get ekki sannað það, en ég
er fyllilega sannfærður um það,
að hér hefir hann unnið meira
stórvirki en flestir Vestur-ís-
lendingar. Hann var listaskrif-
ari svo nautn var að sjá, og hann
hélt listinni og fegurð hand-
bragðsins fram til hinstu stund
ar. Efni óg andi bréfanna var í
samræmi við líf hans og starf
hans á sviði skáldlistarinnar,
menntandi og fræðandi, þrung-
in af góðvild og ástúð til alls og
allra. Að fá bréf frá honum var
sem léki um vanga manns þýð-
ur og mildur vorblær, sem hef-
ir mann í hærra veldi, sælu og
sólskins. Hann skrifaði ótrúlega
löng bréf, og það á síðustu ár-
um, og er það þó engin leyndar-
dómur að síðustu árin mörg
gekk hann ekki heill til skógar,
og heilsa hans var lengi á veik-
um þræði. Jóhann Magnús
Bjarnason átti ekki peninga,
lönd eða lausa aura, og mun
hann aldrei hafa bundið hug-
ann við það. Honum nægði það
a lifa. En hann átti auð — and-
legan auð sem mölur og ryð fær
ekki grandað. Hann átti marg-
falt meiri lífsgleði en fjöldi
manna, sem ekki vita aura sinna
tal. Hann átti ljós í sálinni sem
varð æ bjartara er lengra leið
á æfidaginn. Kvartaði aldrei og
var allra manna þakklátastur.
Og þegar sól æfi hans hné til
viðar, þá var bjart í kring um
hann, þess bera vitni bréfin hans
síðustu. Eg veit að ljós og heil-
agur friður hefir krýnt ásjónu
hans, stundina síðustu.
En þó Magnús væri andans
öðlingur og prúðmenni, þá átti
hann karlmannslund. Hann hefði
getað beitt hnefanum ef nauðsyn
hefði krafið. En hann beitti hon-
um aldrei, hann átti annað vopn,
beittara sem hann sigraði alla
með, egg þess brýndi hann með
því sým mest er og best í heimi.
Hann var ímynd karlmensku,
hugrekkis, drengskapar, fegurð-
ar og manndóms. Eg hygg að
heimilislíf hans hafi verið með
afbrygðum farsælt ,annars hefði
hann ekki getað verið farsæll.
í bréfum sínum mintist hann
jafnaðarlega konunnar sinnar,
sem hafði verið honum' önnur
hönd gegnum lífið með hlýleik
og nærgætni.
Hann var rannsóknarmaður
rannsakaði hann margt með
gaumgæfni, sérstaklega ísl. við-
víkjandi. Mun margt fagurt og
heillandi koma í dagsljósið þeg-
ar dagbók hans kemur fyrir
almenningssjónir. Lagði hann
hart að sér við að fullkomna
hana og búa hana undir prent-
un, síðasta áfangann; hann vann
meðan dagur entist. Hann vissi
mjög vel að nóttin mundi þá og
þegar skella á, og hann vildi
ekki ganga frá hálfunnu verki.
Mót sólsetri og eilífðarströnd-
inni gekk hann með bros á vör.
Hans allra síðasta verk var að
safna heimildum um ætt sína
fram í aldir, gekk hann að því
með sömu vandvirkni sem ein-
kendi alt hans starf.
Jóhann Magnús Bjarnason
var lífsins barn. Hann var lífs-
stefnumaður, helstefnan átti
þar ekkert skjól. Hann vildi að
Isl., þjóðin hans, ætti fagrar
hugsjónir og lífrænar, andans
stefnur, sem gæfi henni nýtt líf,
fullkomnara og betra, en á lið-
inni tíð. Hann var laus við
marga þá ókosti sem hefir fylgt
Islendingum. Hann var ekki
sjálfhælin, metorðagjarn, öfund
sjúkur nk kærulaus, en þessir
ágallar hafa hindrað " þroska
okkar á menningar-brautinni,
fram á þennan dag. Orðstýr
Jóhanns Magnúsar Bjarnason-
ar mun lifa, ljósin sem hann
kveikti mun lýsa þjóðinni hans
um órofa aldur, ef hún þekkir
sinn vitjunartíma, og vill nota
þau sem vörður um fjöll og
fyrnindi mannlífsins. “Það er
ekki lífsspursinál að ég vinni
sigur, en það er lífsspursmál að
ég sé trúr minni köllun”, sagði
Abraham Lincoln, einn göfugasti
og stærsti maður sem heimurinn
hefir átt. Eg held að lífsstefna
J. Magnúsar Bjarnasonar hafi
verið svipuð, og hann hafi sýnt
það í orði og í verki. Ef að við
íslendingar negldum þessi orð á
fána okkar, og lifðum trúlega
eftir þeim, þá væri okkur borg-
ið í samkepni við meðbræður
okkar hvar í heimi sem væri. —
Lífsskilyrði fyrir einstaklinga og
þjóðir er að byggja hús sitt á
bjargi, á tryggum hornsteini, þá
mun það standa þegar steypi-
regnið kemur og hinir andlegu
stormar skella á því úr öllum
áttum. Sannleikurin^i er það
eina sem mun og getur gjört
mennina frjálsa.
Syndir manna eru ekki allar
Guði að kenna, það verður ekki
fiskileysið í sjónum í kring um
ísland eða gróðurleysi undir-
lendis og fjalladala landsins, sem
þjóðinni stendur mest hætta af,
það sem henni stendur mest
hætta frá, ef nokkur er, eru
hennar andlegu helstefnur sem
svo mörgum þjóðum hefir orð-
ið að falli. Ef íslenzka þjóðin á
lotningu fyrir því góða, háleita
og fagra, o ger sjálfri sér trú,
þá á hún glæsilega framtíð, þá
mundi hún stefna að því marki
sem Jóhann Magnús Bjarnason
vildi benda henni í anda og sann
leika. Þökk fyrir áheyrnina og
hamingjuóskir til Fróns, og
þakklæti til Fróns-nefndarinnar
fyrir tiltrúna.
— Maðurinn yðar er of mikið
íyrir sterkt kaffi, sagði læknir
inn. — Þér megið ekki gefa hon-
um það. Það æsir taugar hans.
— Já, en þér ættuð bara að sjá
hve taugaæstur hann verður,
þegar ég gef honum veikt kaffi.
Frúin — kemur að þjóni sín-
um þar sem hann er að fá sér
vínsopa: — Eg er undrandi á yð-
ur, Róbert.
Þjónninn: — Eg líka á yður.
Eg hélt þér væruð úti.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1 888 - 1 9 4 8
EyrccD
General Merchant
MANITOBA
T.
ASHERN
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1 888 - 1 948
R. SIGURDSSON
Contractor
Phone 29 670 894 Banning St.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
Breckman Bros.
LUNDAR MANITOBA
HVORT ER ÁKJÓSANLEGRA?
W. H. Carter
forseti og fram kvcrmdarstjóri.
Hvort myndu þér heldur kjósa, að vera í þjónustu gamaldags fyrirtækis, sem ef til
vill íþýngdi yður ekki við vinnu, þar sem enginn von væri um betri atvinu vegna þess að
það vill hafa alt með gamla laginu- eins og það var fyrir 20 til 30 árum.
EÐA
Starfa í þjónustu fyrirtækis, sem starfrækt er með nýtýzku hætti og vinnur að
bættri afgreiðslu almennings, stór aukinni umsetningu og hækkuðu greiðslufé er
tryggir starfsmönnum sínum lífvænlega og holla aðbúð.
JÁ
þetta er viðskiptaregla Winnipeg Electric félagsins, er ávalt horfir fram í tímann
með hagsmuni almennings fyrir augunum.
SANNANIR
Winnipeg Electricfélagið hefir nú á prjónum viðbót við Seven Sisters raforku-
verið, sem kostar $7,000,000 eða freklega það.
FREKARI SANNANIR
Winnipeg Electric félagið hefir keypt 91 spor og almennings vagna, er kostuðu
$1,717,984.23 síðan 1 Janúar 1946 til þess að veita borgurum í Winnipegborg hinni
meiri, greiðari og ábyggilegri samgöngur, þessir nýju vagnar fjölga sætum um
3,647 fyrir farþega.
Winnipeg Electric féfagið er sjálfbyrgt fyrirtæki, er greiðir
háa skatta, og gerir alt sem í valdi þess stendur til þess að
tryggja borgurunum í Winnipegborg hinni meiri, sem allra
fullkomnastar samgöngur.
Jpil
í:'
SEVEN SISTERS FALLS ORKUVERIÐ
8em. nú er verið aO stKkka svo mikiO aO þaO mun
brdOlega telja 225,000 hestöfl, og veröur þá hiO stœrsta
orkuver, sem veriO er aO byggja i 8léttufylkjunum.
WINNIPEG ELECTRIC C0MPANY