Lögberg - 29.01.1948, Blaðsíða 1
61. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 29. JANÚAR, 1948 NÚMER 5
\
VETTVANGUR STJORNMALANNA
í*au tíðindi hafa gerst, að í
fyrri viku lýsti forsætisráðherr-
ann í Canada, Mr. King, yfir því
að hann hefði í hyggju, eða jafn-
vel ráðið það við sig, að draga
sig í hlé af vettvangi stjórnmál-
anna áðúr en langt um liði, og
mælti jafnframt með að Liberal-
ar kveddi til almenns flokksþings
til að velja eftirmann sinn; kunn
gerði Mr. King þessa fyrirætlun
sína í veizlu mikilli í Ottawa
þar sem saman voru komnir
forvígismenn flokksins úr öll-
Um fylkjunum; það þykir nokk-
urnveginn einstætt að áminst
flokksþing verði haldið í ágúst-
mánuði næstkomandi og þá
sennilega í Ottawa.
Af pólitískum eyktamörkum
að ráða, virðist flest benda til
Fallegt tímarit
J óla-hefti tímaritsins Nord-
Norge — Norður-Noregur, —
sem gefið er út í Grand Forks,
N. D., barst Lögbergi nýverið í
hendur vandað mjög að hinum
ytra frágangi og fjölbreytt að
efrú í bundnu máli og óbundnu;
meðal ágætustu ritgerðanna í
aminstu tímariti ber að telja þá
Um norska prestahöfðingjann og
skáldið Petter Dass, en á síðast-
hðnu ári voru liðin 300 ár frá
þess, að núverandi utanríkisráð-
herra, Louis St. Laurent, verði
kjörinn leiðtogi Liberalflokksins
og taki þá jafnframt við forsætis
ráhðerraembættinu.
Mr. King var kjörinn forustu-
maður Liberalflokksins árið 1919
og hefir á næsta sumri haft
stjórnarforustuna með höndum
í tuttugu ár; mun hann nú al-
ment viðurkndur sem einn allra
glöggskygnasti og mikilhæfasti
stjórnmálamaðurinn, sem þjóð
þessi hefir eignast.
I áminstri veizlu flutti Mr.
King eina af sínum snjöllustu
ræðum; lét hann meðal annars
þess getið, að eins skjótt og þing
kæmi saman, yrði sett á fót
þingnefnd úr öllum stjórnmála-
Verkföll í Þýzkalandi
Svo má segja að alt logi í verk
föllum víðsvegar um Þýzkaland
eins og sakir standa, þótt mest
kveði að þeim í hinum auðugu
Ruhr-héruðum, þar sem nálega
þrjátíu þúsundir kolanámu-
manna hafa lagt niður vinnu
vegna ófullnægjandi fæðis, að
því er nýjustu fregnir herma;
verkfall uppskipunarmanna
stendur og yfir í Hamburg og er
sömu ástæðum um kent.
flokkum með það fyrir augum,
að grafast fyrir um rætur hinnar
vaxandi dýrtíðar og finna leið til
til úrbóta í því efni.
Mr. . King var alt annað en
bjartsýnn á viðhorf heimsmál-
anna; hann hvatti almenning til
óskipts stuðnings við sameinuðu
þjóðirnar, deildi þunglega á
kommúnismann og jafnaði hon-
um saman við Nazismann og
aðrar álíka ofbeldisstefnur.
Þann 22. þ. m. héldu Liberal-
Progressive stjórnmálasamtökin
í Manitoba, ársþing sitt hér í
borginni við ágæta aðsókn og
vaxandi áhuga; aðalræðumaður
var Louis St. Laurent utanríkis-
ráðherra; er hann mælskumaður
mikill, rökfastur og manna ein-
arðastur; lagði hann í ræðu sinni
mikla áherzlu á nauðsyn cana-
diskrar þjóðeiningar, kvaðst fús
til að takast á hendur forustu
Liberalflokksins ef fram á slíkt
yrði farið, að því skilyrði við-
bættu, að öll þjóðernisbrot innan
vébanda flokksins yrði á eitt sátt
um valið.
Afnáms á banni krafist
Heilbrigðismálanefnd Winni-
peg-borgar hefir sent fjármála-
ráðherra sambandsstjórnarinnar,
Mr. Abbott, erindisbréf þar sem
þess er krafist, að bann það, eða
í tilfellum hömlur, sem fyrir
skipað hefir verið gegn innflutn
ingi ferskra ávaxta, verði numið
úr gildi hið bráðasta; þeir, sem
umráð hafa yfir sjúkrahúsum
borgarinnar, telja það næsta
varhugavert, ef eigi séu ávalt til
taks ferskir ávextir handa sjúkl-
ingum.
Bevin harðorður
Utanríkisráðherrann brezki,
Mr. Bevin, flutti í lok fyrri viku
í þingi harðorða ræðu um á-
sælni kommúnista í Evrópu og
sagði að það yrði aldrei liðið, að
ein þjóð fengi þar með öllu yf-
irhönd.
KVEÐJA
Inga Johnson, d. 3. jan. 1948.
Á björtum væng kom boð til þín.
— Um borg og sléttu vetrarlín,
um lund og garð hið ljósa traf,
en loftið dimmblátt stjörnuhaf.
Þú kvaddir alt með ást og ró,
því alúð þér í huga bjó,
og háleit von og heiðrík sýn.
— Og helg er vinum minning þín.
Jakobína Johnson.
Seattle, Washington.
lasðingu þessa merka andans
manns, er á sinni tíð innti af
hendi sérstætt og mikilvægt
brautryðjanda-starf í bókment-
Um hinnar norsku þjóðar; var
afmælis hans fagurlega minst
glæsilegum hátíðahöldum,
einkum í Norður-Noregi. Rit-
gerðin er eftir dr. Richard Beck.
í hefti þessu er einnig að finna
^ýyrta grein um Noregs-vininn
^r. Richard Beck, þar sem lýst
er margþættri og áhrifaríkri
starfsemi hans í þágu norskra
menningarmála og norskra þjóð-
ræknissamtaka víðsvegar í
Bsndaríkjunum; er það ritstjórn
°rd-Norge, er að grein þessari
stendur.
^ing kemur saman
Að afstöðnum þingmanna-
undi stjórnarflokkanna, sem
haldinn var í þinghúsinu á
Imtudaginn var, kunngjörði
arson forsætisráðherra að
ylkisþinginu í Manitoba yrði
stefnt til funda á þriðjudaginn
þann io. febrúar næstkomandi.
kki er vitað um þau löggjafar-
uýmæli, sem lögð kunna að verða
yrir þing að öðru leyti en því
s®m víst er talið, að verkamála-
raðherrann Rhodes Smith, leggi
ram tillögur um víðtækar breyt
mgar á verkamannalöggjöfinni;
enn er einnig flest á huldu um
tramkvæmdir varðandi nýja
jördæmaskipun.
Þessi glæsilega, íslenzka stúlka
Miss Dolores Swanson, var ný-
lega kosin drottning fyrir Winni
pegborg á Carnival, sem nýlega
var haldið hér; hún hefir vakið
á sér mikla og víðtæka athygli
vegna frábærra leikni sinnar í
hinni hollu og fögru skauta-
íþrótt. — Miss Swanson er dóttir
þeirra Mr. og Mrs. J. W. Swan-
son, 184 Niagara Street í þessari
borg.
Símskeyti frá íslandi
Hámarksverð smjörs
Reykjavík, 17. jan. 1948.
Eftirfarandi símskeyti barst
þeim stjórnarnefndarmönnum
Eimskipafélags Islands vestan
hafs, Ásmundi P. Jóhannssyni og
Árna G. Eggertsyni áminstan
dag:
Stjórn og framkvæmdastjóri
Eimskipafélags Islands ásamt
forseta Islands, samankomnir á
Reynistað á afmæli félagsins,
senda yður hugheilar kveðjur.
Guðmundur Vilhjálmsson.
Samkvæmt tilkynningu frá
fjármálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Mr. Abbott, hefir
hámarksverð smjörs fyrst um
sinn verið fastsett 71 cent á
pundið; einnig verður hámarks
verð sett á kjöt þótt fullnaðar-
ákvæði þar að lútandi séu enn
eigi við hendi. — Skoðanir sýn
ast vera harla skiptar um nota-
gildi þessara nýj,u ráðstafana, og
þykir mörgum þær koma eftir
dúk og disk.
FJÓRAR ÍSLENZKAR KYNSLÓÐIR
Hér getur að líta fjórar íslenzkar kynslóðir, sem komið
hafa við sögu íslenzka landnámsins vestan hafs; á mynd-
inni sézt formóðirin, frú Guðríður Sigurdson, sonur hennar
Ingimundur, sonur hans John Kenneth, og dóttir hans
Beverley; maður Guðríðar var Jón Sigurdson. — Frú Guð-
ríður er ættuð frá Hamrakoti í Andakílshreppi í Borgar-
fjarðarsýslu, og hefir dvalið í 50 ár í þessu landi; framan af
dvaldi Sigurðson-fjö.lskyldan í Brandon, en stundaði búskap
við mikla rausn í Bowsman-sveit í Manitoba frá 1914—1940.
Á jarðhitasvæðinu í Mos-
fellssveit eru nú 50 sekl.
Valnið hefir aukist síðustu daga
Síðustu daga hefir vatnsmagn-
ið á jarðhitasvæði Reykjavíkur-
bæjar í Mosfellssveit aukist all-
verulega. En sem kunnugt er,
hefir að undanförnu verið unnið
að jarðborunum eftir heitu vatni
á jörðunum Reykjahlíð og
Varmalandi. Það er að Varma-
landi, sem vatnsmagnið hefir
aukist svo, að nú lætur nærri að
Reykjavíkurbær eigi í Mosfells-
dal um 50 sek. lítra.
Borholurnar
Þegar síðast var skýrt frá
þeim árangri, sem náðst hafði
við boranimar, var vatnsmagn-
ið í minni borholunni, að Varma-
landi 23 sekl. Nú síðustu daga
hefir vatnsmagnið aukist all-
verulega. Um síðustu helgi var
vatnið mælt í þessari holu og
kom þá í ljós að það hafði auk-
ist um 7 sekl., eða í samtals 30
sekl. —
Vatnsmagnið í borholunni í
Reykjahlíðarlandi er enn hið
sama, 12 sekl. Vatnið í þessum
tveim holum er um 87 gráðu
heitt.
Góður árangur
Það mun láta nærri sanni, að
það vatn, sem bærinn hefir nú
umráð yfir á jarðhitasvæðinu í
Landskjálftar
Hér og þar á Filippseyjum hafa
landskjálftar gert alvarlega vart
við sig og valdið miklu tjóni;
mælt er, að nálægt hundrað
manns hafi látið lífið af þessum
ástæðum.
Mosfellssdal sé um 50 sekl. Þyk-
ir sá árangur,- sem þegar hefir
náðst mjög góður. Hitaveitan
hefir fullan hug á að beisla
vatnið þarna og munu frara-
kvæmdir væntanlega hefjast
næsta vor, eins og þegar hefir
1 verið skýrt frá hér í blaðinu.
Mbl. 23. des.
Ein fastan enn
Hinn víðfrægi, andlegi höfð-
ingi Indverja, Mohandas K.
Gandhi, tók sér það fyrir hend-
ur að fasta á ný með það fyrir
augum, að reyna að koma á friði
milli Hindúa og Móhameðstrúar
manna; reyndu læknar alt, sem
í þeirra valdi stóð, til að koma
í veg fyrir þetta tiltæki, en alt
kom fyrir ekki, því Gandhi sat
fastur við sinn keip; hann er nú
hniginn all-mjög að aldri, og létu
læknar hans þá skoðun í ljós, að
þetta gæti auðveldlega orðið
síðasta fastan, nema því aðeins,
að hann lyki henni innan fárra
daga; en hvað sem því líður, er
hitt víst, að friðarhorfurnar inn-
byrðis eru engu vænlegri en áð-
ur, nema síður sé, því síðustu
fréttir herma, að á sunnudaginn
þann 11. þ. m., hafi 1.300 manns
látið líf sitt í Bannufylki í
hjaðningavígum milli áminstra
flokka. Auk þess voru 700 fluttir
í sjúkrahús, en 600 ókomnir
fram. — Mohands K. Gandhi, er
nú kominn fast að áttræðu.
Á sunnudaginn lauk Gandhi
föstunni, með því að leiðtogar
Hindúa og Móhameðstrúar-
manna höfðu heitið honum því,
að koma á friði í landinu.
ísfiskur seldur fyrir
1.6 miljón
I síðastliðinni viku seldu sjö
togarar ísfisk á markað í Bret-
landi. Þessir togarar lönduðu
samtals um 23 þús. kits fiskjar
og og samanlagt söluverð nam
því sem næst kr. 1.622.164. Afla
og söluhæstur togaranna er Ak-
urey frá Reykjavík.
Togararnir eru þessi: Vörður
sem var með 4043 kits er seldust
fyrir 7406 sterlingspund, Júpíter
var með 2617 kits og seldi fyrir
8476 pund, Haukanes með 1781
kits er seldust fyrir 5566 pund,
Ingólfur Arnarson landaði 4299
kits og seldi fyrir 11585, Kald-
bakur seldi 4176 kits fyrir 11.015,
Helgafell frá Vestmannaeyjum
seldi 1725 kits, fyrir 4941 pund
og Akurey sem var með um
4400 kits seldi fyrir 13931
sterlingspund.
Mbl., 24. des.
Álitlegur skildingur
Frá því hefir nú verið skýrt,
að verksmiðjur Canadian Nati-
onal Railways í Transcona, fái
í ár $4.5000.000 til starfrækslu
sinnar; er þetta talið fullnægj-
andi til þess, að verksmiðjurnar
starfi af fullum krafti þetta ár
án þess að fækka þurfi starfsliði.
Sigurður Júl. Jóhannesson Iæknir áttræður
Eg heyri að þú sért áttatíu ára
og ekki mun ég fara að rengja það
því tíminn hann er pipur við að pára
og punktum, kommum, strykum raða á blað,
Sem áður var þó eins og drifhvít mjöllin;
en átta tugir það er nokkurt skeið
— þeir reyna að brjótast áfram yfir fjöllin
en ógnarfjöldi hrekst af réttri leið.
Þér fræðadísin lækniskunstir kendi
og kvæðagyðjan lét þig hampa sér,
þú hefir leyst þitt lífsstarf vel af hendi,
að launum hlotið bezta “character“,
en stríðið risti rúnir þér á enni
og regin hafa mildi í svip þinn fest
og sagan lifir, lýsir íturmenni,
sem líknaði þeim sjúku og hreldu bezt.
Eg sendi þér nú óskir yfir sundið
um ótal jarðnesk gæði og meira til,
þú hefir sjálfsagt yl og angan fundið
í Austanblæ, sem kann á flestu skil
Eg veit að margir hugsa til þín heima
og hólminn vonar að þú munir sig.
Um Borgarfjörðinn bjartar dísir sveima
og Baulu langar til að finna þig.
Ing. Gíslason.
ío Dr. Sigurður Júlíus Johanntsson
Eighty years of age today,
rts always been his plan N
to freely give his service
and be a friend to man.
Though noted as a poet
a doctor first is he:
A noble Science, practiced
with true nobility.
Hands now gnarled and aged
still willingly extend
to help the sick and needy,
Counting every man a friend.
The lure of gold and silver
the doctor always spurned. —
He has the wealth of Midas
in gratitude he’s earned.
Arthur Reykdal.