Lögberg - 13.11.1947, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
39
gamli hugsunarháttur ríkti var
ekki að búast við því að margar
konur iðkuðu ritmennsku.
Smám saman fór að birta til;
smágreinar, sögur og kvæði eftir
konur birtust einstöku sinnum í
blöðunum, og svo verður vestur-
íslenzk kona svo djörf að gerast
ritstjóri að kvennréttindablaði.
Árið 1930 hafa þrjár V.-ísl. kon-
ur getið sér þann orðstýr fyrir
ritstörf sín, að þær fá sæti í bók-
inni Vestan um haj. Á yfirstand
andi tíma gefa hin tvö kvennfé-
laga samtök íslenzkra kvenna út
ársrit og konur leggja mikið til
lesmáls Icelandic Canadian.
Þótt konur hafi ekki og muni
sennilega aldrei gefa sig eins
mikið að ritstörfum eins og karl-
menn, þá er ekki þar með sagt
að þær séu eftirbátar þeirra í
því að hugsa fagrar hugsanir og
klæða þær í viðeigandi búning.
Móðirin, sem hefir alið upp barn
sitt þannig, að það verður að
hraustum, göfugum og menntuð
um manni, hefir gert meira en
en að yrkja fögur ljóð. Húsmóð-
irin sem hefir skapað fagurt og
friðsælt heimili, oft af litlum
efnum, hefir afkastað meiru en
að skrifa skáldsögu. Móðurleg
umhyggja hinnar góðu húsmóð-
ur fyrir þeim, sem minnimáttar
eru og bágt eiga, er fegurri og
lærdómsríkari en nokkur blaða-
grein. Allir þeir, er lifa göfugu
lífi, eru með athöfnum sínum
að yrkja fögur ljóð.
Störf húsmóðurinnar eru unn-
in í kyrrþey og láta lítið yfir
sér; það lætur heldur ekki mikið
yfir sér hið undursamlega,
fagra og spaklega ljóð eftir
Sigurð Jónsson, sem helgað er
þessu viðkvæma nafni — hús-
móðirin.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
R. E. HELGASON M.D.
GLENBORO
MANITOBA
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1 888 - 1 948
SIHLI CAf E
GIMLI
MANITOBA
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1 888 - 1 948
(®. Sc |r. Caslj jitcrre
General Merchants
LUNDAR
MANITOBA
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
North American Lumber & Supply
Company, Límited
F. L. BISHOP, Manager Lumber Dept.
L. G. CURTIS, Manager Hardware Dept.
SELKIRK MANITOBA
GOLFBORGIN
Golf-samband Bandaríkjanna
tilkynti nýlega að það hefði gert
ýmsar breytingar á leikreglum í
golfi. En þá kom heldur en ekki
hljóð úr horni. Allir íbúarnir í
þorpi nokkuru, sem heitir St.
Andrews, og er á austur strönd
Skotlands, risu upp sem einn
maður og mótmæltu þessu
kröftuglega.
Ástæðan er sú að golfleikurinn
var fundinn upp í St. Andrews
fyrir 500 érum og þar voru fyrstu
leikreglurnar settar. Allar breyt-
ingar, sem á þeim hafa verið
gerðar síðan, hafa verið gerðar í
St. Andrews og öll golffélög um
víðan heim tóku þær breytingar
upp. Það þótti svo sem sjálfsagt
að þeir í St. Andrews hefði einka-
rétt á því að fyrirskipa leikregl-
urnar. Þangað til nú að golf-
menn í Bandaríkjunum þykjast
geta sagt fyrir um það hvernig
leikreglurnar eigi að vera! Er
ekki von að þeim í St. Andrews
sárni?
Ameríkumenn eru að reyna að
breyta leikreglunum þannig að
leikurinn hafi æsandi áhrif á á-
horfendur, segja þeir. En þetta
er á móti eðli golflistarinnar.
Leikurinn er fyrir þá, sem iðka
hann, en ekki fyrir áhorfendur.
Alt er komið undir drengilegum
leik.
Þegar þeir í St. Andrews tala
um golf, þá gera þeir það af
hrifningu og metnaði. Því að það
er eigi aðeins að þorpið sé vagga
golflistarinnar, heldur lifir það
svo að seja á henni. Þar eru nú
um 8000 íbúar, en allan þann
tíma, sem hægt er að leika golf,
eru þar hálfu fleiri menn, því að
þangað sækja áhugamenn um
golf úr öllum álfum heims. Hver
einasti þorpsbúi, karlar, konur og
börn, leika golf. — Börnunum er
kent það um leið og þau læra að
ganga. í öllum búðargluggum
ber mest á golfútbúnaði. Gisti-
húsin eru sniðin til þess að taka
á móti golfleikurum og í göngum
þeirra og anddyrum verður varla
þverfótað fyrir kylfum og knött-
um.
Margir stórir golfvellir eru
þarna og fram að þessu hafa allir
þorpsbúar fengið að æfa sig þar
ókeypis. Og þeir þykjast ekki
halda heilsu nema þeir æfi sig á
hverjum degi, það er að segja
virkum degi, því að á sunnudög-
um er bannað að leika. En þá
ganga menn fram og aftur um
golfvellina með golfpoka sína á
bakinu. Þeim finst þeir ekki vera
fullklæddir nema kylfupokinn sé
með. Þeim er jafn eðlilegt að
bera hann eins og skólasveinum
að bera kensulbækur.
Kaupmennirnir í St. Andrews
hafa einkennilega verzlunarsiði.
í hvert skifti sem kappleikur er
haldinn — og það er oft — þá
loka þeir búðum sínum og draga
fyrir gluggana. Engum dettur í
hug að verzla meðan á kappleik
stendur. Þá eru allir að horfa á
leikinn — kaupmennirnir og
búðarþjónarnir, eins og aðrir.
Hinn núverandi golfmeistari í
St. Andrews heitir Wilbie Auch-
terlonie. Hann er nú 74 ára að
aldri. “Menn verða aldrei of
gamlir til þess að leika golf”, er
viðkvæðið þar.
Meðan á stríðinu stóð lögðust
þó golfleikarnir í St. Andrews
alveg niður. Menn voru hrædd-
ir um að þýzkar svifflugur
mundu nota vellina sem lend-
ingarstöðvar, og þess vegna vorr
reknir niður í þá staurar hingað
þar sem kappleikar voru áður
þreyttir. En nú hafa vellirnir
verið opnaðir að nýju. Þorpið
er fult af aðkomumönnum og
gistihúsin eru full af fólki að
nýju. Og þorpsbúar eru kátir
út af því að fá svo marga gesti,
því að í raun og veru lifa þeir á
aðkomumönnunum.—Lesbók.
vildi ekki koma innfyrir meðan
eg biði.”
Nú hefir frúin í mörgu að snú-
ast, miklar bréfaskriftir og þarf
oft að vera viðstödd við hátíðleg
tækifæri og halda veislur. En
um helgar fara þau hjónni altaf
til “Chequers”, sveitabústaðar
forsætisráðherrans. Frú Attlee
hefir mjög gaman af að koma á
þingið þegar fyrirspurnartími er
þar.
Attlee er 63 ára gamall og
hefir setið á þingi síðan 1922 fyr-
ir Limehouse-kjördæmi. í stjórn
MacDonalds var hann vara-her-
málaráðherra 1934, en síðan 1935
hefir hann verið formaður þing-
flokks verkamannaflokksins. —
Hann er lögfræðingur frá Ox-
ford-háskóla og gegndi um hríð
málaflutningsstörfum áður en
hann fór að gegna opinberum
embættum.—Fálkinn.
Olympsleikj af áninn
sem gert var ráð fyrir að hefði
glatast er Berlín gafst upp, hefir
nú fundist, óskemdur, og vérið
sendur Olympsnefndinni í Sviss,
sem sendir hann áfram til enska
íþróttasambandsnis, er sér um
leikinn á næsta ári. Fáninn hef-
ir verið geymdur í Berlín síðan á
síðustu Olympsleikjum, 1936. En
enginn vissi hvar hann var, uns
hann fanst í geymsluhólfi eins
bankans í borginni.
♦
Bandarískar flugvélar af móð-
urskipum skutu niður 6,184 flug-
vélar í síðustu heimsstyrjöld. —
Bandaríkin mistu af þeim flug-
vélum 452.
♦
Dánartalan í Ástralíu var á
s. 1. ári 28.62 af hverjum 1000
íbúum. Er það lægsta dánartala
landsins til þessa.
ATTLEE- ER HEIMAKÆR
Þegar æðsti ráðunautur Breta-
konungs Clement Richard Att-
lee kemur heim til sín eftir dags-
ins erfiði og sest inn í stofu á
efstu hæð í Downing Street 10,
fer hann að ráða krossgátur eða
hann les upphátt fyrir fjölskyld-
una. Því að hann er fyrirmynd-
ar heimilisfaðir.
Það var skömmu fyrir silfur-
brúðkaup hans sem blaðamaður
frá United Press hemisótti hann.
Úr glugganum sá yfir “Horse
Guards Parade” og í stofunni er
mikið af blómum og myndir á
veggjunum. Þar er Truman for-
seti í silfurramma, stór mynd af
George VI. og á útvarpstækinu
er mynd af Attlee sjálfum. Ibúð-
in er ekki stór og verður að
ganga upp þrjá stiga til að kom-
ast þangað og síðan um langan
gang. Hún er alveg aðskilin frá
móttökusölvmum á neðri hæð-
unum.
Attlee tekur aldrei vinnu heim
með sér. Þegar hann er .heima
hvílir hann sig og reynir að
hugsa ekki neitt um “landsins
gagn og nauðsynjar”. Og besta
hvíldin er að lesa hátt í bók eða
ráða krossátur.
Þau hjónin eiga fjögur börn.
Janet er elst, 24 ára, pg er að-
stoðarstúlka við geðveikrahæli í
London. Þá er Felicity, 21 árs.
Hún er barnfóstra. Martin er til
sjós og ætlar að verða skipstjóri
og Alison er 16 ára og gengur á
skóla í Salisbury.
Áður en Attlee varð forsætis-
ráðherra átti hann heima í litlu
húsi í Stanmore, í útjaðri Lun-
dúnaborgar. Hugsaði frú Attlee
þá ein um heimilið og sömuleið-
is eftir að maður hennar var
orðinn forsætisráðherxa í for-
föllum Churchills.
En 26. júlí 1945 skifti um, er
hún frétti að hún væri orðin for-
sætisráðherrafrú eftir hinn mikla
kosningasigur Verkamanna-
flokksins.
“Þá um kvöldið ók eg mann-
inum mínum itil Buckingham
Palace og honum var falið að
mynda nýja stjórn. Eg sat kyrr
í bílnum þangað til einhver kom
út til mín og spurði hvort eg
væri ekki frú Attlee og hvort eg
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
MODERN ELECTRIC
W. INDRIDSON, Manager
PHONE 356 SELKIRK, MAN.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
W. A. Kernested
ASHERN BARBER iAanitoba
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1 888 - 1948
Crescent Motor Service
H. JOHANNSON, Proprietor
ARBORG MANITOBA
Hamingjuóskir til
• LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1888 - 1948
Lundar Bakery
A. V. OLSON
LUNDAR
MANITOBA
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Arborg Drug Store
ZATOR BROS.
ARBORG
MANITOBA