Lögberg - 13.11.1947, Qupperneq 6
38
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
AHUGAMAL
IWENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
“Kona mannsins móðir”
Á þessu sextugasta afmæli
Logbergs og þriðja afmæli
Kvennadálks blaðsins, vil ég nota
tækifærið til þess að senda hug-
heilar kveðjur til lesenda og
votta þeim þakkir fyrir hin
mörgu vinsamlegu ummæli um
kvennadálkinn, sem honum hef-
ir borist síðan hann hóf göngu
sína. Þeim, er fundu upp á þeirri
nýjung að stofna til kvennadeild
ar í blaðinu er mikil ánægja í
því, að þessi tilraun skyldi mæl-
ast eins vel fyrir og raun er á.
Eg er þeim konum sérstaklega
þakklát, er hafa lagt til lesmáls
deildarinnar. Hinar ágætu grein
ar þeirra Kristínar í Watertown,
Andreu Johnson, Marju Björns
son, Rannveigar K. G. Sigbjörns
son og Rannveigar Schmidt
hafa verið fræðandi og skemmti-
legar og gert þessa'deild blaðsins
tilbreytingameiri, heldur en hún
annars hefði orðið. Fleiri grein-
ar frá þeim, myndu vera vel
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888-1948
B.JOHANNESSON
JEWELLERS
SELKIRK
MANITOBA
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 • 1948
fee/Upmati Saleá. & £esio4ce
GIMLI
MANITOBA
þegnar, og skemmtilegt væri að
fá greinar frá fleiri konum —
og körlum líka. Þeir hafa marg-
ir sagt mér að þeir lesi ávalt
kvennadálkinn og hafi ánægju
af því.
Eg hefði óskað að geta samið
yfirlit yfir það, sem konur hafa
ritað í blaðið á þessum 60 árum,
en það yrði löng og vandasöm
greinargerð og verður því að
bíða sjötugasta afmælisins. Kon-
ur hafa, af og til, frá byrjun látið
Hamingjuóskir til
' LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888,- 1948
B & B MEAT MARKET
C. BJORNSSON
LUNDAR MANITOBA
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1 888 - 1 948
<~>Lan)ji)e
LOVISA BERGMAN
PHONE 21 102 630 NOTRE DAME AVE.
nokkuð til sín heyra, enda geta
engin þau mál, sem rædd hafa
verið í blaðinu, verið konum ó-
viðkomandi; öll þau mál, er
mannkynið snerta, eru áhugamál
kvenna.
Á fyrstu árum blaðsins var
þó óvanalegt að konur voguðu
sér fram á ritvöllinn. Þá ríkti
sá hugsunarháttur að konur
hefðu annað þarfara að gera en
að lesa bækur, og því síður
væri það köllun þeirra að taka
♦ ♦ ♦ . ♦ ♦ ♦
Húsmóðirin
Við daglega umhyggju alls,
fyrir óskir og löngun og þörf
að beita sér eins og bezt er unnt
og búa’ undir framtíðarstörf,
breiða ástúðar yl og ljós
yfir allt sitt starfaskeið;
slík er húsmóður önn. Hún er allra þjónn
og alvöld drottning um leið.
Þegar mey gefur manni hönd
•bg máttur og ást eru tengd;
þegar elskandi hjörtu binda sín bönd
í bráð og um ævilengd,
þá er heimilisríkið reist.
Hún er rós, hún er ljósgjafinn hans
og vígir og nærir hinn eilífa eld
á altari hjónabands.
En verkahringurinn vex
og viðkvæmnin djúp og heit.
Á móðurskauti hið brosandi barn
um blíðuna eina veit.
Við móðurbrjóstin það býr
og baðast af hjartans yl.
Meðan brosið og tárið er barnsins mál
því bregst ei, hún kann á því skil.
Hún hreyfir heimilið allt.
Sem hverfist stjörnur um sól,
hver vindur um hana sinn verkahring,
hún veitir þar yl og skjól.
Og barn og þerna og þjónn,
hvert þurfandi bæjarins líf,
hjá henni þarfanna fullnægju fær
og forsjá, vernd og hlíf.
Og gest og gangandi ber
að garði, og fram er reitt
það allt, sem göfgann og gjafmildan hug
fær glatt, að þreyttum sé veitt.
En hún, sem stjórnandi stóð
við störfin hinn langa dag,
hún vakir, þá heimilið hvílist í kyrrð
unz komið er öllu í dag.
Er sótt herjar grannans garð,
sem geigvænum örlögum verst,
þá réttir hún þangað hjálpandi hönd,
sem húsmóðir önnur berst
við sjúkdóm, sorgir og skort.
Ef sigur ei vinnst við það, v
gengur móðirin áður svo önnum þrengd,
þar öðrum í móður stað.
Er sigur á sólheitan dag,
slær silfurblæ lokkana á,
og ró býr og festa í fasi og svip,
en friðarmildi um brá.
Og æskunnar óróa blóð
og æskan með fljótræðis brek
til hennar sækir sitt hald og traust
og huggun, ráð og þrek.
Við daglega umhyggju alls
fyrir óskir, löngun og þörf
hún beitir sér eins og bezt er unnt
og býr undir framtíðar störf.
Hún vinnur sín verk í kyrrð,
hún vinnur þau löngum duld.
Við hana eru allir að endi dags
— allir í þakkarskuld!
Sigurður Jónsson.
♦ r
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Sargent Florists
739 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
sér penna í hönd og láta í ljós
sjálfstæðar hugsanir.
í fallegri smágrein, er Dr. Sig-
urður Nordal skrifar um fóstru
sína látna, minnist hann aldar-
háttarins á uppeldisárum henn-
ar á þennan hátt: “Hún — fóstra
hennar — unni vafalaust fóstur-
dóttur sinni mjög og vildi henni
gott eitt, en hún var ströng
kona, vinnuhörð og fastheldin
við þær skoðanir um verksvið
kvennfólksins, sem hún var alin
upp við. Á efri árum sínum sá
hún eina af vinnukonum fóstur-
dóttur sinnar sitja og lesa í
Passíusálmunum. Hún greip bók
ina af henni og varð þetta að
orði: “Láttu engan mann sjá
þennan ósóma til þín”. Það var
ekki af því að hún hefði ímug-
ust á sálmunum. Hún var guð-
hrædd kona. En henni þótti ós-
vinna að sjá kvennfólk lesa bók.
Sennilega hefir minna borið á
þessum hugsunarhætti á Islandi,
um það leyti að vesturferðirnir
hófust, enda hefir þetta atvik
þótt í frásögu færandi, vegna
þess að það þótti óvanalegt, jafn-
vel fyrir það tímabil. Eg man
eftir mörgum landnámskonum,
sem voru mjög bókhneigðar. Þó
þær hefðu lítinn tíma til að
liggja í bókum að staðaldri, þá
tóku þær sér oft bók í hönd og
lásu þá sér til gagns; flestar virt-
ust stálminnugar á það, sem
þær höfðu lesið.
Ekki eru margir áratugir síð-
an að ég, í fyrsta sinn, hlýddi á
konur flytja ræður opinberlega;
voru það tvær konur er kapp-
ræddu. Kappræðuefnið var vita-
skuld, jafnrétti kvenna. — Þetta
tiltæki þeirra þótti næsta furðu-
legt og jafnvel hneykslanlegt í
augum hinna afturhaldssömustu
í byggðinni. Meðan þessi alda-
Frh. á næstu bls.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1 888 - 1 948
Sargent BicycleWorks
675 SARGENT AVE. WINNIPEG. MAN.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
Riverton Co-op. Creamery Ass’n. Limited
RIVERTON MANITOBA
JULIUS MAASS, Manager
Congratulations to
LOGBERG
on its sixtieth anniversary
1888
1948
From
The MetropolitanTheatre
285 Donald St. Winnipeg, Man.
A Famous Players Theatre
-----.-----------------------—
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Maryland & Sargent Service Station
Cor. MARYLAND and SARGENT PHONE 37 553