Lögberg - 25.03.1948, Page 3
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 25. MARZ, 1948
3
Svona lít ég á málið
t>eir, sem verja málstað ein-
staklingsframtaksins, “Private
Enterprise” ættu að gera sér
grein fyrir að þær framfarir og
framkvæmdir, sem það hefir af-
kastað um dagana, eru léttar á
metaskálunum á móti þeim þján
ingum, sult og seyru, sem miklu*
meiri hluti mannkynsins hefir
orðið að líða fyrir það.
Hins vegar ættu þeir, sem
reyna að gylla kommúnista-
stefnuna, sem er núverandi
stjórnarskipulag á Rússlandi, að
vita, að hún getur aldrei rutt sér
til rúms í þessari álfu, vegna
þess að einræðisþáttur þeirrar
stefnu — hvað svo sanngjörn og
réttlát sem hún kann að vera á
ýmsum öðrum sviðum — gerir
hana ómögulega í okkar aug-
um og aðskilur okkur og Rússa
um alla komandi tíð, eða þang-
að til þeir stofna ómengað- lýð-
ræði, og láta aðrar þjóðir hlut-
lausar um hversháttar stjórnar-
fyrirkomulag þær hafa.
Eg trúi ekki að Stalin og ráðu-
neyti hans sé að stofna til nýrra
blóðsúthellinga, í þ. m. ekki í
nálægri framtíð, því á stríði hafa
þeir öllu að tapa en ekkert að
græða, og svo hafa þeir ótal aðr-
ar aðferðir — og sumar sýnast
lélegar — að koma ár sinni fyr-
ir borð. En heiminum má
aldrei gleymast að þeir eru of-
stækismenn með ótakmarkað
vald, og eru að mínu áliti engu
síður hættulegir varanlegum
friði, en okrarar og talsmenn
þeirra í þessari álfu. Því Rússa-
stjórn hefir í lófa sínum miljón-
ir hermanna, þúsundir < loftfara
og skipa og alla framleiðslu
stórrar þjóðar, sem aðeins getur
beðið guð um vægð.
Ibúatala Rússlands er nú talin
að vera í kringum 180 miljónir,
þó skilst mér að kommúnistar
viðurkenni að meðlimatala
þeirra þar, nái ekki fullum
þremur miljónum, og það lætur
nærri því, að það taki þann
mannfjölda, að fylla ábyrgðar-
mestu stöður í því stóra landi.
Það er nú víst á vitund flestra
hugsandi manna, að það sé óð-
um að myndast spánýr aðals-
flokkur “Super privileged Class”
á Rússlandi, er ræður þar öllum
lögum og lofum, er betur launað-
ur en verkalýðurinn, og getur
þess vegna veitt börnum sínum
meiri og betri mentun, og á þann
hátt tryggt sér og sínum áfram-
haldandi völd og mörg_þau þæg-
indi sem almenningur verður að
vera án frá vöggu til grafar.
Eg efast ekkert um að stjórn-
endur Rússlands séu að gera sitt
ítrasta til að byggja upp bæði
land og lýð, og það má vel vera
að eins og stendur, líði fólk þar
betur en okkur hér undir lýð-
ræðisstjórn bæði vegna þess að
það gerir sennilega færri kröf-
ur til lífsins, og hefir líklega
minni áhyggjur fyrir morgun-
deginum, ef dæma skal eftir nú
gildandi verðskrá Sovét-stjórn-
arinnar á almennum vörum, sem
nýlega birtist í dagblöðum í
vestur Kanada. Og skilji ég það
rétt, að meðal inntektir meðal
fjölskyldu séu um 1260 rúblur
mánuði, virðist vera hægt að
lifa þar á þeim launum í þ. m.
óbrotnu lífi, samanborið við
verð þar á öllum nauðsynjum.
Og fari blöðin rétt með það,
að tvö þúsund, tvö hundruð og
fjögur pund af hveitmjöli
af fyrstu tegund seljist á
Rússlandi fyrir aðeins sjö
niblur, er það eftirtektar-
vert að ein bjór flaska selst þar
nákvæmlega á sama verði, eða á
$1-33, sé sanngjarnt verðmæti
rúblunnar 19 cents í okkar
gjaldeyri.
Og eftir því sem blöðin herma,
nru 2204 pund af smjöri verð-
lögð þar á 62 rúblur eða $11.78,
en kaupi Rússimí hálfann pott af
votka víni, verður hann að
borga 60 rúblur eða $11.40 í okk-
ar peningum.
Það ætti bráðlega að fara að
fækka bílslysum og morðum á
Rússlandi. Og ekki er þar lengur
arðberandi að stela, nema þá
helzt bjór og brennivíni. og það
borgar sig ólíklega lengi, því ölv
aðir menn eru þar nú sjálfsagt
eins sjaldséðir og Hóla-Jónarnir
voru fyr á árum, og eins og þeir,
gleymast furðanlega fljótt.
Öll hróp og niðranir okrara
heimsins og talsmanna þeirra,
hagga því ekki um eina einustu
hársbreidd að í þ. m. á einu sviði
stjóma Rússar nær Krists kenn-
ingum enn okkar og aðrar stjórn
ir undir lýðræði. því þar er eng-
um leyft að ábatast á annars
svita. Þó skilst mér að kirkjan
sé þar ekki höfð í neinum há-
vegum.
Þessu líkt fyrirkomulag og
betra, því allir nytu þess jafnt,
gætum við haft undir lýðræðis
stjórn í þessu landi, ef við vær-
um ekki eins og við erum —
heimsk, óupplýst og talhlýðin.
Hvernig sýslan Rússastjórnar
er útávið er nokkuð sem er mjög
erfitt um að dæma, því það virð
ist vera ómögulegt að vinza
nokkurt vit eða sannleika út úr
öllum þeim hvalsögum sem dag
blöð og ýms tímarit hafa flutt
í s. 1. nokkur ár, og sem flestar
eru samantvinnaðar af áburði og
getsökum.
En víst er það, að ekki ætla ég
að breiða blessun mína yfir við-
skifti Rússastjórnar við erind
re}ía íslands á vorinu sem leið,
á hraðfrystum fiski í skiftum
fyrir timbur.
Undir þeirra fyrirkomulagi er
það líklega einn maður eða fá-
menn nefnd, sem annast um inn-
kaup á fiski fyrir alla þjóðina,
svo þeim var innanhandaf að
gera samninga við ísland á til-
tölulega stuttum tíma eða veita
þeim afsvar, ef þeim þættu kaup
in ekki aðgengileg, en það sýn-
ist vera list hjá þessum mönnum
að snúa á skrúfunum og smá-
herða svo á þeim, því eftir fjög-
urra mánaða bið í Moskva, urðu
Islendingar að sætta sig við afar-
kosti. Fiskinn og lýsið seldu þeir
með afföllum, en Rússar hækk-
uðu timbrið nálega um helming
yfir það verð sem íslendingar
borguðu áður.
Þarna var mannflesta þjóð
Evrópu að skifta við fámennustu
dj óð heimsins, og ég get ekki að
því gert, að mér rennur meira
til rifja lítilsvirðingin, sem Is-
lendingar urðu að þola en 50
milj. króna skaðann, sem þeir
liðu á þessum skiftum, og verð-
ur að borgast úr ríkissjóði fá-
tækrar þjóðar.
Eg er viss um að kommúnist-
ar af íslenzku bergi brotnir í
þessari byggð, eru ekki ánægð-
ir með þessi skifti, því hér eru
þeir undrafólk eða öllu heldur
dularfull fyrirbrigði, þegar þeir
eru bornir saman við aðra kom-
múnista víðsvegar um allan
heim, sem blöðin daglega flytja
hryðjusögur af, því hér eru þeir
stranglega heiðarlegt fólk í öll-
viðskiftum og daglegri fram-
komu.
Fari svo að okrarar heimsins
talsmenn þeirra eða Rússar
komi af stað þriðja blóðbaðinu,
og Rússar næðu fótfestu hér
vildi til, að ég rækist á forsætis-
ráðherra, Hon. H. L. Mackenzie
King á stræti hér í Wynyard, og
segði honum að ég hefði örgustu
andstygð á stjórn hans og mundi
gjöra mitt ítrasta til að koll-
varpa henni og reka hann og alla
hans fylgifiska frá völdum; hann
væri líklegastur til að árna mér
góðs gengis, en það væri ekki
ómögulegt að hann skyti því að
mér, að mér yrði að ganga bet-
ur en á s. 1. 20 árunum, og þar
með væri því máli lokið, því ég
sem þegn þessa lands, hefi full-
an rétt, hvar sem ég stend, að
láta skoðanir mínar í ljós, bæði
í stjórn- og trúmálum.
Ólíklegt væri að ég mundi
yrða þessu líkt á einræðisherr-
ana í Evrópu, því þó ég trúi
minnstum partinum af öllum
kemur í bága við settar skoðan-
ir okkar í dagblöðum og bækl-
ingum, eða snúa af útvarpstæk-
inu. Líka ætlum við svo mörg
að verða rík.
Svo er það furða hvað margir
af eintómum blóðþráa, hanga
við gömlu flokkana, sem eru og
hafa æfinlega verið eitt og hið
sama að undanteknum nöfnun-
um, eða er það af blindri trygð
við nokkuð það sem aldrei var
þess virði að eyða einni einustu
ærlegri hugsun á?
Eg man eftir því fyrir nokkr-
um árum, þegar fólkið hljóðaði
mest yfir andskotans auðvald
inu,’ að ég var virkilega farinn
að trúa að það væír Tíkjandi
stjórn í Kanada, en ég skil það
betur nú að við höfum hvorki
meira né minna auðvald en við
Business and Professional Cards
að verða fyrir tognun milli
SELKIRK HETAL PR0DUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
Og ávalt hreinir. llitaeining, ný
uppfynding, sparar eldivlö,
heldur hita.
KELl.Y SVEINSSON
Sími 54 358. .
187 Sutherland Av'e., Winnipeg.
S. O. BJERRING
Canadian Starnp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipeg
hryðjusögunum þaðan að aust- höfum beðið um í öllum kosning
an, vildi ég þó ekki eiga á hættu um ^ Sambandsþings í þessu
’ I landi, dg' eins hefir það verið
sunnan landamæranna. — Með
öðrum orðum, við í þessari álfu
vesturlandinu, á ég bágt með að
trúa, að menn og konur í þessari
byggð, sem ég hefi flest þekkt
frá blautu barnsbeirii og aldrei
nema að öllu góðu, mundu gjöra
sig að leppum þeirra, ættlerum
og föðurlandssvikurum. Ekki
trúi ég því. Samt, vinir mínir,
er það ekki um seinann að þið
farið að ráða það við ykkur hvar
þið ætlið að standa undir þess
háttar kringumstæðum.
Þegar okkur langar til að
skifta um eitt og annað eða
breyta til, ættum við nákvæm-
lega að athuga og yfirvega kosti
og galla þess sem við viljum
losna við, áður en við köstum því
á glæ.
Hugsum okkur að svo ólíklega
eyrna og axla.
Ekki svo að skilja, að ég telji
mig óhultan hér í Kanada, langt
frá því, því hér eru framin morð
árlega, en við höfum lögreglu
sem vanalega hefir upp á þeim,
sem glæpina fremja, og það ger-
ir minstan mun, hvort hinn
sakborni er hátt eða lágt settur
í mannfélaginu, því það er eng-
inn í þessu landi yfir það hafinn
að lúta úrskurði tylftardómsins.
Þessu frelsi og þessum og öðr-
um réttindum, vil ég ekki skifta
fyrir fullann maga og hlýja í-
búð undir einræði, heldur vil
ég halda áfram undir núverandi
.fyrirkomulagi og bíða þangað til
fólkið sansast fevo, að það stofn-
setji jafnrétti, sem aðeins getur
átt sér stað og kallast því nafni,
undir lýðveldisstjórn.
Um og eftir fyrra stríðið
sluppu okrararnir furðanlega,
en ósanngimi þeirra og græðgi
fæddu þó af sér nýja hreyfingu
í þessu landi, sem bezt þekkist
undir stöfunum CCF, sem ég er
sannfærður um að verður þeim
að falli fyrr eða síðar, enda er
þeim farið að óra fyrir þeim
degi, því nú eru þeir farnir að
kalla okkur bræður kommúnist-
anna, og svo segja þeir líka að
við séum Fasistar inn við bein-
ið. Ofbeldi þeirra, gróðafíkn og
vitleysa, um og eftir þettað síð-
ara stríð, hafa gengið svo langt,
að fjöldinn er óðum að vakna til
meðvitundar um að hann hafi
einhvern rétt á sér, ■ og úrslit
næstu kosninga til sambands-
þings sanna orð mín nú.
Það sýnast vera ótal ástæður
fyrir því að jafnréttis hreyfing-
unni þokar svo hægt í áttina. M.
a. erum við svo gjörn á að hljóða
í hvert skiftið sem stígið er á
tærnar á okkur, en gleyma því
svo jafnskjótt og sárindin
minnka. Líka erum við hörund-
sár yfir að vera kölluð stakka-
skiftingar eða “Turncoats”. Okk-
ur bara skilst ekki, að engar
framfarir geta átt sér stað, án
>ess við breytum um skoðanir.
Og svo er þessi speki ríkjandi
íjá mörgum: Langafi minn var
Conservative, afi minn var Con-
servative og faðir minn var
Conservative. Hvað annað gæti
ég verið enn Conservative? Þáð
sem var nógu gott fyrir þá, ætti
að vera nógu gott fyrir mig. Og
svo er svo fyrirhafnarlítið að
hlaupa yflr ýmislegt það, sem
lifum undir ómenguðu lýðræði,
sem við höfum aldrei fært okk-
ur í nyt, að undantekinni okkar
fámennu Saskatchewan.
Hér í þessu fylki höfum við
að mínu áliti, beztu stjórn í
Kanada, þó hefir þeim, sem völd-
in hafa, orðið harla lítið ágengt,
því flestar breytingar sem þeir
hafa reynt að gjöra í jafnréttis-
áttina, hafa komið í bága við
British North-America Act., svo
Privy Council á Englandi hefir
vanalega dæmt Sambandsstjórn
inni í vil, og sjálfsagt réttilega
svo, því það er ólíklegt að það
skjal hafi verið dregið upp með
jafprétti til hliðsjónar.
Bráðum verða kosningar hér í
Saskatchewan, og öllum fylgj-
endum C. C. F. er það full-ljóst
að öll árans öfl hafa samtök með
sér að koma stjórninni fyrir
kattarnef, við höfum engann
kosningasjóð, svO það er algjör-
lega upp til fólksins hvort það
stendur nú stöðugt, eða lætur
leiða sig á ný..
Mér þykir ólíklegt að kjósend-
ur í þessu fylki séu svo gleymn-
ir og leiðitamir að þeir greiði ]
meirihluta atkvæða fyrir tals-
menn okrararanna, en fjöldan-
um hefir aldrei verið treystandi I
og er það ekki enn, það væri
hastarlegt tjón, ef Saskatche-1
wan-stjórnin — þessi litli vísir
af mannréttindum og bróður— I
kærleika — ætti það eftir, að
vera troðin ofan í skarnið.
J. S. Thorsleinsson. ]
Wynyard, Sask.
Office Ph. 95 668 Res. 404 319
N0RMAN S. BERGMAN, B.A..LL.B.
Bai rister, Solicltor, etc.
617 Mclntyre Block
WINNIPEG CANADA
Also
* 123
TENTH ST.
BRAN00N
Winnipeg
H. J. STEFANSSON
IAfe, Accident and Health
Insurance
I
Representing
THE GREAT-WEST LIFE
ASSURANCE COMPANY
Winniiieg, Man
Phone 96 144
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Honie Telephone 202 398
Taieími 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrastHngur i augna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutimi: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
SérfrœSingur í augno., eyma,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 93 851'
Heimaslmi 403 794
Gufuvirkjun í Hengli
Fyrir dyrum standa ítarlegar.
jarðlagarannsóknir í Henglafjöll
um og nágrenni þeirra vegna
fyrirhugaðra jarðborana og
gufuvirkjunar.
Henglasvæðið mun vera eitt
stærsta jarðhitasvæði landsins,
sem til greina kemur við virkj-
un, og hafa mælzt 210—215 hita-
stig á 200 m. dýpi í borholu við
Reykjaholt, sem er mesti jarð-|
hiti, sem enn hefir mældur ver-
ið á íslandi.
Sótt hefir verið um gjaldeyris-
og innflutningsleyfi fyrir full-
komnum gufubor til þessara
rannsókna.
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
Fólk getur pantaC metSul og
annaC meC pósU.
Fljðt afgreiCsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur llkkistur og annast um ttt-
tarlr. Allur útbúnaCur sfi bezö.
Ennfremur solur hann allskonar
mtnnisvarCa og legsteina.
Skrifstofu talsimi 27 324
Keimilis talslmi 26 444
Geo. R. Waldren, M. D.
Physician and Surgeon
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent 1 póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, emu vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐM UNÓSSON
HOLTSGATA 9, REYKJAVIK
Cavalier,
Offico Phone 95.
N.
PH.ONE 87493
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 7 VINBORG APTS.
594 Agnes SL
ViCtalstlmi 3—5 eftir hAdegi
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office hrs. 2.30—• p.m.
Phones: Office 26 — R«*.
23*
Offioe Phone Res Phone
94 762 72 40»
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
PHONE 96 952 WINNIFBO
Dr. Charles R. Oke
TannUeknir
For Agpointments Phone 94
Office Hours 9—í
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
283 PORTAGE AVB.
Winnipeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 34 556
For Quick HeHahle Bervioe
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPO.
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega. peningalán og eldsö.byrgO.
blfreiCaábyrgC. o. s. frv.
PHONE 87 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœSingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Slmi 98 291
gundry pymore
Limited
British QuaUty Flsh Netting
58 VICTORIA ST„ WTNNIPEG
Phone 98 211
Manager T. R. TBORVALDBOV
Your patronage wlll be appreclated
CANADI AN fish
PRODUCERS. LTD.
J. H. PAGE, Managing Mreator
Wholesale Distributors of Fra«h
and Frozen Fiah.
311 CHAMBERS 8TREET
Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. T8 91T
D.
House 108.
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SlMl 95 2 2T
Wholesale Diatributors of
FRESH AND FROZEN FISH
PHONE 94 686
H. J. H. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
506 CONFEDERATION LIFE
BUILDING
Winnlpeg, Canada
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch. framkv.stj.
Verzla I heildaölu meC nýjan og
froslnn fisk.
303 OWENA STREET
Skrifst.slmi 26 355 , Heima 66 46*
Phone 49 469
Radio Service Specialists
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELSON. Prop.
The most up-tö-date Sound
Etiuipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPEO
H HAGBO RG FUEL CO. H
•
Dial 21331 JgPfh 21 331