Lögberg - 25.03.1948, Blaðsíða 1
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 25. MARZ, 1948
PHONE 21 374
rtctt1'cT
pr\J ~
LaU ® A Complele
Cleaning
Inslilulion
NÚMER 13
Flóð á islandi
Gífurleg vatnsflóð hafa undan
farna daga verið í ám austan
Fjalls. Flóð í Ölfusá hafa veldið
miklum skemdum á íbúðarhús-
um og verkstæðum að Selfossi.
Til þess að komast milli húsa,
sem næst standa Ölfúsá, þurfti
þann 5. marz að nota báta. Hús-
mæður fóru “sjóleiðina” er þær
fóru til þess að kaupa nauðsynj-
ar til heimilinna. Þorpið varð
og vatnslaust þann sama dag
vegna þess að leiðslan hjá brúar
stöplinum kliptist í sundur.
Mjólkurflutningar leplust
* Mjólkurbílar frá Selfossi upp í
sveitirnar urðu að snúa við hjá
Skeggjastöðum, svo var mikill
vatnselgur á veginum. Bílar
austan úr Rangárvallasýslu
sneru við hjá Bitru, af sömu á-
stæðum. Þetta flóð er talið engu
minna, en það sem kom í ána
árið 1930.
Á Skeiðum
Flóðið í Hvítá var og miklu
meira en árið 1930. Aðalflóðið
er á Skeiðum eða svonefndu
Ólafsvalla-hverfi, en í því eru
sjö bæir, sem allir einangruðust.
Þar er tilfinnanlegt tjón á heyj-
um. Bátur var fenginn frá Sel-
fossi og er hann í ferðum á milli
bæjanna. Einnig nota bændur
bátinn til þess að flytja á honum
hey til útigangsfé, sem forðaði
sér á hæstu hóla flóðasvæðisins.
í Biskupstungum
Hvítá flæddi yfir alla fremri
sveit Bræðratungu-sóknar og
Reykjavelli. 20 býli lentu í flóð-
inu en engar skemdir hafa orðið.
í Þjórsá
4. marz var svo mikið flóð í
Þjórsá, að gljúfrið við Þjórsár-
brú var um það bil barmafult.
Lítið vantaði að eystri Rangá
rynni upp á brúna á þjóðvegin-
um þar.
Litla þverá í Fljótshlíð var
orðin að stóru fljóti. Litlu mun-
aði að ekki yrðu skemdir á
gróðrarstöðinni í Fljótshlíð.
Mbl., 6. marz.
Minna mátti nú gagn gera
Á ellefu. mánuðunum til
febrúar loka, græddi Canada
Packers Ltd., á smjör viðskipt-
um sínum $695.363. Þetta er
meir en samanlagður gróði fé-
lagsins á þessari vöru á síðast-
liðnum 9 árum. Þetta kom í ljós
í vitnisburði forseta félagsins, J.
S. McLean, er hann flutti fyrir
nefnd þeirri, er stjórnin skipaði
til þess að rannsaka verðhækk-
un á vörum í landinu. Mr. Mc
Lean sagði þessi feikilegi gróði
væri einsdæmi. Af þessari upp-
hæð hafði félagið grætt $509.105,
eða meir en 11 cents á pundið á
smjöri, sem geymt var í kælihús
um.
Á tímabilinu frá 5. júní til 15.
október, sagði Mr. McLean, að
félagið hefði keypt og látið í
geymslu 5.8 miljónir punda af
smjöri og hefði það kostað 53.01
cents pundið. Frá 15. okt. til 25.
febr., hefði það selt 4.5 miljón
af þessu geymda smjöri á 65.12
cents meðalverði og grætt 11.21
cents á hverju pundi.
Þegar Mr. McLean var spurð-
urað, hvers vegna hann hefði
ekki lækkað söluverðið og gert
sig ánægðan með minni gróða,
sagði hann að neytandinn myndi
ekki hafa haft n^tt gagn af því,
vegna þess að smásölukaupmað-
urinn myndi hafa selt það á
hæsta verði. Þegar hann var
spurður hvort það hefði ekki
lækkað smjörverðið yfirleitt eí
25*félög hefði komið sér saman
um að lækka það. “Það er nú
bókfræðileg spurning, en slíkt
kemur alls ekki fyrir”, sagði Mr.
McLean.
Undir ítölsk yfirráð
Vesturveldin þrjú, Bretland,
Frakkland og Bandaríkin, hafa
orðið á eitt sátt um það, að hafn-
arborgin Trieste verði fengin
Itölum til yfirráða á ný; fyrir
síðasta stríð taldist borg þessi
til ítalíu, en að stríðinu loknu
komst hún undir alþjóðastjórn,
en Bandaríkjamenn og Júgóslav-
ar höfðu þar fyrir hönd samein-
uðu þjóðanna all-mikið setulið.
En til þess að til framkvæmda
komi í þessu efni, verður að taka
til íhugunar gagngera breytingu
á friðarsamningunum við ítalíu,
og hefir utanríkisráðherra
Frakka, George Bideault, geng-
ist inn á að leita hófanna við
Rússa um framgang málsins, því
þeir voru meðal þeirra aðilja, er
undirskrifuðu áminsta friðar-
samninga við ítölsku þjóðina,
eða réttara sagt stjórnarvöld
hennar.
Telur velferðarmálum
bæjarins ábótavant
Á bæjarráðsfundi á föstudag-
inn, kærði H. B. Scott, bæjarráðs
maður, velferðarmálaskrifstofu
borgarinnar um vanrækslu á
skyldum sínum. Hann er formað
ur þeirrar nefndar, er hefir um-
sjón með bráðabirgðar húsnæði,
fyrir þá, sem húsviltir eru. Sagði
hann að nefndin hefði verið beð-
in um að útvega húsaskjól fyrir
konu og sex börn hennar, sem
eru á aldrinum 2 til 17 ára. Kona
þessi hefir lifað á opinbetum
styrk í 15 ár. Heilbrigðismála-
deildin lét skoða heimili þessar-
ar fjölskyldu á Alexander Ave.,
síðastl. viku og fordæmdi húsið,
sem óhæfilegt fyrir mannabú-
stað. ,
Mr. Scott segir að Velferðar-
málaskrifstofan hafi vitað um
kringumstæður þessarar fjöl-
skyldu í sex ár. “Hún lifir í slíkri
örbyrgð að fæstir myndu bjóða
gripum að búa við slíkt”. Hús-
gögn fjölskyldunnar eru tvö
hengirúm, tvö barnarúm, eitt
mjótt rúm, eitt borð, einn lítill
skápur og tveir stólar; ekki bolli
eða undirskál í húsinu. Fyrir
framtiyrunum er hengdur striga
poki og druslum troðið í rúðu-
lausa glugga.
það eru fleiri tilfelli þessu lík”,
sagði Mr. Scott. Hann krefst
þess að Velferðarmálaskrifstof-
an sjái um, að fjölskyldan fái
viðunanlegan klæðnað, húsgögn,
og annað, sem hún þarf, áður en
hann útvegar henni húsnæði.
Hinsvegar ásakar velferðar-
málanefndin Mr. Scott um að
hafa ekki viljað sinna því að út-
vega fjölskyldunni viðunanlegt
húsnæði, þrátt fyrir ítrekaða
beiðni af hálfu velferðarnefnd-
ar. Ennfremur skýrði formaður
frá því áð fjölskyldan ' fengi
$89.92 á mánuði "frá bænum og
$28.00 frá sambandsstjórninni;
bærinn borgaði og $14.00 í húsa-
leigu. Þar að auki var lesin löng
skrá yfir ýmsar nauðsynjar, sem
fjölskyldunni hafa verið gefnar
á árinu. — Nú hefir fjölskyldan
fengið nýjan og betri bústað.
Hverinn við Laugarvatn
fór í kaf
í vatnsflóðunum, sem verið
hafa undanfarna daga, hefir
meira flóð orðið á Laugarvatni,
en elstu menn þar muna.
í flóðunum hefir vatnið flætt
yfir hver þann sem notaður er
til þess að hita upp skólahúsið
að Laugarvatni og hefir af þess
um sökum enginn hiti verið í
skólanum síðustu fjóra sólar-
hringana. Hverinn er á um það
bil tveggja metra dýpi.
Böðvar Magnússon á Laugar-
vatni, sem nú er sjötíu ára og
og alið hefir allan sinn aldur að
Laugarvatni, segir aldrei slíkan
vöxt hafa komið í vatnið í hans
tíð. —
Flóðið minkaði mikið í gær og
talið að hverinn myndi “koma
upp” í dag.
Þrátt fyrir kuldann í skólan-
um, hefir lífið gengið sinn vana
gang og engin kvartað um kulda.
Kommúnista ritstjóri
segir af sér
Douglas A. Hyde, fréttarit-
stjóri við kommúnistablaðið
Daily Worker í London á Eng-
landi, hefir sagt af sér stöðu
sinni vegna þess að hann hefir
fundið til “vaxandi óróleika útaf
utanríkisstefnu Rússa og skelf-
ingar útaf viðburðunum í Czecho
slovakiu”. —
“Mér er að verða það augljóst,
að hreyfingin, sem ég barðist fyr
ir og studdi í svo langan tíma,
er að tortíma því frelsi og vel-
sæmi, sem hún þóttist vera að
verja”, sagði hann. “Kommún-
isminn er ekki fær um að lækna
hinn hættulega sjúka heim”.
Hyde hefir verið kommúnisti
í 20 ár. —
A Brilliant Career
Mr. J. F. Freáerickson recent-
ly attended the United Nations
Maritime Conference at Geneva,
Switzerland as advisor to the
Canadian Delegation. Mr.
Frederickson was graduated
from the University of Toronto
in Modern History in 1941 and
joined the Department of Trade.
and Commerce. During the past
few years, he has gained valu-
able experience with the Privy
Council in Ottawa and the Parke
Steamship Co. and the Canadian
Shipping Board in Montreal. He
left his position as Secretarý of
the Canadian Shipping Board to
join the newley formed Mari-
time Commission early this year.
Mr. Frederickson is the son of
Mr. and Mrs. Kári Frederickson
of Toronto, Ont.
0r borg og bygð
Kappræða
Næsti Frónsfundur verður
haldinn í G. T.-húsinu, mánudag
inn 5. apríl næst komandi. Til
skemtunar verður kappræða,
sem fjórir menn taka þátt í, og
umtalsefnið verður: “Eru V.-
Íslendingar að úrkynjast?”
Með jákvæðu hliðinni mæla
þeir Sigurður Vopnfjord og
Gunnar Sæmundsson, báðir vel-
þekktir Ný-íslendingar, en með
neikvæðu hliðinni tala þeir próf.
T. J. Oleson og Heimir Thor-
grímson.
Inngangur verður ekki seldur
en samskot verða tekin til arðs
fyrir deildina. — Frón er einnig I
að undirbúa ágæta samkomu
sem haldin verður 17. maí næst
komandi. Beggja þessara funda
verður nánar getið í næsta blaði.
H. Thorgrímson
ritari “Fróns”.
♦
ÞAKKARÁVARP
Hjartans þakklæti vottum við
öllum þeim, vinum og vanda-
mönnum sem stuðluðu að, eða
tóku þátt í samsæti, sem haldið
var í tilefni af tuttugu og fimm
ára giftingarafmæli okkar. Einn-
ig þökkum við indælu gjafirnar
og skeytin sem okkur bárust. —
Þessi kvöldstund verður okkur
sólskinsblettur sem aldrei gleym
ist. —
Bjarni og Fríða Eirikson
Steveston, B.C.
Mr. og Mrs. J. F. Johnson,
Maryfield, Sask., komu til borg
arinnar þessa viku; er Mr. John-
son að leita sér lækninga. Mrs.
Johnson er dóttir Mr. og Mrs.
S. K. Johnson, Ebor, Man.
Samkoman, sem Jon Sigurd-
son IODE-félagið efndi til í Sam-
bandskirkjunni á mánudags-
kveldið, tókst með ágætum. Inn
komu $100.00 og verður því fé
varið til hjálpar nauðstöddum
börnum í Evrópu.
-♦■
Gefið í útvarpssjóð
Fyrsta Lúterska Safnaðar í
Winnipeg, febrúar 1948: — Frið-
rik P. Sigurðsson, Fagradal,
Geysir, Man., $3.00. —'Meðtekið
með þakklæti.
Eiríkur S. Brynjólfsson
776 Victor Str.
Á fimtudaginn J8. marz, voru
gefin saman í hjónaband í West-
minster United kirkjunni hér í
borg, Lilian Mae, yngsta dóttir
Mr. og Mrs. Edward C. Ransby
og Dr. Sveinn Octavius Eggerts-
son, sonur Mr. og Mrs. Árni G.
Eggertson, 919 Palmerston Ave.
Dr. E. M. Howse framkvæmdi
giftingarathöfnina. Vegleg brúð-
kaupsveizla var haldinn á Fort
Garry Hotel. Meðal utanbæjar-
gesta er sátu brúðkaupið, voru
Mr. og Mrs. Arni Eggertson,
Dauphin, Man., og Dr. og
Mrs. S. E. Björnson, Oak River,
Man. — Heimili ungu hjónanna
verður hér í borginni.
Laugardagsskóla samkoman
Gert er ráð fyrir að samkoma
Laugardagsskólans í Winnipeg,
verði haldin á laugardaginn 1.
maí. Bömin eru nú að æfa ís-
lenzk smáleikrit, söngva og
framsögn, og má búast við góðri
skemtun að vanda. — Nánar
auglýst síðar.
•♦
Lúterska kirkjan í Selkirk
Páskadaginn: Ensk messa Og
altarisganga kl. 11 árdegis. —
Sunnudagaskóli á hádegi. — ís-
lenzk hátíðarmessa kl. 7 síðd. —
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
♦
Gefið til Sunrise Lutheran
Caxnp
Mrs. Margrét Thorbergson,
Mrs. Cecil Dahlman og Mrs. H.
Eastman, Riverton $10.00, í minn
irigu um eiginmann og föður,
Einar Thorbergson og í minn-
ingu um tvo syni og bróður,
Steinberg Aurilius og Thorberg-
ur Helgi. — Mrs. F. M. Einarson,
Mountain N. Dak., $10.00. Með-
tekið með innilegu þakklæti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
-♦
Miss Fríða Jóhannesson frá
Ottawa, er í heimsókn til for-
eldra sinna, dr. og Mrs. S. J.
Jóhannesson. Fer aftur eftir
viku dvöl. —
-♦
Goodtemplara stúkan Skuld
heldur skemtifund á mánudags-
kveldið 29. marz. Þar verður
myndasýning og fleira til skemt
Þið getið verið vissir um, að
MANNVINURINN OG SKÁLDIÐ:
Dr. Sigurður Júlíus Jóhannesson
Áttræður 10. nóvember 1947
Eg kyntist þér fyrst er ég kom hér til lands,
um kvöldstund, á hagyrðings fundi,
ég fann þú varst eining af andanum hans,
sem ástina og kærleikann mundi.
En þá varst þú ungur og útsýnið bjart,
með íslenzkan vorblæ í sinni,
þú kendir oss öllum svo mikið og margt
frá mentunar dísinni þinni.
Og svo hélst þú velli í öll þessi ár
í anda þess réttláta og sanna.
Þú reyndir að græða hvert svíðandi sár
á sálum og líkömum manna.
Þín trúmenska er makalaus mök við það alt,
sem mannkynið göfgar og prýðir,
og hvar sem þú sérð eitthvað vesælt og valt
það vermirðu og læknar um síðir.
En seinlát og köld eru kærleikans laun,
þeir krossfestu Meistarann forðum,
og mér finst að heimurinn batni ekki baun,
þó beri á þig lofið í orðum.
Því “Pílatus” hreinsar enn hendur á sér,
en “Herodes” framkvæmir morðin,
og Varmennin kýla á sér vömbina hér
og vagga með allsnægta borðin.
En þúsundir falla úr hungri og hor,
og hástöfum biðja sér líknar,
og böðlarnir rekja þau blóðugu spor
en “Barrabas”, dómsvaldið sýknar.
Svo alt, sem þú kendir til umbóta hér,
er ennþá í svikara höndum,
og misbrúkað réttlætið alstaðar er,
hjá alheimsins þjóðum og löndum.
I
Við hyllum þín áttræðu sólhvörf í sátt,
þín saga er listræn og fögur,
og vart hefir þjéð vor á útvegum átt,
svo ágætan, trúfastan, mögur.
Svo blessi þig drottinn, og þakka má þjóð,
hvað þú hefir starfað og lifað,
hver einasta hugsun var háleit og góð,
og heilbrigð, sem þú hefir skrifað.
Þeim fækkar nú óðum, sem feta þinn stig,
og fegurstu hugsjónir vörðu,
ef mannkynið eignaðist marga eins og þig,
er mögulegt guðsríki á jörðu.
H. E. Magnússon
unar. —
ATVIKA-VlSUR
KVÖLD
Nóttin tauminn tekur brátt,
tjöld gull-saumast fjalla;
inn í drauma djúpið blátt
dagsins straumar falla.
MARZ GRÆTUR
Mörgum sárast sverð er bar,
sollinn fári og móði;
regns í báru mildum mar
Marz er í tára-flóði.
TIL SUNNU OG SUMARS
Snjór þó skarti fjöll og fljót,
frostið hart mér svíður;
sunnu bjartri’ og sólu mót
söngur hjartans líður.
Á HELJAR ÞRÖM
Heimur grandar sjálfum sér,
sannleiks blandast rökin:
Lífið vandast — verjist mér
vina handar-tökin.
PÓLITÍK
Stjórnar flýja í felur tröll,
fölskum glýjum kynda.
“Skiftin nýju” éru öll
undir skýjum vinda.
Pálmi.