Lögberg - 05.02.1948, Síða 1
Cleaning
Insiiiution
PHONE 21 374
vlc&
Cleaning
Insiiiuiion
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 5. FEBRÚAR, 1948
NÚMER 6
Einn hinn mesti leiðtogi og
aðalsmaður í ríki andans myrtur
Síðastliðinn föstudag gerðist
það harmsefni í borginni New
Delhi á Indlandi, að Mohandas
K. Gandhi, “hinn mikli andi”
í sjálfstæðisbaráttu Indverja,
eins og hann alment var kallað-
ur, var skotinn til bana, er hann
venju samkvæmt var að daglegri
bænagerð. Svo má segja að lið-
inn sé mannsaldur frá þeim
tíma, er nafn þessa sérstæða
höfðingja í ríki andans komst á
hvers mann varir vegna þeirrar
einstæðu aðferðar, er hann beitti
í baráttunni fyrir sjálfsforræði
þjóðar sinnar; vopn hans voru
hvorki af stáli ger, né heldur
byrgði hann útsýn með púður-
reyk; grunntónninn í vitundarlífi
hans var trúin á mannhelgina og
eilífðarréttlætið, óhvikul vissa
um það, að sérhver framtíðar-
sigur yrði að vinnast með rökum
og vopnum andans; hann stóð í
órjúfandi samböndum við hin
æðri máttarvöld og sótti þangað
heildarsýn yfir viðhorf viðfangs-
efna sinna, skilning og endur-
nærðan þrótt; hann stóð langa
ævi í brjóstfylking sannleikans
með sigurvissu hins guðlega
manns fagurmótaða um brá og
enni.
Ævi indverska leiðtogans, sem
myrtur var svona rétt fyrir
mannleg leiðarlok, var lærdóms
rík fyrir samtíðina, þótt vænti
megi að árangurinn af göfugu
lífsstarfi hans nái enn fastari
tökum á þeim kynslóðum, sem
eru ófæddar og landið eða lönd-
in, eiga að erfa.
Nýr og fullkominn
bílvegur
Mannvirkjaráðherra fylkis-
stjórnarinnar í Manitoba, Mr.
Errick Willis, kunngerði þann
27. janúar, s.l., að stjórnin hefði
nú bundist fastmælum um það,
að leggja hinn nýja og full-
komna bílveg milli Winnipeg
°g Emerson vestan verðu Rauð-
ar; togstreita yfir því hvar veg-
urinn skyldi lagður, hefir tilfinn
anlega hamlað framkvæmdum í
þessu nauðsynjamáli; jafnskjótt
°g snjóa leysir í vor, verður
hafist handa um undirbúning að
lagningu vegarins; áætlað er að
það kosti fylkissjóð $4.681,000 að
fullgera veginn.
Utflutningsbann
í efri málstofu þjóðþingsins í
Washington hefir verið lagt
fram frumvarp til laga, er í þá
att gengur, að Bandaríkin banni
með öllu útflutning hverskonar
olíutegunda fyrst um sinn þaðan
landi. Canada kaupir árlega
bgrynnin öll af olíu í Bandaríkj-
Unum, og myndi það því óhjá-
hvaemilega hafa alvarleg áhrif á
iðnframleiðslu canadisku þjóðar-
lnnar ef aðflutningsbann á olíu
að sunnan kæmi til fram-
kvæmda.
Verzlunarmálaráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, Mr. Howe,
skýrði frá því í þinginu, að
canadisk stjórnarvöld reyndu
alt, sem í þeirra valdi stæði til
að afstýra áminstu útflutnings-
banni.
Fögur kirkjuathöfn
Við afar fjölmenna guðsþjón-
ustu í Fyrstu lútersku kirkju, er
þeir séra Eiríkur Brynjólfsson
og séra Rúnólfur Marteinsson,
tóku þátt í, gerðist sérstæður og
sögulegur atburður í sögu safn-
aðarins, en þá skírði séra Eirík-
ur yngri son þeirra hjóna, sem
hlaut í skírninni nafnið Guð-
mundur, sem er nafn móðurföður
hans; frú Brynjólfsson hélt syni
sínum undir skírn, en skírnar-
vottar voru systir séra Eiríks
og systir frúarinnar, A. S. Bar-
dal, Elín Sigurðardóttir úr
Reykjavík, Miss Dolores Ey-
lands, Dr. W. Wengel og Lincoln
Johnson forseti Fyrsta lúterska
safnaðar. Mrs. Lincoln Johnson
söng fagran einsöng, og söng-
flokki safnaðarins tókst einnig
með ágætum. Að lokinni guðs-
þjónustu og hinni eftirminni-
lega fögru skírnarathöfn, buðu
prestshjónin hinum mikla mann-
fjölda til ánægjulegrar og rík-
mannlegrar skírnarveizlu í sam-
komusal kirkjunnar, þar sem
hvorki skorti gleði né góðan
fagnað; bauð séra Eiríkur gesti
velkomna með sínu hlýja og
laðandi viðmóti; auk hans tóku
til máls frú Lovísa Guðmunds
og Lincoln Johnson.
Blandaður söngflokkur undir
stjórn séra Eiríks skemti með
því að syngja nokkur íslenzk
lög.
Fjársöfnun hafin til kaupa
á björgunarflugvél
Sama kvöldið og fréttin barst
um hina frækilegu björgun á
skipshöfn enska togarans ‘Dhoon’
undir Látrabjargi, voru saman
komnar nokkrar brezkar og ís-
lenzkar konur hér í bænum. —
Barst þá 1 tal sú hugmynd, að
íslendingar þyrftu að eignast
flugvél, sem heppileg væri til
björgunar á sjó og landi, t. d.
helicopter.
Konurnar létu ekki sitja við
orðin tóm, heldur lögðu fram
sinn skerf til þess að leggja und-
irstöðu að almennri fjársöfnun
til þess að kaupa slíka vél, og
var ákveðið að afhenda Slysa-
varnafélagi Islands það fé, sem
þarna kom inn, allt að einu þús-
undi króna, og fara þess á leit
við félagið, að það gengist fyrir
fjáröflun í þessu skyni, svo hefj-
ast mætti handa um að koma
þessari hugmynd í framkvæmd.
Allir landsmenn munu vera
sammála um nauðsyn þessa
máls, og er það gleðilegt, að þeg
ar skuli vera hægt að gefa fólki
kost á að leggja fram fé til kaupa
á hentugri vél til björgunar.
Að sjálfsögðu mun félagið
beita sér fyrir söfnun þessari og
taka á móti gjöfum frá almenn-
ingi. Alþbl., 22. des.
Sagan um Jón Gerreksson
komin út
Skáldsaga Jóns Björnssonar
um Jón Gerreksson Skálholts-
biskup er nýlega komin út hjá
Helgafelli í íslenzkri þýðingu
höfundarins sjálfs, en Jón vann
að sögu þessari í mörg ár og
frumsamdi hana á dönsku.
Skáldsaga þessi er 333 blaðsíð-
ur að stærð, í stóru broti og
prentuð á drjúgu letri og því með
stærstu . skáldsögum íslenzkra
höfunda.
Skáldsagan um Jón Gerreks-
son var þriðja sagan, sem Jón
Björnsson samdi á dönsku, og
vakti hún mikla athygli í Dan-
mörku og víðar á Norðurlönd-
um og hlaut góða dóma í blöð-
um og tímaritum. Þetta er önn-
ur skáldsaga Jóns, sem kemur
út á íslenzku, en hin fyrri var
Heiður ættarinnar, ein af skáld-
sögunum í bókafl. Nýjum penn-
um. Auk skáldsagnanna hefir
Jón hlotið vinsældir fyrir barna
bækur sínar, en hin kunhasta
þeirra, Leyndardómur fjallanna,
kom út fyrir skömmu í íslenzkri
þýðingu á vegum Draupnisút-
gáfunnar.
Alþbl., 22. des.
Fyrrum dómari látinn
Síðastliðinn laugardag lézt að
cimili sínu í Burlington, Ont.,
avid Bruce Harkness, fyrsti
órnari í unglingarétti Manitoba
ylkis, nálega áttræður að aldri;
raman af fullorðinsárum sínum
§egndi hann prestsembætti og
varð landskunnur fyrir afskipti
Sln af mentamálum.
á kornhlöðum
Blaðið Winnipeg Tribune
s ýrði frá því á laugardaginn þ.
• janúar s.l., að sameinuðu korn
óðufélögin í Manitoba og Uni-
ed Grain Growers félagið, hefðu
eypt kornhlöður Reliance korn
aupafélagsins í Sléttufylkjun-
Um fyrir $3.750.000.
Hugulsemi
við Mr. King
Einn af Liberalþingmönnum
Quebec-fylkingarinnar í sam-
bandsþinginu, hefir sýnt
Makenzie King þá hugulsemi að
stinga upp á því, að hann verði
hinn fyrsti al-canadiski land-
stjóri í Canada, eftir að hann láti
af forustu Liberalaflokksins og
forsætisráðherraembættinu; —
þetta lætur óneitanlega vel í
eyra, en hvers ætti þá Alexander
vísigreifi að gjalda, sem enn hef-
ir hvergi nærri hálfnað land-
stjóratímabil sitt hér? Ætlar
Quebec að veita honum heim-
fararleyfi upp á eigin reikning?
Félag
mjólkurframleiðenda
í vikunni, sem leið hélt félag
mjólkurframleiðenda Manitoba-
fylkis ársfund sinn, við mikla að-
sókn og fjörugar umræður; á
fundinum kom það meðal ann-
ars í ljós, að á árinu, sem leið
nam verðmagn mjólkurafurða
innan vébanda fylkisins frek-
lega 32 miljónum dollara.
ÞRJÚ KVÆÐI
Eftir Kristján Einarsson frá Djúpalæk
H Ö N D
Höndin er blá og bólgin,
bognir fingur og hnýttir,
kartnögl sprungin í kviku,
knúar marðir í sárum.
Sótið situr í sprungum,
sigg eru hörð i lófa,
höndin er velkt í vosi,
veröld tók fast á henni.
Þó hefir engin önnur
' innilegar né hlýrra
verið lögð yfir ljósa
lokka mína en þessi.
Æ V I N T Ý R I
Heyr ævintýrið eina
um orminn milli steina,
sem lá í mosans ló
í leiðslukenndri ró
og dreymdi daggarhreina
drauma. En feigðin bjó
í skóg.
Því lítil telpu-táta
á tölti var með dáta
að skoða blóm í skóg.
Hún skríkti, söng og hló,
og lézt ei vilja láta
sig leiða, en vildi þó.
í skóg.
Pg orminn áður en varði
hún undir hæli marði.
En mosans mjúka ló
tvö mannsbörn að sér dró.
Og undir grónum garði
hún gaf sig dáta og hló.
í skóg.
M O R Ð
Á hverjum morgni mætti ég honum,
manninum með gráa hárið,
signar axlir, bogið bak.
Það var eins og fúaflak
flyti hjá í morgunsárið.
En sú kvöl, að mæta manni,
mánuð, ár á sama vegi,
döprum manni, er dagur rann.
Og ég fór að hata hann,
heiftin óx á hverjum degi.
Hvílík raun, að mæta manni,
morgun hvern, já ævinlega
sama manni á sömu stund.
Og ég skaut ’ann eins og hund.
Augun voru djúp af trega.
Hvalf jarðarsíld seld til Þýzkalands
Þjóðverjar sækja hana sjálfir og verðið er nálægt
50 krónur fyrir mál
Nú er búið að semja um sölu
á verulegu magni af Hvalfjarð-
arsíld til Þýzkalands, ef sú veiði
heldur áfram. Stendur til að
síldin verði flutt út ísvarin með
togurum, sem Þjóðverjar senda
hingað sjálfir til að sækja hana.
Hefir íslenzk samninganefnd
verið í London að semja um fisk-
og síldarsöluna. Er hún skipuð
sendiherrunum Stefáni Þorvarðs
syni og Thor Thors, og Sigur-
steini Magnússyni ræðismanni,
og auk þeirra taka þátt í viðræð
Frá Ottawa
Síðastliðinn laugardag var
frumvarpi sambandsstjórnar um
sparnaðarráðstafanir varðandi
amerískan gjaldeyri, vísað til
nefndar með 14 atkvæða meiri-
hluta; megin andstöðuflokkar
stjórnarinnar, C.C.F. og íhalds-
menn, ásökuðu stjórnina um
það, að koma ekki fram með
frumvarpið fyr en eftir dúk og
disk, eftir að óhægra væri að
koma við sparnaðarráðstöfunum,
en ella myndi verið hafa; fram-
sögumenn Liberala töldu slíkar
ásakanir rakalausar firrur. — Mr
King lýsti yfir því á mánudag-
inn, að stjórnin hefði ákveðið að
skipa þingnefnd úr öllum flokk-
um til þess að íliuga dýrtíðar-
unum Björn Ólafsson, Kjartan
Thors og Davíð Ólafsson.
Ekki er blaðinu fullkunnugt
um verð það, sem fæst fyrir síld
ina, en þó mun það ekki verða
mikið undir 50 krónum fyrir
málið við skipshlið. Ef að þýzku
flutningaskipin geta tekið við
síldinni beint úr bátunum, ætti
enginn aukakostnaður að þurfa
að leggjast á síldina.
Fyrstu skipanna, er sækja
síld, er von í næstu viku.
Tíminn, 18. des.
málin og koma fram ábyrgð á
hendur þeim, sem sekir kynnu
að hafa gerst um okurgróða.
Frumvarp um lífeyri
Rétt fyrir mánaðarmótin af-
greiddi neðri málstofa brezka
þingsins við þriðju umræðu
frumvarp stjórnarinnar um
200.000 ensk pund árlegan líf-
eyri til Elizabetar ríkisarfa og
manns hennar Philips hertoga
af Edinburgh; frumvarpið sætti
allsnarpri mótspyrnu af hálfu
hins róttækara fylkingar-arms
verkamannaflokksins, er taldi
fjárhæðina óþarflega háa; talið
er víst, að lávarðadeildin af-
greiði frumvarpið umræðulaust.
Ur borg og bygð
Deildir eldra kvennfélagsins
Númer 1 og 2 efna til “Silver
Tea” og sölu á heima tilbúnum
mat, í neðri sal Fyrstu Lútersku
kirkju, fimmtudaginn 19. febrú-
ar, eftir miðdaginn og að kveld-
inu. — Heimsækið konurnar og
komið með vini ykkar.
♦
Heimilisiðnaðar-félagið
heldur næsta fund á þriðju-
dagskveldið 10. febrúar, að heim
ili Mrs. A. R. Clark, 684 Gar-
field St., fundurinn byrjar kl. 8
eftir hádegi.
Til kaupenda Lögbergs,
sem skipta um heimilisfang
Langt of oft kemur það fyrir,
að kaupendur blaðsins, sem
skipta um heimilisfang sendi
nýja áritun, en nefni eigi þá
póststöð, er þeir fluttu frá;
þetta veldur oft óþörfu vafstri á
afgreiðslu, leiðir til þess að stund
um eru tvö blöð í sömu viku
send sama kaupandanum, og ger-
ir það að verkum að ekki er hægt
að leiðrétta áskrifendalistann
fyr en seint og síðar meir eftir
óþarfa fyrirhöfn. — Þeir kaup-
endur, sem skipta um bústað, eru
því hér með vinsamlegast ámint-
ir um, að gera afgreiðslu blaðs-
ins eigi aðeins aðvart um sinn
nýja bústað, heldur einnig hver
áritun þeirra var næst á undan.
-♦
Mr. Sam Brand kom austan
frá Toronto á fimtudaginn var
á leið til Vancouver, þar sem
húnn mun dvelja í óákveðinn
tíma. —
♦
Rev. R. Marteinsson
will speak on his early mission
work for the Icelandic Synod,
at the meeting of the Junior
Ladie’s Aid of the First Lut-
heran Church on Tuesday, Feb.
10., at 2.30 p.m. in the church
parlors.
í öndverðum janúarmánuði síð
astliðnum lézt í Reykjavík As-
geir Ingimundsson Blöndahl, 67
ára að aldri, ættaður úr Húna-
þingi; hann dvaldi um all-langt
skeið vestan hafs, lagði fyrir sig
málaraiðn; hann kom hingað
vestur um haf fyrir ári síðan í
heimsókn til barna sinna, sem öll
eru búsett vestan hafs og annara
samferðamanna og vina, og sýnd-
ist þá upp á sitt bezta. — Ásgeir
heitinn var vel gefinn um margt,
söngfróður og vel ritfær; hann
var gleðimaður og skemtinn í
sinn hóp, en þó harla þunglynd-
ur annað veifið; krabbamein
varð honum að bana.
Mr. og Mrs. Th. J. Gíslason frá
Morden voru stödd í borginni í
byrjun vikunnar á leið suður til
Chicago í heimsókn til ættingja
og vina; þau ráðgerðu að verða
nálægt þriggja vikna tíma að
heiman.
Jackson, Mich., 30. jan. 1948.
Kæri ritstjóri!
Við sem lifum svo langt frá
slagæðum íslenzkra viðburða, vit
um ekki fyr en seint og síðar-
meir hvað er að gerast ykkar á
millum sem lifa nálægt hjartanu.
Fyrir einhverjar ástæður hefir
Lögberg stundum komið í mínar
hendur þremur vikum á eftir
tímanum.
Á síðustu blöðum blaðsins sé
ég að allir hafa “skotið að
Baldri hinum góða”, okkar
ágæta Dr. Sig. Júl. Jóhannes-
syni, í tilefni af 80 ára afmæli
hans. Mig langar því til að senda
honum mitt skeyti og það á ekki
að verá Mistilteinn. Skeytið er
svona:
Elli flýir — ársól skín,
örvun nýja sporsins:
Átta-tíu árin þín
anda hlýju vorsins.
Með hughlýrri kveðju til þín
herra ritstjóri, er ég
þinn í einlægni
A. Pálmi.