Lögberg - 13.11.1947, Side 1
60. ÁRGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, 13. NÓVEMBER, 1947 NUMER 45
FRAMTIÐARINNAR
Vera Stanley Alder:
MENTUN
Þegar við skyggnumst eftir
breytingum þeim, er verða
munu á mentamálum komandi
tíma, verðum við að hafa nú-
verandi fyrirkomulag til hlið-
sjónar.
Fram til síðustu tíma hefir til-
gangur mentunar verið sá að
skapa einstaklinga, sem eru eign
ríkisins. Hver einstaklingur
verður að fá uppeldi, sem býr
hann undir að verða auðmjúkur
þjónn, sem gerir vilja þjóðfé-
lagsins eða landsins án þess að
spyrja um ástæður eða tilgang.
Það hefir ekki verið álitið hættu
laust að veita honum nokkrar
upplýsingar um það, sem kynni
að vera utan þessara takmarka.
Menn hafa lært að líta á málin
frá sérgæðissjónarmiði. Erfiðar
og þreytandi kringumstæður
hafa gert þá að ósjálístæðum
mönnum, sem taka við tilbúnum
skoðunum. Lífsskilyrði síðustu
ára hafa ekki hvatt einstakling-
inn til að hugsa sjálfstætt. Að-
eins hinir bezt gefnu hafa gert
það. Af því leiðir, að ekki nema
1% af alþýðunni hugsar frum-
lega.
Lýðurinn hefri verið alinn upp
við bannstefnur. Hugsjónum og
hugmyndum hefir verið troðið
upp á hann á vélræna vísu. —
Næstum hver einstaklingur hef-
ir verið STIMPLAÐUR.
1 fyrsta lagi er hann litaður
af erfðavenjum og viðhorfi ætt-
ingja sinna. Ber þar mjög á ætt-
ardrambi og takmarkalausri
græðgi, eigingirni og þröngsýni.
Hver einstkalingur verður speg-
ilmynd sinnar fjölskyldu. Jafn-
vel þær beztu eru ekki hafnar
yfir þessar venjur. Ofan á þetta
bætast arfgengir kvillar, sem
mataræði og aðrar lífsvenjur
hafa skapað.
í öðru lagi er hann fjötraður
við kenningar hefðbundinnar
mentunar. Hún hefir verið skipu-
lögð af blindri hlýðni, sem kend
er við þjóðernisást og gengur er-
inda ríkisins. Honum er kend
hlutdræg saga, þar sem hans eig-
ið ríki eða land er hafið upp til
skýja á kostnað annara landa og
þjóða. Honum er kent að dá
stríð og að skoða allar þjóðir
utan ríkislandamæranna sem ó-
vini, menn, sem standi á miklu
lægra menningarstigi en hann,
of honum óskylda.
Þannig er klofnings- og ein-
angrunar-kenningin sköpuð og
henni viðhaldið. Einstaklingur-
inn er látinn játast undir ýmsar
teg. drottinshollustu. Hann á
að sýna ættinni og fjölskyldunni
drottinshollustu, trúnni og öll-
um hennar kreddum og kenn-
ingum. Ekki má skólinn hans
verða útundan, því að hann er
öðrum skólum fremri, enda
keppinautur allra hinna, Land-
inu verður hann að sýna drottin-
hollustu starfinu, sem hann
stundai-, hvert sem það er. Ekki
má hann gleyma klúbbnum eða
félagsstarfinu, sem er marghátt-
að. Allra sízt má hann bregðast
þeim pólitíska flokki, er hann
þjónar. Þannig er hann umset-
inn á allra hliðar af ásköpuðum
skyldum, sem aðrir hafa bundið
honum á herðar.
Hvað eru svo þessar hollustur?
Þær eru gamlar, troðnar hugs-
anagötur, sem orðið hafa til
næstum ósjálfrátt hjá þeim, sem
vildu gera einstaklinginn sér
undirgefinn. Hann þurfti að
þræla fyrir þá, greiða þeim at-
kvæði sitt við hverjar kosning-
ar, gjalda þeim skatt og tryggja
þeim margvísleg fríðindi. Sum
ekki með öllu ósannjörn, önnur
mjög, en tilgangur allra þeirra
er hinn sami.
Þriðja áhrifavaldið er hag-
fræðileg nauðsyn.
Einstaklingur nútímans er al-
inn upp við ótta og ævilangan
kvíða. Hann verður að horfast í
augu við þá skyldu að sjá fyrir
sér og sínum í því þjóðfélagi,
sem leggur honum alls konar
skyldur á herðar, en hefir þó
ekkert með hann að gera. Tii-
heyri hann þeim flokki manna,
sem er sæmilega fjáður og lifir
af tekjum sínum, þá ber hann
stöðugan kvíðboga fyrir því, að
sér takist ekki að varðveita tekju-
stofn sinn, annað hvort vegna
takmarkaðs fjármálavits eða
vegna þeirra kvaðagjalda, sem
það opnibera leggur honum á
herðar og hrifsar af honum með
réttu eða röngu. Auk alls þessa
eru fjármál heimisns þannig, að
enginn sér hvað framundan muni
vera á þeim vettvangi.
Þannig eru lífsskilyrði hinna
megandi og hinna snauðu undir
sama áhrifavaldi, þar sem óttinn
ríkir og ræður yfir hugum og
hjörtum allra manna. Ótti þessi
er ævilangur, því að undir flest-
um kringumstæðum er hann
orðinn hluti af hugsun og við-
horfi hvers manns. Þessi geig-
væni ótti er arfur og kynfylgja,
er sköpuð er af klofnings- og
einangrunar-stefnunni, sem skap-
að hefir böl þjóða, stétta og fé-
laga og komið á samkepni, ó-
jöfnum eignarrétti á landi og
lausafé og komið í veg fyrir al-
menna vellíðan í nægtafullum
heimi.
Vegna þessa fyrirkomulags er
einstaklingurinn alinn upp í
þrælslegum félagshring, sem
fyrirmunar honum að hugsa
skarpt og rökrétt, en það er ein-
mitt þessi tegund hugsunar, sem
heiminn skortir einna mest. —
Einstaklingurinn er fyrst ment-
aður og agaður til að skoða sig
sem handbendi ættar sinnar og
fjölsykldu, en þar næst sem
einkaeign lands síns og ríkis, en
honum hefir aldrei verið kent,
að hann væri félagi hins mann-
lega alheimsþjóðfélags, sem ætti
hlutdeild í fylstu mannréttind-
um og þjóðfélagserfðum.
Föðurlandsást hefri blásið
mörgum manni stórhug í brjóst
og gert líf hans auðugra og fyllra.
Þrátt fyrri það er hún ekki ann-
að en trygð við hugsjón. En
hvort trygðin er bundin við föð-
urlandið, álfuna eða alt mann-
kynið, skiftir ekki jafnmiklu
máli og við í fyrstu ætlum. Mis-
munurinn er þó sá, að hið síðar-
talda er miklu víðtækara og lík-
legt til mikilla hagsbóta fyrir
allan heiminn. Eiginhagsmuna-
s t e f n a föðurlandsástarinnar
myndi hverfa, ef trygðin væri
bundin við allan heiminn. Þess
vegna er alheimsstefnan miklu
nær kristindóminum en föður-
landsástin, sem hingað til hefir
verið svo mikið á orði.
Hin bætta menning og ment-
un mun þokast áfram jafnhliða
öðrum framförum, sem koma
munu og gerbreyta lífi og lífs-
venjum allra manna.
Áhugi allra verður undra mik-
ill fyrir alheimsstjórn, og sam-
runi alþjóðamálefna verður að
veruleika á fjöldamörgum starfs-
sviðum. Það kemur í ljós, að því
fleiri landamæragirðingar, sem
hverfa úr sögunni, því meiri
verður samvinna og eining þjóð-
anna og þær munu menta sig til
þess að geta framkvæmt þetta
á sem breiðustum grunni.
Veraldarsaga, hagfræði og al-
þjóðaskyldleiki verða fræðigrein-
ar þeirra tíma og þeirra manna,
sem þá verða uppi. Takmark
fullrar mentunar verður að
kunna að meta og skilja gildi
allra þjóða.
Ein alþjóðatunga verður sú
fræðigrein, er hvert barn verður
að læra jafnhliða sínu móður-
máli. Þetta er nauðsyn, og senni-
legt er, að þetta mál verði enska.
Námsgrein sú, er mest rækt
verður lögð við, verður alþjóða-
hagfræði. Undir þá námsgrein
falla aðrar skyldar greinar, með-
al þeirra matvæladreifing, og þá
verða allar tegundir þeirra toll-
frjálsar og munu þá allir fá
nægju sína. Nákvæm athugun á
áhrifum tungls og sólar á jurta-
gróður verður yfrirskipuð, því að
öll ræktun verður stór þáttur í
lífi allra þjóða eins og ætíð áður.
önnur mikilvæg námsgrein
mun fjalla um fjármál. — Mynt-
slátta og seðlaútgáfa verður eitt
aðalviðfangsefnið, og á þeim
vettvangi verða reyndar margar
nýungar og áhrifaríkar. Niður-
staða þeirra tilrauna verður
vöruskáftaverzlun á víðtækum
grundvelli. Beinn gróði og vext-
ir af peningaverzlun verður ekki
vel liðinn, en nýjar aðferðir ryðja
sér til rúms og nýr reikningur
verður notaður. Hann verður
ekki bygður á samlagningu eða
frádrætti, heldur því sem nefnt
verður lágrétt dreyfing.
Frumspeki (metaphysics) verð-
ur lögboðin námsgrein-, sem fel-
ur í sér meginatriði þróunarinn-
ar og þeirra vísinda, er að henni
lúta.
Þá munu margir námsmenn
sökkva sér niður í sálarfræði og
það verður ljóst, að mannshug-
urinn er orkugjafi, sem getur
haft áhrif á efnið, og mun þessi
nýja fræði viðurkend í skólun-
um. Þá munu sveiflur og lífs-
geislanir verða mjög yfirgrips-
mikil námsgrein, ásamt alls kon-
ar rafsegul-fyrirbrigðum, er
skiftast munu í margar lærdóms-
greinar. Menn munu læra að
þekkja skyldleika sveiflanna, en
um það lögmál höfum við áður
lesið í sambandi við íhuganir og
hugbeitingar, en þar er sagt, að
hugsunin geti skapað form, sé
hún nógu sterk. Formið eða
myndina mótar hugurinn í ljós-
vakann, sem tekur á móti hugar-
sveiflunum. Ef hugsuninni er
haldið stöðugri, fæst vitneskja
um það, sem eftir er leitað. Gáfa
þessi verður nefnd “stillinæm-
leiki”. Hennar mun gæta mjög
hjá börnum.
Þetta verður ein af þeim miklu
breytingum, sem eru í vændum
í framtíðinni. í stað þess að troða
nemandann fullan af þurrum
þekkingarmolum, verður hann
sjálfur látinn skýra frá óþektum
hlutum. Hann verður- sá, er
hlerar eftir vísd^mi ljósvakans
og ritar jafnóðum niður það, sem
hann kemst á snoðir um. En til
þess að ná þessum lærdómi, þarf
mikla æfingu og leikni, en þó
(Frh. á bls. 36)
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
DR. L. A. SIGURDSSON
53 MEDICAL ARTS BLDG. WINNIPEG, MAN.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
Plumbing & Heating
O. K. HANSSON
163 SHERBROOK ST. PHONE 72 051
f
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Sargent Taxi Ltd.
FRED BUCKLE
629 ELLICE AVE. WINNIPEG, MAN.
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Thomas P. Hillhouse
BARRISTER
SELKIRK MAN.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1 888 - 1 948
Salame eMalldotean
WINNIPEG MANITOBA
Congratulations to
LÖGBERG
on ils sixfieth anniversary
1887 - 1947
co
VLO
383 Portage Ave. (Cor. Edmonton) Winnipeg, Man.
ESTABLISHED 1903
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Modern Laundry Ltd.
309 HARGRAVE STREET
PHONE 93 177 WINNIPEG, MAN.