Lögberg - 13.11.1947, Side 4
36
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
Mentun framtíðarinnar
(Frh. af bls. 33)
verður þetta aðeins undirbún-
ingur til vitrænnar mentunar.
Er lengra líður, verða gerðar
þær kröfur til nemandans, að
hann temji sér rökvísa hugsun,
af ályktun og samanburði á
gefnu efni, unz hann setur fram
frumlega eða skapandi hugmynd
um hið gefna efni. Smátt og
smátt kemur skapandi hugsun í
stað minnis, unz skilningshæfi-
leikar mannsins hafa náð því
stigi, sem okkur, er nú lifum,
myndi lítt skiljanlegt.
Margar tilraunir hafa þegar
verið gerðar, sem miða í þessa
átt, má þar benda á Pelmanisma
og aðrar nýjar aðferðir til and-
legs þroska. Þessu mætti lýsa
þannig, að hinir sálrænu hæfi-
leikar verði notaðir í stað heil-
ans. Er tímar líða, komast allir
upp á að neyta skapandi hugs-
unar og þá getur hver einstakl-
ingur leikið sitt hlutverk á sviði
lífsins.
Ekki verður það vanda- eða
hættulaust að halda opnum huga
fyrir þeim hlutum, er menn
skynja vegna tengslanna við
ljósvakarm. Hinn opni hugur
getur að vísu tekið á móti hverju
sem er, en hann getur einnig
glatað öllu, sem honum berst.
Hinn lokaði hugur, er ekkert vill
taka til greina af dulfræðum,
hefir sína ókosti, opni hugurinn
hefir og sína ókosti, en þeir verða
fólgnir í því, að allir vilja fást
við að hlera eftir öllu, sem hægt
er að fá vitneskju um. Þetta
verður ástríða margra manna og
ekki ósvipuð ofdrykkjuástríðu.
Alls konar skygnitilraunir verða
hafðar um hönd, einkum til að
fræðast um aðrar og æðri ver-
aldir. Þetta mun verða svo víð-
tækt, að mentamálaráðin verða
að taka í taumana á mjög alvar-
legan hátt.
Það er erfitt að segja fyrir um
áhugamál manna í framtíðinni.
Við, sem nú erum á lífi, fáum
naumast skilið þá fjölbreytni,
sem um verður að ræða. Og
mörg þeirra eru þess eðlis, að
trautt verða skýrð né skilin af
þeim, er nú lifa. Enda eru enn
ekki fundin þau verkfæri, sem
notuð verða í þjónustu þeirra, en
þau verða hvort tveggja: mörg og
afar næm, enda verða þau notuð
við svo fíngerð efni, að nútíðar-
vísindaáhöld ná þar skamt á veg.
Hugsanalestur og hugskeyta-
sendingar verða almennar. Börn-
in munu læra að senda hugskeyti,
þegar á unga aldri, og einnig að
taka á móti þeim. Sá tími mun
koma, að erfitt verður að dylja
hugsanir sínar, en langt inni í
ókomnum tíma vex siðferðis-
þroski mannanna svo mjög, að
þeir hafa ekkert að dylja.
Svo hugfangnir verða menn af
sínum eigin gáfum og skilningi,
og svo mikla unun munu þær
rannsóknir færa þeim, að þeir
munu vart sinna öðrum skemt-
unum. Spurningin, sem efst
verður í hugum manna, verður:
“Hvað get eg gert með hugan-
um- Get eg endurlífgað dánar
skepnur með huggeislum, eða
látið blómin mín vaxa eða taka
á sig nýja liti? Get eg gefið ná-
granna mínum meiri hugar-
þroska en hann hefir og er ekki
jafn mínum? Get eg sent yl-
geisla velvildar og kærleika til
fjarlægra mannflokka, sem enn
sitja í rökkri fávísinnar og eru
ekki komnir eins langt áleiðis
og við?
Framtíðarmenningin geymir
mikinn'þekkingarauð, sem okkur
dreymir ekki um. Hin sálrænu
áhrif litanna verða mikið við-
fangsefni vísindanna, og hvernig
nota megi þá til lækninga og
skreytingar. List framtíðarinn-
ar verður til vegna vitrænna á-
hrifa í stað tilfinninga. Bilið á
milli þessara tveggja áhrifa er í
snöggu bragði ekki svo auðsætt.
Tilfinningaáhrifin eru þriðju
stærðar; þau stafa frá líkama og
heila. Þau eiga einnig rætur að
rekja til fegurðar, ástar, þján-
ingar og hreysti, en það eru eig-
inleikar, sem einnig tilheyra dýr-
unum. Hin vitrænu áhrif eru
fjórðu og fimtu stærðar, og eru
fremur runnin undan rifjum or-
sakanna en afleiðinganna, hin-
um fólgnu öflum, sem form og
hugmyndir eru sprotnar af og
eru uppbyggjendur alheimsins.
Svipaðar breytingar verða í
hljómfræði|. Hin nýja tegund
hennar talar til hugans og sálar-
innar í stað tilfnininganna og
sýnir það líf, er fólgið er undir
líkamlegu formi og þá veruleika,
sem eru aðall hinnar fjórðu
stærðar og útgeislunar hennar.
Forsmekkur hinnar nýju tón-
listar hefir nú þegar borist okk-
ur með verkum ýmissa tónskálda,
meðal annara Ravel o. fl.
Þau tónaform, sem lýst hafa
lífi þriðju stærðar fram til þessa,
eru að víkja fyrir tónveerkum, er
1 ý s a frumefnageislunum og
frumefnaverum náttúrunnar, og
hvernig hinir ýmsu geislar ganga
hver í gegnum annan út frá hugs-
un guðs, til skógardísanna, og frá
geislum hnattanna til geislasviðs
dauðlegra vera. Tónlist Wagners
mun lifa lengst þeirra tónverka,
sem tilheyra þriðju stærðar tíma-
bilinu, vegna þess að hann reyndi
að lýsa geislatilbrigðum og gera
mikilfengleik alheimsins skilj-
anlegan með tónmyndum.
Það, sem mesta furðu mun
vekja, verða nýjungar í ilmefna-
gerð. Það er nú þegar á vitund
manna, að vissir tónar eru ná-
skyldir vissum litum og ilman, og
mun það verða undirstaða fram-
tíðarvísinda, sem háð eru skiln-
ingi og smekkvísi. í framtíðinni
verður tónlistin iðkuð við til-
svarandi lit og ilm. Að hlusta á
tónlist í umhverfi, sem er í sker-
andi ósamræmi við þetta tvent,
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
D. J. LINDAL
Ford Sales and Services—Garage Repairs to all Cars
LUNDAR MAN.
Congratulations to
LÖGBERG
%
on its sixtieth anniversary
1 888 - 1 948
COMMERCIAL SECURITIES
CORPORATION LIMITED
C. H. McFADYEN, Manager
362 MAIN STREET WINNIPEG
Íslenzkir Byggingameistarar Ve|ja
TEN-TEST i dlar sinar byggíngar
Þessi Insulaling Board skara fram úr að gæðum . . .
Seld og notuð um allan heim—
Fyrir nýjar byggingar, evo og til aCgerða eða end-
urnýjunar fullnægir TEN-TEST svo mörgum kröf-
um, að til stórra hagsmuna verður Notagildi þess
og verð er ávalt edns og Vdra ber. Og vegna þess að
t>að kemur f stað anntara efna, er ávait um auka-
sparnað að ræða.
TEN-TEST hefir margfaldan tílgang sem insuiating
board. Pað veítir vörn f.ytir of hita eða kulda, og
tryggir jöifn þægindi hvernig sem vlðrar. pessar auð-
meðförnu plötur tryggja skjótan árangur og lækka
innsetningarverð.
I sumarheimilum eða borgarbýlum, skrifstofum, fjöl-
mennisfbúðum, útvarpsatöðvum, samkomusölum og
hötelum, tryggir TEN-TEST lífsþægindi, útilokun
hávaða, og fylgir yfirleitt fyrirmælum ströngustu
by ggin garlistar.
Útbreiðsla og notkun um all an heim gegnum viður-
kenda viðskiptamiðla, er trygging yðar fyrir skjótri,
persónulegri afgreiðslu. Ráðgist við næsta TEN-
TEST umboðsmann, eða skrifið oss eftir upplýsingum.
£££. ten.tf st
ENDURNÝJAR I Ih B 1 Wm ^0 ■
LÆKKAR
KOSTNAÐ
VIÐ HITUM
INSULATING WALL BOARD
INTERNATIONAL FIBER BOARD LIMITED, OTTAWA
WESTERM DISTRIBUTORS: ARMSTRONG DISTRIBUTORS IIMITED WINNIPEG MANITOBA |
eins og nú tíðkast, verður í fram-
tíðinni talin villimenska.
Blöndun ilmtegunda, lita og
tóna verður gerða að vísindum,
sem orka sem heilsulyf á vöðva
og hugarsellur, og til margra
annara hluta. Af þessu skapast
mikil fegurð og gleði.
Rannsóknir geisla og áhrif
þeirra á kristalla og önnur form
verða mjög eftirsótt vísindi. Þá
verða geislasendingar hugans
annað mikið rannsóknarefni, en
þeir)ri grein mun fleygja svo
fram, að hægt verður að kvik-
mynda hugsunina. Jafnvel ótti
og óbeit verða sýnilegir hlutir,
einnig áhrif þeirra á líkamann.
Þær myndir verða til þess, að
menn fá meira vald yfir hugs-
unum sínum og illum tilhneig-
ingum.
Ýmsir munu álíta, að sú mynd,
er hér hefir verið dregin af menn-
ingu framtíðarinnar, lýsi svo
margbrotnum vísindum, að því-
lík framför sé ekki á færi mann-
kynsins, en eftir að nokkrar kyn-
slóðir hafa gengið um garð, verð-
ur mannshugurinn orðinn svo
hlaðinn viti og orku, að nútíma-
mentun vor þolir þar engan sam-
anburð. Enda hafa þá allar þær
kensluaðferðir, er við nú notum,
verið fyrir löngu lagðar niður og
nýjar komnar í þeirra stað. —
Barninu verður sagt, hvað sé á-
ríðandi að læra og hvers vegna
það sé látið læra, og áhugi þess
verður vakinn á þann hátt, sem
ekki er enn þektur. Þegar þar er
komið, verður barnið látið sjálf-
rátt. Spurningar verða lagðar
fyrir það, sem svarar þeim þanrþ-
ig, að kennarinn auðgast að þekk-
ingu! Og hann mun hlusta af
athygli, svo að hann missi ekk-
ert af þeim upplýsingum, er í
svörum þess kunna að felast, því
að fyrir gæti það komið, að við-
tæki barnshugans reyndist næm-
ara en kennarans. Orðin: “Og
litla barnið skal leiða þá,” og
einnig: “Unz þér verðið eins og
lítil börn , hafa þá rætzt á vís-
indalegan hátt.
Hér hefir verið drepið á nokkr-
ar helztu breytingar uppeldis-
og mentamála, er koma munu í
framtíðinni. Nokkrar þeirra
verða komnar til framkvæmda
áður en öldin er liðin.
ith respect,
and admiration for the de-
parted pioneers, the original
publishers of Logberg, and
best wishes to the paper on
its 60th anniversary
Long May
Logberg Live
With our appreciation and kindest
regards to all our customers.
Johnson's Food Store
Groceries and Locker Service
Edinburg - North Dakota
Gardar Johnson, Proprietor
n
n
n
n
u
n
Rjúmabuis I Ashern
Sem bændur sjálfir eiga og ráða yfir . . .
flytur Lögbergi hugheiluátu
hamingjuóskir i tilefni af sex-
tíu ára afmæli þess, og biður
hlaðinu blessunar i framtiðinni-
Rjómabúið gripur einnig þetta
tækifæri til þess að þakka
islenzkum viðskiptavinum
drengilegan átuðning á liðnum
arum.
n
n
n
|j Ashern Farmers Creamery itd.
n
n
n
Grímur Jóhannesson, framkvæmdarstjóri
ASHERN
MANITOBA
L'W
n
n
n
n
n
n
n
n
n
II
n
n
n
n
n
n
n
n
n