Lögberg - 03.05.1948, Side 1
»
PHONE 21 374
uvvVte'
rleft1
,nCTS
61. ÁRGANGUR
A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374
lotA
d
CXettT'
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 3. MAÍ, 1948
''derttTS
Ctttt \ Complele
Cleaning
Inslilulion
NÚMER 19
Landstjórinn
í Canada heimsœkir
Winnipeg
Um síðustu helgi kom í heim-
sókn hingað til borgar land-
stjórinn í Canada, Alexander
vísigreifi af Tunis, ásamt frú
sinni; á járnbrautarstöðinni tóku
á móti hinum tignu gestum
fylkisstjórinn í Manitoba og frú,
ásamt yfirmönnum fastahersins
hér um slóðir; skoðuðu land-
stjóra-hjónin borgina og þótti
hún harla vistleg; fanst land-
landstjóra mikið til um það, hve
borgarbúum hefði tekist vel til
um það, að verjast flóðhættunni,
sem steðjað hefir undanfarandi
að borginni.
Landstjóra-hjónin ráðgerðu að
ferðast um vesturlandið, því
sem næst mánaðartíma.
Fjárhagsleg viðreisn
Ameríska tímai;itið , News-
week lét þess nýlega getið, að
stjórnarvöld Bandaríkjanna
væru að undirbúa áætlun um
fjárhagslegan stuðning við Jap-
an á hliðstæðan hátt og Mars-
hallhjálpina við þjóðirnar í vest-
urhluta Evrópu; er talað um
hálfa aðra biljón dollara í þessu
augnamiði; virðast amerísk
stjórnarvöld þeirrar skoðunar,
að innan þriggja til fimm ára
ætti japanska þjóðin að verða
komin sæmilega á laggirnar í
fjárhagslegum skilningi. Nefnd
amerískra fjármálafræðinga og
iðjuhölda, mun leggja af stað til
Japan áður en langt um líður,
til þess að gerkynna sér ástæður
í landinu og gera tillögur um
hvernig aðstoðinni bezt verði
hagað. —
SUMARVlSUR
Kom þú blessuð, gyðja lífs og líkna,
leystu klakafjötur — dæmdu sýkna
kuldans fanga alla, ef þú getur,
eftir langan stríðs- og þrautavetur.
Þú ert ársins allra kærsti gestur,
ylur þinn er græðilyfja beztur.
Leystu fjötra andlegs frosts og ísa:
“innra manninn” lát á fætur rísa.
Er sem vakni flest af svefni sínum,
sé það snert með töfrasprota þínum:
Þá er eins og þrautasárin græðist,
þá er eins og lífið endurfæðist.
Þig við biðjum alt að ylja heima
Ættjörðinni væri synd að gleyma.
Henni glæddu hlýja vermistrauma,
henni fæddu nýja vökudrauma.
Mintu hana’ á sigurvinning sína,
sýndu henni stefnu og aðferð þína.
-Aðrar þjóðir stríðsins listir læra,
lögmál drottins alt úr skorðum færa.
♦
Engin vörn er ennþá bezta vörnin:
Ennþá myrða fæstir hlutlaus börnin. —
Öllum kendu’ að kasta vopnum sínum,
kendu þeim að beita tökum þínum.
Gunnlaugur
Jóhannsson látinn
Síðastliðinn laugardag lézt að
heimili sínu 575 Burnell Street
hér í borginni, Gunnlaugur Jó-
hannsson fyrrum kaupmaður,
freklega áttræður að aldri,
fæddur á Skeggjastöðum í Mið-
firði í Húnaþingi 13. september
árið 1867. Hann kom um tvítugs
aldur af íslandi og var búsettur
í Winnipeg í nálega 60 ár. Gunn-
laugur var hinn mesti atorku-
maður, greindur vel og sérlega
félagslyndur; hann tók um langt
skeið virkan þátt í bindindis- og
safnaðarmálum, og gekk jafnan
heill og óskiptur til verks.
Gunnlaugur var þríkvæntui;
með fyrstu konu sinni, Guðnýju
Stefánsdóttur, eignaðist hann
eina dóttur, Guðrúnu, sem nú
stundar hjúkrunarstörf í Saska-
toon; miðkona hans var Guðrún
Johnson, og með henni eignað-
ist hann einn son, Harald efna-
fræðing í Montreal; þriðja kon-
an, Rósa Magnúsdóttir, stundaði
mann sinn síðasta áfangann á
enda af mikilli prýði og ástúð.
•
Gunnlaug lifá tveir bræður
hans, Ásmundur P. Jóhannsson,
byggingameistari í þessari borg,
albróðir, og Halldór, hálfbróðir,
sem búsettur er á Hvammstanga
í Húnaþingi.
Útför Gunnlaugs fór fram frá
Fyrstu lútersku kirkju á þriðju-
daginn, að viðstöddu afar-
miklu fjölmenni; kveðjumái
fluttu þeir séra Eiríkur S.
Brynjólfsson og séra Rúnólfur
Marteinsson, en Mrs. Lincoln
Johnson söng hina fögru Kvöld-
bæn Björgvins Guðmundssonar,
“Nú legg ég augun aftur”.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Miss Barbara Johnson
Islenzk stúika ráðin til að sýna skautaíþróttir
Þegar list-skautaflokkurinn i Barbara mun fara suður aftur í
Bæði börn hins
viðstödd útförina.
látna voru
Ice Cycles kom hingað fyrir
skömmu, vakti þessi 17 ára
gamla stúlka athygli hans, vegna
þess hve hún bar af í skautaí-
þróttinni. Hún var þegar ráðin
til að ferðast með flokknum og
er nú nýfarin til Edmonton og
ferðast þaðan með flokknum
víðsvegar um Bandaríkin. Síð-
asta sýning Ice Cycles þetta ár,
verður 31. maí í San Diego, en
September til Dallas, Texas, en
þar æfir flokkurinn sig fyrir
1949 skautaíþróttasýningarnar.
Barbara er dót-tir Mr. og Mrs.
J. J. Johnson, 684 Simcoe Str.;
hún er útskrifuð frá Daniel
Mclntyre skólanum. Barbara
hefir unnið Canadian Figure
Skating Association medalíuna
fyrir dans og íþróttir á skautum.
Spáir grimmri
orrahríð
Forsætisráðherrann í Saskatc-
hewan, T. C. Douglas, komst ný-
verið svo að orði í tilefni af
næstu fylkiskosningum, sem þar
eru í aðsígi:
“Eg er alveg sannfærður um
það, að næstu fylkiskosningar í
Saskatchewan, verða þær heit-
Ustu og harðsóttustu, sem Cana-
da hefir upplifað.
“1 fyrsta sinn í sögu Norður-
Ameríku, lánaðist það, að kjósa
fólksstjórn í þessu fylki, er sýnt
hefir í framkvæmd hverju ein-
huga vilja kjósenda fær áorkað,
sé honum ekki bundinn fjötur
fót. Auðvaldið veit, að ann-
aðhvort verður að kyrkja þessa
stjórnmálavakningu okkar nú
þegar, eða það muni aldrei tak-
ast”. _
Frú Jakobína
Johnson boðin
til Íslands
öreyting póstflutninga
Samkvæmt fregnum frá Ott-
awa þann 28. apríl, s. 1., verður
^eiri hluti fyrsta flokks pósts í
þessu landi fluttur loftleiðis, frá
h júlí næstkomandi að telja; —
samningar þessu viðvíkjandi,
hafa nýlega verið fullgerðir milli
Póststjórnarinnar og Trans
Canada flugfélagsins.
Skáldkonan þjóðkunna, frú
Jakobína Johnson í Seattle, hefir
verið boðin til íslands í sumar,
og mun nú afráðið, að hún sigli
frá New York á vegum Eimskipa
félags íslands þann 6. júní næst-
komandi; þetta er í annað skipt-
ið, sem frú Jakobínu hefir verið
boðið heim, og má víst telja, að
hún hafi engu minni unað af
seinni heimsókninni en hinni
fyrri. —
Frú Jakobína hefir eigi aðeins
auðgað íslenzkar bókmentir
með mjúkstrengjuðum, frum-
sömdum ljóðum sínum, heldur
hefir hún einnig unnið íslenzku
þjóðinni ómetanlegt gagn með
snildarlegum þýðingum sínum
af íslenzkum úrválsljóðum og
leikritum á enska tungu; í þeim
efnum er hún hreinn og beinn
brautryðjandi.
Enn í fararbroddi
Við nýafstaðnar prófkosning-
ar í Pennsylvania-ríkinu, fékk
Harald E. Stassen, fyrrum ríkis-
stjóri í Minnesota, mest at-
kvæðamagn sem forsetaefni
Republicana; næstur honum
kom Thomas Dewey ríkisstjóri í
York.
Heiðurssamkvæmi
Á laugardaginn 1. maí hélt
Kvennasamband Hins samein-
aða kirkjufélags, tesamkvæmi
til heiðurs Mrs. R. E. Kvaran, í
University Womens’ Club, 54
Westgate. í móttökuröð með
heiðursgestinum voru þær Mrs.
S. E. Björnson, Mrs. Ólafur Pét-
urson og Mrs. P. S. Pálsson en
við kaffiborðið skenktu Mrs. R.
Péturson, Mrs. G. Árnason, Mrs.
Philip M. Péturson og Mrs. J. B.
Skaptason. — Mrs. S. E. Björns-
son ávarpaði heiðursgestinn og
mintist starfs hennar í þágu sam-
bandsins og margra ánægju-
legra samverustunda þegar hún
dvaldi hér vestan hafs með
manni sínum, séra Ragnari
heitnum. Kvaran; og afhenti
hún Mrs. Kvaran gjöf fyrir hönd
Sambandsins í minningu um
heimsóskn hennar. Mrs. Kvaran
þakkaði vináttuhuginn og gjöf-
ina með nokkrum hlýjum orð-
um.
Samkvæmi þetta var fjölment
sumar konurnar komu langt að
og nokkrar utanfélags konur
voru boðnar; samkvæmið var
hið ánægjulegasta í alla staði.
Mrs. Kvaran fór suður til
Minneapolis á þriðjudaginn og
dvelur þar í sumar hjá dóttur
sinni og manni hennar Mr. og
Mrs. Jón Björnson, en gerir ráð
fyrir að hverfa aftur til Islands í
haust. Heimsókn Mrs. Kvaran
var hinum mörgu vinum hennar
hér ánægjuefni og hugheilar
árnaðaróskir fylgja henni
braut. I. J.
Hafís landfastur fyrir
Vestfjörðum
í morgun
Enn óvíst uxn, hversu mikinn ís
er að ræða.
Þær fregnir bárust í morgun
vestan af fjörðum, að hafís hefði
rekið þar að landi í nótt. Virð-
ist hann hafa komið af hafi utan
nú í norðangarðinum, þar eð ekk
ert hefir orðið þar vart við ís á
slæðingi áður. Ekki er þó enn
unnt að segja, hversu mikil
brögð eru að ísnum.
Samkvæmt fréttum frá Galtar
vita norðan Súgandafjarðar var
ís orðinn landfastur þar klukkan
níu í morgun. Ekki verður þó
um það sagt á þessu stigi, hvegrsu
mikinn ís er um að ræða, því að
skyggni er vont, kafaldságang-
ur og renningstormur.
Einnig hafa borizt ísfregnir
frá Horni. Er sagt, að töluvert af
ís sé við bjargið og út af víkinni.
Illa sést til hafsins, svo að ekki
verður um það sagt, hversu mik-
il brögð eru að ísnum.
Fátt er um skip úti af Vest-
fjörðum, svo að ekki hafa borist
fréttir af sjó. Goðafoss mun
ekki hafa verið kominn, nema til
Þingeyjar í morgun.
Tíminn, 5. apríl.
Hlotnast makleg
sœmd
Séra Rúnólfi Marteinssyni
hefir borist tilkynning þess efn-
is frá Gustavus Adolphus College
í St. Peter, Minn., að sú gagn-
merka stofnun hafi ákveðið að
sæma hann heiðurs-doktors-
gráðu í guðfræði við uppsögn
skólans, sem fram fer þann 30.
þ. m. —
í tilkynningunni frá áminstum
skóla til séra Rúnólfs, er þess
getið, að skólanum hafi verið
hugarhaldið um það, að sýna
íslenzka, lúterska kirkjufélag-
inu virðingarvott, og hafi þá, að
rannsökuðu máli, komist að
þeirri niðurstöðu, að slíkum til-
gangi yrði bezt náð með því, að
kjósa hann að heiðursdoktor.
Séra Rúnólfur lauk stúdents-
prófi við áminstan skóla, og þar ar
nutu einnig margir aðrir merkir
íslendingar mentunar.
Lögberg mun rita ítarlegar um
séra Rúnólf, er hann hefir veitt
doktorsskírteini sínu viðtöku.
Virðulegt
samkvæmi fyrir
eldra folkið
Á laugardaginn 1. maí efndi
djáknanefnd Fyrsta lút. safnaðar
fyrir hönd safnaðarins, til mið-
degisverðar til heiðurs hinu eldra
fólki, og jafnframt til þess að
gefa því samverustund með séra
Eiríki Brynjólfssyni og frú Guð-
rúnu áður en þau hverfa heim
til ættlandsins.
Konurnar í djáknanefndinni,
þær Mrs. C. Ólafsson, Mrs. H. G.
Henrickson, Rannveig M. Bardal,
Mrs. Fred Thordarson, Mrs.
Guðrún Magnússon og Mrs. G.
K. Stephenson framreiddu á-
gæta “Turkey”-máltíð.
Forseti djáknanefndar, Mr. A.
G. Eggertson, K. C., var sam-
kvæmisstjóri; séra R. Marteins-
son flutti borðbæn. Til máls tóku
Mr. S. O. Bjerring, heiðursfor-
seti nefndarinnar og Mr. W. H.
Olson, lífstíðarfélagi nefndar-
innar. Dr. Sigurður Júlíus Jó-
hannesson flutti frumsamið
kvæði en Mrs. Pearl Johnson
skemti með söng. Séra Eiríkur
flutti undurfagurt erindi um
ýmsa staði á íslandi og náttúru-
fegurð þeirra, um ferðina vestur
og margt fleira. Að lokinni mál-
tíð og skemtiskrá gafst fólki
tækifæri til að ræða við prest-
hjónin og aðra vini. Yfir sam-
kvæminu hvíldi blær yndislegs
samræmis og barnslegrar gleði.
Um hundrað manns sátu þetta
boð og mun Mrs. G. K. Stephen-
son hafa leitað uppi og komist í
samband við flesta boðsgestina
til þess að bjóða þeim í veizluna
Auk þess fólks, sem þegar hefir
verið getið, eiga sæti í nefndinni
þeir Mr. Fred Bjarnason, Mr.
Hannes Hannesson og Mr. Ed-
ward Eggertson; munu þeir á-
samt öðrum góðum mönnum,
hafa séð þeim, er óskuðu þess,
fyrir bílflutningi á staðinn.
Þetta er í fyrsta sinn að djákna
nefndin hefir staðið fyrir sam-
kvæmi af þessari tegund; hug-
myndin er falleg og mun vafa-
laust mælast vel fyrir.
Til lítils barist
MORGUN BLÆR
Eftir Sigurjón Friðjónsson:
“Nú andar suðrið
sæla”.
J. H.
Líður nótt.
Léttir skugga
morgunn af sveit og sjó.
Roðar mildi
rísandi dags
hlíð og heiðalönd.
Limi bjarkar
og bláu sundi
heilsar hlýjublær.
Lækur kliðar
með leiftur á kinn.
Elfur við fjallahlið.
Vorboði ljúfur
og léttstíg bára
rétta hendi hönd.
Horfa úr holti
hjarðsveinn og mey.
Röðull af bjartri brún.
Senda Ijúflingi
sumartíða
kveðju’ yfir ár og öld
móðir og börn
margra veðra.
Öll af sama sinni.
Bracken-menn og C.C.F.-sinn-
báru eigi alls fyrir löngu
fram, hvor fylkingin í sínu lagi
tillögu til vantrausts-yfirlýsing-
ar á hendur sambandsstjórninni
vegna afstöðu hennar til farm-
gjaldamálsins, sem vakið hafði
megna óánægju í landinu eins
og glegst kom í ljós við það, að
sjö forsætisráðherrar fylkjanna
mótmæltu hækkuninni og fóru
allir til Ottawa í því augnamiði
að reyna að koma fram leiðrétt-
ing mála, þó enn sé ei kunnugt
um árangur; en hvað, sem um
það er, var auðsjáanlega til lít-
ils barist fyrir áminsta andstöðu
flokka stjórnarinnar, því báðar
tillögurnar voru feldar með all-
miklu afli atkvæða; aðeins einn
Liberalþingmaður greiddi at-
kvæði á hlið stjórnarandstæð-
inga. —
Morgunþeyr
mjúkum höndum
þerrar dögg í dal.
Lokka greiðir
við Galtará
fögur sumarsól.
Stígandi.
“Hamarinn” vekur
mikla athygli
Einkaskeyti frá Akureyri.
Leikritið “Hamarinn” eftir
Jakob Jónsson var leikið á laug-
ardags- og sunnudagskvöld við
húsfylli áhorfenda og urðu marg
ir frá að hverfa síðara kvöldið.
Leikuririn vekur mikla athygli.
— HAFR —
Alþýðubl., 13. marz.