Lögberg - 13.11.1947, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
37
Höfuðbreytingin, sem verða
inun á kensluaðferðum, verður
nið nýja viðhorf. Venjan hefir
verið, að eldri kynslóðin hefir
látið börnin kynnast fjölda sögu
legra atvika, unz þau hafa á end-
anum mótast í minni þeirra, að
meira eða minna leyti. Fullorðið
fólk hefir vanið börnin á sama
hátt og það hefir vanið dýrin.
Alt hefri miðað að því að gera
þau sem hæfasta borgara mann-
félagsins. Sú hugmynd, að kenn-
arinn kynni að geta lært eitt-
hvað af lærisveinunum, hvort
heldur dýrum eða börnum, hefir
aldrei verið tekið með í reikn-
inginn. Orsökin hefir orðið klofn-
ingsstefna sú, er áður hefir verið
nefnd og þróun þeirrar stefnu, að
stjórnin eða ríkið væri einvalt
frá æðsta og efsta valdsmanni
niður til hins auðmjúkasta og
einfaldasta barnakennara. Það
hefir verið vegna skorts á ein-
ingu, en nægta andleysis. En
um leið og fjórðu stærðar við-
horf skapast, kemur hin róttæka
skoðanabreyting fram.
Menn fara að skilja, að þótt
líkami og heili barnsins sé nýr
og ungur, geta sálin og yfirvit-
undin verið þroskaðar. Menn
fara að skynja, að uppeldið er
hjálparmeðal, sem á að þroska
veruleika, sem geta verið á öll-
um aldri og af margvíslegum
kostum. Barnið verður ekki að-
eins skoðað sem jafningi, heldur
einnig sem uppspretta margs-
konar þekkingar, sem í einstöku
tilfellum er meiri en þeirra, sem
eldri eru, og tapað hafa þeim
stillinæmleika, sem börnum er
gefinn. Á þennan hátt þróast nýr
og gagnkvæmur skilningur á
milli barnsins og hins fullaldra
manns. Menn gerðu vel að minn-
ast þess, að barnið, sem er að
hefja nám í dag, getur að fimtíu
árum liðnum verið orðinn fræg-
ur snillingur fyrir gáfur og hug-
kvæmni o(g viðurkendú(r leið-
togi. Vísirinn að hinum ágætu
eiginleikum liggur falinn undir
þröskuldi þriðju stærðar og kem
ur í ljós, ef hans er leitað á rétt-
an hátt. Hinn ópersónulegi kær-
leiki, sem flytur okkur skilning
og geislanir, leggur mönnum í
hendur þann þráðarenda, sem
rakinn verður til þeirrar giftu-
samlegu þróunar, sem dagurinn
í dag veit ekki nein deili á,
vegna þess að menn skortir enn
meðtækileika hins ópersónulega
kærleika. Lítum einnig til dýr-
anna. Sá tími kemur, að menn
skilja, að dýrin hafa miklar gáf-
ur, þótt þau hafi ekki manns-
rödd né mæli á hans máli. Þetta
dregur ekkert úr þeim gáfum og
þeirri þekkingu, sem þau hafa
á öðrum sviðum, en er okkur
ókunn. Jafnhliða því að menn
læra af barninu, munu þeir læra
af dýrunum, fuglunum og skor-
kvikindunum, og alt stefnir að
því marki að nálgast hina instu
leyndardóma lífsins. í framtíð-
inni verður það hinn fullorðni,
sem altaf verður að 'læra. Æsk-
an og unglingsárin verða eink-
um notuð til að þroska hinn sið-
ferðilega þrótt. í stað þess að
segja: “Þú verður að vera dug-
legur að lesa og læra í skólan-
um, svo að þú seinna meir verðir
frí og frjáls,” þá verður barninu
kent, að fyrsta sporið sé full-
komin heilsa og líkamsrækt, á-
samt hinum andlega þroska, svo
að þegar námið er fullnað, þá
geti það notið þeirrar þekking-
ar, það hefir hlotið. Tíminn til
að njóta þekkingarinnar verður
miklu lengri en nú. Tíminn til
að sjá fyrri lífsþörfum sínum
hefir stytzt um helming, vegna
vísindalegrar tækni, og frí-
stundir almennings verða fleiri
en svo, að hann kunni að nota
þær að fullu fyrst í stað.
Menn munu ekki eldast á sama
hátt og nú, og þeir trúa því, að
þekking þeirra og þroski verði
ekki háð elli eða dauða. Áhugi
þeirra og móttækileiki verður
óslitinn og ómyrkaður til ævi-
loka og þeir hafa jafnan nægan
tíma til að afla sér þekkingar.
Af því, er nú hefir verið sagt,
verður það ljóst, að framtíðar-
áhrif geislanna breyta öllum
námsaðferðum, er áður hefir ver-
ið beitt við börn og unglinga.
Gagnkvæmur skilningur eldri og
yngri verður ráðandi, og nám og
heilsurækt verða skyldar grein-
ar.
Það, sem nú er kölluð trú,
verður tilbeiðsla á skaparanum
og mætti hans, sem birtist í öll-
um hlutum og allri þekkingu,
einnig í skólanámi, því að síð-
ustu verður hin nýja menta-
stefna í fullu samræmi við hina
kristnu kenningu. Reynt verður
að lokum að lifa samkvæmt hin-
um tíu boðorðum, og dregur þá
saman með kirkju- og kenslu-
málum, svo að þau starfa í ná-
inni samvinnu, og vísindalegar
uppgöltvaniir verða þá skírðar
úr prédikunarstólunum. Þegar
það, sem hér hefir verið sagt frá,
nær hámarki sínu, og, kirkja og
skóli verða samtaka um að slá
stryki yfir kreddur, þröngsýni,
flokkadrætti, eigingirni og alla
Arnaðaróskir
í tilefni af 60 ára afmæli
Lögbergs flytur Heimskringla
því og þeim sem að því standa
árnaðaróskir sínar, með þökk
fyrir það sem vel hefir verið
unnið og ósk jum gengi og
gæfu í framtíðinni.
Virðingarfylst
THE VIKING PRESS
LIMITED
WINNIPEG MANITOBA
Ungir brezkir vísinda-
menn í hrakningum
á vatnajökli
Sex manna leiðangur frá Ox-
ford hreppti illveður uppi á
jöklinum
Sex ungir Bretar, allir vís-
indamenn frá Oxfordháskóla,
hafa í sumar verið hér á landi
og unnið að jarðfræðirannsókn-
um. Gengu þeir meðal annars á
Vatnajökul, þar sem þeir lentu
í allmiklum hrakningum vegna
illviðra, er þeir hrepptu. Þessir
ungu menn, sem einnig voru við
Heklu, eru nú á heimleið, og
hefir brezki sendiherrann boð
inni fyrir þá í dag.
Foringi leiðangursmanna er
grasafræðingurinn Fred F.
Whitehead frá New College í
Oxford. Hinir leiðangursmenn-
irnir, sem flestir eru 22—24 ára
gamlir, eru þessir: Alan Treloar,
Charles Swithinbank, Pete
Phizackerley, Philip Heckett og
Hilary Morris.
Leiðangursmenn höfðu bæki-
stöð í byggð, en fóru svo upp á
klofningshyggju, en verða sam-
taka um alt, sem stuðlar að snilli
og hamingju, þá er mikils fagn-
aðar að vænta og nýr grund-
völlur fenginn til að byggja
framtíðarhamingju kynslóðanna
á. Friðgeir H. Berg þýddi
—Stígandi.
Vatnajökul, þar sem þeir hrepptu
svo vond veður — þetta var fyr
ir miðjan ágúst — að þeir urðu
að vera dögum saman í tjöldum
sínum, og komust aðeins um 10
km. á 12 dögum. Einn Bretinn,
Alan Treloar, kenndi lasleika
vegna vosbúðar uppi á jöklin-
um, og var ákveðið að senda
hann aftur til byggða. Gengu
þeir 75 km. á 25 stundum og
segjast leiðangursmenn, en þeir
voru þrír í heimferðinni, ekki
hafa lent í erfiðari fjallgöngu
Gengu þeir í súld og regni svo
að skyggni var innan við 100
metra. Héldu þeir áfram, þegar
dimma tók og komust að ísrönd-
inni, en lentu þá í ýmiskonar
torfærum, söndum, ám og hraun
um. —
Er þeir höfðu gengið um 60
km., hallaði undan fæti og komu
þeir þá að vegi, sem þeir gengu
eftir, þar til þeir rákUst á
jeppa. Voru Islendingar í hon-
um og rýmdu þeir fyrir hinum
ungu Bretum og óku þeim til
Kálfafells. Þar var náð í lækni
fyrir Treloar, og lá hann þar
um hríð og hvíldist eftir vos-
búðina. Alþbl. 7. sept.
Leiðréllingar
Smáprentvillur hafa slæðst
inn í greinina um rit Jónasar
Hallgrímssonar. — Þær, sem
nokkru varða, eru á blaðsíðu
11, miðdálki, 28 línur, talið of-
an frá: Þá sé ég nú betur, les
þá sé ég nú beiur, o. s. frv. —
Áframhald af 36. línu hefir fall-
ið burt: eru óbeinlínis að meira
eða — lesist: eru óbeinlínis að
meira eða minna leyii ætijarð-
arsöngvar. í sama dálki, 7 línur
að neðan, stendur: Sem augu og
eyru ber, lesist: sem fyrir augU
og eyru ber. Á bls. 12, 16. lína
að neðan stendur: sem sem, les:
svo sem; fáum línum ofar stend-
ur í ljóðlínu sólarijald les salar-
ijald.
Heili mannsins minkar stöð-
ugt eftir að hann hefir náð 20
ára aldri.
You like it... it likcs you
• Fresh up with 7-Up .. . the merry,
sparkling drink that puts a smile on
your face .. . a lilt in your laugh. Sip
it slowly r . . taste each sip . . . the
happy, wholesome family fresh-up.
BRITISH COLUMBIA
ÓSKAR TlL HAMINGJU
Islenzka vikublaðinu LÖGBERGI
í tilefni af demantsafmœli þess
Á sextíu árum verður fréttablað annað og meira en algengur fregnmiðill, er lesendurnir hlaupi
yfir í flýti, það verður stofnun, óaðskiljanlegur hluti af þeirra daglega lífi, það skrásetur dyggilega
hamingju og sorgir, sigra og ósigra hlutaðeigenda, og eilífð þeirra atburða, er skapa sögu.
ísland var bygt fyrir meir en þúsund árum. það hefir viðhaldið sínu forna alþingi, og brent í
blóð og hug þjóðarinnar, sjálfstæðis vitund og trausta skapgerð. Komu þeirra og störfum hafa
ungu þjóðirnar, sem íslendingar hafa valið sér að kjörlöndum fagnað, vegna órjúfandi hollustu
þeirra við það alt er að sönnum framförum lýtur.
British Columbia telur meðal borgara sinna fjölmennan hóp íslendinga, og enginn þjóðflokkur
hefir lagt fylkinu til veglegri menningarskerf.
Vorar hugheilustu árnaðaróskir fylgja Lögbergi í framtíðinni um margra ára framhalds
þjónustu fyrir Island og íslenzka mannfélagið vestan hafs.
THE GOVERNMENT OF THE PROVINCE OF
BRITISH COLUMBIA
-----------------■