Lögberg - 13.11.1947, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
35
vér höfum viljað koma í fram-
kvæmd, og 'myndi seint hafa
náðst samtök um þau út um
byggðir vorar, ef blöðin hefðu
eigi verið fyrir hendi. — Hafa
þau einnig stórum og á margan
hátt stutt að því að halda vak-
andi þjóðernisvitundinni, að ó-
gleymdu því mikilvæga atriði,
hvers virði það hefir verið fyrir
viðhald íslenzks máls vestan
hafs, að blöðin hafa barið að dyr
um þúsunda íslenzkra heimila
viku hverja, en eigi gerist þörf
að fjölyrða um það, hve nátengd
tungan og þjóðernisvitundin
eru.
Ennfremur hafa vestur-ís-
lenzku vikublöðin eigi unnið ó-
merkilegt verk í þá átt að varð-
veita þjóðernisvitundina og bók-
menntahneigðina, með því að
flytja lesendum sínum á liðnum
áratugum mjög margt af því feg-
ursta og verðmætasta, sem rit-
að hefir verið í óbundnu máli eða
ort á íslenzka tungu vestan hafs.
í því hefir einnig falist bæði
varðveizla menningarerfðanna
íslenzku og hvatning þeim öllum,
sem fengist hafa við bókmennta
leg störf vor á meðal að ein-
hverju leyti. Er hér því um að
ræða, þegar alls er gætt, sérstak
lega mikilvæga hlið á starfsemi
vestur-íslenzku blaðanna, bein-
an skerf þeirra til bókmennta og
menningar. Og sannfærður er ég
um það, að drjúgum hefði orðið
fátæklegra um að litast í vestur-
íslenzkum bókmenntagróðri —
þó hvergi nærri sé allt kjarn-
gresi eða góðgresi á akrinum
þeim — ef dálkar blaðanna hefðu
eigi staðið opnir þeim, er við rit-
störf hafa fengist. Þeir myndu
miklu fremur hafa trénast upp í
þeirri viðleitni sinni, ef eigi hefði
verið í skjól blaðanna að venda
um að koma kvæðum þeirra, sög
um eða öðrum ritsmíðum fyrir
sjónir almennings.
Vestur-íslenzku vikublöðin
hafa einnig áreiðanlega glætt
þjóðernismeðvitund vor íslend-
inga hér í álfu, með fréttum sín-
Arnaðar óskir
til blaðsins Lögbergs á
Sextugasta aldurs afmæli
þess. Að efla þekking
drengskap og dug, er þarft
og göfugt starf. Það er ósk
vor að hinir mörgu íslenzku
viðskifta vinir vorir, og
allir íslendingar, megi sem
lengst að því verki vinna.
SÍMI 98 511
THE WINNIPEG PAINT
& GLASS CO. LIMITED
Selja alt sem til bygginga heyrir
179 Notre Dame Ave. East Winnipeg, Canada
Þegar Jólin
koma
F¥RIR nærri tvö þúsund
árum síðan — á hinni
fyrstu jólanótt—boðaði
blik Betlehems stjörnunnar
hinn dýrðlegasta viðburð í
sögu mannanna.
Vitringarnir þrfr biðu á verði,
trúfastir. Trúin í hjörtum
mannanna þá nótt var
fölskvalaus — ósigrandi.
Látum oss endurvekja þá trú,
svo menn allra þjóða geti
sameinast í að leggaja varan-
legan friðargrundvöll.
KRISTILEGAR HUGSANIR
BORNAR FRAM AF VINI.
Sagnakver sr. Skúla Gíslasonar
í útgáfu próf. Sigurðar Nordals
Það telst jafnan til bókmenta-
viðburða, er bók kemur á mark-
aðinn frá dr. Sigurði Nordal,
prófessor. Innan fárra daga koma
Þjóðsögur Skúla Gíslasonar frá
Breiðabólsstað, sem próf. Sig-
urður Nordal hefir tekið saman.
Það er alment viðurkent af
fræði- og bókamönnum, að eng-
inn var jafningi Skúla við að
skrá sögur og sagnir er alþýðan
hafði á vörum sínum, þó ekki sé
meira nefnt, sem dæmi, en sag-
an um Galdra-Loft, sem Skúli
hefir gætt slíkum lífskrafti, að
hún er líkleg til að lifa meðan ís-
lenzka er töluð.
Prófessor Sigurður skrifar
ítarlegan formála að bókinni og
segir þar m. a.: Þegar eg var að
leita sýnishorna úr þjóðsögum í
íslenzka lestrarbók, 1924, rifjað-
ist þetta enn upp fyrir mér. Af
10 sögum, sem eg valdi að lok-
um, voru 4 skrásettir af séra
Skúla, og hafði mig langað til að
taka fleiri af sögum hans, þótt
úr miklu og góðu eftir aðra menn
væri líka að velja. Þá kom það
og fyrir, að mér virtist við nánari
athugun, ein setning í sögunni
um Andarímur og Hallgríms-
rímur, vera lokleysa. Eg vissi,
að frumhandritið mundi vera til.
Þar voru í einu lagi sögur þær,
sem séra Skúli hafði sent Jóni
Árnasyni. Lokleysan reyndist
ekki annað, en afleit prentvilla,
sem auðgert var að leiðrétta. En
eg átti bágt með að slíta mig frá
kverinu og skildist við það ein-
ráðinn í því, að koma því ein-
hvern tíma á prent í heilu líki.
Sá ásetningur hefir verið geymd-
ur, en ekki gleymdur. Og nú
hefi fengið að tóra svo lengi und-
ir guðsþolinmæði, að úr því hefir
orðið, þótt dregist hafi þetta á
langinn”.
Séra Skúli á Breiðabólsstað,
var engu að síður víðkunnur
prestur en fræðimaður, eins og
segir í ævisögukafla próf. Nor-
dals um Skúla, en þar segir Nor-
dai á þessa leið:
Skúli Gíslason var tvímæla-
laust einn af mestu skörungum
íslenzkrar prestastéttar um sína
daga, lærður guðfræðingur,
skyldurækinn og röggsamur í
embætti og annálaður kennimað-
ur. Einkum urðu margar útfara-
ræður hans mönnum minnisstæð-
ár, og það var við eitt slíkt tæki-
færi, sem sér-a Birni Þorvalds-
syni í Holti undir Eyjafjöllum
varð að orði: “Mikið er að nokk-
ur maður skuli vera prestur
nema hann séra Skúli”. Hann
var óhvikull í rétttrúnaði, svo
sem Matthías kvað:
Var trúlyndur
sá er tísku smáði
hvanngrænn kvistur
Krists' í lundi.
Og hann var í ræðum sínum
sem annars hispurslaus, hrein-
skilinn og berorður, svo að fólki
þótti stundum nóg um. En allir
sem til hans þektu, vissu vel, að
“hans náttúra var miklu betri
en stór orð”, eins og Jón lærði
kvað að orði um Staðarhóls-Pál.
I bókinni eru alls nokkuð á
annað hundrað sögur. Er útgáfa
próf. Nordal hin fegursta og
vandaðasta á allan hátt. — Hall-
dór Pjeturss., teiknari, hefir gert
fjölda af heilsíðumyndum í bók-
ina, en útgefandi er Helgafell.
—Mbl. 14. sept.
um og frásögnum um menn og
konur af vorum stofni, hvort
heldur er af eldri eða yngri kyn-
slóðinni, sem skarað hafa fram
úr á einhverju sviði eða unnið
sér á annan hátt til frægðar og
varpað ljóma á ættstofninn. En
það er heilbrigð sjálfsvirðing að
fagna yfir slíkum afrekum. Og
hafi það, eins og örn skáld segir
eflaust réttilega, gefið metnaði
heimaþjóðarinnar flugfjaðrir, að
frétta um dug og dáð frændanna
hérlendis, þá ætti það eigi síður
að gefa heilskyggnum metnaði
sjálfra vor byr undir vængi. —
Megum vér í því sambandi vel
minnast orða Stephans G.
Stephanssonar:
“Og orð þín þarf hér eggjansterk,
því oss er skipað mikið verk:
við fósturlandsins frægðarstarf,
með föðurlandsins sæmd í arf,
af höndum inna æviþraut
með alþjóð fyrir keppinaut”.
Skerfur sá, sem vestur-ís-
lenzku vikublöðin hafa lagt til
íslenzkrar þjóðræknis- og menn-
ingarviðleitni hér í álfu, er því
auðsjáanlega harla margþættur
og víðtækur, þó að fljótt hafi
orðið að fara yfir sögu. Hafa
blöðin einnig og ritstjórár þeirra,
löngum verið ótrauðir málsvar-
ar íslands og íslenzku þjóðarinn-
ar. Alkunnugt er það, hversu
skeleggur núverandi ritstjóri
Lögbergs hefir reynst í þeim
efnum, og er ástæða til að víkja
að því nánar annars staðar í af-
mælisblaði þessu. Má hið sama
segja um konu hans, frú Ingi-
björgu Jónsson, eins og ræður
hennar og greinar í kvennadeild
hennar í blaðinu bera fagurt
vitni.
En svo horfið sé aftur að gildi
vestur-íslenzku vikublaðanna
fyrir þjóðræknisstarfsemina í
heild sinni hér vestra, þá myndi
sú viðleitni fljótt standa æði
höllum fæti, ef þeirra missti við;
gegnir sama máli um alla ís-
lenzka, félagslega viðleitni vora,
hverju nafni, sem hún nefnist,
því að hún grundvallast jafnan
á samtökum og samvinnu að
einhverju marki, sem því aðeins
verður náð, að unnt sé að sam-
stilla hugi manna um áhugamál-
in.
Minnugir þess, ættum vér að
stuðla að því með öllu móti, að
vestur-íslenzku vikublöðin eigi
sem lengst líf fyrir höndum, því
að tilvera vor, sem þjóðernislegr
ar heildar, innan þess þjóðfélags
sem vér erum hluti af, er drjúg-
um undir því komin, að blöðin
haldi áfram að tengja oss stofn-
þjóð vorri og sameina oss inn-
byrðis hér í dreifingunni.
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Karsin Radio Electric
KARSIN BROS., Proprietors
ARBORG
MANITOBA
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
STAR GARAGE
PHONE 149
SELKIRK, MAN.
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1 888 - 1 948
J. D. FOODS
861 Sargenl Ave. Phone 22 169
Cor. Sargent and Lipton
ííinlœg ar
árnaðar oskir
til Lögbergs
á sextíu ára
afmœli þess
Á MENNINGAR OG ÞRÓUNAR
BRAUT ÍSLENDINGA í ÁLFU
ÞESSARI.
THOMAS
JORDAN
Go+UsiactoA.
HENSEL
NORTH DAKOTA
Stóriðjuhöldur og samverkamaður
fslendinga í North Dakota